Dagur - 08.09.1965, Blaðsíða 7
7
SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8).
Tjörnes, Kelduhverfi, Axar-
fjörð, Núpasveit, Sléttu, Hálsa,
Þistilfjörð og Langanes til Þórs-
liafnar, er í vegaskrám talin
265 km Iöng og telst öll til þjóð-
brauta. Á þessari leið er Húsa-
víkurkaupstaður og þorpin
Kópasker, Raufarhöfn og Þórs-
höfn, en tvö hin síðastnefndu
hafa talsvert á fimmta hundrað
íbúa auk margra víðlendra
sveitabyggða. Raufarhöfn er ein
af mestu útflutningshöfnum
landsins og má í seinni tíð telj-
ast einskonar miðstöð síldveið-
anna norðanlands og austan.
Mikil umferð er á þessari leið
og mun þó enn aukast er Norð-
austurlandslciðin í heild opnast
á Hellisheiði milli Vopnafjarðar
og Héraðs. En af þessum 265
km á Þingeyjarsýslubraut mun
láta nærri, að um 150 km séu í
því ástandi, að það þurfi að
byggja upp nýjan veg og talið
er, að kostnaðurinn við þá ný-
byggingu nemi 50—60 milljón-
um króna á núverandi verðlagi.
Vegna hinnar hraðvaxandi um-
ferðarþarfar, stendur þetta
ástand Þingeyjarsýslubrautar
stórum landshluta mjög fyrir
þrifum. Hér verður sannarlega
ckki sagt, að samgöngur á landi
séu „víðast hvar góðar“ eins og
blöð Sjálfstæðisflokksins virðast
lialda. Ef tekjur vegasjóðs verða
ckki auknar til muna, og jafn-
vel hvort eð er, þyrfti hér að
koma lánsfé til, en tillögur um
það efni voru, eins og sagt hef-
Ur verið frá hér í blaðinu, felld-
ar á síðasta þingi.
VESTFJARÐAÁÆTLUN
Blöð Sjálfstæðisflokksins eru
drjúg yfir hinni svonefndu Vest
fjarðaráætlun, sem stjórnin seg
ist hafa látið gera um uppbygg-
ingu Vestfjarða til að hamla
gegn fólksflutningi þaðan, en
við fsafjarðarjúp eru nú tveir
lireppar komnir í eyði og í sjálf
um ísafjarðarkaupstað er um
beina fólksfækkun að ræða.
Ekki skal í efa dregið, að
áætlun þcssi, eða uppkast að
henni, kunni að vera til, en ekki
hefur hún verið birt ennþá svo
Degi sé kunnugt um. Hins veg-
ar var frá því skýrt á Alþingi í
vor, að fengist hefði lán erlend-
is hjá Flóttamannasjóði Vestur-
Evrópu, sem varið yrði til vega-
og hafnarmannvirkja á Vest-
fjörðum, og má vera, að það sé
úthlutun þessa erlenda lánsfjár
til nefndra framkvæmda, sem
stjórnarblöðin kalla Vestfjarða-
áætlun.
- TVÆR BÆKUR
(Framhald af blaðsíðu 2).
um vinsæla bókaflokki Lönd og
þjóðir. Eru fjórar fyrstu bæk-
urnar þegar uppseldar og aðr-
ar eru á þrotum.
Lesmál bókarinnar er sett í
Prentsmiðjunni Odda h.f., en
að öðru leyti er bókin unnin í
Veróna á ítalíu. □
- Sjóstangveiðimótið
(Framhald af blaðsíðu 8).
unn Roff, Valgerður Bára, Mar-
grét Jónsdóttir og Edda Þórs.
Aflahæst kvenna varð Stein-
unn Roff, frá Keflavík, með
184,59 kg. og hlaut hún bikar,
sem Sjóstangveiðifélag Alíur-
eyrar gaf. Allir þessir verðlauna
gripir eru farandgripir.
Flesta fiska fékk Jóhannes
Kristjánsson, Akureyri, alls 309
og hlaut hann bikar, sem sveit
no. 1 gaf til minningar um Ás-
geir Kristjánsson.
Þyngsta fiska af hverri teg-
und drógu: Þorsteinn Árelíus-
son tæplega fimmtíu og þriggja
punda þorsk, Magnús Valdimars
son, Reykjavík, 3,87 kg. stein-
bít, Hannes Jónsson, Akranesi,
4,8 kg. ufsa, Oli Friðbjörnsson,
Akureyri 6,7 kg. keilu, Margrét
Jónsdóttir, Keflavík 1,64 kg.
lúðu, Matthías Einarsson, Ak-
ureyri 2,66 kg. ýsu og einnig
1,30 kg. kola, Edda Þórs,
Reykjavík 0,63 kg. karfa. —
Alls veiddust á mótinu 6,6
tonn.
Sjóstangveiðifélag Akureyrar
sá um mótið og er formaður
þess Steindór Steindórsson járn
smiður.
Gott veður var báða dagana
og ekkert kom fyrir, sem skyggt
gæti á veiðigleðina. □
Sauðfjársláfrun er að hefjast
Frostastöðum 1. september. —
Gert er ráð fyrir, að sauðfjár-
slátrun hefjist hjá Kaupfélagi
Skagfirðinga 10. september,
eða rúmri viku fyrir göngur.
Ýmsir bændur hafa eitthvað af
fé sínu í heimahögum yfir
sumarið, sumir allt, og í hretinu
sem staðið hefur nú undanfar-
ið, hefur fé streymt heim úr af-
réttum svo að naumast þarf að
kvíða því, að. ekki náist nógu
margt fé til slátrunar fyrir
göngur. Búizt er við, að slátrað
verði 37—38 þúsund fjár hjá
KS í haust. .
Nokkrir erfiðleikar hafa ver-
ið á því, að fá fullvinnandi fólk
til starfa í sláturhúsinu og
valda því annir við önnur störf.
Mun enn ekki að fullu séð
fram úr þeim vandkvæðum.
Nautgripaslátrun hefur þegar
farið fram í tvo daga og mun
búið að slátra 40—50 nautgrip-
um. Undanfarin ár hafa „aust-
an-Vatna-menn“ ekki mátt
slátra sínum nautgripum vestan
Vatna og var borið við garna-
veikissýkingarhættu. Var þetta
bagalegt orðið, þar sem kjöt af
heimaslátruðum gripum 1 var
verðfellt verulega. Nú hefur
hins vegar fengist leyfi fyrir
því að slátra nautgripum aust-
an yfir Héraðsvötn í sláturhúsi
Kaupfélags Skagfirðinga á
Sauðárkróki ákveðna daga,
bæði fyrir og eftir sauðfjár-
slátrun. Þykir austan-Vatna-
bændum það mikil úrbót og
vonandi kemur það ekki að
sök fyrir hina.
mhg
- Flestir vegir lands-
ins eru lélegir
(Framhald af blaðsíðu 8).
aukizt og er í raun og veru fá-
sinna að ætla vegunum það
álag — vegum, sem byggðir
voru fyrir léttan flutning —
hestakerrur og smábíla fyrir ára
tugum.
Og því miður fer ástand veg-
anna versnandi, þegar á heild-
ina er litið og er það öfugþróun.
En stórátök væri unnt að gera
í þessum málum, ef til veganna
gengju tekjur ríkissjóðs af um-
ferðinni, óskiptar.
Rétt er að benda á, að miðað
við stórt land og fáa íbúa, er
vegakerfi okkar, eins og það er
nú, ekkert kinnroðaefni hvað
svo sem útlendingar hafa um
það að segja. Hinsvegar kallar
þörfin á algera stefnubreytingu
í vegamálum, svo háðir erum
við vegunum og flutningum á
þeim og svo dýr eru farartæk-
in. Stóraukið fjármagn verður
til þeirra að leggja, ásamt fyllstu
tækni í vinnubrögðum, sem völ
er á. □
I. O. O. F. Rb. 2 — 114988V2 _
MESSA fellur niður í Akureyr-
arkirkju n. k. sunnudag vegna
þings ÆSK í Bólstaðarhlíð. —
Sóknarprestar.
LIONSKLUBBUR AK-
UREYRAR.
Fund-
ur í Sjálfstæðishúsinu
fimmtudaginn 9. sept.
kl. 12,15. — Stjórnin.
MINJASAFNIÐ. í september
verður safnið aðeins opið
laugardaga og sunnudaga kl.
2—4 e. h. Vegna ferðafólks
og skóla, eftir samkomulagi
við safnvörð. Símar 11162 og
11272.
KRAKKAR! KRAKKAR! —
Sunnudagaskóli Hjálpræðis-
hersins byrjar n. k. sunnudag
kl. 2 e. h. Allir krakkar vel-
komnir — Hjálpræðisherinn.
SKRIFBORÐ til sölu.
Upplýsingar gefur
Vilhjálmur Vilhjálmsson,
sími 1-11-66.
!*S><Sx8>«k$kíkí>3xS>«»«kíkí>3^^
HJÚSKAPUR. Laugardaginn
4. september voru gefin sam-
an í hjónaband í Akureyrar-
kirkju brúðhjónin Kristín
Sveinsdóttir og Júlíus Björg-
vinson skrifstofumaður. Er
heimili þeirra að Skipagötu
2, Akureyri. —- Sunnudaginn
5. september voru gefin sam-
an í hjónaband í Akureyrar-
kirkju brúðhjónin Rósa Jóna
Jóakimsdóttir fx-á Bárðar-
tjörn, Höfðahverfi og Þor-
steinn Arnár Jóhannesson,
Hóli, Höfðahverfi.
ÁHEIT á Akureyrarkirkju kr.
250,00 frá Sigurbjörgu Stef-
ánsdóttur. — Beztu þakkir.
Birgir Snæbjörnsson.
GÓÐ GJÖF ÞÖKKUÐ
SUNNUDAGINN 22. ágúst var
messað að Urðum í Svarfaðar-
dal. í messulok kvaddi Árni
bóndi Jónsson á Hæringsstöð-
um sér hljóðs og afhenti þá
sóknarnefnd og söfnuði gjöf, en
það var ljóskross, sem hafði
verið kornið fyrir á mæni kirkj-
- Kjördæmisþing Framsóknar-
manna að Laugum i S.-Þing.
(Framhald af blaðsíðu 1).
ályktana, sem hún lagði fyrir
þingið og gerðu gi-ein fyrir efni
þeirra. En tillögum þessum og
tillögum laganefndar var siðan
vísað til þriggja þingnefnda, er
síðar tóku til stai-fa.
Þennan fyrri þingdag fluttu
alþingismenn Fi'amsóknar-
flokksins í kjördæminu ræður.
meginþætti í löggjöf síðasta
þings og Ingvar Gíslason gei'ði
grein fyi-ir þeim málum, er
þingmenn Framsóknarflokks-
ins fluttu á síðasta þingi.
Síðari þingdaginn voru álykt-
anir lagðar fram til umræðu og
hlutu afgreiðslu. En að síðustu
fóru fram kosningar,
Stjórn kjöi-dæmissambandsins
sem kosin var til eins ái's, skipa
nú: Hjörtur E. Þórai'insson
bóndi á Tjöi-n foi-maður, Hlöð-
ver Hlöðversson bóndi á Bjöi'g-
um varaformaður, Magnús J.
Kristinsson rafvirki, Akureyri,
ritai'i, Sigui'ður Jóhannesson
skrifstofumaður, Akureyri, Jón
as Halldói-sson bóndi á Rifkels-
stöðum, Óli Halldói'sson bóndi,
Gunnarsstöðum, og Aðalsteinn
Karlsson kjötiðnaðarmaðux',
Húsavík.
Endurskoðendur voi'u endur-
kjöi-nir þeir Jón Samúelsson og
Jóhann Helgason, báðir frá Ak-
ureyri.
f miðstjói'n flokksins voru
kjömir: Jakob Fi'ímannsson,
Þórhallur Bjöi'nsson, Valtýr
Kristjánsson, Ketill Guðjóns-
son, Hjörtur E. Þórarinsson,
Sigui'ður Jóhannesson og Björn
Teitsson.
í þinglok ávarpaði Ingvar
Gíslason þingið fyi'ir hönd al-
þingismanna og Bernharð Stef-
ánsson sleit síðan hinu sjöunda
kjöi'dæmisþingi Framsóknar-
manna í Norðurlandskjördæmi
eystra með ræðu og árrxaðar-
óskum.
Að kveldi fyrri fundardags
var sumai'hátíð Fi:amsóknar-
manna í Suðux-Þingeyjarsýslu
og var þar mikið fjÖlmenni og
hin bezta skemmtun. Ræðu-
menn þar voru þeir Jón Kjart-
ansson forstjói'i og Karl Kristj-
ánsson alþingismaður. Kristinn
Þorsteinsson og Jóhann Kon-
. ráðsson sungu, Ómar Ragnars-
son skemmti og síðar var stig-
inn dans. □
SJÖTUGUR
HALLHÓR ÓLASON bóndi á
Gunnarsstöðum í Þistilfirði
vai'ð sjötugur í gær- Hann Vjxr
einn af fulltrúurn á kjördæmis-
þinginu á Laugum um helgina
og fór þaðan til æskustöðva
sinna í Höfðahverfi, þar sem
hann dvaldi á þessum tímamót-
um ævinnar. Halldór hefur
lengi búið á Gunnarsstöðum og
synir hans. Dagur sendir hon-
um og heimili hans hinar beztu
árnaðai'óskir en birtir væntan-
lega síðar viðtal við hann. Q
unnai', í stað gamla krossins,
sem áður var þar. Ki'oss þessi
er neonljósakross, gerður í
Neonljósagei'ð Rvík. og er hann
Í.50 m hár. Hann er með ljósa-
pípum á tvo vegu (austur og
vestur). Kross þessi er gefinn
til minningar um hjónin Svein
Bergsson og Lilju Árnadóttur á
Hæringsstöðum, en Sveinn dó
16. marz 1916, en Lilja dó 14.
okt. 1959, og um Svein Jónsson,
bílstjóra frá Hæi'ingsstöðum,
son Lilju og seinni manns henn-
ai', Jóns Jóhannessonar, en
Sveinn vai'ð bi'áðkvaddur 4.
júní sl. Gefendur eru böi'n og
tengda- og barnabörn Sveins
Bergssonar og Lilju og börn og
tengda- og barnaböi'n Lilju frá
síðai'a hjónabandi og systur
hennar, Ósk Jói'unni Ái-nadótt-
ur á Akureyri. Sóknarprestur
veitti gjöfinni móttöku f. h. safn
aðar og sóknai-nefndar og þakk-
aði nokkrum orðum. Þá bað
hann frú Líneyju Sveinsdóttur,
sem er elzt þeix-ra Hæringsstaða
systkina, að kveikja á krossin-
um. Að lokum sungu allir
kii-kjugestir versið: Son Guðs
ertu með sanni. Sóknarnefnd
bauð öllum kirkjugestum til
kaffidi-ykkju á Urðum. Ég vil
hér endurtaka þakkir mínar,
safnaðar og sóknarnefndar fyr-
ir hina góðu gjöf og bið gefend-
um öllum allrar blessunar og
velfai-naðar.
Stefán Snævarr.
ilusqvamaj
ÍSLENZKI LEIÐARVÍSIRINN
fyrir HUSOVARNA SAUMAVÉLARNAR,
gerð 2000, er kominn.
BRYNJÓLFUR SVEINSSON H.F.