Dagur - 06.11.1965, Blaðsíða 2

Dagur - 06.11.1965, Blaðsíða 2
2 Frumvarp um breylingu á íþróftalögum - Bygging oriofsheimiiis nyrðra (Framhald af blaðsíðu 1). stjórnendur: Freyja Eiríksdótt- ir og Jón Helgason, öll frá Ak- ureyri. Varamenn í miðstjórn: Þor- steinn Jónatansson Akureyri, Jón Ásgeirsson Akureyri, Margrét Þorgrímsdóttir Hofsósi, Helga Þórarinsdóttir Raufar- höfn, og Skafti Jónasson Skaga- strönd. Endurskoðendur: Sigurður NÝLEGA var í efri deild Al- fulltrua og íþrottanefnd með yfir þingis flutt frumvarp til laga um breytingu á íþróttalögunum frá 1956. Flutningsmenn eru: Páll Þorsteinsson, Karl Kristj- ánsson, Ásgeir Bjarnason, Her- mann Jónasson, Olafur Jóhann- esson og Helgi Bergs. Aðalatriði frumvarpsins eru þau, að skipta landinu í íþrótta- umdæmi, og í hverju umdæmi starfi íþróttanámsstjóri. íþróttanámsstjóri skal hafa á hendi þessi störf: 1. Að vera íþróttafulltrúa og íþróttanefnd til aðstoðar um stjórn og framkvæmd íþrótta mála í íþróttaumdæminu. 2. Að efla frjálsa íþróttastarf- semi og veita íþróttafélögum og einstaklingum aðstoð og leiðbeiningar um íþróttamál. 3. Að hafa eftirlit með íþrótta- námi í skólum og vinna að því að gera það sem fjöl- breyttast. 4. Að leitast við að efla hollt félagsstarf og reglusemi æskufólks. Lög þessi öðlist þegar gildi. Greinargerð. Með íþróttalögunum 1940 var stigið stórt skref og heillaríkt á sviði uppeldismála. Tilgangur íþróttalaganria er að auka heil- brigði manna og hreysti, lík- amsfegurð, vinnuþrek og táp. Síþan íþróttalögin voru sett„ hafa verið gerð með fjárhags- legum stuðningi íþróttasjóðs margs konar íþróttamannvirki. Við það hafa skilyrði til íþrótta iðkana batnað að miklum mun. Kostað er kapps um að miða húsnæði skólanna við það, að nemendum gefist kostur á íþróttanámi, enda hefur sund verið gert að skyldunámi ungl- inga, svo og fleiri íþróttir. Af hinu almenna íþróttanámi sprettur áhugi og þjálfun þeirra, er fram úr skara og unnið hafa iþróttaafrek á undanförnum ár- um, bæði á innlendum og er- lendum vettvangi. íþróttir auka vissulega heil- brigði og táp hinnar ungu kyn- slóðar. Atvinnuhættir þjóðarinn ar taka breytingum, þannig að þeim mönnum fjölgar sífellt, er vinna innanhúss, annaðhvort þjónustustörf, skrifstofustörf eða við iðnað, en þeir verða æ færri í hlutfalli við fólksfjölda, er hafa við störf sín útivist og hreyfingu. Af því leiðir, að íþróttir hafa nú og framvegis mikilvægu og auknu hlutverki að gegna á sviði uppeldis og menntunar þjóðarinnar og að þær þarf að efla. Samkvæmt íþróttalögunum er stjórn íþróttamála falin íþrótta- umsjón menntamálaráðuneytis. Til þess hafa valizt áhugasamir menn, og hefur starf þeirra þeg ar borið góðan árangur. En á sviði íþrótta eins og annarra kennslumála er ekki um það að ræða að ná lokamarki í eitt skipti. í þeim efnum þarf að vera samfelld þróun, þar sem hæfilegt tillit sé tekið til breyt- inga á þjóðlífinu og þess jafnan gætt að veita uppvaxandi kyn- slóð sem bezta aðstöðu til menntunar og þroska. Með aukinni íþróttastarfsemi og vaxandi fólksfjölda verður það fyllt starf fyrir íþrótta nám- stjóra að hafa á hendi stjórn íþróttamála. Að dómi flm. er rétt að ráða' til starfa menn með sérþekkingu á íþróttum, einn I hverjum landsfjórðungi, er gegni þar námsstjórastarfi í þeirri grein með umsjá og eftir nánari fyrirmælurp íþróttafull- trúa. íþróttanámsstjóri mundi veita íþróttafúlltrúa og íþróttanefnd aðstoð við Stjórn og framkvæmd íþróttamála í umdæminu, þar sem hann - starfar og er búsett- ur. Starf hans ætti og að vera í i>ví íójgtð að efla frjálsa iþróttasterfs&mi og veita íþrótta félögum og einslaklingum að- stoð og,leiðbeiningar við íþrótta iðkanir. Hann ætti einnig að háfá“ertmif með íþróttanámi í skólum- og vinna að því að gera það sem fjölbreyttast og vera í hvívetna forustumaður íþrótta málð á* síriú svæði. ” Áfengisnautn fer vaxandi með þjóðinnj og héfur í.för með sér margvísleg vandamál. Ekki er þess að vænta, að ein ráðstöfun eða aðferð reynist fullnægjandi - Ford-dráttarvélar (Framhald af blaðsíðu 8). Hingað til lands komu Ford- son dráttarvélarnar með allra fyrstu vélum, og ollu þar með byltingu í íslenzkum landbún- aði á þeim tíma. Síðan hafa flutzt hingað til lands nokkur hundruð Fordson dráttarvéla, og hafa þær reynzt vel. Ford dráttarvélarnar, sem nú koma á markaðinn eru sérstak- lega glæsilegar og traustar og eiga eflaust eftir að koma á mörg sveitaheimili á næstunni og létta undir störfin með bónd anum. Ford traktoraumboðið Þór h.f. mun gefa bændum kost á að sjá og kynnast þessum nýju dráttarvélum á næstunni. F ramanskráðar upplýsingar veittar á blaðamannafundi hjá Þór h.f. í tilefni af því, að það fyrirtæki hefur tekið að sér um- boð fyrir Ford dráttarvélarnar. til þess að koma í veg fyrir áfengisnautn æskufólks. En íþróttaiðkanir hafa mikil áhrif og góð í því efni. íþróttamaður, sem stefnir að því að auka hreysti sína, vinnuþrek og táp, á ekki samleið með þeim, er oft neytir áfengis. Alkunnugt er, að félagsskapurinn, sem æskumað- urinn tekur þátt í, er áhrifa- ríkur. Samkvæmt frv. ber íþróttanámsstjóra að leitast við að efla hollt félagsstarf og reglu semi æskufólks. Flm. telja, að það geti samrýmzt öðrum störf- um hans og að af því megi vænta góðs árangurs. Það mun vera fastur liður í skólalífi Gagnfræðaskólans á Akureyri að gefa nemendun- um kost á að koma saman inn- an skólaveggja öðru hverju til að skemmta sér við dans og leiki. Eru slíkar skemmtanir undir stjórn skólans og eftirliti kennara, og er aðeins gott um þetta að segja. Ein slík skemmtun fór fram í skólanum síðastliðið laugardags kvöld, 30. október, og héldu ung mennin þangað með leyfi for- eldra sinna. En ekki mun hafa verið liðið langt á kvöldið, er hópur þessa fólks ákvað að leita sér annars skemmtistaðar. Nið- urstaðan varð sú, að hópurinn fór að Freyvangi, en hann er eitt hinna ágætu félagsheimila í byggðarlaginu, og þar var þetta kvöld almennur dansleik- ur. Upga fó.lkið mætti engri fyr- irstöðií hjá vörðum laganna, sem við dyrnar stóðu, og var því hleypt inn viðstöðulaust. En óheimilt er fólki innan 16 ára aldurs að sækja opinbera dansleiki. Þessir ungu gagn- fræðaskólanemendur, sem eru á 14 ára aldrinum, urðu vitni að slagsmálum og ölæði. Ég vil, sem faðir eins nem- andans, sem hér um ræðir, víta það harðlega, að unglingum inn an 16 ára aldurs sé leyfður að- gangur að samkomu, sem þess- ari. Heimilisfaðir. - Fékk 130 rjúpur (Framhald af blaðsíðu 1). hrossum í sumar en meira úr Skagafirði. Keypt voru band- vön hross og var verðið um 10 þúsund krónur eða meira. Menn virðast mjög sólgnir í hrossakjöt nú í haust og það er af sem áður var, er hrossakjöt þótti víða naumast mannamat- ur, og eru ekki mörg ár síðan sala þess var treg. Framboð og eftirspurn hefur skapað það verð, sem nú er á kjöti af hross- um. Ó. S. Arnfinnur Arnfinnsson Akur- eyri, og Jón Pálsson Dalvík. í sambandsstjórn auk mið- stjórnar voru kjörin: Oskar Garibaldason Siglufirði, Guðrún Albertsdóttir Siglufirði, Hulda Sigurbjörnsdóttir Sauðárkróki, Líney Jónasdóttir Ólafsfirði, Guðrún Sigfúsdóttir Húsavík, Kristján Larsen Akureyri, Páll Árnason Raufarhöfn, Valdimar Sigtryggsson Dalvík, Björgvin Jónsson Skagaströnd, og Páll Ólafsson. Akureyri. Varamenn í sambandsstjórn: Sveinn Júh'usson Húsavík, Kol- beinn Friðbjarnarson Siglufirði, KEPPNISTIMA knattspyrnu- manna er lokið í ár og friðar- tími framundan í þeirri grein. Knattspyrnan er vinsælasta íþróttagreinin, sem nú er stund- uð á íslandi og áhugi almenn- ings fyrir henni mjög mikill um land allt. Allir þátttakend- ur eru „áhugamenn", sem kall- að er, gagnstætt atvinnumönn- um, sem lengst ná í íþróttinni meðal annarra þjóða. Framundan er tími skíðanna og:skíðaíþróttar, strax og snjó gefur í fjöll, sem getur orðið fyrr en varir. Akureyringar eiga sitt skíðahótel og vinna að því að koma upp skíðalyftu. Skíðamenn þurfa að sýna það í verki, að þeim hefur verið búin góð aðstaða til skíðaiðkana. Og í Hlíðarfjalli er einnig aðstaða Rósmundsson og Sigurður Karls son Akureyri. Allar ályktanir þingsins voru gerðar samhljóða og einnig kjör miðstjórnar og sambandsstjórn- ar. (Fréttatilkynning) - Vegamálin á íslandi (Framhald af blaðsíðu 8). erlend lán og byggðir vandaðir vegir á fjölförnum leiðum, og innheimtur tollur af vegum þess um til greiðslu á vöxtum og af- borgunum lána, en þá verði jafnframt fellt niður aðflutnings gjald af bifreiðum og tollreglum breytt. Q fyrir borgara á öllum aldri, til að njóta hollustu fjallalofts, gönguferða á skíðum eða án skíða og til áð sækja skíðamótin þar efra. Ekki er lengur auðséð á höf- uðhárinu hverjir eru piltar og hvað stúlkur. Bítlahár strák- anna er óvinsælt og jafnvel í sumum skólum bannað. Hvort það er fagurt eða ófagurt er auðvitað smekksatriði, eins og syo margt annað. En ekki getur það kallast skaolfegra fyrir stráka en stelpur, að láta sér vaxa hár, svo sem náttúran vill vera láta. Hins vegar virðist nauðsynlegt, að gera lágmarks- kröfur til hreinlætis fólks á vinnustöðum og í skólum og meiri kröfur um fágaða fram- komu en nú eru gerðar. Skrifstofustulka Óskum að ráða skrifstofustúlku. Prenfverk Odds Björnssonar hf. AKUREYRI LAKALÉREFT mislitt LAKALÉREFT styrkt í miðju. VEFNAÐARVÖRUDEILD Nýkomnar! Alpahúfur (spanjólur) HERRADEILD JMr i—III i ■ ■ ■ iratriir-*. -4 *. v.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.