Dagur - 30.01.1965, Qupperneq 8
8
(Ljósmynd: E. D.)
Samstarfsmenn stoínandans, frá vinstri, Guðmundur, Bergur og Reynir,
■■■
Yfirbyggingar bifreiSa á Akureyri 35 ára
Grísnur Valdimarsson
í nýtt hús vi
FYRIR 35 árum byrjaði. Grím-
ur Valdimarsson að byggja hús
á bíla, fyrst úr tré og voru þá
handverkfæri eingöngu notuð.
Það var seinlegt verk og húsin
urðu „óguðlega dýr“ nema vinn
an væri reiknuð í dagsverkum
og unnið frá kl. 7 á morgnana
til 12 á kvöldin. Grímur byggir
enn yfir bíla, en nú úr stáli,
hefur verkfæri, sem nýtízku
bifreiðasmíði hæfir, og nú er
verkstæðið flutt I ný húsa-
kynni.
Grímur Valdimarsson hóf fyrst
ur iðn þessa á Akureyri og var
þá um að ræða stýrishús vöru-
bifreiða og bílpalla. Og hann
og félagar hans eru þeir einu,
sem iðn þessa stunda nú í þess-
um bæ. Bifreiðasmíði heitir iðn
greinin og felst í henni, að yfir-
byggja hvers konar bifreiðir,
allt frá jeppum til hópferðabif-
reiða. Nú eru tréhúsin úr sög-
unni en stál og aluminíum kom
ið í staðinn.
Húsavíkurleið opnuð
í FYRRADAG mættust snjóýt-
ur þær er unnu að opnun Húsa
víkurvegar, kom önnúr að vest
an, hin að austan. Er nú bíl-
færi gott um Dalsmynni því
Vaðlaheiðarvegur hefur ekki
verið hreinsaður.
Nú er bílfæri gott milli Reykja
víkur og Akureyrar, a.m.k. fyrir
stærri bíla, en á nokkrum stöð-
um töluverð hálka.
og félagar hafa flutt
I Norðurgötu
Nýja verkstæðið er við Norð-
urgötu 55 og er þáð einnar hæð-
ar hús, 13x35 m að stærð, vönd-
uð bygging, björt og hlý. Þar
vinna nú þrír menn með Grími
og hafa nóg að starfa. Tveir
GRIMUR VALDiMAKSSON.
þeirra bifreiðasmiðir, meðeig-
eigendur fyrirtækisins, báðir
nemendur hans, þeir Guðmund
ur Magnússon og Reynir Frí-
mannsson, og Bergur Erlings-
son, sem er nemi.
Nú þarf ekki lengur að
byggja yfir stóra bíla úti í mis-
jöfnum veðrum og er það mik-
ill munur á stavfsaðstöðu. Verk-
stæði þetta byggir yfir ýmis
konar bíla, suma langt að
komna, t. d. alla leið af Snæ-
fellsnesi. Verðið er vel sam-
keppnisfært og blaðinu hefur
verið tjáð af þeim, sem þar
hafa átt viðskipti, að vinnan sé
hin vandaðasta, og mun það
rétt vera.
Blaðamaður hitti þá félaga
að máli á nýja verkstæðinu fyr-
ir fáeinum dögum og sögðu þeir
að oftast væri beðið fyrir fleiri
verkefni en unnt væri að leysa.
Þó ætla þeir, með vorinu, að
víkka starfssvið sitt og fara að
sprauta bíla. Ný tæki af full-
komnustu gerð bíða þess að
vera tekin upp úr kössunum og
notuð.
Það neistaði af rafsuðunni,
þar sem verið var að sjóða stál-
grind á vörubifreið á nýja verk-
stæðinu, og önnur bifreið var
þar í viðgerð. Bifreiðnsmíðin er
fjölþætt iðngrein. Bifreiðasmið-
ir þurfa að kunna rafsuðu, log-
suðu, bólstrun, járn- og tré-
smíði, réttingar, glerskurð og
glerslípun, og enn fremur eiga
þeir að vera færir um að setja
upp raflögn í bílhúsin.
Þegar spurt er um nafn á
fyrirtækinu, kemur í Ijós, að
það tilheyrir liðinni tíð og heit-
ir Trésmíðaverkstæði Gríms
Valdimarssonar, en bendir alls
ekki til verkefna sinna, bif-
reiðasmíði. En þetta bif-
reiðayfirbyggingaverkstæði er
engu að síður ánægjuleg stað-
reynd og blaðið óskar því og
eigendum þess allra heilla. □
4
SMÁTT OG STORT
Á AÐ BYGGJA í SURTSEY?
Ekki virðist en þörf á að byggja
vita á Surtsey því eldgosin lýsa
betur en nokkur viti. En Vest-
mannaeyingar hafa í hyggju að
byggja þar skipsbrotsmanna-
skýli og hefur Björgunarfélag
Vestmanneyinga gert samþykkt
um það.
Eflaust er skipsbrotsmanna-
skýli nauðsynlegt í Surtsey.
Hinsvegar er búseta manna í
eynni mjög óæskileg vegna
þeirra rannsókna um, hvernig
„líf kviknar“ í nýju landi, er
þar eiga sér stað og fylgst er
með af mikilli forvitni.
ÁFENGISSALA Á AKUR-
EYRI 8,5 MILLJ. KR.
Áfengissala á árinu 1964 jókst
enn nokkuð frá fyrra ári, og
meira en því sem nemur verð-
hækkunum. Áfengis- og tóbaks-
einkasala ríkisins seldi áfengi
á árinu fyrir 319,2 millj. kr.,
sem er nál. 42 millj. kr. aukning
frá 1963. íslendingar drukku að
meðaltaii 1,97 Iítra af 100% vín-
anda yfir árið, sem er heldur
meira en árið áður. Víndrykkja
íslendinga er þó ekki mikil, mið
að við drykkju ýmsra annarra
þjóða. Ilinsvegar virðist vín-
neyzlan valda meira tjóni hér á
landi en víðast annarsstaðar,
hvernig ,sem á því stendur.
Á Akureyri seldi Áfengis-
verzlunin vín fyrir röskar 8,5
millj. kr. og er það á þriðju
milljón meira en árið áður.
Auk hinna opinberu talna
um vínsölu hér á landi, er vín-
sala og vínneyzla mun meiri en
tölurnar segja til um, en það er
önnur saga.
AÐGÖNGUMIÐAR FYRIR Á
AÐRA MILLJÓN
Louis karlinn Armstrong er
væntanlegur til Reykjavíkur
fljótlega ásamt hljómsveit sinni.
Nær 4000 manns slógust um að-
göngumiðana og greiddu fyrir
þá 1,25 millj kr. En skemmtanir
með þessum skemmtikröftum
verða aðeins fjórar talsins.
HVAÐ KOSTA BÍLSLYSIN?
Aldrei hafa orðið eins mörg
óliöpp í umferðinni og sl. ár.
Hver smáárekstur kostar mikið
fé í viðgerðum og varahlutum,
hvað þá meiriháttar umferða-
slys.
Tryggingafélögin, sem bezt
mega um þetta vita, hafa látið
blöðunum í té upplýsingar ny
lega, að bótaskyld tjón bifreiða
á síðasta ári muni nema 110
millj. kr., þótt ekki sé það enn
að fullu vitað. En til glöggvun-
ar má benda á, að á s. 1. ári læt-
ur nærri, að þriðji hver bíll í
landinu hafi lent í einhverjum
óliöppum. Auk þess voru svo
banaslysin í umferðinni og
hvers kyns slys á fólki.
Þegar á allt þetta er litið virð
ist auðsætt að það muni
„borga sig“ að verja fjármun-
um til aukinnar umferðarmenn-
ingar og öryggis.
; STÆKKUNIN EKKI UM-
TALSVERÐ
Þegar íslenzk stjómarvöld
leyfðu stækkun sjónvarps-
stöðvar í Keflavík, að Alþingi
forspurðu, var því kröftuglega
mótmælt, enda hin mesta smán,
að innleiða erlent liermanna-
sjónvarp hér á landi. —
Menn minnast útvarpsum-
ræðna um mál þctta. Allir
stjórnarsinnar voru sammála
um það, að stækkun sjónvarps-
stöðvar í Keflavík væri lirein-
asti hégómi og ekki umtals-
verður. Það væri aðeins verið að
bæta sjónvarpsskilyrði dátanna,
meira væri það ekki, því stöðin
drægi alls ekki til Reykjavíkur.
NÚ ER KOMIÐ ANNAÐ
HLJÓÐ I STROKKINN
En nú er komið annað hljóð í
strokkinn. Formaður útvarps-
ráðs, sem var einn hinna skelegg
ustu um stækkun dátasjón-
varps, hefur nú, að fenginni
reynslu, snúið við blaðinu. —
Hann segir í Alþýðublaðinu í
síðustu viku:
„Það er eðlilegt, að hugsandi
mönnum ógni það ástand að hið
bandaríska sjónvarp skuli vera
komið á 5—6000 heimili og megi
því gera ráð fyrir, að 25—30
þús. manns horfi meira eða
minna á það. Þetta mál er ein
andstyggileg sjálfhelda, af því
að þessi hópur landsmanna er
meira en nógu stór til þess að
gera illframkvæmanlegt í
frjálsu lýðræðislandi að afnema
skyndilega hina amerísku stöð
og láta vamarliðið setja upp
„Iokað“ sjónvarpskerfi fyrir
sjálft sig. Fólk, sem hefur varið
100—200 millj. kr. til að kaupa
sjónvarpstæki, mundi ekki una
því, að þetta leikfang væri frá
því tekið.
Sjálfsagt eru þeir menn til,
sem vilja afnám sjónvarpsins,
livað sem eigendur tækia á ís-
lenzkum heimilum segja. En
(Framhald á blaðsíðu 5).
Flotinn enn bundinn
SJÓMANNADEILAN er enn ó-
leist, eða var í gær og hafði þá
staðið fjórar vikur. Tvöhundruð
fiskibátar hafa þennan tíma vetr
arvertíðarinnar legið bundnir.
Slíkt er hörmulegt og óviðun-
andi með öllu, að ekki skuli
unnt að ná samkomulagi um
skiptingu þess verðmætis, sem
aflað er.
veir myndariegir bílar, yfirbyggðir á Akureyri.
ÍLiósmvnd: E. D.l
Þinghúsið á Breiðu-
raýri sem nýtt
FYRIR nokkrum dögum fögn-
uðu Reykdælingar því í þing-
húsi sínu að Breiðumýri, að
stækkun og endurbót þinghúss-
ins voru svo á veg komnar, að
þar er nú hinn ágætasti staður
til fundahalda og hvers konar
mannfagnaðar. Þinghús á þess-
um stað var fyrst byggt 1904 og
er það hluti byggingarinnar. □