Dagur - 31.03.1965, Síða 1
Hér cr Helgi Helgason, 180 tonna tréskip frá Vestmannaeyjum. En skipið komst síðar í eign Ól-
: afsfirðinga. Þessi mynd er úr Slippstöðinni á Akureyri og liefur skipið verið hlutað í sundur.
: Var ætlunin að byggja nýjan framhluta vegna þurrafúa. Skipið er nú dæmt óviðgerðarhæft.
Húnavaka hófst á Blönduósi í gær
Héraðslæknir óskar að fólk sæki ekki samkomur
f GÆR hófst Húnavakan á
Blönduósi, samkvæmt fréttum
að vestan í gær. En þá hafði
héraðslæknir óskað að fólk
sækti ekki skemmtisamkomur,
vegna þeirrar inflúenza, sem nú
gengur vestra og leggst fremur
þungt á marga. Samkomulag
um frestun Húnavökunnar hafði
ekki nóðst, enda erfiðleikar á,
vegna margþætts undirbúnings.
Telja forráðamenn Húnavöku,
að fyrst ekki sé bannað skóla-
hald, sé naumast hagt að ætlast
til frestunar margnefndrar
vöku.
Á Skagaströnd er inflúenzan
mikið útbreidd. Nokkrir hafa
fengið þar lungnabólgu upp úr
inflúenzunni. □
Ellefta kjörbúð KEA á Akureyri
í DAG, mánudaginn 29. marz,
opnaði Nýlenduvörudeild KEA
í Hafnarstræti 91 sem kjörbúð.
Var verzluninni breyttt í sjá’fs
afgreiðslubúð yfir síðustu helgi
og þurfti því aldrei að loka
henni þess vegna. Þar með eru
allar verzlanir Nýlenduvöru-
| DAVÍÐSKVÖLD
DAVÍÐSKVÖLD Stúdenta-
félagsins á Akureyri sl. fösíu
dagskvöld tókst með ágæt-
um. Skemmtiatriðin voru
hvert öðru betra og vökíu
hrifningu hinna fjölmörgu
gesta. Án þess að orðlengja
það, var samkoma þessi
Stúdentafélaginu til sóma og
ber að þakka það og stuðn-
ing þess við Ðavíðshús.
GJÖF TIL ÐAVÍÐSHÚSS
I gær afhenti Jóhann Ó. Har
aldsson tónskáld á Akureyri
formanni Davíðsliúsnefndar,
Þórarni Björnssyni skóía-
meistara, 100 eintök af nýút-
komnum sönglögum tón-
skáldsins, sem öll eru samin
við kvæði Davíðs Stefáns-
sonar. Er þetta hin fegursta
gjöf.
Næsti bændaklúbbsf.
verður að Hótel KEA mánu-
dagskvöldið 5. apríl kl. 9. Um-
ræðuefni: Garðyrkja. Málshefj-
endur frú Ragna Sigurðardóttir
frá Þórustöðum og Óli Valur
Hansson ráðunautur B.f.
deildar, 11 talsins, orðnar kjör
búðir, en það er það verzlunar-
fyrirkomulag, sem reynslan sýn
ir að er vinsælast í dag.
í aðalbúð Nýlenduvörudeildar
í Hafnarstræti 91 hafa alltaf ver
ið allmikil reikningsviðskipti,
sem erfitt er að eiga við í kjör-
búðum, þar sem krafst er stað-
greiðslu. Við brej’tingu hinnar
umræddu verzlunar var þó tek
ið tillit til þessa og í tilrauna-
skini komið fyrir sérstöku af-
greiðsluborði fyrir reikningsvið
skipti en framtíðin sker úr um
hvernig það fyrirkomulag reyn
ist.
Deildarsíjóri Nýlenduvöru-
deildar er Kristinn Þorsteins-
Jarðabæfur meiri í héraðinu en árið á undan
Úr skýrslu Jóns T. Steingrímssonar ráðunauts
AÐALFUNDUR Búnaðarsam-
bands Eyjafjarðar var haldinn á
Akureyri dagana 24. og 25.
marz sl. Fundinn sátu fulltrú-
ar 13 búnaðarfélaga ásamt ráðu
nautum sambandsins og stjórn
þess. Stjórn BSE skipa Ármann
Dalmannsson, Jón Hjálmarsson
og Eggert Davíðsson.
í skýrslu jarðræktar- og sauð
fjárræktarráðunauts, Jóns
Trausta Steingrímssonar, kom
þetta m.a. fram:
Nýræktir voru árið 1964 sam
HIÐSTJÓRNARFUNDILOKIÐ
MIÐSTJÓRNARFUNDI Fram-
sóknarflokksins, sem hófst á
fösíudaginn, Iauk á sunnudags-
kvöídið. Á fundi þessum mættu
um 90 fulltrúar kjördæma, sem
sæti eiga í miðstjórn, svo og al-
þingrnenn flokksins og ritstjór-
ar flokksblaðanna.
Þátttaka í umræðum var mik-
il, nýmælum hreyft og ályktan-
ir gerðar. — Fundarstjóri alla
fundardagana var Þorsteinn
Sigurðsson formaður Búnaðar-
félags íslands. — Kjör stjórnar
og framkvæmdastjórnar fór
fram síðdegis á sunnudag.
Stjórnin var öll endurkjörin.
Hana skipa: Eysteinn Jónsson
formaður, Helgi Bergs ritari,
Sigurjón Guðmundsson gjald-
keri, Olaíur Jóhannesson vara-
formaður, Jóhannes Elíasson
vararitari og Kristján Bene-
diktsson varagjaldkeri.
í framkvæmdastjórn voru
kjörnir: Einar Ágústsson, Her-
mann Jónasson, Þórarinn Þór-
arinsson, Jóhannes Elíasson,
Erlendur Einarsson, Sveinn
Tryggvason og Tómas Árnason.
5 menn eru sjálfkjörnir í mið-
stjórn: formaður, ritari, gjald-
keri, varaformaður og formað-
ur SUF. Varamenn í fram-
kvæmdastjórn voru kjörnir:
Steingrímur Hermannsson og
Gunnar Guðbjartsson. □
EYSTEINN JÓNSSON.
HELGI BERGS.
SIGURJON GUÐMUNDSSON.
Jón Trausti Steingrímsson.
tals 483,2668 ferm. og var aukn
ing frá fyrra ári 157,5714 ferm.
Vélgrafnir skurðir voru 178.825
rúmm. og aukning frá fyrra
ári 17,565 rúmm. Uppsettar girð
ingar voru á árinu rúml. 59000
metr. matjurtagarðar 34.3478
ferm., túnsléttur 2,0117 ferm. og
er einnig um aukningu að ræða
á þessum liðum.
Byggingaframkvæmdir voru
þessar helstar: Þurrheyshlöður
12406,8 rúmm., votheyshlöður
786,4 rúmm, haughús 1755 rúm-
metrar og garðávaxtageymslur
900,2 rúmmetrar.
Jarðarbótanrenn voru 341 árið
eða 24 fleiri en árið áður.
Nýræktir voru mestar í Saur-
bæjarhreppi eða 70 há. (heilar
) þá í Glæsibæjarhreppi,
og þriðji í röðinni Sval-
barðsstrandarhreppur með 61
ha. Nýrækt á hvern jarðbóta-
mann var mest í Glæsibæjar-
hreppi, 2,64 ha þá í Svalbarðs-
strandarhrepp 2,35 ha. og í
Skriðuhreppi 1,99 ha.
Átta sauðfjárræktarfélög skil
uðu skýrslum en eitt svo seint,
að það kemur ekki inn á skýrslu
ráðunauts að þessu sinni. í hin
um félögunum, 7 talsins, eru 45
félagar með 1386 skýrslufærðár
ær. Bendir ráðunauturinn á, að
hver félagi þurfi a.m.k. að hafa
50 skýrslufærðar ær.
Hæsta meðalvigt kjöts undan
ánni höfðu bændur á Árskógs-
strönd. Þingeyskar ær gáfu 24,61
kg. Tala áa 89. Vestfirsku æmar
gáfu 24,31. Tala áa 21. En með-
altal í sauðfjárræktarfélögun-
um sýndi þessar niðurstöður:
459 þingeyskar ær gáfu 20,89 kg
en 927 vestfirzkar ær gáfu 21,77
kg.
í 9 hreppum sýslunnar voru
haldnar hrútasýningar. Alls
voru sýndir 395 hrútar og hlaut
rúmur þriðjungur fyrstu verð-
laun. Einnig voru haldnar af-
kvæmasýningar fyrir þá, sem
þess óskuðu. Sýndir voru 4 hnit
ar og 2 ær með afkvæmum. Einn
hrútanna, Börkur frá Ytri-
Dalsgerðum hlaut fyrstu verð-
laun og önnur ærin, Breiðleit
frá Lundi. Dómarar á sýningun
um voru Jón T. Steingrimsson
og Grímur Jónsson héraðsráðu
nautur frá Ærlækjarseli í Axar
firði.
Stofnuð var á sl. ári sauð-
fjársæðingarstöð fyrir Norð-
lendingafjórðung og er hún á
Lundi á Akureyri. Hrútar voru
fengnir frá Axarfirði, Núpasveit
og Þistilfirði, 5 talsins. Stöðin
tók til starfa í desember. Frá
stöðinni fóru 7400 skammtar. Á
(Framhald á blaðsíðu 2).
Norðurlandsborinn
í Glerárdal er kominn í 130 m.
dýpt. 30—40 stiga hiti er í bor-
holunni en ekki vatn ennþá.