Dagur - 13.01.1965, Síða 8
}KSx£<í><jKSx$x$xíx$K3>3>^xSxS«$xíx3x$x$>^KSx^x$x^x$x$x$><$xg^>^<íxSxSxSx$x?xSxSx5 Sxí><í^xí>^xí><J>^xSxSxg«Sxí><í>^x?>^Sx?xíxjxíK?x?x?xSx$x?xSi
3>
SMÁTT OG STÓRT
Munkarnir á Möðruvöllum. Æfing hjá LA — (Ljósm. N.H.)
j><JxJxJX$X?XÍ>^X$xJxí>^XÍxJxJx^<ÍX$xSX^<3X?X$xJX$XÍX$X$>^X$XÍXÍx$X$X^<$XjX$XjXÍxJxJxíXsX$X$XeX$xJxS>^X?xjK$X$Xj>^X5x$X$X$XÍX$XÍX$XÍ>^XÍX^XÍ>^X
BLAÐIÐ hefur haft spurnir af
því, að nokkur félagasamtök í
bæ og nágrenni hafi hug á að
efna til bindindisviku síðar á
þessum vetri. Þau félög, sem
nefnd eru í þessu sambandi eru:
Templarar, Æskulýðsfél. kirkj-
unnar, Æskulýðsráð, Bindindis
félag ökumanna, íþróttabanda-
lagið, Skátar, Ungmennasamb.
Eyjafjarðar og áfengisvarnar-
nefndir.
Flestir þessir aðilar undir-
bjuggu, ásamt Þingeyingum,
hina merkilegu tilraun um vín
lausa fjöldasamkomu í sumar
í Vaglaskógi. Sú tilraun gafst
svo vel, að hinir bjartsýnu
höfðu ekki búizt við svo góðum
árangri. Þar kom í ljós, að þús-
nndir manna og af þeim veru
legur hluti, sem ekki er við
hófsemi kenndur í áfengismál-
um, kaus að dvelja í skóginum
og ganga undir þær reglur, sem
þar voru settar.
Reynslan úr Vaglaskógi er
sennilega höfð í huga hjá þeim
félögum, sem nú hugleiða bind
indisviku á Akureyri. En fleiri
aðilar en áður voru nefndir
þurfa að styðja bindindisviku í
bænum, ef vel á að takast. Má
þar fyrst nefna bæjarfélagið
sjálft, þá danshús og vínveit-
ingastaði, kvikmyndahúsin og
síðast en ekki síst hina almennu
borgara.
Ef óstaðfestar fregnir um bind
indisviku á Akureyri verður
staðreynd, mun , almenningur
fagna henni og styðja hana □
FRÁ BÆJARSTJÓRN
r
Aætlanir um dráttarbraut á Akureyri
HAFNARNPTND Akureyrar
kom saman til fundar 21. des.
sl. og tók fyrir áætlanir um
byggingu nýrrar dráttarbrautar
á Aku’reýri. í fundargerð nefnd
arinnar er þetta bókað.
„Lagðar voru fram frumtil-
lögur og áætlanir um byggingu
nýrrar dráttarbrautar á slipp-
svæðinu. Þessar áætlanir eru
gerðar af Páli, Lúðvíkssyni, véla
verkfræðingi og Ágústi G. Sig-
urðssyni, skipatæknifræðingi.
Áætlanir eru gerðar um 6
mismunandi gerðir af dráttar-
brautum.
Allir vegir
NÚ HEFUR færð á vegum
spillst aftur víða um land. All
mikil snjókoma, með fremur
vægu frosti, var í gær og fyrra
dag og er nú svo komið að nær
allir vegir frá Akureyri um
Thor Thors ambassa-
dor látinn
Á mánudagsmorguninn andað-
ist Thor Thors ambassador í
Washington 61 árs að aldri.
Hann varð aðalræðismaður Is
lands í Bandaríkjunum 1940, og
sendiherra árið eftir, ambassa-
dor frá 1955 og jafnframt sendi-
herra í Kanada, Kúbu, Brasilíu
Argentínu og Mexíkó. Hann var
fulltrúi íslands hjá Sameinuðu
þjóðunum frá 1946.
héraðið eru lokaðir, nema
stærstu bílum með drifi á öllum
hjólum.
Áætlunarbíllinn frá Dalvík
var 51/2 klukkustund til Akur-
eyrar í gær. Á þeirri leið var
erfiðasti kaflinn frá Dalvík að
Fagraskógi. Mjólkurbílunum
gekk yfirleitt illa og úr sumum
hreppum kom engin mjólk.
Ætlunin var að Vegagerðin að
stoðaði flutningabíla yfir Öxna-
dalsheiði í gær, en vegna ó-
færðar og ótryggs veðurútlits
var horfið frá því. Ráðgert er
að hjálpa bílum yfir heiðina á
þriðjudögum og föstudögum ef
aðstæður leyfa.
Guðmu.ndur Benediktsson
vegaverkstjóri sagði við blaðið
í gær, að þó upp stytti, yrði ekki
farið í að hreinsa vegina, neldur
reynt að laga til þar sem verst
væri.
Snjóþungt er orðið í Skaga-
firði og Húnavatnssýslu og í
gær var Holtavörðuheiði ófær.
Allar þessar áætlanir ná ein-
ungis til sjálfra mannvirkjanna
við dráttarbraut, en ekki til
undirstöðubygginga né frágangs
á landi á svæðinu, sem fer und
ir slippinn og tilheyrandi mann
virki.
Gert er ráð fyrir að hægt sé
að taka upp ca. 450 tonna skip
með hliðarfærslum fyrir 10 skip.
Hafnarnefnd felur Skafta Ás-
kelssyni að sjá um áframhald
andi nauðsynlegan undirbúning
á bygingu nýrrar dráttarbraut
ar og verði undirbúningi hrað-
að eins og hægt er.“
Síðar í mánuðinum kom svo
hafnarnefnd aftur saman, til við
ræðna um sama efni. Mætti þar
einnig Aðalsteinn Júlíusson vita
málastjóri og skýrði ýmis atriði
varðandi þetta mál og ennfrem
ur var rætt um hafnarmannvirki
bátakví og hafskipabryggjur.
ÆVISAGA HANNESAR
HAFSTEIN
Krist'án Albertsson hefur nú
lokið við ævisögH Hannesar
Hafsteins og kom þriðja bindi
sögunnar út seint á síðasta ári.
Þetta er mjög læsilegt rit og
vekur fólk til umhugsunar um
stjórnmálamenn og flokkabar-
áttu um síðustu aldamót og á
fyrstu tugum tuttugustu aldar.
Samt verður að hafa það í
huga, að ævisagan er fyrst og
fremst skrifuð út frá sjónar-
armiði „söguhetjunnar“, en
ekki þarf það að ríra gildi henn
ar, enda koma líklega síðar út
ævisögur, skrifaðar út frá öðr-
um sjónarmiðum.
Líklegt má telja, að dr. Val-
týr Guðmundsson sé brauíryðj-
andi nútíma flokkastarfsemi
hér á landi, og þess hugsunar-
liáttar, sem henni fylgir. At-
liugavert er, að menn voru
sýnilega miklu lausari í flokk-
unum en nú gerist. Flokkar
voru skammlífir og margir fóru
milli flokka. Barátan var per-
sónulegri og oft óvægnari en
nú gerist. Það voru mismun-
andi leiðir í viðureigninni við
Dani, sem aðalega skiptu mönn
um í flokka, en þarna leyna
sér þó ekk þungir undirstraum-
ar annars eðlis.
ÁTOKIN í HEIMASTJORN-
ARFLOKKNUM
Athyglisverðasti þáttur þriðja
bindis fjallar um átökin í Heima
stjórnarflokknum móti Hannesi
Hafstein og Lárusar H. Bjarna-
sonar. Hannes sanuli við menn
í andstöðuflokknum um „bræð-
inginn“ svonefnda, án vitundar
Lárusar, sem var þó formaður
flokksstjómar. Lárus hvarf
skömmu síðar af stjórnmála-
sviðinu, stóð síðast fáliðaður
uppi. í þessu sambandi rifjast
upp, það sem Jónaa Jónsson
ritaði um L. H. B. látinn, á
fjórða tug aldarinnar. Hann
segir þar, að sér liafi fyrrum
sýnst L. H. B. liöfði hærri en
aðrir menn, svo mjög hafi sér
fundizt til um hæfileika hans
og atgervi. Þó var ógæfa hans
í stjómmálum, segir Jónas Jóns
son, að hann beið þess ekki, að
hann væri til sætis leiddur.
Svipinynd frá jólafagnaði Hjálpræðishersins fyrir aldrað
fólk að Bjargi 27. des. — (Ljósm.: N. H.).
Á SLÓÐUM JÓNS SIG-
URÐSSONAR
Fyrir þrem árum kom út önn
ur bók um stjómmálasögu, sem
ekki síður athyglisverð en ævi
Hannesar. Það er bók Lúðvíks
Kristjánssonar, sem hann
neíndi „Á slóðum Jóns Sig-
urðssonar“. Við lestur þeirrar
bókar komast nútímamenn
töluvert nær Jóni Sigurðssyni
og samtíð hans, en áður hefur
verið unnt. Þetta er lifandi bók,
þótt vera megi, að hún sé ekki
eins læsilcg og rit K. A„ enda
af annarri gerð. Persónur eru
margar og af ýmsu tagi innan
lands og utan. Þó fór fjarri, að
öll þjóðin væri skrifandi á 19.
öld. Þá voru samt skrifuð fleiri
og miklu lengri sendibréf en
nú, er því nafni mega nefnast.
Nokkrar sendibréfabækur frá
19. öld hafa veéið gefnar út í
seinni tíð. Og sendibréfin eru
aðalheimild L. K. um Jón Sig-
urðsson, líf hans og starf.
ÚTIGANGSHESTAR
Blaðinu var frá því sagt í
gær, að í bæjarlandinu væru
enn hross á útigöngu og orðið
haglaust. Ekki verður hér um
það sagt, hvort þetta sé rétt, eða
að hve miklu Ieyti. En á hitt er
þörf að benda, án ádeilu, að
hestaeigendur þurfa nú, eins og
jafnan áður, að fylgast með úti-
gangshrossum, og mun þess full
þörf, þegar svo viðrar, sem nú
hefur gert um skeið. Og athug-
andi er, að bæjarhagar em
snöggir og lítið þar að hafa þótt
til jarðar náist.
KAUPSTADIRNIR KEPPA
Margir hafa gaman af þætti
útvarpsins, „Kaupstaðirnir
keppa“, og er þessi þáttur ef-
laust vinsæll meðal hlustenda.
Jafnan er úr vöndu að ráða er
velja skal keppendurna, þrjá
fyrir livem kaupstað. En þegar
á hólminn kemur óskar liver og
einn sínum inönnum sigurs.
Fyrir nokkrum dögum keppti
Akureyrarkaupstaður við höfuð
borg landsins og verður keppn
inni útvarpað innan skamms.
Fyrir Reykjavík kepptu: Einar
Magnússon, Páll Líndal og Ein-
ar Pálsson. Fyrir Akureyri:
Grímur Sigurðsson, Steindór
Steindórsson og Gísli Jónsson.
Nýr lögregluþjónn
NÝLEGA hefir bæjarfógeti Ak
ureyrarkaupstaðar sent bæjar-
ráði erindi, þar sem hann ítrek-
ar fyrri tillögu sína um fjölgun
lögreglumanna í bænum, vegna
stöðugt vaxandi verkefni lög-
reglunnar. Taldi hann nauðsyn
legt að nú þegar yrði fjölgað um
þrjá menn í lögregluliðinu.
Bæjarráð gerði þá ályktun,
að við samningu frumvarps að
fj árhagsáætlun fyrir árið 1965,
hefði bæjarráð gert ráð fyrir,
að bætt yrði við einum manni,
í lögreglulið bæjarins og gæti
því ekki lagt til, að frekar verði
fjölgað lögreglumönnum að