Dagur - 21.04.1965, Blaðsíða 4
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Biörnssonar h.f.
SUMRI FAGNAÐ
VETUR er nú að kveðja, og í þessu
landi er sumri innilegar fagnað en í
öðrum löndum, enda fyrsti sumar-
dagur hvergi hátíðisdagur nema á
íslandi. Fyrstu farfuglarnir eru þeg-
ar komnir hingað til lands og það
ævintýri vorsins er ætíð jafn mikill
gleðigjafi. Nú bíða ]>eir þess að jörð
grói og maðkur finnist í mold, en
jörð mun djúpt freðin að þessu sinni,
enda veður svöl og meiri ís fyrir
landi en undangengin 47 ár. Isinn
Iiefur teppt siglingaleiðir til Norð-
urlands um nokkurra vikna skeið.
Sjórinn er kaldari en áður, þorsk-
veiðar nær engar og dauft yfir at-
hafnalífinu um þessar mundir. In-
flúensa, kennd við Asíu, hefur geng-
ið yfir Skagafjörð og Húnavatns-
sýslur en ekki verið mannskæð. I
sveitum voru menn vel undir harð-
an vetur búnir eftir gott heyskapar-
sumar. En stundum hefur góður
ásetningur hrokkið of skammt á ísa-
árum, og víst er ísinn uggvekjandi
]K>tt miðaldra fólk og ]>eir, sem
yngri eru, hafi aldrei hafís augum
litið, aldrei fundið hinn nístandi ísa-
kulda eftir að komið er sumar, aldrei
þurft að ]>ola ]>a r hörmungar, sem
honum fylgdu stundum l'yrr á árum.
En þótt ís loki skipaleiðum, hafa
nýjar leiðir opnazt til aðdrátta og er
því minni hætta á innilokun og
vöruþurrð.
Deyfð atvinnulífsins á Norður-
landi stafar fvrst og fremst af afla-
bresti á norðlenzkum fiskimiðum,
en á sjávaraflann hafa menn löngum
treyst, og það svo, að þorp og kaup-
staðir haía byggt tilveru sína á hon-
tim að mestu leyti. Undantekning er
]>ó t. d. Akureyri, sém er hlutfalls-
lega mesti iðnaðarbær landsins. En
]>ar hefur einnig skugga borið yfir
vegna þeirrar stefnu valdhafanna í
inálefnum iðnaðarins, sem lagt hef-
ur kalda hönd á þennan atvinnuveg.
Sú stefna torveldar innlendum iðn-
greinum samkeppnisaðstöðu við er-
lendaíi, innfluttan iðnvarning, svo
sem margir hafa nú fengið að þreifa
á síðustu vikurnar. Stóriðja, sem nú
er fyrirhuguð, getur að litlu leyti
komið í stað hins margþætta inn-
lenda iðnaðar, sem nú er ómaklega
að kreppt. En vonandi vex skilning-
ur þeirra er málum ráða, á þessu
þýðingarmikla atriði.
En nú er sumarið framundan og
hækkandi sól mun ekki aðeins leysa
jörð úr böndum kulda og klaka,
eyða ísnum, gefa gróðri á landi og í
sjó lífsmáttinn að nýju, fagna lambi
og folaldi í haga og leiða fisk á mið,
heldur og vekja nýjar vonir og auka
þrek manna til starfa og dáða. I von
um, að svo verði og gæfan fylgi
hverju góðu starfi, fögnum við kom-
andi sumri.
GLEDILEGT SUMAR!
EINAR Ö. BJÖRNSSON.
RAGNAR ARNALDS, alþingis
maður, skrifar grein í Fjölnir á
Siglufirði, sam einnig er birt í
Verkamanninum á Akureyri,
sem hann nefnir „Skipulagsmál
Aiþýðubandalagsins“. Mér þyk-
ir vænt um, að hún skuli vera
komin fram. Hún er söhnunar-
gagn frá þessum sendimanni
Einars Olgeirssonar til Norð-
lendinga um hiutverk hans og
vitnisburður um fyrirætlanir
þeirra í þjóðmálum.
Eg vil benda á grein, sem ég
skrifaði í „Dag“ á Akureyri 3.
febrúar sl., sem ber heitið „Hef-
ur Björn Jónsson slæmar draum
farir í dyngju kommúnista“.
Það er furðulegt, að Ragnar
Arnalds skuli vera svo djarfur
að reyna að telja fólki trú um,
að eitthvað nýtt felist í því, þó
að kommúnistar og fylgisveinar
þeirra reyni að stinga höfðinu í
sandinn eða líti undan um stund
og það sé nægilegt til að fólk
gleymi hráskinnsleik þeim og
bæta því svo við, að slíkt sé
stefna, sem eigi vaxandi fylgi
um Norðurlönd og Vestur-Evr-
ópu.
Ragnar segist ekki vera í Só-
síalistaflokknum eða öðrum sam
tökum, hann sé bara í „Alþýðu-
bandalaginu". En hvað er Al-
þýðubandalagið orðið annað en
það, sem hangir utan í Sósialista
flokknum?
Ragnar er ekkert annað en
sjónhverfingarmaður, sem stend
ur á svölum Einars Olgeirsson-
ar og féiaga til að leika það hiut
verk í Norðurlandi, sem Lúðvík
Jósepsson hefur leikið á Austur
landi, Hannibal á Vestfjörðum,
Alfreð Gíslason í Reykjavík,
Gils Guðmundsson á Reykjanes
skaganum og Björn Jónsson á
Akureyri, að þeir séu ekki
kommúnistar bara einlægir
vinstrimenn, þeir þiggi aðeins
atkvæði frá kommúnistum og
fjármagn, sem streymir inn eft-
ir viðskiptaleiðum og öðrum leið
um frá hinum „Austræna heimi1
og samkrull við gróðaöfl hér inn
anlands, næri þá og metti og
tryggi þeim þingsætin, sem
verka þó líkt á þá eins og doði,
vegna þess ótta, sem inni fyrir
býr. Þeir vita að fóðrið, sem
þeir framleiða handa íslenzkum
kjósendum, er ekki orðið lyst-
ugt, og hin rauða kýr með „Al-
þýðubandalagslitina,“ sem á að
næra alla hjörðina, getur vesl-
ast upp.
Hinn nýi Alþýðubandalags-
læknir Ragnar Arnalds, sem er
eins og fermingardrengur í liði
kommúnista, hann þarf ekki að
lltllllShlllltillllftllllllllllllttlllMMIlIlllllkillllllM EINAR Ö. BJÖRNSSON, MÝNESI: ............................................................................
IMIIIIIIIIIIIIIIIIIMMIMMMIIIIIIIIIIlMMMII
Er þefta hluiverk Ragnars
þingism. í Noriurlandskjördæmi ves
halda, að honum takist í Húna-
þingum og Skagafirði að villa
fólki sýn.
Það er því unnið fyrir gýg að
telja, að eitthvað nýtt feiist í
því, þó að Alþýðubandalagsflík-
inni sé snúið við og rangan eigi
nú að skýla því pólitíska farg-
ani, sem kommúnistar og fylgi-
sveinar þeirra kasta á milli sín
og má helzt hvergi koma niður.
Ragnar Arnalds ætti að kynna
sér samfylkingarsögu og vinstra
hjól kommúnistabroddanna hér
á landi, og flokksstofnun komm
únista og fylgismanna Héðins
Valdimarssonar 1938. Vikurnar
áður var vorhugur í mörgum
verkalýðssinnum og' vinstri
mönnum á íslandi. Samt var
það svo, að kommúnistar voru
ekki fyrr komnir út úr Gamla
Bíó, stofnfundur Sósíalista-
flokksins var haldinn þar, en
þeir settust niður til að ganga
frá því, að þeir hefðu tögl og
haldir í flokksfélögunum og
yfirráð í flokknum, sem endaði
á þann veg, að þeir tóku upp
kommúnistíska stefnu á ný
með fylgd við innrás Rússa í
Finnland. Það varð til þess, að
Héðinn Valdimarsson, einn
glæsilegasti verkalýðsleiðtogi,
sem ísland hefur alið, varð að
lúta í lægra haldi og yfirgefa
Sósíalistaf'okkinn vegna undir-
ferlis kommúnista og svika við
þá stefnu og stöðu, sem Sósía-
listaflokknum var ætlað í stjórn
málabaráttu íslendinga.
Þessi saga hefur endurtekið
sig í Alýðubandalaginu, en verk
ar nú eins og uppdráttarsýki á
alla hersinguna, vegna þess, að
tímans hjól leyfir ekki, að slík
ólánspólitík verði lengur við
líði hér á landi.
Þegar viðreisnarstjórnin var
sett á laggirnar síðla árs 1959,
sköpuðust skil í stjórnmálum
landsins. Þá var barómetstaðan
hagstæð til að hasla vinstri
mönnum völl og hefði því mátt
ætla, að Alþýðubandalagshug-
sjón Hannibals og Lúðvíks hefði
þá átt að rætast. En svo varð
ekki í reyndinni.
Á þingi Sósíalistaflokksins í
marz 1960 var ekki slíkt and-
rúmsloft. Ég ætlaði mér að
sitja það þing, sem áheyrnar-
fulltrúi með málfrelsi og ræða
um þau mál frá sjónarmiði
þeirra, sem vildu gera Alþýðu-
bandalagið virkt í íslenzkum
stjórnmálum, laust við kreddur
kommúnista og út yrði gefin
yfirlýsing um, að Alþýðubanda
lagið starfaði á íslenzkum
- grunni, en væri ekki í sam-
krulli við erlend öfl eða hring-
snerust eftir sveiflum, sem yrðu
í valdabrölti og hráskinnsleik
kommúnistisku broddanna í
Austur-Evrópu, sem halda þar
aðeins völdum í skjóli hers og
lögreglu, þar sem fólkið er gert
að ríkisþrælum í andlegum og
veraldlegum efnum.
Á nefndu þingi var raunar
Alþýðuþandalagið jarðað endan
lega, og Hannibal, Alfreð Gísla-
son og Finnbogi Rútur þökk-
uðu liðveizluna með því að þeir
voru ekki einu sinni viðstaddir
þingsetninguna þó að þeir væru
þingmenn Alþýðubandalagsins.
Þeir gerðu sér þetta að góðu og
létu reka, sáróánægðir, og var
það ljóst að minnsta kosti Finn-
boga Rút, að enginn var til að
fá fram birtingu. Þannig smá-
veslaðist Alþýðubandalagið upp
í höndunum á forustumönnun-
um, sem þó byggðu það upp
með sjálfum sér í fyrstu. Það
var því raunar aldrei annað en
aftanívagn, sem Hannibal og
fylgismenn hans komust upp í,
sem tengdur var við aðalvagn
kommúnista. Nú kemur Ragnar
Arnalds fram á sviðið og stend-
ur í vagni kommúnista og pre-
dikar, að það sé ekki sitt mál,
þó að einhverjir séu kommún-
istar. Vitanlega er það ekki
hans mál.
En Þóroddur á Siglufirði,
Einar Olgeirsson og Brynjólfur
Bjarnason vita, að það er þeirra
mál, að Ragnar skrifi og tali
eins og hann gerir.
Ég er argur við Ragnar Arn-
alds, af ætt Einars Hjörleifsson-
ar skálds, og því frændi minn,
að hann skuli láta hafa sig til
að leika það hlutverk, sem virð-
ist við blasa eftir orðum og at-
höfnum hans að dæma, þótt
honum verði ekki ágengt.
Það er ekki álitlegt fyrir ung-
an mann að standa á palli með
kommúnistum, sem ekkert virð
ast hafa lært, en síga nú sam-
an í Reykjavík í „bussnisbrölti“
keyrðir áfram af peningavaldi,
sem þeir þykjast hafa verið að
berjast gegn. Þeir reyna samt
að telja fólki trú um, að þeir
haldi uppi sókn fyrir hið vinn-
andi fólk á íslandi, sem ekki
hefur ennþá möguleika til að
lifa af venjulegum daglaunum,
þrátt fyrir að kommúnistar
hafa riðið Alþýðusambandinu
síðan 1954, setið í vinstri stjórn-
inni 1956—58 og minnast varla
á það, þó að fólkið, sem vinn-
ur við framleiðsluna til sjós og
lands verði að leggja á sig lang-
ar vökur og er síðan hengt fyr-
ir það með skattpýningu á með-
an sumir aðrir hafa nær hundr-
aðsföld verkamannalaun.
Viðskiptamálaráðherrann læt
ur sig ekki muna um, að halda
því fram að landbúnaðurinn
tefji fyrir eðlilegum hagvexti
þjóðarinnar og finnur það senni
lega vel, þegar búið er að leggja
á borð hjá honum, og sér, að
flest sem þar er, kemur frá
landbúnaðinum. Kannski hann
vilji að Mokkakaffi-fólk og
skriffinnarnir sem honum
þjóna, taki við framleiðslunni
og verði hagvextinum hjálpleg-
ir. Hann getur látið Jónas Har-
alz efnahagsráðunaut reikna
það út.
Þannig er viðmót og vinnu-
brögð kommúnista og krata í
málum þess fólks, sem þeir
þykjast vera að bcrjast fyrir,
að í það er kastnð ónotum eða
haft að skotspæni ti! þess að
reyna með þeim hætti að hræða
það til hlýðni viö það vald, sem
þeir eru nú orðnir þátttakend-
ur i og hréiðra nú um sig í
skrifstofuhöllum Reykjavíkur,
þar sem verkalýðs- og alþýðu-
baráttan er nú stunduð á papp-
ír, sem þeir hlaupa með á milli
þinghússins og flokksskrifstofu
sinnar og setja síöan á þrykk í
blöðum sínuin. sem stefnu fólks
sem þeir eru fyvir löngu hætt-
ir að hafa nokkurt samband
við.
Það er því ekiti um annað að
gera en hefja nú aftur til vegs
landsmálabaráttu, sem samein-
ar fólkið um málel’ni sín.
Á þingi Norðurlandaráðs í
vetur var meðal fulltrúa hinn
danski Axcl L.arsen. Hann sat
20. þing kommúnisla í Moskvu.
Hann var vitni að uppljóstrun-
um Krjúsjeffs á valdatímabili
Stalíns, sem voru ótagrar og
bentu ekki til þess, að hið
sósíalska Guðsríki hefði þróast
þar, heldur blóðfórnir alþýð-
unnar og slátranir á forustu-
mönnum byltingarinnar, sem
hefðu verið líflátnir saklausir.
Þessi tíðindi flutti Axel
Larsen heim með sér .og gaf
skýrslu um það í flokki sínum,
kommúnistaflokknum danska,
sem hann hafði verið formaður
fyrir um árabil.
Honum var vikið úr flokkn-
um, og ætlað það hlutverk að
daga upp á pólitiskri eyði-
mörk, eins og svo mörgum hef-
ur verið ætlað hér á landi, ef
þeir hreyfðu andmælum gegn
hinni forsoðnu pólitik, sem hér
hefir verið rekin af forustu-
mönnum sósíalista.
Larsen myndaði nýjan flokk,
sem vann glæsilegan sigur 1
þingkosningui^um dönsku og
fékk 11 þingmenu. kommúnist-
ar engan.
Þegar Axel Larsert kom á
Reykjavíkurflugvöll voru mætt
ir að taka á móti honum Einar
Olgeirsson og Lúðvík Jósefsson
ásamt ýmsum öðrum úr hópi
kommúnista. Þar var ræfil-
dómur settur á svið. Nú ætluðu
þeir Einar og Lúðvík að endur-
helgast og sýna sig i gerfi Ax-
els Larsens og þannig klæða sig
úr þeim álagoham. sem þeir
hafa verið í.
Boðið var til fundar á Hótel
Borg af róttækum stúdentum
og þeim Einari Olgeirssyni og
Axel Larsen boðið að halda þar
ræður, hvor með sínum hætti.
Einar vildi samfylkingu krata,
komma og fleiri og vildi prófa
eitt tímabil enn að láta komm-
únistakjarnann mula undir sig
allt það íólk. sem hann er
hræddur um að kynni að taka
UPP þjóðlegri stefnu fyrir lands
fólkið í þessu góða Lmdi. Þann-
ig er leikinn sá hrunadans af
þeim mönnum, sem nú sitja of-
an á félagasamtökum fólksins
og' nota þá aðstöðu til að halda
sér á floti með pólitík, sem lífs-
nauðsyn er að losna við, ef fást
á leiðrétting um réttláta skipt-
ingu þjóðarteknanna og eyða
hinum tryllta dansi í kringum
gullkálfinn.
Axel Larsen skýrði frá sínum
sjónarmiðum og varaði við
pólitík Austur-Evrópuþjóða, er
lágu undir fargi kommún-
ismans, en lýsti sig fylgjandi
leikreglum lýðræðisins í átt að
því marki, sem hann taldi flokk
sinn stefna að.
Spurningin mikla, er samt,
hver er afstaða Larsens til Ein-
ars og Lúðvíks og hráskinns-
leiks þeirra hér á landi. Það
kom aldrei fram. Enda verða
ekki sótt dönsk ráð um, hvernig
við íslendingar högum okkar
stjórnmálabaráttu.
Að síðustu vil ég minna Ragn
ar Arnalds á eftirfarandi:
Fjöldi fólks, sem studdi Al-
þýðubandalagið 1956, hvarf
fljótt frá því eins og kosninga-
tölur sanna. Slökunin á vinstri
stjórninni kom raunar straz eft-
ir þing kommúnista 1957. Þá
sáu kratar að Hannibal og fylg-
ismenn hans höfðu misst fót-
anna vegna þess að Lúðvík
hafði þá strax svikið vin sinn
Hannibal.
Lúðvík ætlaði sér að verða
formaður í samkrullinu, sem
hann kallar Alþýðubandalag,
með sínum áherzlum, en varð
fótaskox-tur og er nú pólitískur
niðursetningur hjá Einari og
Brynjólfi, sem nú hafa raðað
utan um sig ungum mönnum,
sem frekar verða fengnir til að
gæta hirzlu Sósíalistaflokksins,
sem Einar Olgeirsson telur
sjálfur að eigi framtíð, jafnvel
um aldir. Það er því ekki karl-
mannlegt af Bii-ni Jónssyni al-
þingismanni að fá Ragnar Arn-
alds til að ski-ifa fyrir sig um
eflingu „Alþýðubandalagsins“
og veia þá um leið upp með
sér af því að meina ekkert með
brölti sínu í Norðurlandskjör-
dæmi. Þó hann hafi Arnór Sig-
urjónsson sér til fylgdar.
Ég hef kynnst þessu öllu
saman í Reykjavík og gæti lýst
þessu betur, en það verður að
bíða.
Það er aum frammistaða hjá
Ragnari Ai-nalds, að vinna það
fyrir þingsæti að ski-ifa um allt
og ekkert og ætla með því að
lífga það við, sem dautt er og
orðið að vofu, sem nú er talin
svífa um í nafni Ragnai’s Arn-
alds á hringekju kommúnista,
sem ekkert á eftir annað en
fara út af spoi-inu og velta um.
Ég hef lýst í þessari grein
stjórnmálaástandinu og hrá-
skinnsleik kommúnista og því
hlutvei-ki, sem Ragnai-i Arnalds
er falið að vinna að og minnir
í pólitík sinni á jarðálf, ef hon-
um dettur í hug, að brölt komm
únista með Alþýðubandalaginu
skipti sköpum í stjórnmálabar-
áttu framtíðai-innar.
Þar er fremur blóðtappi, sem
þarf að eyða.
mætti vera, sent ekki gæti fallist á dálítinn leikaraskap, fyrst
]>að á annað borð væri nauðsynlegt og óhjákvæmilegt. En
svo sagði hann með óvæntri þykkjn í röddu og fasi:
— Eg hélt þú værir svona nokkurnveginn fínn maður. —
Að lokum varð samt niðurstaðan sú, að ekki skyldi stofn-
að til neinnar stórveizlu, heldur aðeins til fjölskyldu-hádeg-
isverðar, og að honum loknum færi svo Rútur og frú hans
með síðdegislestinni í brúðkaupsför til Ítalíu.
Eiríkur sá Elínu nokkrum sinnum, hún var hálffeimin
og fáorð, en hún virtist ánægð. Hún var einnig hressari í
bragði, þótt þau Rútur væru stöðugt á ferð og flugi í fjöl-
skyldu-heimsóknum og á kvöldin í kaffihúsum.
'Þau keyptu sér hús uppi í Vindási.
Eiríkur var ekki viss um, hvernig henni geðjaðist að öllu
]>essu, þetta var allt svo furðulegt, og stór stærilætis-blekking
væri allt þetta sennilega, þótt hann í raun og veru áttaði
sig lítið á Rúti að lokum. Hann væri svo þjóðfélagslega
metnaðargjarn að hann vildi auðvitað láta jafn liátíðlegan
viðburð sem giftingu sína verða nægilega áberandi, svo að
allt væri í fyllsta lagi, bæði formlega og að sjónarsýn. Og
auk þess væri þetta sennilega dálítið athyglisverður við-
burður fyrir hann sjálfan, einskonar nýr virðuleiki. Og þar
að auki væri Elín, — ef hann segði ]>að satt, — eina konan
sem vakið hafði einhvern örlítinn ástársnert hjá honum. —
Seinna gæti hann svo vissulega rifjað upp á ný kvennaveið-
ar sínar, — og yrðu þær nú að lara tram með mun meiri
gætni en áður, — og gæti það einmitt ef til vill gert þær
eftirsóknarverðari. — Elín gæti varla gert sér háar hug-
myndir á þessum vettvangi. — Og það kæmi honum ekki
við.
Einn daginn vísaði Eiríkur frá sér tveim málum sem hann
þó nýskeð hafði gefið hálfvegis ádrátt um að flytja. Við
skjólstæðinga sína afsakaði hann sig með önnum, en við
sjálfan sig með því, að þetta væru leiðindamál. Eftirá létti
honum í skapi.
Dag nokkurn hætti hann skyndilega i skrifstofunni klukk-
an tvö. Eldsnöggt hugskot greip hann algerlega óvænt: —
Hann fór með strætisvagninum upp að Majórstofu, og þaðan
gekk liann uppeftir og fór sér hægt. Þegar hann kom að
Vestari-graflundi fór hann þar inn og gekk gangstiginn
inn á milli grafanna. Hann staðnæmdist að lokum við gröf
þar sem brotinn steinn hafði verið reistur. Þar stóð á plötu
felldri í steininn:
t
Stúdent
NÍELS BANG
1890-1912
Það var þá hingað sem mér var ætlað í dag, hugsaði Ei-
ríkur. Hvers vegna? Á.ég að rannsaka sjálfan mig?
Hann stóð kyrr og horfði á frosna gröfina, og hann fékk
á ný sömu hugmyndina sem svo oft áður: — að líkamlegur
sársáuki hlyti að fylgja því að vera dauður. Þetta var auð-
vitað hlægileg hugmynd, en hann gat ekki hugsað sér til-
finningalausan líkama, — að þessi skrokkur hans, lífsstöðv-
ar allra hans tilfinninga, tengiliðurinn milli heimsins og
haríS sjálfs, — að hægt væri að leggja hann í svarta kalda
jörð eða brenna hann í hvítum logum án þess að það valdi
kyölum. Og enn óskiljanlegra var honum nú sem áður, að
sjálf meðvitundin yrði útmáð, að sjálfa manns, — hans eig-
in einmana og einstæða lífstegund skyldi einn góðan veður-
dag ekki framar vera líf, ekki vera til! Væri þetta ef til vill
síðasta afleiðing einhæfninnar, einstaklingseðlisins, á hans
eigin menningar-vettvangi, drembileg svik einstaklings-eðl-
isins? Það var lionum að minnsta kosti ljóst, að alger útmá-
un var honum gremjuæsandi veruleiki, andstyggilegur
leyndardömur, nærri því enn meiri í dag en fyrir sjö árum,
er Níelsi í kistu var sökkt ofan í gröfina hérna. Og þá var
andóf hans jákvætt með sérstæðri lífrænni ákvörðun, þann-
ig að einmitt rétt við dyr fullorðinsáranna eru skilyrði lífs
og dauða jafnvægari í vitundinni en nokkru sinni síðar á
ævinni. Og honum var nú ljóst að hvernig sem honum
væri farið, hverskonar ]>reyta sem það væri er á hann sótti
og hann burðaðist með, — „þreyta til dauðans" var það
ekki. Nei, hann skyldi berjast við margskonar erfiðleika um
5
mörg óskemmtileg ár áður en sú þreyta næði á honum
kverkataki.
Það var þegar talsverð huggun í þessu, og vissan sú nokk-
urs virði. Því að nú skildist honum það: — að eitthvað
dautt væri í honunr núna, banvænn dauðlégur gerill, og
var því gott að verða þess vísari, að enn hefði hann að
minnsta kosti ekki náð miðdepli lífsins, lífsviljanum ein-
földum og nöktum. Eiríkur minntist nú samtals sem hann
hafði einu sinni átt við föður sinn, það var annars rétt áð-
ur en Xíels líang dó. Það var þá sem faðir hans drap á að
sér væri ljóst, að sjálfur ætti hann ekki langt eftir ólifað, —
og faðir hans talaði með beiskju um allar þær klaufsku
þjáningar lieims, og um siðferðilega skylduboðið, að mað-
ur á að vilja vera í sátt og sanrlyndi við heilbrigði og ham-
ingju, einmitt af virðingu fyrir hinni sönnu þjáningu.
Þá hefði hann sagt við Eirík: — sótthreinsaðu þig gegn
öllum óhamingjugérlum. — Hvernig væri ]>að? — Vertu
bara dauðskelkaður, drengur minn, þegar þú verður hnign-
unar-einkennanna var. — Jæja, jæja, þannig gæti maður
sagt, væri þetta ekki blátt áfram svona almennt heilræði,
sem minnst færu 12 af í tylftina? Hvernig sótthreinsar mað-
ur sig annars gegn óhamingju? Og verða menn yfirleitt
hnignunarinnar varir fyrr en hún er komin á flugstig? —
Og þótt Eiríkur hefði sagt við Bjart: — Þú hefðir átt að
vara þig á óhamingjunni og sótthreinsa þig gegn hnignun-
inni, — hefði ]>að ekki aðeins verið spreng-hlægilegt, — og
verra en það: Nærgöngult og ruddalegt. — Hann hefði sagt
eitthvað þessháttar við vin sinn Níels, hann sem lá núna
hérna í gröfinni þeirri arna, — og aðeins gert sig hlægileg-
an með því. Nú minntist hann einnig þess, að Ástríður kom
einu sinni til hans og sagði:
— Þú skilur ekkert í þessu! — Skiptu þér ekkert af því!
Aftur það sama: að hann var utangátta. — jæja, jæja,
hugsaði hann, og núna skammaðist hann sín svo mjög, að
honum fannst hann gæti ekki afborið það, — það var þá
satt, harin bar í brjósti skrumandi hugmyndir og ummæli
um þjáningar eins og eitthvað óverulegt, allan tónstigann
af geðbrigðum, skyndileg bilun í vörn skapgerðar, — hann
hafði engan skilning á neinu þessu, vissi engin deili á því.
Og skömm hans jókst: — hann hafði einti sinni ráðist á
Níels Bang, slegið til hans með hnefa, — hann mundi það
eins og það hefði gerzt í gær: hvernig Níels hefði beygt
höfuðið og brugðið upp báðum handleggjum til varnar,
óttasleginn á svip eins og smástrákur. — Hann hefði barið
vin sinn og félaga sem var „þreyttur til dauðans“ og gat
ekki lifað lífi sínu. —
Var þetta ekki þessháttar, sem ekki verður fyrirgefið?
Hvernig hafði hann getað gert annað eins? Hvernig var
hann eiginlega þá? Ótrúlega að maður skyldi ekki geta
munað sjálfan sig greinilega. — Aðeins einstök atriði vóru
greinileg og glögg í endurminningu hans, einstök viðhorf
t. d. þegar hann barði Níels. F.n hvernig á því reiðikasti
stóð — það gat hann ekki munað. — Og það var margt ann-
að, sem faðir hans hefði sagt við hann kvöldið góða, það
voru ekki slíkar hálflreimskulegar skyldukvaðir lífsins, —
en hvað það raunverulega var gat hann heldur ekki mun-
að. — Gæti hann aðeins rifjað lífið upp aftur, fundið þar
trausta undirstöðu, rofið allan þennan meðvitundarlausa
starfstíma sinn, þá yrði honum sennilega Ijóst að lokum,
hver og hvernig hann raunverulega væri, hver lífsskilyrði
hann bæri, hverjar kröfur hann hefði í huga. Þannig lá
sennilega í þessu, að það var svo margt sem hann skamm-
aðist sín fyrir á þeim árunum, sem olli því að leiðin til
baka reyndist svo torfær. Allt sem hann gat munað skamm-
aðist hann sín svo rækilega fyrir, að það gerði hann hnugg-
inn og sorgbitinn.
Sarnt var hann ekki hnuggnari en svo, að hér stóð hann
fjarlægur frá dauða og gröf. Var það ef til vill aðeins frem-
ur grófgerð og lítilfjörleg lífmögnuð erfðahvöt, seigir
kraftar byltust og tvinnuðust saman í stórum líkama hans?
En drottinn minn dýri, öll hin góðu öfl lífsins, — skyldi
samt ekki vera von einnig fyrir hans skapgerð? Nú var
hann fús til að taka því sem þyrfti til þess að nálgast og
gera sér ljóst hvað í hönum byggi af mannlegu eðli. — Æ,
að fá einu sinni að finna á ný að maður sé lifandi með öllu
sem maður á í holdi og huga, hreinskilið satt og fullkomið
líf, — eins og opinn blómbikar.
í kirk jugarðinum var blautt og kalt núna, óhreinn snjór
á gangstígunum, nakin tré og skuggaleg. En Eiríkur gat.
lokað augunum og séð: ljósbláan léttskýjaðan vorhiminn,
hvítar' sóleyjar og bláar og smágerðan grænan hýjung á
öllum trjágreinum, — og fundið vormoldar-þefinn og rakan
mildan hafrænublæinn utan af firðinum. — Og hugsaðu
þér, árla döggvaðan vormorgun heima, þungan eilífan elf-
arniðinn í lofti, og enn skugga í hlíðum dalsins, en gullin
sólarfjöll! Og opnir gluggar í sofandi lnisinu, en sjálfur
ertu úti og stendur undir gömlu björkunum á túnhlaðinu
og sérð daginn nýja renna og finnur hjarta þitt slá og veizt.
Framhald,