Dagur - 27.03.1965, Side 1

Dagur - 27.03.1965, Side 1
Dagur SÍMAR: 11166 (ritstjóri) 11167 (afgreiðsla) f—................-N Dagur kemur út tvisvar í viku og kostar kr. 25,00 á mán. í lausasölu kr. 4,00 Islenzku málverkin komin iil Álasunds, heilu og höldnu Útsvör á Reyððrfirði 3.1 milljónir króna Reyðarfirði 26. marz. Fjárhags áætlun Reyðarfjarðarkauptúns Sjómaður frá Akureyri drukknaði í Grimsby MIÐVIKUDAGINN 24. marz sl. varð það slys, að Gunnar Geirs- son, Þverholti 12, Glerárhverfi Akureyri skipverji á togaran- um Svalbak, féll í höfnina í Grimsby og drukknaði. (Samkv. frctt frá skrifstofu ÚA í gær). var samþ. 23. þ. m. Niðurstöðu- tölur hennar eru 4.150.700,00 kr. Helstu gjaldaliðir eru: Til vatnsveitu 500 þús. kr., til menntamála 350 kr., tryggingar gjöld 360 þús. kr., til nýbygginga 250 þús. kr., og til hafnarfram- kvæmda 200 þús kr. Stærstu tekjuliðir: Útsvör cg aðstöðugjöld 3.120.000.00 kr. cg frá Jöfnunarsjóði 850 þúsund kr. Um sl. áramót vorú 598 íbúar á Reyðarfirði og hafði fjölgað nokkuð á sl. ári. Aflabrögð hafa verið misjöfn hjá heimabátum að undanförnu Snæfugl hefur lagt hér upp um 150 lestum síðan 15. þessa mán aðar. Er það mest ufsi og hef- ur verið frystur eða saltaður. Gunnar veiðir í þorskanót, en hefir ekki lagt upp hér í seinni tíð. Hafísinn sást frá Hólmahálsi í fyrradag, en í gær var hann horf irm úr augsýn. Norðanstrekk- ingur hefir verið hér að undan förnu með miklu frosti allt upp í 18 stig. — i dag er sólskin og stillt veður. V. A. sinn ógnar Auslfjörðum Egilsstöðum 25. marz. Hér eru óvenjulegar frosthörkur, venju- lega um og yfir 20 stig um næt- ur. Á stöku stað hefur frosið í vatnsleiðslum. Menn eru byrg- ir af fóðurbæti og olíu, að því er talið er. Mun olía endast til maíloka þótt sigling teppist þangað til. Minna er til af kol- um, enda eru þau lítið notuð. Veginum um Fagradal er hald- ið opnum. Ungt fólk hefur farið út á Héraðssanda til að sjá ís- inn, sem Héraðsflói er fullur af. Aðeins að austanverðu er vök í þann ís. Engan sáu menn sel- inn að þessu sinni. Menn reikna almennt með því, að ísinn fylli Austfirði allt suður á Djúpavog nú innan skamms. Margir spádómar eru uppi um ís og tíðarfar, en ekki verða þeir sagðir hér. Atvinna er ennþá næg. En búast má við að útivinna hefjist seinna en áð- ur í vor. V. S. Veiðikeppni á Poll- inum á morgun LIONSKLÚBBURINN Hug- inn efnir til veiðikeppni á Akureyrarpolli n.k. sunnu- dag á dorg upp um ísinn. Notuð verða venjuleg hand færi með 3 önglum, og verð- laun veitt fyrir stærsta fislt- inn og einnig fyrir mest magn. Heitar pylsur o.fl. góð gæti verður selt á ísnum fyr ir keppendur og gestina, einn ig beitusíld fyrir þorskinn. En varast skyldu menn að hnappast saman. □ ÍSAÞOKAN GRÚFIR YFIR FLATEY UM síðustu mánaðamót varð ís landfastur í Flatey á Skjálf- anda og fyllti þá höfnina svo þar komst enginn bátur að eða frá. Síðan hefur verið meiri og minni ís við eyna en höfnin hef- ur þó stundum verið opin. Síð- ast þegar póstbáturinn kom að Flatey varð að flytja vörurnar á smábátum suðaustan á eynni á svonefndum Skarfstanga. Töluvert virðist gengið af grásleppu en lítið er hægt að stunda hrognkelsaveiðarnar vegna íssins. Hrímþoka grúfir yfir Flatey dag eftir dag og er skyggni því mjög lítið. Engin Bjarndýrsöskur hafa heyrzt þar. Bjöm Kristjánsson vitavörður á Skoruvík stendur hér hjá rost- ungnum, sem rak þar á fjörur og fyrr er frá sagt. (Ljósm.: B. A.) Höfrungarnir voru skotnir og síðan dregnir upp á ísinn. (Ljósm.: B. A.) Fyrir peningagjöíina frá Akureyri hafa verið keypt falleg nútímamálverk frá íslenzkri náttúru og þjóðlífi ÞANNIG hljóðar fyrirsögn blaðagreinar 16. þ.m. í Álasunds blaðinu „Sunnmörsposten“ En MIÐSTJÓRNAR- 1 FUNDURINN MIÐSTJÓRNARFUNDUR | Framsóknarflokksins hófst í ít Reykjavik í gær kl. 2 e. h. Um 90 fulltrúar kjördæma- » sambandanna hafa verið á Jz leið til Reykjavíkur undan- Íí farna daga til að sitja fund « þennan. Formaður flökksins » Eysteinn Jónsson alþingism., setti fundinn með ræðu, fz Helgi Bergs, ritari flokksins « og Sigurjón Guðmundsson « gjaldkeri fluttu skýrslur sín- « ar og að því loknu hófust » umræður. En hinar ýmsu « nefndir áttu að taka til starfa « í gærkveldi. Miðstjórnar- « fundurinn var settur í félags- heimili flokksins við Tjarn- argötu. aðalnefni greinarinnar er á þessa leið: Málverkin sjö sem keypt eru fyrir peningagjöf Akureyrar til Álasunds eftir stríðsárin síðustu eru nú komin til bæjarins og geymd fyrst um sinn — og til sýnis — í sal bæjarstjórnarinn- ar. En haft er í huga að fyrst og fremst eigi þau að prýða hið nýja Elli- og Hjúkrunarhæli bæjarins. Þessi fallegu málverk eru handbrögð kunnra ísL lista- manna, og sáu um kaupin ræð ismaður Norðmanna í Reykja- vik Othar EHingsen ásamt sendi herra Cappelen. Og þeir hafa sannarlega gert góð kaup fyrir þær 12.000 krónur sem eftir stóðu af peningagjöf Akureyrar. Hinn hluti gjafarinnar var sem (Framhald á blaðsíðu 2). Kljóð og slunur innilokaðra höfrung- anna gegnumgangandi Vakalaus ís svo langt sem augað eygir, segir Gísli Pétursson kaupfélagsstjóri á Þórshöfn BLAÐIÐ spurði Gísla Péturs- son kaupfélagsstjóra á Þórshöfn um höfrungadrápið við Langa- nes á dögunum. Hann sagði efn islega frá á þessa leið: Það vildi til á þriðjudagskvöld ið, þegar ísinn rak hér inn, að 40—50 höfrungar lokuðust inni og voru samankomnir í einni vök, sem þó var þykk af krapi. Þetta var 150—200 metra undan landi, framan við Sauðanes, sem er um 8 km. frá Þórshöfn. Höfrungarnir byltu sér í þess ari vök og voru öskur þeirra of boðsleg og stunur gegnumgang- andi. Á miðvikudagsmorguninn var svo farið á þennan stað og nú voru fjórar skyttur með í för. Höfrungarnir voru þarna enn en mjög af þeim dregið og marg ir dauðir og sokknir en aðrir nær dauða. Þeir ruddust um. Vökin var rauð af blóði, dýrin voru mjög særð og svo leit út, sem skoltur og tunga væru fros in. Kjafturinn var opinn og tungan stíf. Fimmtán höfrungar voru skotnir og dregnir upp. Voru þá aðrir 15 eftir, sem einn ig voru skotnir til að stytta þján ingar þeirra, svo og hvalir í vök lengra út. Kjötið er lélegt, sennilega vegna þess, að skepnurnar voru orðnar örmagna. Höfrungarnir voru hálfur annar til tveir og hálfur metri á lengd og taldir um 250 kg, þeir stærstu. Nokkrir selir hafa séðst á isn um en engin bjarndýr og ekki bjarndýraslóðir. Hér er allt fullt af ís. Fóður vörur, olía og algengustu mat- vörur eru hér nægar fram á sumar nema kartöflur, sem hér vantar geymslu fyrir. En Fí mun færa okkur þær í hverri flugferð hingað, sagði kaupfé- lagsstjórinn að lokum. Rétt áður en ísinn lagðist að landi flugu hópar af æðarfugli suður yfir Brekknaheiði og 40 til 50 landselir yfirgáfu sand- ana í Þistilfirði og héldu austur fyrir Langanes. . Q

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.