Dagur - 17.11.1965, Qupperneq 8
8
«/V>/>/V/VV/«/^/-A/>/WV///>/V>/////>/>^^V>///>/>/>/>/>/>//>/>///v/V//>/>/>/>//>/>/>/>//V/////V>^/W>/>/>/>//>/>//>/>//>/>/>//>//>/>////>/-/V>/-/>/J>'>'''-''»/
í ÞESSU HÚSI, Aðalstræti 16 á Akureyri, hófst hið „dulda vísindastarf" Sigfúsar Elíassonar.
Dulspekiskólinn í Reykjavík, segir Sigfús, niun nú senn fara að opinbera þjóð vorri þýðingar-
mikla vísindalega þekkingu, er varðar atvinnuvegi til lands og sjávar og sem hafið gæti menn-
ingu þjóðarinnar á æðra stig. Það hlýtur að taka áratugi og lýsa um aldir fram. Hin kristna
dulspeki sannar, að íslend er hið helga land framtíðar og þjóðinni er ætlað stærra hlutverk en
hana grunar. Stofnandi Dulspekiskólans, Sigfús Elíasson, hóf þetta dulda vísindastarf á Akur-
eyri fyrir 30 árum síðan. Dagur varð til þess að birta fyrstu vísurnar hans.
Bygging nýrrar síldarbræðslu á
Þórsliöfn er hafin
Efni í 1400 fermetra stálgrindahús komið
\
SMÁTT ÖG STÓRT
BÚIÐ ER að slá upp fyrir
grunni nýrrar síldarverksmiðju
á Þórshöfn, og komið er efni í
1400 fermetra stálgrindahús
þangað austur.
Á vefksmiðjan að geta unnið
úr 1500 málum síldar á sólar-
hring. Verksmiðjuhús og síldar-
geymar verða á uppfyllingu,
sem gerð hefur verið við hafn-
argarðinn ofanverðan og verð-
ÚT ER komin mjög vönduð og
falleg bók, sem heitir, Héraðs-
samband Suður-Þingeyinga 50
ára, og er 220 bls. í stóru broti,
fjölda mynda skrýdd. Ritnefnd
skipuðu Gunnlaugur Tr. Gunn-
arsson, Pétur Jónsson og Þórð-
ur Jónsson, prentun annaðist
P.O.B., Akureyri en myndamót
in gerði Litrof Reykjavík.
Bókarhöfundar eru margir,
efniviðurinn mikill, þar sem eru
hálfrar aldar störf þingeyskra
ungmennafélaga, og víðast sam
anþjappaður fróðleikur. For-
málsorð ritar Óskar Ágústsson
formaður H.S.Þ. Bók þessi mun
erindi eiga á þingeysk heimili
Happdræffið
DREGIÐ á laugardag. Þeir
örfáu, sem enn eiga eftir að
gera skil fyrir heimsenda
miða eru vinsamlega beðnir
að gera það nú þegar, á skrif
stofuna, opin kl. 2—6, eða á
afgreiðslu Tímans. Miðinn
kostar aðeins 50 krónur.
ur þar síldarlöndunarbryggja
innan á garðinum.
Stofnað hefur verið hlutafé-
lag til að byggja verksmiðjuna
og reisa hana. Eru ílestir hlut-
hafar af Suðurnesjum, einhverj
ir frá Húsavík og Þórshafnar-
hreppur er hluthafi í verk-
smiðjufélaginu. Formaður fé-
lagsstjórnar er Huxley Ólafsson
framkvæmdastjóri Fiskiðjunn-
fyrst og fremst, en fjölmargir
aðrir. æt(u að kynnast þeim
Framhald á blaðsíðu 2.
Egilsstöðum 16. nóv. Nú er frost
á fróni óg 'hrím á jörð. Föl til
fjalla. í íiaust hefur verið ein-
muna hagstæð tíð til bygginga-
framkvæmdá og hefur það kom
ið sér einkar vel. En sennilega
vei-ða menn að sætta sig við það,
senn hvað, líður, að hætta að
steypa en snúa sér þess í stað
að innréttingum húsa.
Heyið kemur öðru hverju á
Austfjarðarhafnir og dreifist
þaðan um allt, allt frá Héraðs-
söndum inn til innstu dala. En
bændur fá þó ekki nema um
80% af því, sem þeir pöntuðu.
Bændur reyna að bæta sér það
upp með kjarnfóðurkaupum, og
í haust var miklu lógað af þeim
búfénaði, sem helzt mátti missa
sig, en hefði verið settur á vetur
eftir gott heyskaparsumar.
Á Fljótsdalshéraði var lógað
um 50 þús. fjár, þar af 42 þús.
hjá Kaupfélagi Héraðsbúa. Með
ar s.f. i Keflavík, góðkunnur at-
hafnamaður syðra, en fram-
kvæmdastjóri mun verða Hákon
Kristinsson í Njarðvík.
Verksmiðjufélagið hefur nú
tryggt sér allstórt athafnasvæði
fyrir verksmiðjurekstur og síld
arsöltun í nágrenni hafnarinn-
ar á Þórshöfn, m. a. fest kaup
á gamla læknishúsinu, sem var
í eigu fjögurra hreppa.
Kostnaðarverð verksmiðjunn
ar mun áætlað fram undir 20
millj. króna.
Heyrzt hefur, að verksmiðju-
félagið hafi í hyggju að byggja
síldarþrær í Gunnólfsvík við
sUrtnanvert Langanes til þess að
geta flutt síld þaðan á bílum
þvert yfir nesið til Þórshafnar,
ef svo stendur á, að síldarskip-
um þyki hentugra að landa síld
sunnan við nesið, en á Þórs-
höfn. □
alvigt dilka varð 14,16 kg. eða
aðeins minni en í fyrra. Sauð-
fjárglátrun er rétt lokið.
Frá bæjum á Jökuldal komu
léttari dilkar en oftast áður. Er
það talið stafa af því, að í fyrra
(Framhald á blaðsíðu 2).
Á SUNNUDAGSKVÖLDIÐ,
um kl. 8.30 varð eldur laus í
rishæð hússins Norðurgötu 3 á
Akureyri. Er það timburhús,
ein hæð, rishæð og kjallari.
Heimafólk brá strax við og
gerði það, sem gera bar þar til
slökkvilið kom. Skemmdir urðu
nokkrar af eldi og vatni, en þó
vonum minni. Barn, sem hafði
eldspýtur í höndum, kveikti í.
í gærmorgun kveiktu börn í
kössum við Sjálfstæðishúsið og
BÚVÖRUVERÐIÐ STÖÐUGT
Á DAGSKRÁ
Á meðan fólk hefur kjöt, smjör
og mjólk á borðum sínum, eru
landbúnaðarniálin, og verðlags-
málin alveg sérstaklega, því
mjög viðkomandi, enda koma
innkaup þeirra við pyngju neyt
enda, ekki er að neita því. Hitt
er einnig staðreynd, að fram-
leiðendur þessara vara hafa
lægri árstekjur en flestir aðrar
stéttir í okkar þjóðfélagi. Bráða
birgðalög um búvöruverð voru
út gefin í haust og samningsrétt
ur þá af bændum tekinn. Þetta
var, af stjómarflokkunum túlk-
að harla gott. En þessi nýju lög
og nýskipan þessara mála eru
þó ekki hærra skrifuð en það
hjá landbúnaðarráðherra, að
hann hefur lýst því yfir, að ekki
komi annað til mála en ný lög-
gjöf.
UM RÉTT TIL ÚTFLUTN-
INGSUPPBÓTA
Á Alþingi urðu margra daga
umræður um málið (raunar
ekki nema 2 klst. á dag) og tóku
margir þingmenn þátt í þeim
svo og ráðherrar. Við þessar
umræður sagði Gísli Guðmunds
son m. a.:
Skilja mátti orð landbúnaðar-
ráðherra fyrir nokkrum dögum
á þá leið, að bændur hafi fyrir
þennan tíma (1960) ekki átt rétt
til útflutningsuppbóta. En þeir
áttu þennan rétt í Iögum, rétt
til upþbóta úr útflutningssjóði
og sérstakan rétt til útflutnings-
uppbóta af innanlandsverðinu,
og heimilt var að ákveða innan-
landsverðið með tilliti til þess.
Þegar þessi réttur var véfengd-
ur gekk hæstaréttardómur í
málinu og staðfesti þennan rétt
bændanna. En hæstv. núverandi
landbúnaðarráðherra samdi um
það við Stéttarsambandið að
þessi réttur félli niður og í stað-
inn kæmu uppbætur úr ríkis-
sjóði.
BREYTINGIN ORKAÐI
TVÍMÆLIS
Eg hefi rætt við bændur, sem
óttuðust, að tap yrði á þessum
skiptum um 1960. Um það ætla
ég ekki að dæma nú. Eg segi
aðeins söguna eins og hún gekk.
Bændur fengu líka nokkru
hreyfanlegra verð á verðlagsár-
inu en áður var. En á móíi kom
það, að dreifingarkostnaðurinn
skyldi vera samkomulagsmál í
varð af töluverður eldur, sem
slökktur var áður en teljandi
tjón varð. Lögreglan biður blað
ið að minna ökumenn á, að hafa
ljósabúnað ökutækja sinna í
fullkomnu lagi nú í skammdeg-
inu, enda gangi hún ríkt eftir
því og taki úr umferð þau öku-
tæki, einnig reiðhjól, sem ekki
fullnægi kröfum þar um.
Nokkrir smáárekstrar hafa
enn orðið í umferðinni, en eng-
in slys orðið á fólki, Q
sexmannanefndinni og háður
gerðardómi. f heild orkaði það,
sem tapaðist og það sem ávannst
nokkurs tvímælis, hvort þyngra
væri á metunum frá sjónarmiði
ýmissa bænda. Og á næstu ár-
um kom fram á fundum bænda
gagnrýni á efni og framkvæmd
þessara Iaga. Margir drógu í
efa, að Sexmannanefndarverð-
lagningin væri til frambúðar og
vildu fremur breyta skipulag-
inu á þá leið, að samið yrði við
ríkisstjómina hverju sinni, svo
sem tíðkast mun í öðrum lönd-
um.
VAR ÞAÐ í ÓVIRÐINGAR-
SKYNI?
f þessum bráðabirgðalögum (þ.
e. núna í haust) var lögskipaðri
dónmefnd fengin nýr viðmiðun-
argrundvöllur til ákvörðunar á
kaupi bóndans og öðrum vinnu-
kostnaði við framleiðsluna. Og
eg spyr eins og fleiri: Hvers
vegna mátti dómnefndin ekki
nota þann viðmiðunargrundvöll,
sem verið hefur í lögum, þ. e.
tekjur annarra vinnandi stétta?
Felst í þessu yfirlýsing ríkis-
stjórnarinnar um það, að ekki
megi taka tekjur sildarsjómanna
inn í viðmiðunina eða að gamla
viðmiðunin sé yfirleitt ónothæf?
Hvers vegna í ósköpunum var
fundið upp á því að gera elli-
h'feyri og örorkubætur að við-
miðunargrundvelli fyrir kaup-
hækkun bóndans? Því þá ekki
að miða við almenna kauphækk
un í fiskvinnu, sem leiddi í bili
til sömu niðurstöðu? Mörgum
þykir þetta hlálegt og gizka á,
að sálfræðingnr stjómarinnar
liafi fundið þetta upp af speki
sinni og í því hafi átt að felast
laundrjúgur áróður.
FLEIRA ÞARF TIL AÐ
KOMA
f umræðum um þetta mál hef-
ur ýmsum orðið tíðrætt um út-
flutning landbúnaðarvara. f því
sambandi hefur verið rætt, að
heppilegra sé að auká fram-
leiðslu sauðfjárafurða fremur
en mjólkur, og sýnist það auð-
sætt. Sú stefna, að stuðla að því
með verðlagningu hefur þó átt
örðugt uppdráttar, m. a. hjá rík-
isstjórninni, eins og nefnt hefur
verið. Hitt á svo eftir að sýna
sig, sem menn vona, að kr. 1.89,
sem kjölkílóið hefur liækkað nú
og í fyrra, samanlagt, vegna til-
færslu frá mjólkurverðinu, hafi
hæfileg áhrif í þá átt að auka
framleiðslu sauðfjárafurðanna.
Það mun líka sýna sig, að fleira
þarf til að koma en verðlagning
búsafurða til að Ieysa á viðun-
andi hátt málefni bænda í þeim
byggðarlögum, sem nú eru verst
sett.
ÍSLENDINGUM FJÖLGAR
UM 94 ÞÚSUND Á NÆSTU
20 ÁRUM
í árslok 1944 var fólkstalan hér
á Iandi um 128 þús. en í lok árs-
ins sem leið um 190 þús. íbúum
landsins hefur á 20 árum fjölg-
að um 62—63 þús. eða nál. 49%.
Ef þessi þróun heldur áfram
(Framhald á blaðsíðu 5).
Vandað afmaelisrit H. S. Þ.
Fá aðeins 80% af heypöntunum
Börn lékusér ðð eldinum