Dagur - 17.03.1965, Page 8

Dagur - 17.03.1965, Page 8
8 SMÁTT OG STÓRT ÝMSAR FRÉTTIR FRÁ BÚNAÐARÞINGI SÍÐUSTU dagana hafa nokkur mál, sem hér verða rakin, verið afgreidd frá Búnaðarþingi. Erindi Búnaðarsambands S.- Þing. varðandi þjóðnýtingu Áburðarverksmiðjunnar h.f.: „ÁLYKTUN: Búnaðarþing mælir með því, að Aiþingi samþykki frumvarp til laga um Áburðarverksmiðju ríkisins, er nú liggur fyrir neðri deild þess á þskj. 264.“ Samþykkt samhljóða. Erindi Búnaðarsambands Suð urlands um miðstöðvar fyrir heyverzlun: „ÁLYKTUN: Búnaðarþing samþykkir að beina því til stjórnar Búnaðar- félags íslands, að hún láti gera athugun á því, hvort tiltækilegt sé að framkvæma þá heyverk- un, heymjöls- og heykögglagerð sem með hagkvæmni og á fjár- hagslega hagstæðum grundvelli geti innt af hendi það hlutverk að tryggja fóðurbirgðir í land- inu og útflutning heys þannig verkað á erlendan markað.“ Samþykkt samhljóða. Erindi Búnaðarsambands S.- Þing. um ferðakostnað dýra- lækna og erindi sama um að- stoð við dýralæknishéruð: „ÁLYKTUN: 1. Búnaðarþing telur, að ennþá sé iangt í land að fullnægjandi dýralæknisþjónusta sé fyrir hendi í ýmsum byggðarlögum landsins, enda þótt mikið hafi áunnizt í þessu efni hin síðari ár. Er hér einkum haft í huga, að ekki hafa fengizt dýralækn- Guðmundur Jónsson GUÐMUNDUR Jónsson óperu- söngvari skemmtir á skemmti- samkomu Þýzk-íslenzka félags- ins að Hótel KEA n. k. föstu- dagskvöld. Það er orðið langt síðan þessi vinsæli söngvari hefur látið til sín heyra hér í bæ og mun því marga fýsa að nota þetta tæki- færi. □ ar í sum þau dýralæknaum- dæmi, sem stofnuð hafa verið og í öðru lagi þurfa mörg sveitarfélög að leita til dýra- læknis um langan veg og verð- ur því sú þjónusta mjög kostn- aðarsöm. Búnaðarþing telur sanngjarnt og nauðsynlegt, að hið opinbera komi þessum; afskiptu byggðar- lögurii.tií hjálpar og felur stjórn B; ísl. að leita til yfirdýralækn- is og landbúnaðarráðuneytisins um úrræði til úrbóta. 2. Búnaðarþing telur, að lyfjakostnaður landbúnaðarins hafi vaxið óeðlilega síðustu ár- in bæði vegna hárra tolla og óbilgjarnrar álagningar. Enn- fremur hefir lyfseðlaskylda margra algengra dýralyfja skap að í ýmsum tilvikum marghátt- aða erfiðleika. Búnaðarþing felur því stjórn B. ísl. að ræða þessi mál við ábyrga aðila eins og tollayfir- völd, yfirdýralækni, lyfsölu- nefnd o. fl. og leita eftir rétt- mætum lagfæringum.“ Samþykkt samhljóða. Erindi Gísla Magnússonar um niðurfellingu tolla af búvélum: „ÁLYKTUN: Búnaðarþing felur stjórn B. ísl. að gangast fyrir því við ríkis- stjórn og Alþingi, að tollar og söluskattur af innfluttum land- búnaðarvélum, þar með taldar þungavinnuvélar til ræktunar- sambanda, verði felldir niður, og landbúnaðurinn búi við sömu kjör og sjávarútvegur og stóriðnaður hvað þetta snertir. Ehnfremur, að lækka eða fella algerlega niður 35%' tollinn af (Framhald á blaðsíðu 5). Erindrekar Framsóknarfl. á ferð EYJOLFUR EYSTEINSSON erindreki SUF og Valtýr Kristj- ánsson erindreki FFNE hafa ferðast undanfarna daga um Þingeyjarsýslur. Þeir munu starfa hér á Akureyri og í Eyja- fjarðarsýslu næstu daga, eftir því sem tími vinnst til. Málfundanámskeið á Húsavík. Sunnudaginn 14. þ. m. kl. 4 e. h. hófst á vegum FUF á Húsavík málfundanámskeið. — Formaður félagsins, Aðalsteinn Karlsson, setti fyrsta fund þess og stýrði honum. — Framsögu- menn voru Eyjólfur Eysteins- son, sem talaði um ræðu- mennsku, og Valtýr Kristjáns- son, er ræddi fundarstjórn og fundarreglur. — Leiðbeinandi á námskeiðinu verður Áskell Ein- arsson bæjarstjóri. Ráðstefna um efnahagsmál og uppbyggingu atvinnuveganna. Dagana 29. ag 30. maí verður haldin á Húsavík ráðstefna um efnahagsmál og uppbyggingu atvinnuvegnanna, á vegum SUF. — í sambandi við hana verður aðalfundur SUF í Norð- urlandskjördæmi eystra og hefst að kvöldi 28. maí. — Nán- ar verður sagt frá ráðstefnunni síðar. Skólamál. FUF á Akureyri boðar til fundar um skólamál n. k. laug- ardag, eins og annars staðar er frá skýrt hér í blaðinu. □ FÓLKSFÆKKUN A SIGLU- FIRÐI Um síðustu áramót var íbúa- fjöldi á Siglufirði 2490 og hafði fólki fækkað um 160 á síðasta ári, þar af fluttu 140 burtu og 20 dóu. SYKURÁTIÐ Samkvæmt opinberum tölum neyta íslendingar mikils syk- urs. Árið 1963 var sykurneyzl- an 42,3 kg. á mann. VERÐA FRAMLÖG SKORIN NIÐUR? Fullyrt er nú, að ríkisstjórnin hafi ákveðið að nota á þessu ári heimild fjárlaga til að skera niður framlög til verklegra framkvæmda um 20—25%. — Víðsvegar á landsbyggðinni mun þetta koma hart niður. Fjármagn og vinnuafl, sem þarna sparast, getur „einka- framtakið“ í höfuðborginni þá væntanlega notað í sínar þarfir, eða a. m. k. bróðurpartinn af því beint og óbeint. En rök- semdir fyrir þessum niður- skurði er þörf aukinnar aðstoð- ar við sjávarútveginn. í LANDSINS ÞÁGU! Úr stjórnarráðinu berast fleiri tíðindi um þessar mundir. Talið er, að Gunnar Thoroddsen sé í þann veginn að biðjast lausnar og verða sendiherra í Kaup- mannahöfn. Flokksblöðin eru hætt að lirósa fjármálastjórn hans og eiít sunnanblaðið flyt- ur þá frétt, að Bjami Benedikts son hafi sagt við G. Th.t „Þú verður að gera það fyrir landið að fara úr landi“! Rétt er það, að illa hefur Gunnari gengið að framkvæma sparnaðaráformin, sem auglýst voru á sínum tíma, en ekki mun þó reynast fram- kvæmanlegt að telja fólki írú um, að hann einn beri ábyrgð á hinni illræmdu „viðreisn“ og öllum mistökunum í sambandi við liana. Þeir, sem eftir verða í Iandinu, komast ekki hjá að bera sinn hluta af syndabaggan- um. Ath. Eftir að framangreint er ritað hefur lausnarbeiðni Gunn ars verið staðfest opinberlega. Veiðifélögin á Fljófsdalshéraði SNÆÞÓR Sigurbjörnsson Gils- árteigi hefur vinsamlega orðið við þeim tilmælum að skýra frá nýlega stofnuðum veiðifélögum á Fljótsdalshéraði. Fara upp- lýsingar hans hér á eftir: Á s.l. ári voru stofnuð hér tvö veiðifélög. Annað um vatna- svæði Lagarfljóts og Jökulsár á Dal, en hitt um Selfljót og vatnasvæði þess. Félagar í Lagarfljóts og Jök- ulsárfélaginu eru hátt á annað hundrað. Stjórn þess skipa Sveinn Jónsson, Egilsstöðum, formaður; Þorsteinn Jónsson, Hermes og Jóhann Magnússon, Breiðavaði. Félagar í Veiðifél. Selfljóts eru um 40. Stjórn þess skipa Þorsteinn Sigfússon, Sand- brekku, formaður; Stefán Sig- urðsson, Ártúni, og Snæþór Sigurbjörnsson, Gilsárteigi. Bæði félögin hafa nú auglýst vötnin til veiðileigu og ber að snúa sér til formannanna, er gefa allar upplýsingar þar að lútandL Hér á Eiðaþinghá hefur verið irinistaða á sauðfé síðan í des- ember. Svellalög og hjárn og að undanförnu hafa menn ekið um allar heiðar á jeppum og smærri fólksbílum. Margir hafa lagt leið sína á Skýhnjúk, enda bílfært alveg á tindinn. Skyggni hefur verið mjög gott, t. d. sáu menn hafísinn út af Langanesi. ERUM VIÐ OF FÁIR? Morgunblaðið ræðst á tillögu þeirra Karls Ivristjánssonar og Gísla Guðmundssonar um að athugaðir verði möguleikar til að skipta landinu í fylki með sjálfstjórn í sérmálum. Blaðið segir að fylkin hér verði miklu fámennari en í Noregi og komi því ekki til mála! Samkvæmt þeim rökum ætti fsland ekki að vera sjálfstætt ríki úr því að íslendingar eru ' 20 sinnum færri en Norðmenn og Norð- menn ekki sjálfstæðir af því þeir eru 50 sinnum fámennari en Bandaríkjamenn o. s. frv.! Sanianburður blaðsins á hin- um umræddu fylkjum og ömt- unum gömlu er óraunhæfur og mátti þó telja skiptingu lands- ins í ömt til bóta frá því skipu- lagi, sem áður var. Andstaða Mbl. er líkleg til að afla Fylkja- hugmyndinni fylgis, af því gild rök vantar fyrir þeirri and- stöðu. Mál eins og þetta vilja menn ekki láía afgreiða með skætingi, þótt skoðanir kunni að vera skiptar. ALÞINGI VIÐ ÖXARÁ Ágúst Þorvaldsson og Gísli Guðmundsson flytja á Alþingi tillögu til þingsályktunar um, að fram fari samtímis sveitar- stjórnarkosningum á næsta ári þjóðaratkvæðagreiðsla um það, livort stefna skuli að því, að Alþingi verði háð á Þingvöll- um. Minna þeir á það, að Fjöln- ismenn og margir aðrir kunnir menn Iiafi í öndverðu viljað Iáta endurreisa Alþingi á hin- um fornhelga þingstað, og fyrir því muni þá hafa verið þjóðar- vilji, þó annað yrði ofan á. Síð- an hafi fyrir Alþingishátíðina 1930 oftar en einu sinni verið flutt tillaga um þjóðaratkvæða- greiðslu um þetta mál. Nú séu allt önnur og betri skilyrði til þess en fyrrum að framkvæma hugsjón Fjölnismanna, og beri þingmönnum að gefa þjóðinni kost á að láta í Ijós álit sitt áð- ur en ráðist verður í byggingu nýs alþingishúss til langrar frambúðar. HAFÞÖK AF ÍS f GÆR var landfastur ís frá Hornbjargi að Geirólfsgnúp. — Fyrir Norðurlandi rekur ísinn til og frá. Við Grímsey er mikið ísrek. Frá Skoruvík á Langa- nesi sást ísinn ekki í gær og hafði færst fx-á landi. Lengra norður eru hafþök af ís fyrir öllu Norðurlandi. Verkfall yfirmanna VERKFALL yfirmanna á ís- lenzka farskipaflotanum hófst í fyrrakvöld. Verkfallið nær til allra yfirmanna á íslenzkum far skipum. Langir samningafundir hafa staðið yfir og síðast í gær, svo ekki var þá talið vonlaust um samkomulag þótt verkfall væri þegar hafið. Ef verkfallið leysist ekki stöðv ast skipin hvert af öðru um leið og þau koma í fyrstu örugga höfn.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.