Dagur - 03.11.1965, Blaðsíða 7

Dagur - 03.11.1965, Blaðsíða 7
7 Nýja drátfarhraufin (Framhald af blaSsíðu 1.) 50 og 60 þús. kr., þannig a'ð 120 metra kantur (eitt skipspláss) mundi kosta 6—7 millj. króna. Ennfremur var rætt um mögu leika á byggingu nýrrar báta- kvíar. Engar ákvarðanir voru teknar í þessum málum. Ný dráttarbraut. Vitamálastjóri reifaði undir- búning málsins og þær helztu lausnir, sem kæmu til greina miðað við 500 þungatonna skip, með stækkunarmöguleika. Miðað við þverslipp og hliðar færslu fyrir 4 skip, með mögu- ieikum á stækkun (fleiri hliðar- færslum), taldi vitamálastjóri, að áætla mætti að heildarbygg- ingarkostnaður yrði ca. 30 millj. króna. Er hér var komið mætti á fundinum Skafti Áskelsson for- stjóri Slippstöðvarinnar. Lýsti hann því yfir, að núverandi leigutaki slippsins, Slippstöðin h.f. mundi óska eftir því að taka á leigu hina nýju dráttarbraut og væri hann samþykkur þeirri tilhögun á framkvæmd, er að framan greinir. Taldi hann, að Slippstöðin h.f. mundi ganga að þeim leigumála, sem rætt var um á fundinum. Það var sameiginlegt álit hafnarnefndar og bæjarráðs, að bæjarstjórn samþykki, að ráð- ist verði í byggingu nýrrar dráttarbrautar miðað við þá til- högun, er að framan greinir, enda náist samningar við Slipp- stöðina h.f. um leigusamning varðandi hina nýju dráttar- braut. Verði vitamálastjóra falið að vinna að fullnaðaruppdráttum og áætlunum um verkið. Jafnframt verði sótt um leyfi til samgöngumálaráðuneytisins, að framkvæmd þessi verði styrk hæf framkvæmd samkvæmt hafnarlögum. Nánari ákvarðanir um tilhög- un á framkvæmd verksins verði teknar, þegar fullnaðaruppdrætt ir og kostnaðaráætlanir liggja fyrir. □ - Frá aðalfimdi Rækt- unarfélags Nl. (Framhald af blaðsíðu 1). horna biðu greiningar, bændur væru mjög áhugasamir um, að notfæra sér þekkingu, sem fóð- ur- og jarðvegsrannsóknir gætu veitt í framleiðslustörfunum. Hina miklu fjármuni, sem nú- tímabúskapur krefst, bæði í ræktun, byggingum og vélum, þarf framleiðslan að greiða. Er því mikils um vert, að nota, svo sem kostur er, vísindin í þágu þessa atvinnuvegar. Efnarann- sóknarstofan á Akureyri hefur því þýðingarmiklu hlutverki að gegna, sem allir vona að beri sem giftudrýgstan árangur. Stjórn Ræktunarfélags Norð- urlands skipa: Steindór Stein- dórsson, Ólafur Jónsson og Jón- as Kristjánsson. □ - Sóttu fé í tunguna milli Kreppu og Jökulsár (Framhald af blaðsíðu 1). hvítur hrútur og mórauð gimb- ur, vænt fé. Eigandi Sveinn Jónsson. Kindunum var nú tosað nið- ur að ánni og allt selflutt vest- uryfir. Komst allt slysalaust vesturyfir. , í þessari sömu ferð var kinda leitað í Grafarlöndum og Herðu breiðarlindum. Neðst í Grafar- löndum voru nýlegar kindaslóð- ir. Var þar hafin leit og innan stundar var seppi búinn að finna svarta veturgamla á og þvældi henni til leitarmanna. Voru kindurnar þá orðnar fjór- ar og allgott dagsverk unnið. Það hafði verið ráðgert, þegar til kinda þessara fréttist, að flytja vatnabát eða pramma austur til flutninganna yfir ána. Gúmmíbáturinn reyndist hið ágætasta tæki og mun auðveld- ari í meðförum. P. J. SNJÓDEKK Til sölu eru 4 stk. snjó- dekk á felgum fyrir Volkswagen. Gunnar Þórsson, sími 1-25-00 og 1-20-45. TIL SÖLU, sem nýtt golfkylfusett (komplet) með poka og vagni. Uppl. í síma 1-2S-55 á skrifstofutíma. Vel með farinn BARNAVAGN til sölu. Verð kr. 2.600.00. Uppl. í síma 1-18-35. DÍVAN TIL SÖLU Uppl. í síma 1-22-97. TIL SÖLU vegna brottflutnings: Rafeldavél, rafþvotta- pottur og lítill ísskápur. Uppl. í síma 1-10-71. TIL SÖLU Tvö KVENREIÐHJÓL og kvikmvndavél. Uppl. í síma 1-23-31 á matartímum. TIL SÖLU: Silver-Cross SKÝLISKERRA. Einnig lítið notuð KÁPA Uppl. í síma 1-29-22. TIL SÖLU: Haglabyssa nr. 12 og riffill. Tómas Eyþórsson, Veganesti. BÓMULLAR-TVINNI SILKI-TVINNI STOPP-TVINNI BRODER-T VIN NI MEZ er góður tvinni. MEZ fæst í mörgum litum og mörgum rúllustærðum. Höfum mikið af SMÁVÖRUM til sauma. MARKAÐURINN SÍMI 1-12-61 ? & ^ Intiilegar þakkir til allra, sem glöddu okkur með =t ^ heimsóknum, gjöfum og kveðjum á silfurbrúðkaups- S £ daginn og brúðkaupsdaginn okkar, 27. október sl 4 Gcefan fylgi ykkur öllum. I | SIGRUN og MARINO. | RÓSA og HJÖRTUR. I GUÐRÚN og FINNUR. I I I £ I & I 1 LILJA og ÞÓRODDUR. Þökkum inntlega auðsýnda sainúð og alla aðstoð við andlát og jarðarför ELÍNAR GRÍMSDÓTTUR, Þórisstöðum. Sérstaklega þökkum við Stefáni Jónssyni Skjaldarvík og starfsfólki hans, fyrir margra ára hjúkrun og að- hlynningu á Elliheimilinu í Skjaldarvík. Vandamenn. □ RÚN 59851137 = Frl. I.O.O.F. — 147U58y2 — IMESSAÐ verður í Akureyrar- kirkju n. k. sunnudag kl. 2 eh. (Ahra heilagra messa). Minnst verður látinna. Sálm- ar: 54 — 182 — 316 472 — 196. B. S. Möðruvallaklaustursprestakall. Aftansöngur. á Möðruvöllum á allra sálna méssu 7. 'nóv. kl. 9 e. h. Kirkjukór Möðruvalla- sóknar syngur undir stjórn Guðmundar Þorsteinssonar organista. Dr. María Beyer Júttner kennari ' leikut, á fiðlu. Sóknarprestúr. SUNNUDAG »5KÓLI Akureyr srkirkju er á sunriud. kemur. Yngstu börnin í kapellunni eldri börnin í kirkjunni, á báðum stöðum kL 10.30 fi h. Drengjadeild. Sveit Eiríks Stefánssonar sér um fundinn kl. 8 á fimmtudagskvöldið. Framhaldssaga — kvikmynd — veitingar. Stjómin. ZION. — Sunnudaginn 7. nóv. Sunnudagaskóli kl. 11 f. h. — Oll börn velkomin. Almenn samkoma kl. 20.30. Benedikt Arnkelsson og Gunnar Sigur jónsson tala. Allir hjartanlega velkomnir. BAZAR Kvenfélags Akureyrar- kirkju verður í kirkjukapell- unni n. k. laugardag, 6. nóv. kl. 4 e. h. Margt góðra muna eins og venjulega. Nefndin. HJÓNABAND. Laugardaginn 30. okt. sl. voru gefin saman í hjónaband af sóknarprest- inum í Grundarþingum ung- frú Steinunn Ragnheiður Gísladóttir frá Sámsstöðum og Ottar Björnsson, Syðra- Laugalandi. BRÚÐHJÓN. Nýlega voru, gef- in saman í hjónaband á Ak- ureyri ungfrú Hildur Svava Karlsdóttir Víðimýri 11 Ak- ureyri og Örvarr Kristjáns- son bifvélavirki Nönnugötu 16 Reykjavík. Heimili þeirra verður að Nönnugötu 16. FRÁ LEIKFÉLAGI AKUR- EYRAR. Fastir frumsýninga- gestir L.A. vitji frumsýninga- miða sinna, að Skrúðsbóndan- um, í Samkomuhúsið, sunnu- daginn 7. og mánudaginn .8. nóv. n. k. kl. 2—5 s. d. Tekið verður við nýjum frumsýn- ingargestum daglega þessa viku í síma 1-14-43, kl. 2—6 s. d. nema á lagardag kl. 10— 12 f. h. Á þriðjudag og mið- vikudag 9. og 10. nóv. verður aðgöngumiðasalan í Sam- komuhúsinu opin kl. 2—5 s. d. og þá seldir þeir aðgöngumið- ar, sem óseldir kunna að vera. Aðgöngumiðasalan verður ekki opin á fimmtudag — frumsýningardaginn. PRENTVILLUPÚKINN lækk- aði meðalvigt dilka á Þórs- höfn um tvö kíló. Þar reynd- ust þeir 15,41 kg. en ekki 13,41 kg. eins og fyrir skömmu var frá sagt hér í blaðinu. I.O.G.T. stúkan Brynja nr. 99 heldur fund að Bjargi fimmtu daginn 4. þ. m. kl. 8.30 e. h: Dagskrá: Venjuleg fundar- störf. Inntaka nýliða. Eftir fund, kaffi og skemmtiatriði. Æ. T. HLÍFAR KONUR. — Fundur verður haldinn fimmtudaginn 4. nóv. kl. 20.30 í Sjálfstæðis- húsinu (litla sal). Skýrsla dagheimilisstjórnar og fleira. Kaffi á staðnum. Mætið vel og stundvíslega. Stjómin. FRAMSÓKNARFÓLK! Munið aðalfund Framsóknarfélags Akureyrar annað kvöld (fimmtudag) kl. 8.30 e. h. á skrifstofu flokksins, Hafnar- stræti 95. — Félagar fjöl- mennið. GJAFIR og áheit til Munka- þverárkirkju. Frá ónefndum kr. 500, frá S. H. kr. 200, frá H. J. kr. 150, frá ónefndum kr. 100. — Kærar þakkir. — Sóknarpresíur. JÓLAMERKI Framtíðarinnar eru komin. Fást á Pósthúsinu. MUNIÐ minningarspjöld Elli- heimilis Akureyrar. Fást í Skemmunni. TIL fólksins á Gilsbakka. Frá N. V. kr. 100, G. J. 200, B. V: 300, og Guðrúnu Guðnadóttir Brekkugötu 31 kr. 50. — Gjöf til Hins ísl. Biblíufélags kr. 200 frá N. N. — Gjöf til Akureyrarkirkju frá S. G. kr. 100. — Beztu þakkir. Birgir Snæbjörnsson. GJÖF til Hólakirkju. Við guðs- þjónustu í Hólum sl. sunnu- dag afhenti sóknarpresturinn kirkjunni þar kr. 4000, sem var gjöf frá Kjartani Júlíus- syni bónda á Skáldsstöðum til minningar um bróður hans Bjartmar Júlíusson, sem lézt árið 1949. Kjartan hefur áður gefið rausnarlega til kirkjunn ar í minningu um foreldra sína. MINNINGARSPJÖLD kvenfé- lagsins Hlífar. Öllum ágóða varið til fegrunar við barna- heimilið Pálmholt. Spjöldin fást í bókabúð Jóhanns Valde marssonar og hjá Laufeyju Sigurðardóttur Hlíðargötu 3. ÍSLENZK - AMERÍSKA F É L A G I Ð. Lesstofan er opin sem hér segir: Mánu- daga og föstudaga kl. 6—7.30 e. h. Þriðjudaga og fimmtu- daga kl. 7.30—10 e. h. Laugar- daga kl. 4—7 e. h. Mikið kom- ið af nýjum hljómplötum. Talkennsla í ensku: Mánu- daga og miðvikudaga kl. 7.30 —10.15 e. h. Föstudaga kl. 7.30—9.15 e. h. LAUGARBORG Dansleikur 6. nóvember kl. 10.30 e. h. COMET leikur. U.M.F. Framtíð og kvenfélagið Iðunn. ELDRI-DANSA KLÚBllURINN Dansað í Alþýðuhúsinu laugardaginn 6. nóv. kl. 9 e. h. Húsið opnað fyrir miða- sölu kl. 8 sama kvöld. Þeir, sem ætla að taka fasta miða, vitji þeirra á föstudagskvöld milli kl. 8—10. Áríðandi að mæta eða hringja. Tryggið ykk- ur borð og miða. NEMÓ leikur. Stjórnin.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.