Dagur - 20.11.1965, Page 1
Dag
ur
SiMAR:
11166 (ritstjóri)
11167 (afgreiðsla)
XLVQI. árg. — Akureyri, laugardaginn 20. nóv. 1985 — 86. tbl.
Dagui
kemur út tvisvar í viku
og kostar kr. 25,00 á
mán. í lausasölu kr. 4,00
Trillukarlamir vinna í verksmiðju
Raufarhöfn 19. nóv. Það er kom
ið dálítið föl en sæmilegt veður.
88 þús. mál bárust síldarverk-
smiðjunni frá 9. nóv. að telja og
var ekkí ónýtt að fá þessa við-
þót, sem telja verður landburð
af síld. Hingað komu 12 skip
með síld í gær og fyrradag en
nú er bræla á miðunum og hlé
á veiðum. Alls eru komin 314
þús. mál í bræðslu.
Þorskafli hefur verið sæmi-
legur, en nú róa aðeins tveir
dekkbátar og fá 6—8 skippund
í róðri. Trillurnar öfluðu líka
sæmilega og oft vel í haust, en
nú eru trillukarlarnir komnir í
síldarverksmiðjuna og róa ekki
í bráð, enda ekki hægt að
stunda sjóinn á þessum árstíma
á svo litlum fleytum nema í ein-
munatíð. H. H.
Sérstök lág jólafargjöld til
Islands um háfíðarnar
HINN 1. desember n. k. ganga
hin lágu jólafargjöld Flugfélags
íslands í gildi.
Akureyrartogararnir
ALLIR Akureyrartogarar lágu
samtímis í heimahöfn vegna
verkfalls yfirmanna þeirra, er
stóð frá 26. október til 16. nóv-
ember.
Samkvæmt hinum nýja kaup-
samningum, sem samkomulag
varð um, hækkar fastakaupið
um 14%.
Svalbakur lét úr höfn 17. nóv.
Kaldbakur þann 18. Sléttbakur
fór í gær og Harðbakur fer um
hádegi á mánudaginn.
Afli Akureyrartogaranna er
mun meiri, það sem af er þessu
ári, en í fyrra. Afurðirnar hafa
selzt jafnóðum að heita má, fyr-
ir sæmilega hagstætt verð. Q
Jólafargjöldin gilda nú frá
fleiri erlendum borgum en áður,
eða alls fimmtán.
Jólafargjöldin eru um 30%
lægri en venjuleg fargjöld á
sömu flugleiðum. Þau gilda sem
fyrr segir frá 1. des. til 1. jan.
1966, en auk þess er gildistími
hvers farseðils einn mánuður
frá því ferð er hafin.
Þessi sérstöku ódýru jólafar-
gjöld munu enn sem fyrr auð-
velda námsfólki, svo og öðrum
íslendingum sem erlendis
dvelja, að halda jól og nýár
heima á Fróni.
Flugfélagið beinir þeim til-
mælum til aðstandenda náms-
fólks ytra, og annarra þeirra er
hafa í hyggju að notfæra sér
þessi sérstöku fargjöld, að hafa
samband við skrifstofur Flug-
félags íslands, sem veita allar
nánarí upplýsingar.
(Fréttatilkynning)
FLUGSTÖÐIN Á AKUREYRI.
Ljósm.: E. D.
Sjónvarpssendingar hefjasf á næsfa ári
sagöi mennlamálaráðherra í umræðum á Alþingi
AÐ GEFNU tilefni upplýsti
menntamálaráðherra á Alþingi
á miðvikudaginn, að ráðgert
væri að hefja 'innlent sjónvarp
á næsta ári. í sumar festi Ríkis-
útvarpið kaup á húsi í höfuð-
borginni til afnota fyrir væntan
legt sjónvarp, fyrir 12,5 millj.
kr. Þar er nú unnið að breyting-
um. Helztu starfsmenn sjón-
varpsins hafa þegar verið ráðn-
ir, en upphaflega var ætlað að
ráða 30 starfsmenn. Margt af
þessu fólki hlýtur þjálfun um
tíma í nágrannalöndunum á sér
stökum námskeiðum, sagði ráð-
herra. Ýmis tæki til sjón'varps-
reksíurs hafa þegar verið keypt,
önnur boðin að láni, sagði ráð-
herra.
Spurningu um það, hvenær
sjónvarpssendingar næðu til
allra lanasmanna, svaraði ráð-
herrann á þá leið, að í áætlun-
um sjónvarpsnefndar væri við
það miðað, að sjónvarp næði til
allrar þjóðarinnar á næstu sjö
árum.
Tekjur þær, sem sjónvarps-
sjóður hefur þegar fengið nema
27,5 millj. kr., en það eru að-
flutningsgjöld af sjónvarpsvið-
tækjum og einkasölugjöld af
innfluttum tækjum.
Rekstur sjónvarpsins á ári er
áætlaður 20 millj. kr. fyrsta ár-
ið en 40 millj. kr. árið 1972, að
óbreyttu verðlagi. Q
Hægri handar aksiur 1968
Ekkert vit í, að aka fyrir Múlann
segir Guðmundur Benediktsson yfirverkstjóri
ENN ER unnið í Múlavegi, en
aðeins eru þar nú tvær stórar
jarðýtur að störfum í Torfgili.
En frost hamla, bii'tutíminn er
orðinn stuttur og það er orðið
hráslagalegt í Múlanum, sagði
Guðmundur Benediktsson vega
verkstjóri í gær.
Umferð um Múlaveg er nokk
ur, en vegurinn er bannaður og
merktur samkvæmt því. Það er
ekkert vit í að aka fyrir Múlann
nú, stórir svellbunkar hafa
myndast, Ólafsfjarðarmegin,
sagði Guðmundur ennfremur.
Þá er rétt að benda ökumönn
um, sem fara vilja Múlaveg á
að kynna sár viðhorf trygginga-
félaga til bótaskyldu við slíkar
aðstæður, ef eitthvað kynni út
af að bera. Vegurinn milli Ak-
ureyrar og Ólafsfjarðar er um
64 kílómetrar.
Allir vegir hér norðanlands
eru nú mjög greiðíærir, en í
gærmorgun var blindað. Q
Á FIMMTUDAGINN var lagt
fram á Alþingi frumvarp til laga
um, að hér á landj verði upp
tekinn hægri handar akstur,
sem verði kominn til fram-
kvæmda fyrir 1969, og er þetta
stjórnarfrumvarp. Áætlaður
kostnaður við breytinguna er
talinn 49 millj. kr. þar af 36
millj. kr. vegna breytinga á al-
menningsvögnum. Til að mæta
þessum kostnaði er ætlunin að
Hifa jáfað á sig innbrot cg óknylti
Sæmilegur alli í Úlafsfirði
Ólafsfirði 19. nóv. Nú er loks
kominn skautaís og mikið not-
að, þar sem hann er orðinn
nægilega traustur.
Þessa viku hefur aflazt vel.
Guðbjörg og Anna hafa róið
með línu og aflað 4—7 tonn í
róðri. Trillurnar hafa komið
með allt að 3 þús. pund á dag
af hinum ágætasta færafiski.
Skólarnir standa fyrir kvöld-
vökum, til ágóða fyrir hina
miklu söfnun „Herferð gegn
hungri“.
Við höfum eignast nýja leið,
þar sem er Múlavegur. Hann er
mikið notaður þótt hann sé enn
„lokaður". B. S.
ElNS OG kunnugt er af fyrri
fréítum var brotizt inn í Flóru,
Kaupfélag Verkamanna og
Slippsíöðina (búðina), ennfrem
ur farið í bátana Björgvin,
Gylfa II og Vörð og ýmsu um-
turnað. Þá var siolið peningum
í Drang, stöðumælar brotnir o.
s.. frv. Rannsókn þessara mála
hefur staðið yfir undanfarn3r
vikur og hafa nú 6 unglingar
játað á sig þessa verknáði, nema
þjófnaðinn í Drang. En rann-
sókn er ekki lokið.
.Námskeið fyrir lögreglumenn
á Akureyrj hefst nú um helgina
og lýkur eftir áramót. Þjálfari
frá Reykjavík mun leiðbeina,
ennfremur ýmsir menn aðrir,
meðal þeirra löglærðir menn.
Enn hafa orðið allmargir
árekstrar bifreiða hér í bæ, m.
a. þrír í fyrrakvöld og einn mað
ur var í vikunni tekinn fasíur
vegna ölvunar við akstur.
Roskinn verkamaður féll af
bílpallj á fimmtudaginn, er
hann var við vinnu sína og
liggur hann á sjúkrahúsi. Q
leggja á sérstakan skatt til rík-
issjóðs á árunum 1966—1969 frá
200—750 krónum á hverja bif-
reið eftir stærð. En samtals á
skattupphæð þessi að nema 52
millj. króna.
Hægri handar akstur á að
taka upp í Svíþjóð árið 1967.
Umræður um þessar breyt-
ingar hafa verið öðru hverju
síðustu misseri, og hafa ekki
allir verið á einu máli um nauð-
syn þeirra. Hins vegar er það
Ijóst, að ef hægri handar akstur
verður hér í framtíðinni, er
auðveldara og ódýrara að taka
hann upp nú en síðar verður.
KJORVIST - DANS
að Hótel KEA föstud. 28.
nóv. n. k. kl. 8.30. Gáðir vinn
ingar — góð hljómsveit. Góð
skemmíun. Þetta verður síð-
asta Framsóknarvistin fyrir
jól. Nánar auglýst síðar.
Framsóknarfél.