Dagur - 17.11.1965, Qupperneq 2
2
Frá Knallspyrnudómarafélagi Akureyrar
Yetrarstarf FUF á Akureyri hafið
Margir hafa gengið í félagið að imdanförnu
LAUGARDAGINN, 30. okt. sl.
var aðalfundur haldinn í Knatt-
spyrnudómarafélagi Akureyrar.
Fundarstjóri var kjörinn Her-
mann Stefánsson, menntaskóla-
kennari, en formaður, Höskuld-
ur Markússon flutti skýrslu
stjórnarinnar, en Páll Magnús-
son, galdkeri gerði grein fyrir
reikningum félagsins.
Starfsemi félagsins var mjög
fjölþætt á liðnu starfsári. Nám-
skeið fyrir knattspymudómara-
efni var haldið á árinu, þar sem
aðal-leiðbeinandi var Rafn
Hjaltalín.
Átta dómaraefni gengu undir
próf að afloknu námskeiði og
var það góður liðsauki félaginu
og mikill fengur fyrir knatt-
spyrnuíþróttina hér norðan-
lands.
Alls dæmdu félagsmenn 92
knattspyrnuleiki, sem fram fóru
á 18 leikvöllum og skal þess
getið, að enginn leikur féll nið-
ur vegna þess, að dómari ekki
mætti til leiks og var alltaf
brugðizt vel við málaleitan
hinna ýmsu aðila, sem til félags
ins leituðu, þótt fyrirvari um
útvegun dómara og línuvarða
væri oft skammur.
Félagið hefir frá fyrstu átt í
nokkrum erfiðleikum með að
afla sér viðurkenningar íþrótta-
forustunnar, sem kemur til af
því, að ekki eru allir á einu
máli um það, hvort knattspyrnu
dómarinn sé fremur starfsmað-
ur en íþróttamaður.
Stöðugt hefir verið unnið að
því af félagsins hálfu, að á dóm
arann verði litið sem íþrótta-
mann.
Knattspyrnudómarinn tekur
enga greiðslu fyrir framlag sitt
til íþróttarinnar, svo sem marg-
ur hyggur. Hann þarf eigi síður
en leikmaður að viðhalda lík-
amsþoli sínu, ef hann á að reyn-
ast vandanum vaxinn, hann
Akureyringar sigruðu
Húsvíkinga í bæja-
keppni í bridge
SÍÐASTLJÐINN sunnudag fór
fram bæjarkeppni í bridge milli
Húsavíkur og Akureyrar og fór
keppnin fram á Akureyri. Spil-
að var á 11 borðum og fóru leik-
ar svo, að Akureyringar sigr-
uðu, hlutu 46 stig á móti 20.
Um kvöldið var tvímennings-
keppni, sem 20 pör tóku þátt í,
10 frá hvorum aðila. Lauk þeirri
keppni einnig með sigri Akur-
eyringa. Sigurvegarar urðu Ár-
mann og Jóhann Helgasynir.
í gærkveldi (þriðjudag) hófst
meistara- og I. flokks keppni
B. A. og taka þátt í henni 14
sveitir.
Mikil gróska er nú í starfi
Bridgefélagsins og margar
keppnir framundan. □
þarf að gjörþekkja reglur leiks-
ins og kunna að beita þeim á
leikvelli.
Félagið gekkst tvívegis fyrir
kvikmyndasýningum, þar sem
íþróttaunnendum gafst tækifæri
á að kynnast leikreglum og
voru myndir þessar skýrðar
jafnframf. .
Það olli fundarmönnum von-
brigðum, að hvorki stjórn ÍBA
né KRA skyldu senda fulltrúa
til fundarins, þrátt fyrir skrif-
legt boð stjórnar félagsfns og
sýnir það_nokkurt tómlæti, þar
í TILEFNI af fréttatilkynningu
knattspyrnudómarafélagsins á
Akureyri lagði blaðið þá spurn-
ingu fyrir formann þess, Hösk-
uld Markússon, hvað framund-
an væri hjá félaginu. Hann svar
aði þvj efnislega á þessa leið:
Ætlun okkar er að vinna að
því að mennta byrjendur í
knattspyrnu og hafa 1—2 kvöld
fundi á mánuði með knattspyrnu
dómurum, tala um einstök at-
riði knattspyrnunnar, sem koma
til kasta dómarans, umdeild
atriði sem fyrir hafa komið og
nýmæli. Ennfremur munum við
vinna að því, að dómarar frá
Akureyri hasli sér völl á fleiri
stöðum en áður, og fái tækifæri
til að sýna hæfni sína og þroska
hæfileika sína. Hæfileikarnir
eiga að ráða í þessu efni, og
knattspyrnudómarar á Akur-'
eyri þurfa að njóta þeirrar þjálf
unar, sem hæfileikum þeirra er
samboðið.
Fyrir 10 árum var það útilok-
að fyrir f. B. A. að keppa á ís-
landsmóti annarsstaðar en í
Reykjavík. Nú er þetta
breytt, eins og allir vita. Með
sama hætti þarf starfsvettvang-
ur dómaranna okkar að víkka.
Svo langar okkur til að hafa
æfingakvöld fyrir dómara, til
að halda þeim „í formi“. Dóm-
arar verða að geta fylgt knett-
inum allan leikinn og þurfa því
að hafa léttleika og þol svo það
komi aldrei fyrir, að þeir þuríi
að dæma síðari hálfleik frá m,ið-
línu.
Þegar talið barst að knatt-
spyrnunni, almennt séð, sagði
Höskuldur m. a.:
Reykjavíkurfélögin eru búin
að leika 10—15 leiki á vorin,
áður en Akureyringar leika
sinn fyrsta leik. Þetta má ekki
svo til ganga. Þetta er auðvitað
ekki mál dómaranna, en það er
mál knattspyrnuíþróttarinnar
hér og mál allra bæjarbúa, sem
krefjast mikils af sínum knatt-
spyrnumönnum. Hér segja
menn, að aðeins sé hægt að æfa
innanhúss á vetrum, og hér
sem margt bar á góma, sem
samskipti þessara aðila varðar.
í lok fundarins var formanni
félagsins, Höskuldi Markússyni
færð heiðursgjöf frá félaginu,
fyrir einkar fórnfúst og ötult
starf í þágu þess og knattspym-
unnar í bænum.
Höskuldur Markússon var
einróma kjörinn formaður, en
stjórn með honum skipa: Páll
Línberg, Páll Magnússon, Rafn
Hjaltalín og Sveinn Kristjáns-
son.
(Fréttatilkynning )
vanti hús til æfinga. En á Norð-
urlöndum er knattspyrna æfð
úti að vetrinum og reynslan af
því er miklu betri. Það er liðin
tíð þar, að treysta á innanhúss-
æfingarnar. Vettvangur knatt-
spyrnunnar er engin brúðuleik-
ur eða vöggustofa. Veðrið hér á
Akureyri á ekki að vera neinn
verulegur „þrándur í Götu“ við
vetraræfingar undir berum
himni. Dómarafélagið hefur
þröngan starfsvettvang og ekki
óskum við að fá neinskonar
valdaaðstöðu í félagsskap knatt
spyrnufélaga K. R. A. eða
í. B. A. En við þurfum að vinna
dómurum okkar verðskuldað
álit og virðingu og íþróttinni
aukna virðingu um leið. í. B. A.
og K. R. A. hafa ráð knattspyrn-
unnar í sínum höndum, svo sem
vera ber og mun dómarafélagið
ekki blanda sér þar í, að öðru
en við kemur okkar þætti í
knattspyrnuleikjunum.
Við höfum nú, allir bæjarbú-
ar, séð það undanfarin ár, hve
lítið í. B. A.-liðið vantar til að
komast á toppinn. Það er verð-
ugt viðfangsefni knattspyrnu-
unnenda og forráðamanna
íþróttamálanna í þessum bæ, að
ná því marki, segir Höskuldur
Markússon að lokum. Um leið
og hann kveður leggur blaðið
nokkrar spurningar fyrir hann
og bíður svars við þeim. □
Kolkrabbi í f jarðar-
mynninu
Hrísey 16. nóv. Nú er kominn
kolkrabbi í fjarðarkjaftinn og
sæmilegur fiskafli á færi út við
Gjögra. Tveir menn fengu þar
1000—1100 kg. á færi einn dag-
inn og einn maður dró 800 kg.
Þá fengu tveir menn 8 tunnur
af kolkrabba og 1200 kg. af
ágætum þorski eftir sólarhring-
inn. í gær komu 12 tonn af
krabba á frystihúsið. Þetta er
nú það helzta og eykur þessi
afli bjartsýnina og veitir ekki
af. Þ. V.
SL. sunnudagskvöld hófst vetr-
arstarf F.U.F. á Akureyri með
kvöldverðarfundi að Hótel
KEA. Fundurinn var vel sóttur
og heppnaðist hið bezta.
Sigurður Oli Brynjólfsson,
bæjarfulltrúi, flutti framsögu-
erindi um bæjarmál og rakti
hann þar aðalþætti bæjarmál-
anna. Erindi hans var mjög vel
tekið og hófust að því loknu
fjöi-ugar umræður, er stóðu til
kl. 11 um kvöldið, og var al-
mennur áhugi ríkjandi á fund-
inum um að gera hlut Fram-
sóknarflokksins sem mestan hér
í bæ í bæjarstjórnarkosningun-
um næsta sumar.
Það kom greinilega fram í
málflutningi ungu mannanna,
að þeim fannst sjálfsagt að lán
yrðu tekin til að hraða ýmsum
byggingarframkvæmdum hjá
bænum, og reynt yrði að ljúka
byggingum á vegum bæjarins á
sem skemmstum tíma, en vera
ekki með mörg stórhýsi í bygg-
ingu árum saman.
Það liggur í augum uppi, að
bærinn tapar stórfé á þessum
seinagangi, meðan verðbólgan
- Fá ekki nóg hey
(Framhald af blaðsíðu 8).
var fénu gefið inni með mesta
móti. Fæddust fleiri tvílembing
ar en vant er og því var meðal-
vigtin lægri. Líklegt er, að hver
ær hafi þó skilað meiri afurð-
um til jafnaðar. Frá Brún á
Jökuldal voru dilkar þyngstir.
Síldin er hér enn sem fyrr
hið stóra umræðuefni og verk-
efni. En þeir sem á útvarp vilja
hlusta á kvöldin, láta brúnir
síga, þvi lítið heyrist. Verið er
að setja upp kröftugri vélar í
Endurvarpsstöðinni á Eiðum og
er ráð fyrir því gert, að þær
verði komnar upp fyrir jólin.
V. S.
Stereo í Borgarbíói
BORGARBÍÓ hefir nú nýlokið
við að láta setja u'pp sérstakt
hátalarakerfi, sem er óháð há-
talarakerfi myndasýninganna,
og notað verður á undan sýn-
ingum og í hléum. Má þá heyra
stereo-hljómlist bæði inni í saln
um og í anddyri. Segulbands-
tækið, sem notað er við upptöku
og leikið er af, er af fullkomn-
ustu gerð, norskt, frá verksmiðj
unni TANDBERG í Osló, en
þessi tegund hlaut 1. verðlaun
hjá neytendasamtökum U. S. A.
á sýningu í fyrra.
Vonar bíóið að biógestum líki
þetta vel og geti notið þarna
góðrar tónlistar framvegis.
Aðeins 3 bíó fyrir sunnan hafa
komið upp hliðstæðu kerfi áður,
en það eru Háskólabíó, Austur-
bæjarbíó og Kópavogsbíó.
Það eru nú liðin næstum 2 ár
síðan hátalarakerfi og magnar-
ar bíósýninganna voru endurnýj
aðir og er þar um að ræða ágætt
kerfi, sem skilar mjög góðri
hljómlist þegar filmurnar gefa
tilefni til þess. □
eykst jafn hröðum skrefum og
hún hefur gert nú á síðustu ár-
um.
Fleiri slíkir fundir eru fyrir-
hugaðir síðar í vetur og er mik-
ill áhugi ríkjandi hjá ungum
Framsóknarmönnum að efla fé-
lagsstarfið sem mest. Q
- Afmælisrit H.S.Þ.
(Framhald af blaðsíðu 8).
þætti þingeyskrar menningar,
sem ungmennafélögin voru og
eru enn.
Afmælisbók þessi fæst hjá
öllum formönnum ungmennafé-
laga H.S.Þ., og á Hótel Akur-
eyri. Áskriftarverð til næstu
mánaðamóta er 375 krónur, en
eftir það mun hún kosta 450
krónur. □
FISKUR GENGINN í
SKJÁLFANDAFLÓA
Húsavík 16. nóv. Fiskur virðist
hafa gengið í Skjálfandaflóa,
því afli er góður og róið dag
hvern í einmuna stilltu veðri.
Hér söfnuðust 90 þús. kr. í
„herferð gegn hungri“ og er þó
ekki lokið söfnuninni. Tveir
starfsmenn K. Þ. beittu sér fyr-
ir söfnun þar á föstudaginn, en
aðalsöfnun fór fram á laugar-
daginn.
Volpone hefur verið sýndur
sjö sinnum, síðast á miðviku-
dag. Þar kom fólk úr Leikfélagi
M. A. á Akureyri, ásamt Ragn-
hildi Steingrímsdóttur. En hin-
ir ungu menn hyggjast sýna í
vetur ítalskan sjónleik frá svip-
uðum tíma og Volpone.
Þrymur hafði hér nýlega
kvöldvöku og sýndi þá m. a.
litskuggamyndir úr Vestfjarðar
för sinni sl. sumar. Þ. J.
TIL DAVÍÐSHÚSS
Ólafía Sigurðardóttir Hríseyj-
arg. 5 kr. 500. — Nanna Gunn-
laugsdóttir Tómasarh. 49 Rvík
kr. 250, Gunnlaugur Sig-
mundsson Tómasarh. 49 Rvík
kr. 250, Jón R. Sigmundsson
Tómasarh. 49 Rvík kr. 250,
Sigmundur Jónsson Tómas-
arh. 49 Rvík kr. 250. — Safn-
að af Hannesi Þorsteinssyni
stórkaupm. Rvik kr. 42000.
(Sundurliðun í næsta blaði).
Stefán Gunnbj. Egilsson Rvík
kr. 200. — Safnað af Gunnari
Valdemarssyni Vopnafirði kr.
4200. (Sundurliðun í næsta
blaði). — Safnað í Hrísey kr.
2940. — Snjólaug Jóhannes-
dóttir Rvík kr. 500, Helga Vil-
hjálmsdóttir kr. 500, Anna
Árnadóttir kr. 200, Gyða Jóns
dóttir Karfav. 13 Rvík kr. 200.
Safnað af Guðmundi Björns-
synj Stöðvarfirði kr. 1500. —
Safnað af Jóni Arnþórssyni
fulltr. Rvík kr. 4000. — Jó-
hanna Björnsdóttir Ásv.g. 65
Rvik kr. 300. — Safnað af
frú Bergþóru Eggertsdóttur
ísafirði kr. 3000. — Gunn-
laugur Loftsson Rvík kr. 1000,
Lovísa Jónsdóttir Ak. kr. 200.
Safnað í Vestmannaeyjum kr.
10260. — Söfnunarnefnd þakk
ar kærlega öll þessi framlög
svo og fjölmörg ánægjuleg
bréf víðsvegar af landinu.
Kiiattspyrnuþ j álf un
undir vetrarliimni