Dagur - 20.10.1965, Blaðsíða 8
8
SMÁTT OG STÓRT
Át(a stofnendur íþróttafélagsins Þórs á Akureyri, sem mættir voru í afmælishófi í Sjálfstæðishús-
inu 16. okt., en stofnendur voru 46. F. v. Sölvi Antonsson, Lárus Hinriksson (sonur hans Hinrik),
Jakob Gíslason, Hulda Jensson, Hans Christiansen, Hallfreð Sigtryggsson, Einar Malmquist, Arin-
björn Guðmundsson. Fjarverandi voru: Bárður ísleifsson, Björn Einarsson, Einar Olgeirsson, Georg
Jónsson, Gestur Pólsson, Gísli Sigurjónsson, Guð.nundur Asgrímsson, Hallgrímur G. Jónsson, Jakob
Frímannsson, Jörgen Hjaltalín, Óskar Antonsson, Reirnar Þórðarson, Sigmar Bjömsson, Svanbjörn
Frímannsson, Sveinn Sveinbjörnsson, Sverrir Ragnars og Þuríður R. Ólafsson.
Iþróttafélagið Þór mimiist fimm
tíu ára afmælis síns
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ ÞÓR á
Akureyri minnist á þessu ári
fimmtugsafmælis síns með
ýmsu móti. Á laugardaginn hélt
félagið afmælishóf í Sjálfstæð-
ishúsinu, annað fyrir börn á
sama stað daginn eftir, og í
kvöld verður þar einnig afmæl-
ishóf fyrir unglinga frá 14—18
ára. í afmælishófinu á laugar-
daginn sátu 270 manns, þar af
á annað hundrað boðsgestir.
Fór þar allt hið bezta fram, svo
félagið hafði virðingu af.
Blaðið ræddi litla stund við
formann Þórs, Harald Helgason
og ritarann Jón P. Hallgrímsson
og spurði þá frétta af þessum
tímamótum.
Hvað gerðist merkast í hófi
ykkar?
Það gladdi okkur að þeir af
stofnendum félagsins, sem
treystu sér til að koma, voru
þarna mættir 8 af 25 stofnend-
um, sem á lífi eru. Allir stofn-
endurnir voru gerðir að heiðurs
félögum, og 4 aðrir, þeir Ár-
mann Dalmannsson, Hermann
Ilaraldur Helgason, formaður.
Stefánsson, Tryggvi Þorsteins-
son og Láia Jónsdóttir.
Garðar Jónsson, síðar formað-
ur Sjómannafélags Reykjavík-
ur, var áður orðinn heiðursfé-
lagi hjá Þór.
Og félagið mun hafa fengið
gjafir og kveðjur?
Já, við fengum nær óteljandi
gjafir og heillaskeyti frá ein-
staklingum, sem of langt mál
yrði upp að telja. Og rétt fyrir
afmælið stofnuðu gamlir Þórs-
félagar í Reykjavík félagið
Litla Þór, og var okkur það
mikið gleðiefni og frá því félagi
bárust rúmlega 22 þús. króna
gjöf. Einnig barzt okkur 70 þús.
kr. peningagjöf frá gömlum
Þórsfélögum á Akureyri. Frá
(Framhald á blaðsíðu 4.)
BÍLVELTA í KRÆKL-
INGAHLÍÐINNI
FYRIR nokkrum dögum valt
bíll út af veginum í Kræklinga-
hlíð. Bíllinn skemmdist mikið
en meiðsli urðu ekki á mönn-
um. Ökumaður telur hross, er
óvænt stukku inn á veginn,
völd að slysinu.
-Um helgina ók ölvaður mað-
ur á girðingarstólpa og yfirgaf
bíl sinn. Lögreglan tók bílinn í
sína vörzlu og daginn eftir gaf
ökumaðurinn sig fram.
Unglingspiltar hrekkjuðu
gesti Borgarbíós með lyktar-
sprengju, en lögreglan gaf þeim
áminningu og tók af þeim ó-
eyddar sprengjur. Q
„ÁRANGUR AF VIÐRÆÐUM“
Miðvikudaginn 11. okt. skýrði
Alþýðublaðið frá því undir rosa
fyrirsögn á forsíðu, að „ný
stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinn
ar“ yrði flutt á Alþingi þann
dag. Sagði blaðið svo frá, að
„stefnuyfirlýsing“ þessi væri
„árangur af viðræðum milli Al-
þýðuflokksins og Sjálfstæðis-
flokksins, sem liófust að frum-
kvæði Alþýðuflokksins í fyrra-
vetur“. Á dagskrá þingsins þenn
an dag var auglýst: Tilkynning
frá ríkisstjórninni. Allt vakti
þetta athygli og var með fjöl-
mennara móti á þingpöllunum.
Ýmsum getum var að því leitt
hvað til stæði.
FORSÆTISRÁÐHERRA
VARÐ ÓSKÝRMÆLTUR
Svo rann upp sú stund á Al-
þingi er forsætisráðherrann
skyldi liefja mál sitt. Hann gerði
fyrst grein fyrir því, að af 7
ráðherrum, sem í öndverðu
sátu í ráðherrastólum viðreisn-
arstjórnarinnar, væru 3 horfnir
þaðan. Af þeim er einn látinn,
en tveir verið látnir fá embætti
erlendis. Svo kom forsætisráð-
herra að yfirlýsingu frá 1959,
sem birt var frá stjórninni 20.
nóv. þ. á. og sagði síðan: „Megin
stefna ríkisstjórnarinnar er enn
hin sama og þar var Iýst“. Að
gefnu tilefni las hann svo yfir-
Iýsmguna frá 1959 síðar á fund-
inuni. Brá svo við, að ráðherr-
ann, sem að jafnaði er bæði
seinmæltur og skýrmæltur,
gerðist svo hraðmæltur og
óskýrmæltur, að erfitt var að
fylgjast með máli hans. Var
sem hann brenndi sig á hverri
seíningu, sem þar stóð. Hann
mun hafa fundið það, þegar sá
lestur var hafinn, að fyrirheitin
fyrir sex árum væru hjáróma
við staðreyndir síðari tíma.
LÉT í VEÐRI VAKA AÐ
TAKA UPP MÁL FRAM-
SÓKNARFLOKKSINS
En ræða forsætisráðherrans var
Skógrækfarfélag Eyfirðinga hefur gróðirrseff á aðra ntillj. planfna
Hefur nú athyglisverða gluggasýningu í K.E.A.
SKÓGRÆKTARFÉLAG Ey-
firðinga sýndi blaðamönnum á
Akureyri sérstæða gluggasýn-
ingu á sunnudaginn, og er hún
í verzlunarglugga KEA við
Hafnarstræti (Járn- og glervöru
deild) og verður þar þessa viku.
r
Utvarpsumræður
ÚTVARPSUMRÆÐUR þær,
sem fram fóru á mánudags-
kvöldið, um fjárlagafrum-
varpið nýja, munu hafa orð-
ið mörgum umhugsunarefni.
Umræðumar vom mikil
staðfesting á hinum mörgu
og alvarlegu mistökum á
þeim verkefnum, sem stjóm-
in tók sér fyrir hendur á
sínum tíma og ætlaði að
leysa. □
Þetta er myndasería frá skóg-
ræktinni, litskuggamyndir, sem
koma ein af annarri „á tjaldið“
og eru hinar fegurstu, einkum
þegar rökkva tekur, því þá
njóta þær sín til fulls. Þá prýða
vöxtulegir trjástoínar úr Hall-
ormsstaðaskógi sýningarglugg-
ann og úti fyrir, á gangstéttinni,
er snoturt lifandi tré. Hér er
bæði um að ræða smekklega
gluggasýningu og mikið auglýs-
ingatæki, sem ekki hefur verið
tekið í notkun að ráði í við-
skiptalífinu.
Skógræktarfélag íslands á
þessa gluggasýningu og mun
setja hana upp víðar. Skógrækt
arfélag Eyfirðinga bauð svo til
kaffidrykkju á Hótel KEA og
þar hafði formaðurinn, Guð-
mundur Karl Pétursson yfir-
læknir, orð fyrir skógræktar-
mönnum, en ráðunautur skóg-
ræktar, Snorri Sigurðsson,
mælti líka nokkur orð, svo og
skógarvörðurinn, Ármann Dal-
mannsson.
Það, sem ástæða er til að
vekja athygli á eru m. a. eftir-
farandi atriði er þarna komu
fram: Skógræktarfélag Eyfirð-
inga er samband 11 skógræktar-
félaga sýslunnar og hefur sam-
tals 736 félaga. Uppeldisstöð
þess í Kjarnalandi við Akur-
eyri, sem byrjað var að undir-
búa 1947, skilar nú árlega öll-
um þeim trjáplöntum, sem ey-
firzku félögin þurfa til gróður-
setningar eða um og yfir 100
þúsund plöntum árlega og auk
þess nokkrum þúsundum skraut
plantna í garða. Þessi unga upp
eldisstöð félagsins er mjög
myndarleg orðin, með ágætum
skjólbeltum og 800 metra vöxtu
legum limgirðingum. En skóg-
ræktarfélögin hafa á Kjarna og
nágrenni samfellda 100 hektara
landspildu, sem liggur að þjóð-
veginum. En þar er einn sár-
síæðasti skógur að vaxa upp,
beinvaxin tré og þroskamikil
svo af bsr, og allir vegfarendur
hljóta að hafa veitt athygli.
Mesta gróðursetningarstarf
Skógræktarfélags Eyfirðinga er
sjálfboðavinna, en auk þess er
fastur drengjaflokkur við gróð-
ursetningarstörf. Drengirnir
hafa gróðursett 50—70 þúsund
plöntur á ári en árleg gróður-
setning alls um og yfir 100 þús.
plöntur. En gróðursetning hófst
ekki fyrir alvöru fyrr en fyrir
áratug eða svo. Skógarreitir fé-
lagsins eru samtals nálega 380
hektarar að stærð og í þá hafa
verið gróðursettar yfir milljón
trjáplöntur.
Þetta má segja að sé allgott
(Framhald á blaðsíðu 2).
þó að því leyti jákvæð, að hann
lét í veori vaka að ríkisstjórnin
myndi nú taka upp á sína arma
nokkur mikilsverð mál, sem
þmgnienn Framsóknarflokksins
hafa flutt á undanförnum þing-
um, en hingað til hafa verið
svæfð af stjórnarliðinu: Atliug-
un á verðíryggingu sparifjár, líf
eyrissjóð fyrir alla landsmenn,
aukna aðstoð til íbúðabygginga,
heildarendurskoðun á skólalög-
gjöfinni. Er gott til þess að vita,
að stofna á „framkvæmdasjóð
strjálbýlisins“, sem hann nefndi
svo, og má ætla að hér sé um
það að ræða, að koma að ein-
hverju leyti til móts við tillögur
Framsóknarmanna um ráðstaf-
anir til að stuðla að jafnvægi í
byggð landsins. Vonandi er hér
ekki kák eitt á ferðum. En
skammt er síðan fulltrúar stjórn
arliðsins Iýstu yfir því á þing-
skjali, að lögin um atvinnubóta-
sjóð frá 1962 (10 millj. kr. á ári)
nægðu til úrbóía á þessu sviði
og að ekki væri þörf frekari að-
gerða.
FRAMKVÆMDABANNKINN
LAGÐUR NIDUR
Boðað var, að Framkvæmda-
bankiim yrði lagður niður og
stofnaður „framkvæmdasjóður
aívinnuveganna“, fjölmennt
„hagráð“ og sérstök „hagsýslu-
deild“ í fjármálaráðuneytinu.
Rætt var um „aluminíumverk-
smiðju í sambandi við virkjun
Þjórsár“, þó ekki talið víst, að
„samningar tækjust“. Ráðherr-
ann sagði, að ríkisstjórnin legði
„áherzlu á málefnalegt samstarf
við almannasamtök í landinu
jafnt innan einstakra atvinnu-
greina og við stéttarfélög verka-
lýðs og vinnuveitendur'*. Þetta
er mjög svipuð yfirlýsing
vinstri stjórnarinnar á sínum
tíma, sem forkólfar Sjálfstæðis-
flokksins þá töldu ganga
hneyksli næst!
TVENNT ER GLÖGGT
í ræðu forsætisráðherra og
skrifum stjórnarblaðanna má
lesa tvennt í senn: Að stjómar-
stefnan frá 1959 sé óbreytt — og
að tekin hafi verið upp ný stjórn
arstefna! Hvorttveggja hefur
jafn mikið til síns máls, sem sé
ekki neitt, því að stjórnin er nú
stefnulaus og skortir bæði frum
kvæði og traust til að fylgja
fram samræmdri stjórnarstefnu,
hvort sem hún væri gömul eða
ný-
SJÖ RÁÐHERRASTÓLAK
SETNIR EN LANDIÐ
STJ ÓRNLAUST
Sjálf veit ríkisstjórnin eins og
hver einasti þegn þjóðfélagsins,
að dýrtíðin vex og krónan fell-
ur, en fær ekki að gert. Ótíma-
(Framhald á blaðsíðu 4).
RAFMAGNSBILUN
LAUST fyrir klukkan 7 í gær-
kveldi varð rafmagnsbilun á Ak
ureyri. Miðbærinn varð ljóslaus
og var það enn er blaðið fór í
pressuna. Bilað hafði háspennu-
strengur og var búizt við að við
gerð gæti e. t. v. tekið nokkra
klukkutíma. n