Dagur - 27.03.1965, Qupperneq 2
2
VERKALYÐSFELAGIÐ EINING STARFRÆKIR
BARNAHEIMILIÁ SUMRIIÍOMANDA
ÍR-ingar cg Völsungar kjppa á Ak. m helgina
N.k. laugardag og sunnudag -
heldur Norðurlandsmótið í
handknattleik áfram, og verða
leiknir 4 leikir. Handknattleiks-;
ráð hefur unnið að því að und- -
anförnu að fá hingað til Ak-
ureyrar lið að sunnan, og koma
ÍR-ingar, en Akureyringar töp-
uðu báðum leikjunum fyrir
þeim í II. deildar keppninni ,
með litlum mun, og ætti því að
geta orðið tvísýn og spennandi
keppni. — Vegna kostnaðar við
að fá liðið að sunnan og tak-
markaðs fjölda áhorfenda, sem
hægt er að koma í skemmuna
verður að selja aðganginn á kr.
50 fyrir fullorðna en kr. 20.00
fyrir börn. — íþróttaunnendur
í bænum og nágrenni eru hvatt
-4r_til að nota þetta tækifæri, því
'ekki' er vitað mú hvort fleiri lið
koma norður.
Ííoigardag: ;
" 2.'fl.~kaíla fMA—KA (Nl.m.)
4. fl. karla KA—ÞÓR (Nl.m)
Meistarafl. karla ÍR—ÍBA
Sunnudag:
2. fl. ftvenna Völsungar —KA
(Norðurlandsmót.)
. .2,.fl. karla KA—ÞÓR (Nl.m.)
Meistarafl. kvenna Völsung-
ar—IBA.
Meistarafl. karla ÍR—ÍBA
Leikirnir hefjast báða dagana
kl. 2.
ATH. Ef svo færi, að ekki yrði
flugveður í dag, og Í.R.-ingar
ÚTBREIÐSLUFUNDUR 1 IÞROITAHUSINU
EINS og sagt var frá í síðasta
blaði efnir Frjálsíþróttasamband
íslands og Frjálsíþróttaráð Ak-
ureyrar til fræðslufundar í í-
þróttahúsinu á Akureyri í dag,
laugardag, kl. 5 e.h.
Nú hefir verið ákveðið að
efna til annars fundar á Dalvík
í samvinnu við UMSE. Verður
hann á morgun, sunnudag, í
„Baðstofu" KEA á Dalvík og
hefst klukkan 2 e.h.
- Útsvör á Reyðarfirái
(Framhald af blaðsíðu 1).
íþróttakennari UfA, Harald
Braaten, norskur maður, er hér
með íþróttanámskeið. Leiðbein
ir hann bæði í úti- og inniíþrótt
um og sækja þetta námskeið
bæði börn og fullorðnir, og mæl
ist þessi nýbreyttni vel fyrir.
V.A.
- íslenzku málverkin komin til Álasunds
(Framhald af blaðsíðu 1).
kunnugt er hagnýttur við stofn
un íslandsdeildar AJþýðu-bóka-
safnsins. —
í símtali ritstjóra blaðsins við
Ellingsen ræðismann skýrir
hann frá uppruna og höfundum
málverkanna og segir m.a.: —
„Við völdum málverkin með
norskan málverkasmekk í
huga, og það gleður okkur að
málverkin eru nú komin heilu
og höldnu á áfangastað“. —
Komu þau með m/s. „Gullfossi“
til Kaupmannahafnar, flutti Eim
skipafélag íslands þau þangað
ókeypis.
Að lokum segir í greininni:
— Það var smáskrítin tilvilj-
un að við skyldum fá gjöf þessa
einmitt í þessari viku, þegar
frægasti listmálari íslands, Jó-
hannes Kjarval var kynntur
hér með þremur málverkum á
Vesturlandssýningunni í Lista-
safnssal Álasunds! — Þessi fal-
lega gjöf gleður bæjarbúa inni
lega. — Síðan er skýrt frá mál
verkunum og fylgja grefninni
kæmust ekki norður af þeim
sökum, þá er ákveðið að hafa
Hraðmót Akureyrar í hand-
knattleik, með liðum frá: Í.M.A.
Þór og K.A., A- og B-lið. Að-
göngumiðaverð lækkar þá í
kr. 30.00 og kr. 15.00 fyrir börn.
VERKALÝÐSFÉLAGIÐ Eining
á Akureyri starfrækti síðastliðið
sumar barnaheimili fyrir börn
félagsmanna sinna að Húsa-
bakka í Svarfaðardal. Þessi
fyrsta tilraun félagsins á þessu
sviði þótti gefa svo góða raun,
að nú hefur verið ákveðið að
starfrækja barnaheimili að
Laugalandi í Hörgárdal á sumri
komanda á tímabilinu frá 20.
júní til 20. ágúst. Ef aðsókn verð
ur svipuð því og var í fyrra
munu félagsmenn þurfa að
tryggja börnum sínum pláss
heldur fyrr en seinna.
Úr nágrannabyggðum
Á báðum þessum fundum
mætir Höskuldur G. Karlsson
erindreki F. R. í. flytur erindi
og sýnir íþróttamyndir, þar sem
m.a. má sjá marga af beztu
frjálsíþróttamönnum heims að
æfingum og í keppni.
Frjálsíþróttafólk í bæ og hér-
aði er hvatt til að mæta vel á
þessa fundi. □
myndir af tveim þeirra: Þing-
vallavatni og Siglufirði.
í bréfi til undirr. segir bæjar-
stjóri Álasunds m.a.: — Sam-
kvæmt bæjarstjórnarsamþykkt
var síðar ákveðið, að eftirstöðv-
ar gjafar Akureyrar til Álasunds
að loknu stríðinu, um 12.000 kr.
skyldi varið til kaupa á íslenzk
um málverkum til skrauts í
voru nýja Elli- og Hressingar-
hæli....
Þessi eru málverkin:
Sveinn Þórarinsson:
Skjaldbreiður,
Guðm. Einarsson frá Miðdal:
Gamall torfbær,
Sigurður Sigurðsson:
Frá Þingvöllum,
Jón Þórleifsson:
Siglufjörður,
Kristín Jónsdóttir:
Ferjustaður,
Ásgrímur Jónsson:
Þingvallasveit,
Pétur' Friðrik:
Þingvallavatn.
____Helgi Valtýsson.
SNJÓBÍLL MILLI EGILS-
STAÐA OG SEYÐISFJARÐAR
Seyðisfirði 25. marz. ísinn kom
inn í fjarðarmynnið í gær, en
fjarlægðist í nótt. Stillur en
hörkufrost hafa verið undan-
farna daga, allt upp í 18 stig.
Allmikill snjór er á götum hér
og Fjarðarheiði er ófær venju-
legum bílum. Snjóbíll hefur
fastar áætlunarferðir þrisvar í
viku milli Seyðisfjarðar og Eg-
ilsstaða.
Segja má að atvinna sé næg.
Unnið er að stækkun Síldar-
bræðslu ríkisins og einnig eru
framkvæmdir hafnar við nýju
Síldarbræðsluna. Margir að-
komumenn vinna hér.
Tveir litlir- þilfarsbátar, inn-
an við 10 tonn, róa héðan þeg-
ar gefur á sjó og hafa fengið
reitingsafla. Fer sá fiskur mest
ti! neyzlu í bænum.
Leikfélagið er að undirbúa
árshátíð sína, sem verður fj:öl-
breytt að vanda. Þ. J.
LOÐNAN ER KOMIN
Ilúsavík 23. marz. Nú er loðna
í Skjálfandaflóa og hafa Húsa-
víkurbátar veitt nokkuð af
henni. Nokkuð er einnig veitt
af rauðmaga. Þorskafli er hins
vegar ennþá mjög tregur, hvort
sem reynt er að veiða hann með
hnu eða í net. í gær og í dag
kom dálítið af steinbít á línu,
en ekki er um neitt verulegt
aflamagn að ræða.
Svo kalt er nú í sjónum, að
Húsavíkurhöfn er að hluta ísi
lögð. Sá atburður varð í vik-
unni sem leið, að sjómaður ætl-
aði að fara að trillubáti sínum
eftir ísnum. ísinn brast undan
honum og féll hann í sjóinn.
Menn voru nærstaddir, veittu
honum aðstoð og mun honum
ekki hafa orðið meint af volk-
inu. Þorm. J.
MIKIL SVELLALÖG —
ÓFÆRT UM ODDSSKARÐ
Neskaupstað 25. marz. Stillt veð
ur hefur verið hér að undan-
förnu en mikil frost. Snjór er
lítill en mikil svellalög. Gott ak-
færi er innan fjarðar, en ófært
um Oddsskarð. — ísinn kom
inn í fjarðarkjaft í gær, en hef-
ur fjarlægzt í dag. Úti fyrir
sést í ísröndina.
Ekkert er farið á sjó héðan
og frystihúsin fá engin verkefni
til að vinna úr. Atvinna er ekki
mikil, enda hefur ekki verið
hægt að byrja á byggingum
vegna frosta.
Menn frá Vitamálaskrifstof-
unni voru hér á ferð nýlega og
voru að athuga með hafnar-
stæði fyrir botni fjarðarins. —
Ekki er vitað um niðurstöður
af þeim rannsóknum. H. Ó.
ÍSINN ÞOKAST FRÁ
Vopnafirði 25. marz. Mikil frost
hafa verið hér, frá 14 upp í 18
gráður. ísinn, sem er lagnaðar-
ís, er skammt undan og í gær
kom hann inn á fjörð, en í nótt
og í morgun hefur hann þokast
frá og sézt nú ekki héðan,
skyggni er heldur ekki gott.
Aðeins einn hákarl hefur
veiðst á þessari vertíð, og ekk-
ert er róið til fiskjar.
Næg atvinna er fyrir þá, sem
heima eru, og er þar aðallega
um byggingarvinnu að ræða.
I undirbúningi er að setja á
svið sjónleik, og munu ung-
mennafélagið og kvenfélagið
standa fyrir því. K. V.
TIL SÖLU:
Segulbandstæki og
gírahjól. Hvort tveggja
l ítið notað.
Uppl. í síma 1-17-65.
TIL SÖLU: ,
Barnakerra, kerrupoki
og tækifæriskápa.
Uppl. í síma 1-24-48.
TIL SÖLU:
BARNAKOJUR
Uppl. í síma 1-28-58.
TIL SÖLU:
Ýmis prjónafatnaður
barna. Tek einnig að mér
vélprjón.
Hanna Sveinsdóttir,
Gleráreyrum 7.
TIL SÖLU:
Lítil dráttarvél (Deutz)
ásamt sláttuvél og hey-
ýtu, hrærivél, Rafha-elda-
vél, kartöfluútsæði (gull-
auga og möndlu). Einnig
tómir kartöflupokar.
Þorstéinn Jónsson,
Moldhaugum.
ARSFUNDUR
MJÓLKURSAMLAGS K.E.A.
verður haldinn í Samkomuhúsi Akureyrar þriðjudag-
inn 13. ápríi n.k.-og hefst kl. 10 árdegis.
Dagskrá samkvæmt reglugerð Mjólkursamlagsins.
Akureyri 26. marz 1965.
STJORNIN.
þunn og þykk.
VEFNAÐARVÖRUDEILD
Stúlkur óskast
Upplýsingar hjá hótelstjóranum,
ekki í síma.