Dagur - 06.11.1965, Page 5

Dagur - 06.11.1965, Page 5
4 5 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-1166 og 1-1167 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON - Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Björnssonar h.f. Nv stefna J STEFNULEYSI og móttleysi hafa verið mjög leið og áberandi ein- kenni þeirrar ríkisstjórnar, sem nú situr. Um eiginlega stefnu hefur vart verið að ræða, þótt stefnuyfirlýsing- ar hafi verið gefnar út, og er það sitt hvað. Framsóknarflokkurinn hefur í stórum dráttum markað þá stefnu, sem hann telur nauðsynlega í fram- kvæmdum. Um þetta sagði Eysteinn Jónsson form. Framsóknarflokksins m. a. á Jiessa leið hinn 1S. okt. sk: „Grundvöllurinn verður að vera sá að gera sér grein fyrir því, hvernig þjóðin á að beita framkvæmdaafli sínu, vinnu og vélaafli. Hver séu Jjýðingarmestu verkefnin, sem þarf að leysa á þjóðarbúinu, til þess að efla ]>róttmikið atvinnu- og menn- ingarlíf í landinu. Þá kröfu verður að gera að hægt sé að láta sitja fyrir að vinna þau verk á Jjjóðarbúinu, sem þegar fram í sækir, eru undir- staða nálega allra annarra verka. Má í Jjví sambandi minna á skólamál, heilbrigðismál, rannsóknir og til- raunastörf og samgöngur á sjó og landi sem dæmi, en fjölmargt fleira kemur til. Ekki má sætta sig við, að Jjýðingalmikil framleiðslustarfsemi í landinu sé í mörgum greinum íöm- uð og á ringulreið vegna skorts á mannafla og rekstursfé, en verðbólgu framkv. sogi til sín vinnuaflið. Menn mega ekki halda að liægt verði að leysa Jjessi höfuðmálefni með nýjum álögum, meiri lánsfjárhöftum, minnkuðu rekstrarfé og ráðstöfun- um til Jjess að lialda kaupmætti kaup gjaldsins óbreyttum, þrátt fyrir hækkun þjóðartekna eða með Jjví að þjarma að bændum. - Það verður að fara aðra leið og nálgast Jjessi mál frá nýjum sjónar- hól. Endurskoða Jjau frá rótum og grundvöllurinn verður að vera áætl- un um framkvæmdaafl Jjjóðarinnar, og hvernig Jjví skuli beita, til Jjess að Jjau verkefni sitji fyrir sem mesta Jjýðingu hafa fyrir Jjjóðarbúið og al- manna heill. Með Jjví móti verður að tryggja að þýðingarmestu þjón- ustuframkvæmdir verði framkvæmd- ar, og víki ekki fyrir öðrum, og að sjáifri framleiðslunni verði ætlað Jjað svigrúm, sem hún þarf, til þess að geta notið sín. Verðbólga verður ekki læknuð með öðrum aðferðum en Jjessum, Jjví ekki eiga aðrar aðferðir að korna til mála en Jjær sem leiða til fullrar atvinnu og fyllstu nýting- ar vinnuaflsins. Slíkar áætlanir um skynsamlega niðurröðun verka á Jjjóðarbúinu verður síðan að fram- kvæma. Framhald á bls. 7. VESTUR UM KLETTAFJÖLL Klukkan var sjö að morgni, þegar við Bjarni lögðum af stað áleiðis til Klettafjalla, eftir að hafa borðað sæmilegan morgun verð í matstofu Grey-hundanna. Veður var hið fegursta og hlýrra en áður og við vorum í bezta skapi. Fjöllin voru tigu- leg til að sjá, hrímguð niður til miðs og Ijómaði af þeim eins og á sól sæi. Vestur að fjöllunum var vítt land og fagurt, en að því er virtist fremur lítið byggt og urðum við alteknir af bú- mannlegum þönkum. Þarna væri bærilegt að nema land fyrir góðan kúabónda, og var sem við sæjum í huganum baulandi hjarðir draga júgrin yfir hrísmóana og stóð spræna úr hverjum spena. Þegar maður væri orðinn gamall og nennti ekki að búa lengur væri ekkert auðveldara en selja óendanlega margar ekrur af landi fyrir lóð- ir, því að borgin hlyti að þenj- ast út á næstu áratugum og gleypa inn í sig þetta dásamlega land smám saman. Svona vorum við miklir bú- menn þennan dýrðarmorgun, er við hófum ferð okkar upp Bægisár-dal (Bow River Valley). En brátt urðum við hugfangnir af þeirri dásamlegu náttúrufegurð, sem þarna blasti víð augum, enda þykir hvergi fegurra í Vesturheimi en í Banff. Þar er saman komin á einn stað öll hugsanleg náttúru- undur í úrvali. Þar er margur Miðdegishnjúkur, Þyrill og Baula, undarlegustu álfastapar, tindar og tröllkirkjur. Barrtré, tignarleg og beinvaxin, prýddu alla útsýn, og þessi tré klifruðu upp snar'oratta hamraveggina upp á eggjar og bar þar við himin eins og risar væru þar á kreiki. En á milli trjánna sást glampa á ljósleit klettaþil eða jökulbreða. „Welcome to Mountain View“, stóð einhvers staðar höggvið í stein. Víða voru spegilslétt vötn í dalbotninum, og þar var margt Ásbyrgi og Hólmatungur. Nú upphófumst við félagar í skáldlegar stemningar og ort- um þessa vísu: B'ikar sól um Bægisárdal, brennur risafjallsins hryggur, þó er fátt um vífa val, hvað varð um allar Siggur? Þetta kom okkur í hug vegna þess, hvað útsýnin var snöggt verri inni í vagninum en fyrir utan hann. í kringum okkur sátu eintómar grýlur með slap- andi hatta, eldgamlar hrokkin- skinnur og króknefjur, eins og nornir úr Grimms ævintýrum. En úr þessu rættist bráðlega, er við komum inn í kaffistofuna í Banff hjá Tunnel Mountain. Þar gengu fimm þokkadísir um beina, hver annarri fallegri og bar þó ein langt af öllum liin- um, sú er þjónaði okkur til borðs. Hún var fríð og ítursköp | ÞRIÐjA GREIN | uð með glampandi augu, björt mey og hrein. Var sem þangað væri komin Gerður Gýmisdótt- ir, og hér væri hólmurinn Barri. Birtust af henni allir heimar. Hefðum við viljað þennan dag lengstan milli guls viðar og blás, en ökuþórinn gaf engin grið og rak okkur af stað eftir hálf- tíma. „Ég skal borga“, sagði Bjarni. Það var seinasta tækifærið að tala við gyðjuna. Allan daginn fórum við um fjöll og firnindi, undurfagra staði með síbreytilegum töfrum. Þarna við fjallavötnin fagurblá býr gamall kunningi minn, sem heitir Jón Ólafsson, kallaður Jón Stál í daglegu tali, af því að hann var sérfræðingur í stál gerð. Hann fór vestur 1913 og byrjaði að vinna í stálverk- smiðju. En af því að hann lét sér ekki nægja að vinna hugs- unarlaust, heldur las allt sem hann náði í um stálgerð, varð hann brátt svo slyngur í iðn sinni, að hann var gerður að yfirmanni í stórri verksmiðju. Ég tefldi stundum við hann í gamla daga, en kona hans söng og spilaði fyrir okkur skozka söngva, og svo sendi hann mér epli, sem hann hafði ræktað á búgarði sínum í Salmon Arm. og þau voru góð. Þarna hefði verið dásamlegt að taka sér slæpu, en Grey-hundurinn þandi sig allt hvað af tók, svo að ég gat ekki svo mikið sem kastað kveðju á Jón, þar sem hann bjó í sveitasælunni, eins og Odysseifur hjá Kalypso. Enn lengra vestur í fjöllun- um í borg þeirri sem Kamloops heitir í British Columbia, situr ungur og fallegur maður við prentvél, ættaður úr Eyjafirði og úr Reykjadal. Forfeður hans og frændur voru prestar hér í Eyjafirði fyrir hundrað árum, vel lærðir og hinir merkustu menn. Sjálfur er hann fæddur vestra, en hefur komið hingað heim að minnsta kosti tvisvar og var t. d. úti í Grímsey á sl. sumri við fuglatekju og undi sér þar hið beza úti við heim- skautsbauginn. Ég hef hálfvegis dregizt á það við móður hans, að útvega honum konu úr Eyja firði, ef hann mætti þá staðfest- ast á fornum ættarslóðum. En hræddur er ég við að segja brúðarefninu frá því, livað geysilega er fallegt þarna vest- ur frá, því að hver veit nema hún stökkvi þá líka úr landi. KYRRAHAFSSTRÖNDIN Ég hef oft sagt, að ef ég byggi ekki á íslandi, vildi ég hvergi búa í víðri veröld annars stað- ar en á Kyrrahafsströndinni, við hafið mikla þar sem sólar- lagið er líkast því sem það er við Eyjafjörð á blíðum sumar- kvöldum, þar sem fjallasýnin er stórkostleg, og laxinn gengur með sporðaköstum upp í belj- andi stórfljót, og fjallahnjúk- arnir hafa það til að falda hvítu, þegar vel liggur á þeim. Þarna eru stórborgir með ið- andi lífi, en þeirra á milli hrein- ir Edenslundir, þar sem kyrrð- in ríkir eins og t. d. við Sooke Lake Road á Vancouver eyju, þar sem skáldið dr. Jóhannes Pálsson situr eins og yogi inni í frumskóginum og er hætt- ur öllum veraldarumsvifum öðrum en þeim, sem Voltaire taldi upphaf og endi allrar vizku, að rækta garðinn sinn. Lengi barðist Jóhannes eins og Ijón gegn hleypidómum og kreddum hvers konar í auðvalds ríkjum vestursins. En með því að mannssálin er ólæknanlega trúhneigð, fór honum líkt og mörgum öðrum, að hann tók að byggja von sína á kreddusmið- um austursins og hélt að þeir mundu verða til að endurreisa menninguna, enda lofuðu þeir miklu og voru langt í burtu. En varla fékk það lengi dulizt svo gagnrýnum hug, að sáluhjálpin sú hin nýja var ekki annað en sama hras í öðrum myndum. iFætur hinna nýju skurðgoða voru úr leir engu síður en þeirra gömlu, enda hrundu þau hvert af öðru af stalli hraðar en auga yrði á komið. Frá Banff — einum fegursta stað Klettafjallanna. Evu, hún fyllist óstjórnlegri ergi og lætur alls konar herfi- legum látum til að skemmta gestunum. Það er eins og mað- ur sé kominn inn í fjallið til Dofrans, þar sem öll virðing gengur niður á við, og trölla- slagir jassins hljóma í eyrum eins kveinstafir fordæmdra úr undirheimum. Þegar hún kem- ur niður aftur spyrjum við hana, hvort þyki gaman að þessu. „Þeim þykir gaman að Einn daginn hittum við Sturlu Einarsson, stjörnufræðing, við Berkeley háskóla. Hann er bróðursonur Indriða Einarsson- ar skálds, og kenndi þarna stjörnufræði svo áratugum skiptir. Hann er nú hniginn að aldri og hættur störfum en hef- ur þó enn sína gömlu skrifstofu í háskólanum og dvelur þar löngum. Hann bauð okkur til hádegisverðar með sér í há- skólaklúbbnum, og sáum við Francisco. Var hann að námi vestra og bauðst atvinna þar, er hann hafði lokið skóla og mun nú vera orðinn háskóla- kennari í Salt Lake City eða Pasadena. Þetta varð til þess, að frú Tove fór vestur um haf, og rugluðu þau saman reytun- um frændsystkinin. Að koma á heimili þeirra var eins og að koma á listasafn, og þyrfti um að skrifa lengri grein en unnt verður að sinni. FERÐASÖGUBROT AF SLOÐUM iSLENDINGA I VESTURHEIMl Viðtal við séra BENJAMÍN KRISTJÁNSSON og BJARNA SIGURÐSSON því, segir hún og kinkar kolli til áhorfendanna, sem klappa eins og óðir séu, og á einhverju verður maður að lifa“. Þegar við Bjarni göngum út í kvöldsval- ann á ný, er okkur orðið það ljóst, að þessir atburðir gerast eftir syndafallið. San Francisco er annars fal- leg borg og ekki sízt útborgirn- ar t. d. San Carlos, þar sem séra Octavíus býr. Hann var óþreytandi að aka okkur um kring og fræða okkur, enda víð förull og má'agarpur mikill jafnt í fornum málum sem nýj- um. Hann sýndi okkur Stcnes- town, sem er sérstakur borgar- hluti í San Francisco, byggður af íslenzkum mönnum: Henry og Ellis Stoneson, er voru synir Þorsteins Þorsteinssonar og konu hans, sem fcru vestur um aldamót. Þau voru vinnuhjú séra Gísla í Stafholti og giftust þar og fluttust fyrst til Victoria, B. C. síðan til Blaine, Wash. og loks til San Francisco laust eft- ir 1920. Ekki áttu þeir annað en sög og hamar, er þeir komu þangað, og tóku þeir sár það helzt fyrir hendur að kaupa gömul hús, gera við þau og selja þau aftur. Græddist þeim fljótt fá á þessu, svo að þeir gátu bráðlega keypt sár stói’a landspildu og þar byggðu þeir á nokkrum árum heilt borgar- hverfi með stórverzlunum, veit ingahúsum, félagsheimilum, bönkum og fjölbýlishúsum, og er öllu fyrir komið með miklu hugviti, smekk og fyrirhyggju. Byggingafélag þeirra: Stone- sons Development Corporation er efalaust hið stærsta, sem menn af íslenzkum ættum hafa nokkru sinni staðið fyrir, enda hafa þeir byggt hús fyrir fé, sem skiptir hundruðum millj- óna dollara. þar glöggt, hvei’su vinsæll hann er og mikils virtur í þessari virðulegu menntastofnun. VALHÖLL Ekki ~ verður nema fátt eitt sagt af ævintýrum okkar Bjarna, sem eðlilegt er, þar sem við hittum á degi hverjum um tveggja mánaða skeið fjölda manna og vorum alltaf á-'férð og flugi. En varla get ég þó skilizt svo við Vesturströndina, að ég minnist ekki á Gustaf Iwersen. Við hittum hann á Point Roberts, en þangað fórum við með dr. Sveini Björnssyni einn gcðan veðurdag til að sjá íslendinga. Gustaf var fæddur á Seyðis- firði og var í Gagnfræðaskólan- um á Akureyri um 1909, en fór vestur um haf 1912. Stundaði hann ýmsa vinnu eftir að hann kom vestui’. En árið 1934 kom hann ásamt bróður sínum upp bjórstofu mikilli og skemmti- stað þarna á ströndinni og nefndu hann Tlie Breakers (Boða eða Brimgarð). Minnir þessi staður einna helzt á Val- höll eins og henni er lýst í forn um sögum. Þar geta þúsund manns setið að drykkju í einu, og skoi’tir eigi Heiðrúnardropa. Við komum þarna að mox'gni dags, þegar Emherjar voru allir úti að berjast og gátum því skoð að höllina í góðu næði. Eftir að húsbóndinn var búinn að gæða okkur á Gamla Carlsberg, bauð hann okkur heim til sín, og var ekki í kot vísað. Kona hans er Tove Ingólfsdóttir, mikil lista- kona og eru þau hjónin bræði’a- böx-n. Hún var áður gift Oscar Juul greifa og heildsala í Kaup- mannahöfn, sem einnig átti plastvei-ksmiðju, en hann dó um það bil 1947. Þeirra sonur er Paul Juul, verkfræðingur í San Eftir því sem sunnar dregur á sti’öndinni verður hraðinn meiri og glaumurinn trylltai’i. Það gæti komiö fyrir þig, ef þú værir á gangi úti í kvöldblíð- unni, t. d. í San Francisco, að þér yrði gengiö fram hjá hress- ingarskála, þar sem dyrnar stæðu opr.ar og glymjandi hljóm list bærist út á götuna. Þér dytti í hug að líia inn og fá þér bjór- glas. Þegar þú kemur inn úr dyrunum mætir þér brosandi tatara-stelpa, stælt í kroppnum og mjúk í hreyfingum eins og pardusdýr. Hún er ekki íklædd öðru en sakleysinu og kannske örlitlu fikjulaufi. Hún leiðir þig til sætis, sækir fyrir þig.drykk- inn og ræðir við þig alúðlega, fer jafnvel að lesa í lófa. Manni gæti dottið í hug, að það kunni að hafa verið nógu gaman í Paradís, þegar Adam og Eva voru að stríplast þar endur fyr- ir löngu. Allt í einu þarf stelpan að fara upp á pallinn til að sýna listir sínar. Þá dettur öll hæ- verska af þessari brosmildu Iwersen í skrúðgarði sínum í Point Roberts. eldfljót að átta sig á þeim. Hún í SEATTLE Við vorum staddir í bókasaln um á hinu fagra heimi'i frú Jakobínu Johnson í Seattle, Wash. Þar voru margir gim- steinar bókmenntanna saman komnir, en dýi’gripux’inn mesti í þessum sal var þó hin ástúð- lega persóna skáldkonunnar sjálfrar, Enda þótt aldurinn fær ist yfir hana og kraftarnir séu farnir að þverra, er þessi smá- vaxna og fíngerða kona, sem lifir og hi’ærist í skáldskapnum og lætur sig enn þá dreyma um íslenzkar vornætur, alltaf jafn- töfrandi. Ég var að horfa á myndirnar á veggnum af Stephan Jóni, sem fórst tvítugur af kafbát á Kyrra hafi, efnilegasti maður, og af Maríu, dótturinni fögru, sem hún missti tuttugu og níu ára gamla. Vissulega var hún eins og „norræn drottning djörf og hi-ein“, og ég var að hugsa um það, hvílík huggun það væri harmi gegn, að lamandi hönd ellinnar og eyðingarinnar skyldi aldrei fá að þurrka litinn og ljómann af þessai’i brosandi . ásjónu, heldur geymist hún þannig til eilífðardags. Mai’ga og efnilega niðja á þó frú Jakobína á lífi og einn þeii’ra, Kári, var með okkur um kvöldið, vel gefinn maður, ljúf- ur og listelskur. Hann býr með mcður sinni. Allt í einu kom ég auga á mynd, sem vakti athygli mína, af ungum og glæsilegum brúð- hjónum, og spurði skáldkonuna um þau. Þetta er hún Inga og hann Jón, sagði hún. Þau giftu sig hérna í stofunni, og ég var svaramaður. Þau búa skammt frá. — Við skulum fara og hitta þau, sagði ég, svona mynd þarf að komast í skrárnar. Og við Bjarni rjúkum af stað eins og eldibrandar og stöndum innan skamms inn á stofugólíi hjá þessum ágætu hjónum. Tóku þau okkur með mikilli | alúð. John, sem er af íslenzk- um ættum, er prentari og á prentsmiðju sjálfur. Höfðu þeir Bjarni því mörg sameiginleg áhugamál. En frúin sneri sér að ættartölunum með mér og var er í’eyndar ættuð frá Reykja- vík, systir frú Elsu Guðjónsson, sem er þjóðkunn kona og bráð- gáfuð, og var þessari systur hennar heldur ekki fysjað sam- an. Hún er stúdent frá Reykja- vík 1942, fór síðan vestur og stundaði nokkur ár háskóla- nám í Chicago, en giftist síðan Jóni og eiga þau börn nokkur. Eftir ágætan kvöldverð hjá Jóni Magnússyni og frú hans, sem er systir Waltei’s Lindal dómara, sóttu Johnsons hjónin okkur aftur til að sýna okkur eitthvað af borginni. Skoðuðum við skemmtibátahafnir Seattle- búa og fiskasafn nokkui't, sem er 10 fetum neðan við yfii’borð Kyi’i-ahafsins, þar sem þorskar, kax’far og hákai’lar sveimuðu í djúpinu og jafnvel áttfætingai’, sem er krabbategund með átta örmum. Allt í einu er kominn þax-na kafai-i með sundfit og súi-efnisdunk á bakinu. Hann sveimaði stundarkoi’n innan um þorska og flatfiska, togaði í skötubörð og leiddi lúður við hönd sér. Þegar hér var komið sögu, var kominn í hópinn Hai’old Johnson fi-ændi prentai’ans ásamt konu hans Laufeyju. Hann er formaður íslendinga- klúbbsins þarna í borginni og er mikið líf og áhugi í þeim fé- lagsskap. Þau buðu okkur heim í kvöldkaffi og var dvalið þar til kl. 1 um nóttina. Síðan fylgdi allur hópurinn okkur á hótelið, þar sem við bjuggum, og var enn rætt um ísland fram eftir nóttinni. Þetta var dæmalaust skemmtilegt fólk og elskulegt. Hef ég aldrei verið bjartsýnni á það en nú, að niðjar íslands muni enn um langan aldur bera ræktarhug til ættjarðarinnar og vilja halda einhverju sambandi við hana. SS$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$1 | | SIGURÐUR SVEINBJÖRNSSON: Hart er víða í Jieimi Hart er víða í heimx, hugir daprir mæðast. Svipir eru á sveimi, svartar vofur læðast. Fyrir handan höfin hungruð börnin falla. Dauði og dimma gröfin dag livem á þau kalla. Hvergi er fró né friður; fátækt barnið grætur. Er sem elfarniður ymji daga og nætur. Viltu veikan styðja? Vannærð börnin hljóða, og þau biðja og biðja um brauðið mjúka, góða. Þótt Jjú gangir glaður, gleym ei vegferð Jjungii. Minnstu Jjess, ó, maður, að margir Jjjást af hungri. Sjúkum samúð veittu, sýn Jjeim góðan vilja. Böli þeirra breyttu í blessun, sem Jjeir skilja. Metr en heiminn hálfan hungurvofan treður. Gleður sig mest sjálfan, sá sem aðra gleður. Lítur til Jjín löngum litla barnið kæra. Brosið bjart á vöngum blessun mun þér færa.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.