Dagur - 20.11.1965, Blaðsíða 2
2
Sfofna þarf Bræðrafélag
Um 200 skólanemar koma dag-
lega í Stmdlang Ak.
Rætt við Hauk Berg Bergvinsson, nýráðinn
sundlaugarstjóra viðESiradÍáug Akureyrar
SUNDLAUG AKUREYRAR uppi á Brekkunni kannast allir bæj-
arbúar við, þvi flestir hafa komið þar, og aSt- yngra fólk bæjarins
lært þar sund, síðan sundið var gert að skyldunámsgrein í skólun-
um. Ég hitti hinn nýráðna sundlaugaFstjóra, HauJí 'Berg Bergvins-
son íþróttakennara, að máli fyrir skömniu til að forvitnast um
sundáhuga bæjarbúa og allan aðbúnað við súhdlaugina.
Kæmi ekki jtil greina að setja
Hvernig líkar þér nýja starfið,
Haukur?
Mér líkar það ágætlega, en þó
er lítil reynd komin á það enn,
þar eð ég hef starfað svo stutt-
an tíma.
Hvað vilfu segja um sund-
áhuga almennings í bænum?
Almenningur hefur mjög tak-
mörkuð afnot af lauginni á vet-
urna, því segja má að innilaug-
in sé yfirtekin af skólunum, fyr-
ir sundkennslu. Tímar fyrir al-
menning eru aðeins kl. 8—9 f.h.
og frá kl. 8—10 e.h. alla virka
daga, nema á laugard. kl. 4—7
e.h. og á sunnud. kl. 9—12 f.h.
Sértími karla er kl. 9—10 f.h. á
sunnudögum, en sértími kvenna
er á fimmtudagskvöldum kl. 7—
10. Mest af því fólki sem í laug-
ina kemur á almennum tímum
eru þó unglingar, 12—16 ára, og
mikið til þeir sömu. Fullorðna
fólkið notar meira gufuböðin, en
notar laugina lítið, enda erfitt
að synda í innilauginni þegar
margt er.
Er engin sundkennsla á veg-
um sundlaugarinnar?
Eina sundkennslan á vegum
laugarinnar er, að Ásdís Karls-
dóttir kennir í kvennatímunum
á fimmtudagskvöldum. — Sjö
kennarar starfa á vegum skól-
anna í bænum við sundkennslu
í lauginni, en það eru: Þórhalla
Þorsteinsdóttir, Margrét Hjalta
dóttir, Hermann Stefáns-
son, Magnús Ólafsson, Harald-
ur M. Sigurðsson, Einar Helga-
son og Kári Árnason. Um og
yfir 200 nemendur koma dag-
lega í laugina.
Hafa ekki íþróttafélögin æf-
ingatíma í Iauginni?
Eina íþróttafélagið, sem hef-
ur æfingatíma í lauginni er
Sundfélagið Óðinn, og eru þeir
með þrjú kvöld í viku (mánud.
þriðjud. og miðvikud. kl. 7—8)
og Óli G. Jóhannsson er þjálfari
þeirra.
Því miður er innilaugin full-
lítil til æfinga fyrir sundkeppni,
enda ekki lögleg sem keppnis-
laug. Hún er aðeins 12,5 m. á
lengd, en yfirleitt er keppt í 25
—50 m. laugum, og væri æski-
legt að gerðar yrðu ráðstafanir
til að hægt væri að stunda sund
iðkanir í útilauginni að vetrin-
um.
plasttjald yfir útilaugina að
vetrinum?
Jú, það er mjög líklegt. Farið
er nú að framleiða tjöld úr
plasti, svo stór, að hægt væri að
setja slíkt tjald yfir útilaugina
á veturna, en taka það niður
yfir sumarið.
Hve margir eru fastráðnir við
Sundlaug Akureyrar?
Við eru fjögur, sem erum
fastráðin við laugina og vinn-
um á tveim vöktum, en það eru
auk mín, Sigríður Björgvinsdótt
ir, Tómasína Hansen og Ingólf-
ur Kristinsson.
Að lokum, Haukur. Hvemig
Haukur Berg Bergvinsson.
er umgengni þeirra, sem koma
í laugina?
Segja má að umgengnin sé
yfirleitt mjög góð, en erfitt er
oft að koma unglingunum í skiln
ing um það, að þeir eiga að
sápuþvo sig í hvert skipti áður
en þeir fara í laugina, segir
Haukur, og þakka ég honum
fyrir spjallið. S. O.
VIÐ nokkrar kirkjur starfa svo
kölluð Bræðrafélög, sem hafa
það takmark að efla virka þátt-
töku í safnaðarstarfinu.
Þó að borizt hafi í tal að
stofna slíkt félag við Akureyr-
arkirkju, hefir ekki orðið úr
framkvæmdum enn. Eigi að síð
ur vinna leikmenn fagra þjón-
ustu við okkar kirkju. Er þar
fyrst að nefna meðhjálparastarf
ið.
Sú nýbreytni var tekin upp,
að hafa fleirj en einn meðhjálp-
ara, sem hver um sig hafa þjón
ustuskyldur visst tímabil árs-
ins.
Nú eru meðhjálparar þessir
menn: Björn Þórðarson verzl-
unarmaður, Jón Kristinsson
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8).
SIÐLEYSI UPPBÓTA-
KERFISINS
Einnig það skyldi upprætt og
atvinnuvegum landsmanna feng
inn fastur grunnur til að standa
á í stormum viðskiptalífsins. En
uppbótakerfið er enn í fullum
gangi og vaxandi. Áfram skal
stefnt á sömu braut segir ríkis-
stjórnin, því stefnan er harla
góð og hefur heppnast í megin-
atriðum!
Margir efnilegir unglingar æfa sund á Akureyri
Spjallað við Óla G. Jóhannsson, formann
Sundfélagsins Óðins á Akureyri
UM ÞAÐ var rætt hér í blaðinu í haust, að Akureyringar ættu
lélega sundmenn og hefðu Skagfirðingar hlotið miklu fleiri stig en
þeir á Norðurlandsmóti í sundi, sem fram fór í Ólafsfirði. — Mér
fannst því sjálfsagt að spjalla við Óla G. Jóhannsson, formann
Sundfélagsins Óðins, og vita hvað hann Jhefði að segja um sund-
íþróttina hér á Akureyri.
Er sundíþróttin i öldudal á
Akureyri núna, ÓIi?
Ég vil ekki segja það. Þetta
géngur svona upp og ofan, eins
og í öðrum íþróttagreinum. Það
er erfiðast að fá sundfólkið til
að halda áfram æfingum og
keppni þegar það er orðið 16—
17 ára, Mjargir hætta því þegar
þeir eru á góðri leið með að ná
beztum árangri. Sérstaklega hef
úr o-kku^- yarrtað stúlkur, óg
stigamunurinn á Norðurlands-
mótinu í haust lá aðallega í því,
pð Skagfirðingry- áttu sigurveg-
kra l kvennagréinunum.
s Við Óðinsltiehn Tiöfum sett 7
Akureyrarmet sl. 2 ár og jafnað
1, og sýmr það að; sundmenn á
AKureyjrt eru.'ekkj verri nú en
þeir voru áður. *
Æfa margir sund hjá Óðni?
Já, þeir eru allmargir eða um
30 þegar flest er. Þetta er mest
ungt fólk, og má mikils af því
vænta, ef það stundar kappsam-
lega 'æfingar næstu ár. — Það
er bara erfiðast við að eiga, að
margt af þessu unga fólki fer úr
bænum yfir sumarið og æfir því
ekki fyrr en það byrjar í skólun
um á haustin. Og auðvitað næst
ekki jafn góður árangur og ef
æft væri allt árið.
Æfa engir sund hjá Þór og
K.A.?
Nei. Síðan við stofnuðum Óð-
in, árið 1961, hafa engir æft
sund hjá K.A. og Þór, og er það
slæmt, því keppni verður ekki
skemmtileg ef allir keppendur
eru úr sama félagi.
Hvernig er aðstaðan til æfinga
í Sundlaug Akureyrar?
Hún er nokkuð góð, en inni-
laugin er bara svo ósköp lítil,
að hún kemur ekki að fullum
notum þess vegna. Það er verst,
að ekki skuli vera hægt að nota
útilaugina á veturna til æfinga
og keppni. Hún er alveg lokuð
yfir veturinn.
Þið hafið tekið þátt í mótum
á þessu ári, Óli.
Já. Við tókum þátt í Norður-
landsmótinu og Unglingameist-
aramóti íslands, og stóðum okk-
ur sæmilega, að mér finnst.
Hafa nokkur sundmót verið
haldin hér á Akureyri?
Ja, ekki nema 3 innanfélags-
mót í fyrra, og núna er meining-
in að koma á skólasundmóti.
Eru ckki einhverjir fullorðnir
ykkur til hjálpar við félags-
starfið?
Það er nú gallinn. Við erum
flestir ungir að árum, sem stjórn
um þessu, og okkur vantar full-
orðið fólk, sem hefur áhuga á
sundíþróttinni, og vill hjálpa
okkur við félagsstarfið.
Hafa einhverjir Óðinsfélagar
orðið íslandsmeistarar? .
Já, einn, Jón Árnason. Hann
varð sveinameistari árið 1962,
og er einn okkar bezti sundmað-
ur, en er fótbrotinn eins og er
og getur því ekki æft.
Þú er bjartsýnn á framgang
sundíþróttarinnar á Akureyri,
Óli.
Já, ég er það. Ef unga fólkið,
sem æfir núna, heldur áfram að
æfa næstu ár af fullri alvöru og
slakar hvergi á, þá þurfum við
Akureyringar engu að kvíða,
því þar eru margir efnilegir
unglingar á ferðinni.
rakarameistari og Þorleifur
Ágústsson yfirfiskmatsmaður.
Ekki er vitað að þetta fyrir-
komulag sé við neina áðra
kirkju en Akureyrarkirkju. —
En það er vissulega til eftir-
breytni, því á þennan hátt koma
fleiri leikmenn í starfið.
Á þessum tímamótum þykir
rétt að vekja enn athygli á hug-
myndinni um Bræðrafélag-
HAPPDRÆTTI H. í.
11. flokkur (Akureyrarumboð).
10.000 kr. vinningar:
7117, 25961, 52596.
5.000 kr. vinningar:
13163, 17053, 31586, 47462, 49090,
56207.
1.000 kr. vinningar:
224, 2144, 2145, 2928, 3581, 3839,
3967, 3972, 5945, 6010, 7030, 7109,
7384, 7502, 8283, 8285, 8842, 9761,
9848, 10146, 11313, 12095, 12259,
12267, 12692, 13174, 13243, 13631,
13783, 14180, 14785, 14795, 14947,
15001, 15235, 15552, 16942, 16944,
17309, 17875, 17933, 18204, 18461,
18997, 19432, 19579, 19597, 21746,
21749, 22140, 22146, 22234, 23565,
25585, 28681, 28698, 28872, 29318,
30503, 30506, 30551, 30571, 30593,
31147, 31576, 31599, 33199, 33428,
33509, 35051, 37007, 40576, 40579,
40580, 41171, 42010, 42823, 44584,
44814, 44815, 44827, 44836, 45311,
46807, 46985, 49065, 49104, 49289,
52144, 52506, 52508, 52516, 52986,
53224, 53803, 53916, 53938, 53946,
59567, 59592, 59593.
(Birt án ábyrgðar.)
- Herferð gegn rottum
(Framhald af blaðsíðu 8).
eru mikil mistök, að brenna
hvorki eða grafa þau ósköp af
rottumat, sem þarna gefur að
líta, á sama tíma og herferð
gegn rottunum stendur yfir.
f gær, eftir að framanskráð
var ritað, hafði blaðið fregnir af
því, að loks væru vinnuvélar
komnar á öskuhaugana, vænt-
anlega til að bæta úr margra
vikna vanrækslu þar. □
JARNHJOLBORUR
tvær stærðir
JARNVORUBILAR
hræódvrir
Sigursveitin í drengjaboðsund-
inu í Norðurlandsmótinu 1965.
Frá vinstri: Magnús Þorsteins-
son, Jón Árnason, Orvar Ingólfs
son, Hólmsteinn Hólmsteinsson.
Ég þakka Óla fyrir rabbið. Af
því, sem hann hefur sagt hér á
undan, sést, að Akureyringar
eiga nokkuð góða sundmenn, að
minnsta kosti á norðlenzkan
mælikvarða, en þurfa að eign-
ast sundmenn, sem hklegir eru
til afreka á íslandsmótum. Nú
þyrftu þessir ungu menn, sem
halda uppi sundíþróttinni í bæn
um, að fá aðstoð hjá fullorðnum
unnendum sundíþróttarinnar.
Það er nauðsynlegt, svo vel fari,
að hinir eldri séu með í ráðum.
Sundfólkið þyrfti nú að fá góð-
an þjálfara um tíma, og efast ég
ekki um að Akureyringar munu
eignast fullboðlega sundmenn á
næstu irum. - ..... S.O. ..
Tómsfundaverzlunin
STRANDGOTU 17 og
GEISLAGÖTU 12
Pósthólf 63
Sá hlýtur viðskiptin,
sem atíiygli vekur
á þeim.