Dagur - 31.03.1965, Qupperneq 2
2
-SKÓLAMÁL
(Framhald af blaðsíðu 5).
þess er engin ein leið, heldur
margar.
Ef til vill er sú leið ekki alls
kostar heppileg að skipta nem-
endum í bekki með 20—30
manns, eins og nú tíðkast. Ann
ars vegar ætti að hafa stærri
heildir og hins vegar minni. Ef
ég er að útskýra eitthvað í mál
fræði og nemendur aðeins
hlusta, geta hundrað nemendur
alveg eins hlustað á mig eins
og 20—30 manna hópur. Með
þessu móti mætti spara mikinn
kennslutíma, og sennilega verð
ur þetta svo, þegar sjónvarpið
kemur. En þegar þarf að æfa
nemendur í þessum sömu regl
um, sem áður hafa verið skýrð
ar fyrir þeim, og ganga úr
skugga um, að þeir hafi tileink
að sér þær, verða þeir að vera
fáir, til þess að þeir geti verið
virkir. Hér er því um að ræða
að skipta í stóra hópa eða litlar
heildir sitt á hvað eftir atvikum.
Einnig þurfa svo nemendur að
vinna heima. Námið skiptist í
þrennt, segja Ameríkanar: 40%
heimavinna, 40% fyrirlestrar og
20% smáhópavinna. Eg gæti þó
látið mér detta í hug, að smá-
hópavinnan þyrfti að vera meiri
En ég get vel hugsað mér, að
skólarnir eigi eftir að breytast
eitthvað í þessa átt. Eg óttast þó
að sjálf skólahúsin og gerð
þeirra verði hér þrándur í götu.
En það er alveg áreiðanlegt,
að það, sem mest vantar, er að
gera nemendurna virkari í
kennslustundum, svo að þeir
þurfi ekki að sitja einurigis og
hlusta sex klukkustundir á dag.
En til breytinga á skólastarf-
inu, sem leiða eiga til verulegra
umbóta, verður erfiðast að fá
mennina. Kerfi og aðferðir eru
misgóð, en skipta þó engu meg
inmáli. Það er maðurinn, sem
alltaf veltur mest á, og alveg
sérstaklega þegar um er að
ræða að glíma við mannlegar
sálir. En hvernig á að fá nóg
af góðum mönnum inn í kenn-
arastéttina? Sumir halda, að
það sé hægt með því að borga
þeim nógu mikið. Eflaust
getur það eitthvað hjálpað, þó
að aldrei sé skemmtilegt að
þurfa að kaupa nokkum til
nokkurs. En kennarar þurfa
auðvitað að hafa laun til að lifa
af og mennta sig, svo að þeir
þurfi ekki að afla sér aukatekna
í hverri tómstund, sem þeir hafa
frá kennslunni. En launin eru
hér ekki ein að verki. Það eru
sjálf vísindin, sem hér eiga líka
sökina. Um þau er ljómi, sem
lokkar til sín duglega menn og
'tékur þá frá venjulegri kennslu.
Eg hefi stundum sagt við nem
endur mína: „Mér finnst þið
vera að velja ykkur auðveld-
ari leiðinaj þegar þið gangið vís
indunum á hönd. Það er þúsund
sinnum vandasamara að fást
við lifartdi sálir en við dauða
hluti, og vísindin fjalla mest um
dauða hluti.“ Framgjarnir ungir
menn unaettu. gjarna snúa sér
'3$ skólunum og vinna að því að
hefja-þá . í ^eðra veldi, ef þeir
viljá gera gagn og hugsa meira
um það en peningana.
- LANDSYIRKJUN
(Framhald af blaðsíðu 8).
á Laxárveitusvæðinu, eins og
óhjákvæmilega hlyti að verða
með slíkri samsteypustjórn sem
áætluð væri. Þó væri sjálfsagt
að eiga opna aðild að lands-
virkjun, þegar þróunin væri
lengra á veg komin. Síðan varð
samkomulag um eftirfarandi
tillögu:
„í framhaldi fyrri samþykktar
sinnar um virkjun Laxár vænt-
ir bæjarstjórn Akureyrar þess
að í frumvarpi til laga um
landsvirkjun, sem lagt yrði fyr-
il Alþingi, væru ákvæði um að
Laxárvirkjun geti gerzt aðili
að landsvirkjun, þegar Akur-
eyrarbær og stjórn Laxárvirkj-
unar æskja þess. Jafnframt æsk-
ir bæjarstjóm að fá að fylgjast
með undirbúningi lagasetning-
ar um landsvirkjun." □
- Jarðabætur meiri...
(Framhald af blaðsíðu 1).
svæði Búnaðarsambands Eyja-
fjarðar voru sæddar 1187 ær
og mun um það bil önnur hvor
ær hafa haldið. -Þykir sá árang
ur, sem eflaust fer vaxandi,
sæmilega góður eftir ástæðum.
En allt dreyfingarsvæðið náði
yfir Eyjafjarðarsýslu, S-Þing-
eyjarsýslu, Skagafjarðarsýslu
og A-Húnavatnssýslu.
Síðar verður vikið að skýrslu
vélaráðunauts, Stefáns Þórðar-
sonar.
RAUÐU
Tízku-stígvélin
eru komin.
SKÓVERZLUN
M. H. LYNGDAL H.F.
ÁVAXTASALAT
ÍTALSKT SALAT
með rjóma.
Mjög góð vara.
Selt í lausri vigt á föstu-
dag og laugardag.
KJÖTBÚÐ K.E.A.
AUGLÝSIÐ í DEGI
SKRAUTSKÁLAR
í miklu úrvali
STÁLFÖT
HOSTESS-SETT
STYTTUR
úr marmara og leir,
hentugar til gjafa.
BLÓMABÚÐ
Reyktur
RAUÐMAGI
NÝJA-KJÖTBÚÐIN
Jahá! Það eru margir góðir eiginmenn á Akureyri,
það kom í ljós á konudaginn.
Nú bjóðum vér yður aftur okkar viðurkenndu
BEINLAUSU FUGLA
í helgarmatinn.
Svo og
LONDON LAMB
LAMBA-HAMBORGARHRYGG
Tilbúið á pönnuna:
LAMBASNITZEL - LAMBAKÓTELETTUR
Vinsamlegast pantið til helgarinnar á föstudögum.
KJÖTBÚÐ K.E.A.
ÁRSHÁTÍÐ
Vestfirðinga-
félagsins
verður haldin að Hótel
KEA laugardaginn 3.
apríl. Hefst með borð-
haldi kl. 7.30 e. h. -
Aðgöngumiðar verða afhentir miðvikudag og fimrntu-
dag 31. marz og 1. apríl kl. 8.30—10 e. h. að Hótel
KEA. Upplýsingar gefnar í síma 1-28-11 og 1-29-55
eftir kl. 7. —
Vestfirðingar fjölmennið og takið með ykkur gesti.
NEFNDIN.
N ý k o m n i r :
TELPNAKJÓLAR
á 2—5 ára.
VERZLUNIN DRÍFA
Sími 11521
Til fermingargjafa:
PEYSUR, m. gerðir
Hvergi meira úrval.
VERZLUNIN DRÍFA
Sími 11521
TIRELLA
DÖMU STRETCH
BUXUR
VERZLUNIN DRÍFA
Sími 11521
RÖNDÓTTAR
BÍTLA-PEYSUR
frá Peysunni.
VERZLUNIN DRÍFA
Sími 11521
JEPPI
Willysjeppi, árgerð 1947,
tif sölu.
Þorsteinn Jónsson,
Moldhaugum.
JEPPABIFREIÐ
óskast til kaups. Góð út-
borgun. Tilboð sendist
afgreiðslu blaðsins fyrir
15. n. m. merkt „Jeppi“.
FREYVANGUR
Húsvörð vantar að E'rey-
vangi frá 1. júní n.k.
Upplýsingar gefur Jónas
Halldórsson, Rifkelsstöð-
um. Umsóknarfrestur til
15. apríl n.k.
Fra Nýlenduvörudeild K.E.A.
Vér höfum nú breytt aðalbúðinni Hafnarstræti 91 í KJÖRBÚÐ
Það er von vor að með þessu nýja fyrirkomulagi búðarinnar get-
um vér veitt hinum mörgu viðskiptavinum vorum í sveit og bæ
enn betri þjónustu en áður.
Verið velkomin og veljið sjálf það sem þér viljið kaupa.
Eins og að undanförnu sendum vér um allan bæinn kl. 10 f. hád.
og kl. 2 e. hád.
Nýlenduvörudeild K.E.A.