Dagur - 30.01.1965, Síða 1
r ■ =!?
Dagur
Símar:
11166 (ritstjóri)
11167 (afgreiðsla)
Dagur
kemúr út tvisvar í viku
og kostar 20 krónur á
mánuði
STARFSMANNA BSRB
í FYRRAKVÖLD samdi kjara-
ráð Bandalags starfsmanna rík-
is og bæja við ríkisvaldið um
6.6% launahækkun til samein-
ingar við júní-samkomulagið. En
BSRB hefur hinsvegar ekki fall
ið frá kröfum sínum um 15%
kauphækkun þá, sem það gerði
i desember sl., eftir að ríkisvald
ið hafnaði samkomulagi um leið
réttingu samkvæmt júnísam-
komulaginu.
Kauphækkun sú, sem nú hef
ur verið samþykkt — þ.e. 66%
— gildir frá 1. okt sl.
Slökkviliðsmaður að störfum.
(Ljósmynd: N. H.)
Vegna rafmagnsskorts verður að flytja inn mik-
ið af ammoníaki til Áburðarverksmiðjunnar
ÞESSA daga er að Ijúka bygg-
ingu þúsund tonna ammoniaks-
geymis við Áburðarverksmiðj-
una í Gufunesi.
Er það kúlugeymir, sem not-
aður verður undir innflutt
ammoníak. Það verður Áburð-
arverksmiðjan nú að kaupa,
■Vegna rafmagnsskorts, ella næði
hún ekki fullum afköstum, sem
eru 24 þús. tonn á ári, þegar
hún er að fullu nýtt.
Tankskip flytur ammoníakið
frá Noregi og kemur fyrsti
farmurinn snemma í næsta
mánuði.
Nýja þúsund tonna kúlugeym
inn í Gufunesi þarf að fylla
mánaðarlega, til dð frhmleiðsl-
an tefjist ekki.
Þróun rafmagnsmálanna hér
á landi er sannarlega umhugs-
unarverð og nú má ekki lengur
við það una, að raforkufram-
kvæmdir fylgi alvki aukinni
neyzluþörf. . Q
Unnið aS sölu kísi
Ef sala framleiðslunnar heppnast hefjast
kvæmdir við Mývatn í Þingeyjarsýslu í sumar
. XÍV /Cv /Tv /ÍV /Cv 1 $X*XÍX*XÍX$XSXÍXSX$><ÍX£><f><3><$X$X$><$><S>4
INNAN skamms verður fundur
haldinn í undirbúningsstjórn
Kísiliðjunnar h.f. með hinum
erlendu stofnendum þess fyrir-
.tækis og e. t. v. einhverjum
þeim, sem vinna að sölu vænt-
anlegrar framleiðslu unnins
kísilgúrs úr botni Mývatns.
Sala kísilgúrs í heiminum er
,í fárra höndum og sennilega
nokkrum erfiðleikum bundið,
að komast á markaðinn. En að
því hefur verið unnið undan-
farið.
Þótt ekki liggi enn fyrir nein
ákvörðun um, hvenær fram-
kvæmdir hefjist við Mývatn,
virðist allt benda til þess, að
þær verði hafnar jafn skjótt og
markaður fyrir framleiðsluna
opnast. En þá er fyrir höndum
mikil vega- og hafnargerð, auk
bygginga við Mývatn. Q
ELDSVOÐI
UM kl. níu s. I. miðvikudags-
kvöld kom upp eldur í íbúðar-
húsinu Lundargötu 4 liér í bæ,
sem er járnvarið, gamalt timb-
urhús, tvær hæðir og kjallari.
Eldurinn kom upp í rishæð
ytri enda hússins, þar sem hjón
in Geir Ingimarsson og
Herborg Káradóttir, ásamt fjór-
NY SKYRSLUFORM
SEND BÆNDUM
SAMKVÆMT ósk Búnaðarfé-
lags íslands hefur verið dreift
út til allra bænda á sambands
svæðinu eyðublöðum undir
skýrslur varðandi búrekstur
þeirra. Eru bændur beðnir að
útfylla þessi eyðublöð og skila
þeim til ráðunauts sambands-
inst Jóns Steingrímssonar eða
formanns sambandsins Ármanns
Dalmannssonar, helst fyrir lok
febrúarmánaðar og eigi síðar en
fyrir marzlok.
Þeim, sem einhverra hluta
vegna þurfa aðstoðar við þessa
skýrslugerð, er bent á að leita
til ráðunautsins, Jóns Stein-
grímssonar, serh verður til við-
tals næsta mánuð á skrifstofu
sinni í Kringlumýri 16 Akureyri
(Framhald á blaðsíðu 2).
LAUNAHÆKKUN
um ungum börnum sínum,
bjuggu. Stóð svo á, að Herborg
var í sjúkrahúsi, en tvö börnin
annarsstaðar og Geir hafði
brugðið sér frá, en fengið kunn-
ingja sinn til að gæta barnanna
á meðan. Þurfti sá er barnanna
gætti, að víkja sér niður í kjall-
ara hússins. Á meðan hann
dvaldist þar, gaus eldurinn upp.
Varð fólk í næstu húsum vart
við eldinn og hringdi í slökkvi-
liðið. Björg Stefánsdóttir Lund-
argötu 3 hljóp yfir í húsið og
voru þá böx-nin að koma niður
stigann af efri hæðinni, þar sem
eldurinn var laus. Hjálpuðust
. hún og maðurinn, sem barn-
anna gætti að, að bjarga þeim
út.
í hinum enda hússins bjuggu
Stefán Eiríksson og kona hans,
Jódís Jósefsdóttir með tveim
börnum sínum. Urðu þau elds-
ins vör í hinni íbúðinni og
heyrðu jafnframt hljóð í börn-
unum. Jódís fór að símanum til
að hringja í slökkviliðið, en
Stefán braut upp hurð, sem var
(Framhald á blaðsíðu 2).
NORÐURLANDSBORINN er enn að verki á Laugalandi á Þelamörk. (Ljósmynd: E. D.) &
<♦>
Hið slórkosllega þorskaævinlýri við
Um þetta leyti eru hundruð milljóna al kyn-
, r, .
þroska fiski á leiðinni að Islandi til að hrvgna
HIÐ árlega og stórkostlega æv-
intýri fiskanna stendur nú yfir.
Þessa daga, fyrirfarandi. daga
og þá næstu streyma- fiskamir í
stórum torfum upp að suður-
og suðvesturströnd landsins í
leit að heitum sjó til að hrygna
í. Þetta sjónarspil er margþætt
og endurtekur sig á hverju ári,
fisktegundimar margar, en all-
ar í sömu erindum, að viðhalda
ættstofni sínum.
Á þessum fiskigöngum lifa
íslendingar að nokkru leyti, og
fiskarnir bregða ekki vana sín-
um þótt íslenzki bátaflotinn sé
að þessu sinni ekki við því bú-
inn að ausa af nægtarbrunnum
hafsins vegna deilna um kaup
og kjör.
Jón Jónsson fiskifræðingur
flutti fróðlegan og skemmtileg-
an þátt um hið mikla „sjónar-
spil“ sem hann kallaði fiski-
göngumar, í fréttaauka fyrir
skömmu. Hann sagði frá því,
að áætlað væri, að fyrstu fimm
mánuði síðasta árs hefðu aflazt
við suðurströndina um 300 þús.
tonn af þorski (ósl. með haus)
og hlutur íslands af þeirri veiði
hefði numið um 80%. Samkv.
meðalstærð þorksins mætti
áætla, að veiðst hefðu um 43
millj. þorska á þessu tímabili.
Þessi fiskur var kynþroska að
meginhluta, sagði fiskifræðing-
urinn.
LANÐHELCIS-
BUJÓTLR TIL
AIÍUREYRAR
í GÆRMORGUN kom varð-
skipið Óðinn til Akureyrar
með Hulltogarann Peter
Scott H—103, 660 tonn, er
tekinn hafði verið að meint-
um ólöglegum veiðum vest-
an við Grímsey.
Varðskipið mældi togar-
ann um 3 mílur innan fisk-
veiðimarkanna, þar sem
hann var með trollið úti. ■
Skipstjórinn, Richard Tylor,
viðurkenndi ekki brot sitt,
og kvaðst vera á opnu hafi.
Eftir tilmælum varðskips-
manna féllst hann þó á að
stöðva skip sitt og koma yfir
í varðskipið, og var togarinn
þá kominn 1.4 mílur út fyrir
fiskveiðimörkin.
(Framhald á blaðsíðu 2).