Dagur - 10.02.1965, Blaðsíða 2
1
AkureyrarmeiStarar KA í liandkuattJeik. — Aííari rmi t'. v.: Arni Sverrisson, Steíán Tryggvason,
Baldvin Þóroddsson, Hafsteinn Geirsson og Hörður Tulinius. Fremri röð f. v.: Gísli Bjarnason, Orn
Gíslason, Jón Stelnbergsson og Óiahir H. Ólafsson, (Ljósmynd: N. H.)
Sigruðu keppinauta sína raeð yfirburðum
AKUEEYRARMÓTH) í hand-
knattleik hélt áfram á laugar-
daginn og fóru þá frani úrslita-
leikirnir í meistaraflokkum
karla og kvenna. Kenpnin var
háð í Rafveituskemmunni. KA
sigraði með yfirburðum í báð-
um leikjunum. Eir.n leikur er
eftir í mótinu, þ. e. í fjórða
flokki kvenna.
KA vann Þór í meistaraflokki
karla með 40 mörkum gegn 18.
Urslitaleikurinn í meistara-
flokki karla var milli KA og
Þórs. Strax í upphafi leiksins
v.ar Ijóst að KA hafði ótvíræða
yfirburði og hélzt svo til leiks-
loka. KA skoraði fyrstu fjögur
mörkin á stuttum tíma, án þess
að Þór kæmi vörnum við. Eftir
sé vel samstillt þó mest beri á
áðurnefndum leikmönnum. —
Stefán Tryggvason skoraði sjö
mörk, Hörður Tiílinius sex og
Baldvin Þóroddsson tvö. Mark-
vörðurinn, Jón Steinbergsson,
varði oft vel.
.'lilð Þórs varð að þola stóran
ósigur í þessum le.ik, enda
mætti það miklu heilsteyptara
liði. En Þórsarar gáfust aldrei
upp í þessum leik, enda ungir
og þróttmiklir piltar í liðinu.
Jén Friðriksson skoraði sex
mörk, Anton Sölvason og Númi
Friðriksson þrjú hvor, cg aðrir
færri.
Dómari var Jakob Hafstein.
KA varni ÍMA í meistarafiokki
kvenna með 11 mörkum gegn 4.
Bæði liðin voru auðsjáanlega
mjög taugaóstyrk í byrjun leiks
ins.' Sendingar ónákvæmar og
grip léleg. — ÍMA-stúIkurnar
héldu uppi meiri sókn til að
byrja me.ð og tókst að skora
fyrsta markið. Um tíma var
leikurinn jafn og allskemmti-
legur. KA-Iiðið náði smám sam-
an meiri tökum á leiknum, og
í lok hálfleiksins var staðan 4:3
KA í vil.
í seinni hálfleik voru það KA
stúlkurnar sem tóku völdin í
sínar hendur úti á vellinum og
sýndu mikla yfirburði. Þær
voru ákveðnari í sókn, áttu
fastari skot og brutu vörn ÍMA
niður. ÍMA-liðið var mun lak-
ara í síðari háifleik, sérstaklega
voru skot þeirra þróttlítil og
ónákvæm. Skoruðu þær aðeins
eitt mark í hálfleiknum. Úrslit-
in urðu 11 mörk gegn 4 fyrir
KA og er það réttlát niður-
staða. □
það óx mótspyrna Þórs nokk-
uð öðru hvoru, en leikurinn
var of ójafn til að skapa veru-
lega spennu, en þó var hann
aldrei,leiðinlegur. Einstaka leik
menn sýndu góð tilþrif sem
gaman var að fyigjast með. í
hálfleik var staðan 19:10 fyrir
KA.
í seinni hálfleik jukust yfir-
burðir KA-manna enn og röð-
uðu þeir nú mörkunum á Þórs-
ara, og varð lokastaða.n 40
mörk gegn 18.
Bleytusaggi myndaðist á gólf
inu þegar líða tók á leikinn og
erfitt fyrir leikmenn að fóta sig.
KA-liðið lék mjög hratt og
ákveðið og skotharka þess var
mikil, sérstaklega hjá Olafi H.
Olafssyni, sem skoraði 14 mörk,
og var bezti maður vallarins.
Var gaman að sjá hvað skot
hans voru snögg og þó oftast
hnitmiðuð, þannig að markmað
ur Þórs mátti sín lítils í þeirri
skothríð. Þá er Hafsteinn Geirs
son snjall leikmaður, skoraði t.
d. 11 mörk. Þeir Olafur og Haf-
steinn eru Hafnfirðingar, en
nýfluttir til bæjarins, og er KA-
liðinu mikill styrkur að þeim.
Annars má segja að KA-liðið
Húsavík 9. febrúar. Skíðamóti
Völsungs lauk sunnudaginn 7.
febrúar með keppni í stórsvigi
og bruni.
Úrslit urðu þessi:
Stórsvig karla
16 ára og eldri. sek.
Þorgrímur Sigurjónsson 56,0
Hreiðar Jósteinsson 59,4
Ármann Sigurjónsson 59,8
Brun karla
16 ára og eldri. sek.
Hreiðar Jósteinsson 30,5
Þorgrímur Sigurjónsson 32,0
Aðalsteinn Karlsson 33,5
Síórsvig drengja.
1. Jón Hermannsson. 2. Halldór
Handknattleiksraótið
TVEIR leikir fóru fram um síð-
ustu helgi í fyrstu deild íslands-
mótsins í handknattleik karla.
FH vann Ármann 41:29 og KR
vann Víking 24:17. FH er þá
með 10 stig í mó.tinu, fjórum
rneira en næstu félög. □
Háko.narson. 3. Haraldur Har-
aldsson.
Brun drengja.
1. Jón Hermannsson. 2. Harald-
ur Haraldsson. 3. Helgi Stein-
þórsson.
Keppnin fór fram í Húsavík-
urfjalli. — Mótstjóri var Stefán
Benediktsson. Þ. J.
Svanoerg Þórúarson, Olafsfirði.
(Ljósmynd: K. II.)
Fjölnrennt og vel heppnað skíða-
mót é Ákureyri m síðustu helgi
UM síðustu helgi fór fram
skíðamót í Hlíðarfjalli við Ak-
ureyri. Var það afmælismót
Þórs í svigi, en félagið verður
50 ára á þessu ári.
Skíðamót þetta var ákveðið
með litlum fyrirvara og því at-
hyglisvert hve undirbúningur
þess og framkvæmd gekk vel.
Keppendur voru alls 41, einn
Reykvíkingur, 4 ísfirðingar, 4
Siglfirðingar, 7 Ólafsfirðingar
og 25 Akureyringar. — Kepptu
þarna margir beztu skíðamenn
landsins.
Fyrri daginn var veður frem-
ur óhagstætt til keppni en
ágætt seinni daginn. — Eftir
keppni á sunnudag var kepp-
endum og starfsmönnum boðið
til samsætis í Skíðahótelinu og
þar voru afhent verðlaun. —
Mótstjóri var Hermann Sig-
tryggsson.
Úrslit mótsins urðu þessi:
FYRRI DAGUR.
Svig karla. sek.
Svanberg Þórðarson Ó. 78,2
Kristinn Benediktsson f. 78,6
Samúel Gústavsson í. 82,9
Hafsteinn Sigurðsson í. 83,7
Viðar Garðarsson A. 88,7
Sigurbjörn Jóhannsson S. 94,1
Keppendur voru 23. Beztum
brautartíma náðu Svanberg og
Kristinn, 39,0 sek. — Brautin
var í Bröttulág við Strompinn.
Lengd ca. 300 m, hlið 38.
Svig kvenna. sek.
Árdís Þórðardóttir S. 68,9
Karólína Guðmundsd. A. 70,8
Guðrún Sigurlaugsd. A. 102,8
Sigríður Júlíusdóttir S. 120,2
Keppendur 4. Beztan brautar-
tíma fékk Árdís, 33,4 sek. —
Hiið voru 25 og lengd brautar
200 m.
Svig drengja. sek.
Árni Óðinsson A. 64,9
Tómas Jónsson R. 70,3
Guðmundur Frímannss. A. 89,5
Þorsteinn Baldvinsson A. 100,8
Keppendur 23. Bezaum brautar
Beztan bi-autartíma fékk Árni
Óðinsson, 32,2 sek. — Sama
braut og í kvennaflokki.
Sigríður Júlíusdóftír, Siglufirði.
(Ljósmynd: K. II.)
SEINNI DAGUR.
Svig karla. sek.
Kristinn Benediktsson í. 95,5
Hafsteinn Sigurðsson í. 100,3
Svanberg Þórðarson Ó. 105,9
ívar Sigmundsson A. 106,7
Magnús Ingólfsson A. 111,6
Smári Sigurðsson A. 114,7
Keppendur 23. Beztum brautar
tíma náði Kristinn Benedikts-
son, 47,5 sek. — Brautarlengd
350 m, fallhæð 150 m og hlið 42.
Svig kvenna. sek.
Sigríður Júlíusdóttir S. 99,3
Árdís Þórðardóttir S. 102,8
Sigríður náði 47,8 sek. í fyrri
umferð. Tvær féllu úr leik. —
Brautarlengd var 250 m, hlið 30
og fallhæð 120 m.
Árni Óðinsson, Akureyri.
(Ljósmynd: Þ. J.)
Drengjaflokkur. sek.
Jónas Sigurbjörnsson A. 103,5
Tómas Jónsson R. 106,2'
Árni Óðinsson A. 118,6
Bjarni Jensson A. 120,5
Y
Keppendur 12, en þrír luku
ekki keppni. Beztan tíma fékfc
Örn Þórsson, 48,8 sek. en félL
úr í síðari ferðinni. — Brautin
var sú sama og í kvennaflokkL
Bæjakeppni í svigi milli Ak-
ureyrar og Ólafsfjarðar lauk
með sigri Akureyringa á 448,6
sek. í sveitinni voru ívar Sig-
mundsson, Magnús Ingólfsson,
Smári Sigurðsson og Reynir
Brynjólfsson. Q
Kristinn Benedikisson, Isafirði.
(Ljósmynd: K. II.)