Dagur - 24.03.1965, Blaðsíða 1
axminster
góíffeppi BBH||
annað ekki llfSÍ J
EIN1R H.F
HAFNARSTRÆTI 81 . SÍMI 115 36
XLVIII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 24. marz 1965 — 23. tbl.
HAFNARSTRÆTI 81 . SÍMI 115 36
Aflaleysið á Norðurlandi
Menn fá naumlega nýjan fisk til matar
BLAÐIÐ hringdi til nokkurra
fréttaritara sinna á Norðurlandi
í íyrradag og spurðist fyrir um
aflabrögðin. Samkvæmt frásögn
þeirra er nálega fisklaust og á
öðrum stöðum vamar ísinn róðr
um.
RIFJA UPP BJARN-
DÝRASÖGUR
Þistilfirði 22. marz. Hér hefur
frostið farið upp í 23 gráður en
er 15 í dag. Hér er ísbreiða á
firðinum, með meira móti og
stakir jakar nær lanai. Enginn
fer á sjó. Föl er á jörð og allir
vegir færir, svo sem til Vopna-
íjarðar og Raufarhafnar.
Á laugardagsnóttina kviknaði
í radarstöð varnarliðsins á Heið
arfjalli og urðu þar skemmdir
og menn brenndust við slökkvi
starfið, en þó ekki lífshættu-
lega. Mjög mikil umferð var
í lofti næsta dag hér um slóðir.
Undanfarnar vikur hafa verið
rifjaðar upp bjarndýrasögur frá
1918 og ekki er laust við að sum
5r óttist að bjarndýr gangi á
land, enda er slíkt ekki útilok-
að. Ó.H.
ENGINN KEMST A SJÓ
Raufarhöfn 22. marz. Hér kemst
enginn á sjó fyrir ís. Hér utan
við er ísinn mikill og er á stöð-
ugri ferð fram og aftur. Frostið
er 16 stig í dag. Snjólaust er,
að kalla má og gott bílfæri um
allt. H.H.
EINN GÖÐUR RÓÐUR
Ólafsfirði 22. marz. Hér eru
frosthörkur og fiskleysi. Höfn-
ina hefur lagt og fjörðinn lengra
út en ég man eftir áður. Guð-
björg fékk nýlega einn góðan
róður eða 15 tonn í net. Vonuðu
þá margir að verulega væri að
glæðast aflinn. En næsta dag
var aflinn 6 tonn og svo minna.
Má nú teljast fisklaust. Verið
er að æfa sjónleikinn Hamar eft
ir séra Jakob Jónsson, og er það
Leikfélagið, sem þar er að verki
Óvíst er enn hvenær frumsýn-
ingin verður. B.S.
GRÁSLEPPUVEIÐIN
DAVlÐSKVÖLD
STÚDENTAFÉLAGIÐ á Akur-
eyri efnir til Davíðskvölds í
Sjálfstæðishúsinu á Föstudag-
inn, 26. marz, og rennur ágóð-
inn til kaupa á húsi skáldsins.
Það sem þarna fer fram er
þetta:
1. Ávarp: Brynj. Sveinsson, yf-
irkennari.
2. Upplestur úr verkum Davíðs
Stefánssonar: Steinunn Jó-
hannesdóttir.
3. Tvísöngur: Jósann Daníels-
son og Sigurður Svanbergs-
son. Undirleik Guðmundur
Kr. Jóhannsson.
4. Upplestur: Gunnar Stefáns-
son.
5. Einsöngur: Jóhann Konráðs-
son, undirleikari Jakob
Tryggvason.
6. Leikþáttur: úr „Gullna hlið-
jnu“, lesarar:
Björg Baldvinsdóttir .......
kerlingin
Guðm. Gunnarsson............
Jón bóndi
Jón Kristinsson ............
Lykla Pétur
ÆTLAR AÐ BREGÐAST
Hrísey, 22. marz. Síðustu þrjá “■
daga hefur verið svolítill afla-
reytingur, mest 5—6 tonn í net,
en ekkert á færi eða línu. Er
þetta það skásta, sem hér hefur
verið. Atvinnuleysi hefur verið
hér. Unnið er að stækkun og
endurbótum frystihúss KEA
hér og veitir það nokkra
atvinnu. Eftir viðgerðina á frysti
húsið að geta tekið á móti allt
að helmingi meiri fisk en áður.
Ekkert verður enn vart við
grásleppu, en ýmsir hugðu gott
til vegna hins hækkandi verðs.
Menn héðan ætluðu að stunda
grásleppuveiðar frá Flatey. En
þar hefur enn ekkert aflast. Lít
ur sá atvinnuvegur því illa út
að þessu sinni. Sama aflatregða
er á Dalvík. J.K.
Frá vmstri: Ottó, Bjarni og Gíslína.
(Ljosm.: E.D)
Barnið var að hverfa rnidir ísinn
En snarráð telpa bjargaði því á síðustu stundu
AKUEEYRARPOLLUR er nú
allur undir ís og hafa börnin
fjölmennt á hinn nýja leikvöll.
Laust eftir hádegi sl. mánudags
bar það við sunnan við Strand-
götuna að þriggia ára drengur,
Bjarni Hallgrímsson, Strand-
götu 41, sem var á þríhjóli á
veikum ís skammt undan landi
fór niður um ísinn og á kaf.
Frænka hans, Gíslína Bene-
diktsdóttir, Strandgötu 43, kom
út í þessum svifum og sá dreng-
inn hverfa. Hljóp hún þangað.
ísinn brast undir fótum henni,
en barinu náði hún áður en það
hvarf undir skörina. Sjórinn var
mittisdjúpur eða meira. Gísl-
ína kom drengnum upp á skör-
ina. Bar þá að Ottó Snæbjörns-
son, sem sjaldan notar vettlinga
tök og fullkomnaði hann björg-
unina.
í gær voru þau öll við beztu
heilsu, er vöknað höfðu í sjón
um. Snarræði Gíslínu, sem er
13 ára, og nemandi í G.A. ber
að fagna og þakka.
Ásíuinflúensan í Skagafirði?
Hefur e. t. v. borizt með frönskum ferðamanni
Á FÖSTUDAGINN
SAMKVÆMT fréttum frá
Skagaströncl í gær, benda lík-
ur til þess, að Asíuinflúensan
sé þangað komin og í Skaga-
fjörð og Hrúíafjörð. En þar
gengur nú kvefsótt og brciðist
Steinunn Jóhannesdóttir ..
María mey
Þráinn Karlsson........... skemmtunina og styðjið
_,,, ,. framt Davíðssöfnunina.
Pall postuh
Birgir
7. DANS.
Akureyringar og nærsveitar-
menn! Fjölmennið á kvöld-
jafn-
Þetta
er ekki stúdentasamkoma held-
ur almenn samkoma sem Stú-
dentafélagið er svo myndarlegt
að gangast fyrir.
Asgeirsson
Ovinurinn
-
Nu er Akureyrarpollur lagður og menn dorga upp um ísinn
(Ljosm.: E. D.)
ört út. Fylgir henni nokkuð hár
hiti í 2—4 daga. Verið er að
rannsaka á Keldum, sýnishorn
•
frá sjúklingum og Iiggur úr-
skurður ekki fyrir. Tveir menn
liafa fengið lungnabólgu upp úr
veiki þcssari.
Svo er sagt, að franskur mað-
ur sem nýlega kom í Skagafjörð
liafi borið með sér veiki þessa
þangað. Söngflokkur, sem það
an kom til Skagastrandar mun
svo hafa flutt veikina vestur.
Á Skagaströnd eyðilagði ís-
inn hrognkelsanet, sem nýbúið
var að leggja, en ísinn hefur
hrakist liér fram og afíur und-
an straumi og vindum.
Pilfur og sfúlka
í áflogum
SEINT á föstudagskvöld réðist
ungur maður, ölóður, á stúlku
eina, er var á gangi á Hrafna-
gilsstræti, og greip fyrir kverk-
ar henni. Flugust þau á þar til
lögreglan kom á vettvang, og
handtók árásarmanninn. Stúlk-
an fékk taugaáfall, klæði henn
ar voru rifin. Pilturinn kveðst
ekkert muna um atburðinn.