Dagur - 10.11.1965, Side 7

Dagur - 10.11.1965, Side 7
7 - Ferðasögubrot . , . (Framhald af blaðsíðu 4). mál, gift ítölskum lækni. Hún vildi fyrir hvern mun fara að sýna mér kvikmynd af mér og hrossunum á Laugalandi, sem hún tók fyrir nokkrum árum, en ég þakkaði henni kærlega fyrir og sagði sem satt var, að ég hefði engan áhuga á því. Svo fór hún með okkur upp í kaffistofu til diplomatanna og þar drukkum við kaffi innan um alla þessa frelsara heimsins. Skýrði Mrs. Cucci okkur frá því, að þennan morgun hefði sér verið fengið til þýðingar bréf frá manni > nokkrum á Kleppi, sem leitað hefði ásjár Sameinuðu þjóðanna vegna ógn ana og ofsókna á hendur sér. Sagðist hún að vísu haía fjallað um mörg slík bréf áður, en þetta væri fyrsta bréfið þessa efnis, sem bærist frá íslandi, og taldi hún með þessu sannað, að færri vitleysingar vaeiu á íslandi en annars staðar. Er hún, svo frétti, að íslendingur hefði verið að spyrja eftir sér, datt henni i hug að Kleppsbúinn væri þang- að kominn og brá því í brún þegar hún sá mig. Þegar við gengum út mættum við Steindóri Steindórssyni, en hann var þá orðinn svo þrung- inn af heimspólitíkinni að hann þekkti okkur varla. Við kvöddum Mrs. dr. Cucci með kærleikum, en hún sagði mér, að óhætt mætti finna sig hjá Sameinuðu þjóðunum allt til sextugs-aldurs, og þar geymdi hún alltaf myndina af mér og hrossunum. Eftir það fór Sigrún með mig heim til sín út í Brooklyn, þar sem hún átti fallegt heimili, og um kvöldið óku þau þjónin mér á Bus-terminalinn. Flugvélin átti að fljúga kl. 10, en sökum stórrigningar og þrumuveðurs dróst flugtakið til kl. 3 um nótt- ina. Þegar við loksins fórum upp var ókyrrð í lofti og lét flug- farið heldur illa annan sprett- inn. En ég var orðinn svo grút- syfjaður að ég steinsofnaði hér- umbil strax og vaknaði ekki fyrr en komið var undir íslands strendur. Jú, einhvern tímann um nóttina var maður vakinn til að borða, en ég opnaði aldrei augun nema til hálfs. TIL SÖLU: EINBÝLISHÚS á Svðri-Brekkunni. Húsið er tæplega tveggja ára. 5 herbergi, eld'hús, bað, þvottahús og geymsla, allt á einni hæð.'Gólfflötur um 120 fermetr- ar. Húsið er frágengið að utan og með vel ræktaðri lóð. O O O Upplýsingar gefur RAGNAR STEINBERGSSON, HRL., Símar 11459 og 11782 Biðjið um það bezta Fæst í öllmn sælgætisverzlunum á Akur- eyri og í Matvörubúðum K.E.A. Eiginmaður minn og bróðir, ODDUR DANÍELSSON, sem andaðist á Fjórðungssjúkrahús’nu á Akureyri þriðjudaginn 2. nóvember, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 10. nóv. kl. 2 síðd. Sigurhanna Sigurðardóttir, María Daníelsdóttir. Hjartans þakkir fyrir samúð, vinarhug og tryggð, við andlát og jarðarför, RÓSU JÓNSDÓTTUR frá Yztabæ, Hrísev. Börnin hennar, tengdadæturnar, ömmubörnin og langömmubömin. EFTIRIMALI Hér hefur verið drepið á fátt eitt úr ferðarollunni til gamans og þó miklu fleira ósagt látið. Þú spyrð að lokum, hvenær bók in komi út? Ef maður hefði ekkert annað að gera en vinna við þetta, kynni það að gert orð- ið á næsta ári. En hvort tveggja er, að það er talsvert verk að skrifa 450 blaðsíðu bók, þó að allt lægi ljóst fyrir. Þurfi mað- ur hins vegar að leita í skjala- söfnum og bera fjöldamörg atriði saman við aðrar heimild- ir og kirkjubækur og skrifa fjölda bréfa, verður þetta tals- vert tafsamara. Loks þarf að semja einlægar nafnaskrár til að hafa heimildir á takteini. Ef þetta verk ætti vel að vinnast þyrfti helzt á vinnuafli margra manna að halda. Undirbúning- ur mynda og sjálf prentunin getur tekið hátt upp í ár. Próf- arkalestur er seinlegur og vandasamur. Maður verður samt að vona að ekki líði of langur tími þangað til III. bind- ið kemur, og er nú mál að rabbi þessu linni. q Get tekið nemendur í PÍANÓLEIK. Kristinn Gestsson, sími 1-25-94. ÓSKILAFÉ! Á sl. hausti voru mér und- irrituðum dregin 2 lömb með markinu Blaðstýft framan hægra, sneitt aft- an vinstra. Lömbin eru bæði með aluminíum- merki í eyra. Lömb þessi á ég ekjci og getur réttur eigandi vitjað andvirðis jreirra til mín að frádregn- um áföllnum kostnaði. Baldur Snorrason, Vestara-Landi, Öxarfirði. TIL SÖLU: Hoover þvottavél og barnarúm. Uppl. í síma 1-14-60. KVÍGUR TIL SÖLU. Steingrímur Guðjónsson, Kroppi. KAPUR NÝ SENDING TERYLENE í pils og drengjabuxur MARKAÐURINN SÍMI 1-12-61 □ RÚN 596511107 — 1 •. Atkv. I.O.O.F. — 14711128Ví — II. I.O.O.F. Rb. 2 — llSinoSifi — E. T — II. MESSA í Akureyrarkirkju kl. 2 næstk. sunnudag. Æskuíýðs- messa. Sálmar: 528 - 304 - 280 420 - 424. Sóknarprcstarnir. FERMINGARBÖRN. Börn sem fermast eiga í Akureyrar- kirkju á næsta ári éru beðin að koma til viðtals í kirkjú- kapelluna sem hér segir: Til séra Birgis Snæbjörnssonar fimmtudaginn 11. nóv.,' og til séra Péturs Sigurgeirssonar föstudaginn 12. nóv. klukkan 5 báða dagana. Sóknarprcstarnir. A Ð A LK EILDí Fundur verðup hald- inn fimmtudaginn 11. þ. m.: kl. 8.30 e. h. í kapellunni. Fjölbreytt fundar störf. Veitingar. Gamlir félag- ar kvattir til að niæta. Auk- um félagsstarfið. Stjórnin. ZION. Sunnudaginn 14. nóvem- ber. Sunnudagaskóli kl. 11 f. h. Oll börn velkomin. Sam- koma kl. 8.30 n. h. Allir vel- komnir. TIL BARNA í Sunnudagskóla Akureyrarkirkju. Kvíkmynd'a sýning í Kapellunni kl: 5 síðd.' í dag (miðvikudag) fyrir telp- ur í bekkjunum 10 til 20. . i ■ ,..l h ,, Unglingadansleikur í Freyvangi n. k. laugar- dagskvöld. Comet leik- ur. Bára Magnúsdóttir sýnir listdans og jassballet. BÆJARSKRIFSTOEAN vérð-: . ur opin til áramóta kl. 5—7 e. h. á föstudögum, tif mót- töku á bæjargjöldum. ; Ung stúlka óskar eftir HERBERGI til leigu. Helzt á Suður-Brekkunni. Uppl. í síma 1-11-99. WILLY’S JEPPI, árgerð 1946, til sölu. Uppl. í Hafnarstræti 35, uppi, kl. 7—8, síðdegis. Jóhann Aðalsteinsson. TIL SÖLU. Willy’s jeppi, árg. 1962. Ekinn 60 þús. km. Einnig nýr heyvagn. Gestur Jónsson, Víðivöllum 6, sími 1-22-42. TIL SÖLU: Volkswagen sendill, árgerð 1954. Tækifærisverð. Upplýsingar gefa Ragnar H. Bjarnason, Hríseyjargötu 21, eða Gvlfi Svavaísson, sírni 1-28-67. BRÚÐHJÓN. Laugardaginn 6. nóvember voru gefin saman í hjónaband í Akureyrar- kirkju ungfrú Þórveig Bryn- dís Káradóttir og Hreinn Tómasson sjómaður. Heimili þeirra verður að Helgamagra stræti 46 Akureyri. Leikfélag Akureyrar frumsýnir SKRÚÐS- BÓNDANN fimmtu- daginn 11. nóvember. Næstu sýningar laug- ardag og sunnudag. Aðgöngumiðasala í leikhúsinu. S. K. T. Síðasta spilakvöldið fyr- ir jól verður föstudag 13. þ. m. kl. 8.30 í Alþýðuhúsinú. Indr- iði Indriðason rithöfundur flytur stutt ávarp. Munið kvöldverðlaun og heildarverð laun af hent. S. K. T. LIONSKLUBBUR fQfB AKUREYRAR ^ Fundur í Sjálfstæðis- húsinu fimmtudaginn 11. nóv. kl. 12.00. FÉLAGSTVIST. — N æ s t a spilakvöld Sjálfsbjargar hefst að Bjargi föstudaginn 12. þ. m. kl. 8.30 e. h. — Hlægileg kvikmynd. Félagar , takið með ykkur gesti. Nefndin. FRÁ Þingeyingafélaginu á Ak- ureyri: Munið bazarlnn í Verzlunarmannahúsinu sunnu daginn 14. nóv. kl. 4 siðdeg- is. Nefndin. ll. O. G. T. st. Ísafold-Fjallkonan no 1. — Fundur að Bjargi fimmtudag 12. þ. m. kl. 8.30. Fundarefni: Vígsla nýliða. Indriði Indriðason st. kansl- ari flytur erindi um táknmál ■ > Reglunnar. Eftir fund: Kaffi og Jenkaæfing. Æ. T. GJÖF til Hallgrímskirkju kr. 1000 frá K. P. — Beztu þakk- ir. Rirgir Snæbjörnsson. - SMÁTT OG STÓRT (Framhald af blaðsíðu 8). Þeir liafa mokað auglýsingum sínum í blaðið og gert að stór- veldi. Þannig hcfur Sjálfstæðis- flokkurinn með peningamagni sínu tryggt sér aðstöðu til áhrifa á skoðanamyndun landsfólks- ins, sem enginn annar flokkur hefur. Hér er ekki um val fólks- ins að ræða. Peningarnir tryggja sér og flokki sínum að- stöðu til áframlialdandi valda“. Hér er vissulega orð í tíma talað og túlkar að líkindum sárs auka ýmissa manna, sem sjálfir hafa gegn vilja sínum, orðið að styðja Sjálfstæðisflokkinn til valda í seinni tíð.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.