Dagur - 24.11.1965, Blaðsíða 5

Dagur - 24.11.1965, Blaðsíða 5
4 5 'Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-1166 og 1-1167 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Björnssonar h.f. Framkvæmdaáætl- un íyrir Hcrðurland RÍKISSTJÓRNIN gaf um það yfir- lýsingu í vor, er yfir stóðu samning- ar um kaup og kjör, að láta fram fara athugun á atvinnumálum norð- anlands og gera framkvæmdaáætlun, sem hrundið yrði í framkvæmd með fjármunum, er stjórnin aflaði. Yfir- lýsing um jretta efni og áður hefur verið birt hér, var út gefin 7. júní sl. Alþýðusamband N orðurlands gerði í haust tilliigur, sein j>að taldi nauðsynlegt að leggja áherzlu á til aukins atvinnulífs á Norðurlandi. Meðal jieirra var bent á uppbætur á fiski, stofnað verði félag allra eig- enda síldarverksmiðja og síldarsölt unarstöðva til að kaupa og reka hentug skip til síldarflutninga til vinnslustöðva á Norðurlandi, aukin verði lán til kaupa á bátum, sem dag lega leggi afla sinn upp á norðlenzk- um liöfnum, hafinn verði undirbún- ingur að endurnýjun togaraflotans á þann liátt, sem bezt hæfi staðhátt- um og í samræmi við nýjustu tækni, unnið verði kappsamlega að mark- aðsleit fyrir niðurlagða síld og nið- urlagðar fiskafurðir og fleiri niður- lagningarverksmiðjur byggðar á Norðurlandi. Þá er tillaga um, að tunnuverksmiðjur ríkisins verði starfræktar með fullum afköstum 6 —7 vetrarmánuðina og komið verði upp húsnæði til að geyma tunnurn- ar í, haldið verði áfram við bygg- ingu liafna, svo að jjær verði sem fyrst nothæfar fyrir bátaflotann og til afgreiðslu fyrir farskip, opinber aðstoð verði veitt til að tryggja skipa smíðaiðnaðinn og að tryggð verði nægileg raforka, sem fullnægi iðnað- inum á hverjum tíma, lnaðað verði framkvæmdum við tengingu raf- veitna á Norðurlandi og rafvæðingu Norður-Þingeyjarsýslu, gengið verði nú þegar frá nauðsynlegum undir- húningi og útvegnn fjármagns til byggingar nýrrar raforkustöðvar við Laxá í Þingeyjarsýslu, og að j>ví verði keppt, að byggingarfram- kvæmdir geti hafizt á næsta vori. Starfað verði að j>ví að komið verði á stofn fullkominni veiðar- færagerð á Nórðurlandi, og þeim iðnaði valinn staður j>ar, sem þörfin telst mest fyrir slíkt iðnfyrirtæki frá atvinnulegu sjónarmiði og önnur skilyrði eru fyrir hendi. Efnahagsstofnuninni hefur verið falið að framkvæma áætlunargerð fyrir Norðurlandsáætlunina. Sveita- stjórnir norðan lands hafa látið sig mál }>essi miklu skipta og haldið um }>au ráðstefnur. -Skotta Viðtal við Gumiar Gíslason bónda á Sólborgar- hóli í KræklingaMío NÝLEGA hitti ég að máli bónda einn, sem stóð við veginn ofan við Sólborgarhói í Kræklingahlíð og beið hann eftir bíl. Það var Gunn- ar Gíslason, Skagfirðingur að ætt, kominn á áttræðisaldurinn, fædd. ur 1894, ekki mikill að vallarsýn, en vel á sig kominn, þrekmikill og hraðvirkur verkmaður á yngri árum. Hann liefur búið á Sólborgar- hóli í 15 ár en undi fyrrum vestur í Skagafjarðardölum og dvaldi þá m. a. einn á afskekktum bæ í átta vetur og hirti þar fé sitt. Sjálfur tók hann á móti fimm yngri börnum þeirra lijóna. Sumt af þessu hafði ég heyrt og bað Gunnar að segja mér við tækifæri frá einhverju, sem á dagana hefði drifið. Áttum við síðar tal saman. Er‘“ Þú ert Skagfirðingur, Gunn- ar? Já, fæddur á Minni-ökrum í Blönduhlíð 24. okt. 1894, þar sem Bólu-Hjálmar talaði sem fallegast við Sölva Helgason forðum daga! En ég flutti ungur með foreldrum mínum að Mið- húsum í sömu sveit og þar voru pabbi og mamma til æviloka. En hvenær fórstu sjálfur að búa? Eiginlega ekki fyrr en ég byrjaði að búa á Ábæ í Aust- urdal vorið 1929, en áður var ég búinn að halda heimili í átta ár, en var þau árin mikið í vinnu hjá öðrum. Fyrstu árin fékk ég í kaup tvær krónur á dag að vorinu, en 3 krónur yfir slátt- inn og _við erfiðustu verkin, svo sem við að rista torf og stinga hnausa til vegghleðslu. Þá kostaði fiskpundið 6 aura og karamellan 1 eyri! Við fláningu vann ég eitt haust í sláturhúsi og hafði 25 aura á tímann. Stundum vann ég í ákvæðis- vinnu, t. d. við slátt, og fékk 5 krónur fyrir dagsláttuna og jafnmikið fyrir að rista ofan af 100 ferföðmum í túni. Og j>á voru kaupakonur í sveit- um, Gunnar? Já, og það var munur eða traktorarnir nú, að vélunum ó- lostuðum þó. Það er illt að geta ekki veitt sér hvort tveggja. Einu sinni man ég, að ég batt hey fyrir Björn í Stóru-Seylu. Með mér var ein sú harðdugleg- asta stúlka, sem ég hef unnið með. Við bundum 125 hesta yf- ir daginn og sagði Björn þá, að bindingsmaður hefði mest kom- izt í 104 hesta hjá sér áður. Stúlkan, sem með mér var, heitir Lára Ágústsdóttir, þá um tvítugt eða yngri, Ijómandi fal- leg stúlka, og var ekki í neinum vandræðum með að lyfta bögg- um til klakks. Síðar varð hún landskunn undir nafninu Lára miðill og býr nú á Akureyri. Stundum var tekið lagið á engj- unum, enda vantaði ekki for- söngvarann þar sem var Sigurð ur Skagfield, eins og þetta kvöld. Svo fluttist þú að Ábæ? Já, og þá með 2 kýr, 22 kind- ur og 2 hryssur með veturgöml um hesttryppum. Mér var sagt að ég gæti ekki komizt af með þennan bústofn og var ekki vel spáð fyrr mér. Svo fékk ég 12 ær með jörðinni. Ég fór föstu- daginn fyrstan í sumri af stað með kindurnar, óð allar ár og kom að Ábæ á þriðja degi, hafði þá ekki komið þar áður. Gist- ingu fékk ég hjá Jóhanni Eiríks syni á Tyrfingsstöðum. Síðar fór ég með flutning á sjö hest- um fram að Stekkjarflötum og var Jón bróðir minn með mér og átti hann nökkuð áf hestun- um. Hrólfur, þá í Ábæ, bauðst til að flytja dótið þaðan að Ábæ um leið og hann flytti sína bú- slóð í burt. í fimmtu viku sumars lagði ég svo af stað með tvær kýr á undan mér suður Blönduhlíð- ina, fram að Silfrastöðum. Norð urá var þá í vexti og kolmó- rauð. Á Silfrastöðum fékk ég hesta og fylgd yfir ána morg- uninn' eftir. Hélt ég að Gils- bakka og gisti þar hjá Hjörleifi skálai Jónssyni. Þriðja daginn hélt ég enn áfram, fór yfir Merkigilsá, sem var hátt á síðu á stórum hesti. Kýrnar stóðu sig vel í straumnum og kom ég þeim fyrir á Merkigili, sem er 10 km. frá Ábæ og fékk þar lán aða hesta til flutninga á dóti, sem eftir var að flytja heim. Þetta kvöld fór ég að Brekku- koti. Sigríður kona mín og fimm börn okkar höfðu farið að Miðhúsum og gist þar nótt- ina áður. Öll komumst við heilu og höldnu í áfangastað. Einn af þeim góðu mönnum, sem lán- uðu mér hesta í þetta ferðalag var Lárus Lárusson söngmaður og dúllari úr Blönduhlíðinni, þarfur maður á marga lund. Og þér búnaðist sæmilega? Heyskapurinn gekk sæmilega strax fyrsta sumarið og ég setti allar gimbrarnar á, og keypti auk þess lömb og var með rúm- lega 60 fjár á fóðrum um vet- urinn. Þetta fyrsta ár mitt þurfti ég að taka 500 króna lán í Sparisjóði Sauðárkróks. Næsta vor urðu hrossin fimm, auk þess gaf Óskar bróð'ir minn mér nýtaminn reiðhest, ærnar áttu lömb og sumar tvö og búskap- urinn blessaðist á hinni af- skekktu jörð. Ilvenær fluttist þú til Eyja- fjarðar? Það var árið 1950 og þá frá Bústöðum í Lýtingsstaðahreppi. Ég keypti Sólborgarhól í Eyja- firði fyrir 50 þúsund krónur en seldi Bústaði, sem er margfalt stærri jörð, fyrir 16 þúsundir. Af jarðarverðinu gaf ég þúsund krónur í vegarspotta, sem ég hafði áhuga fyrir að gerður væri frá Goðdölum yfir í Austurdal- inn, og var fyrsti maðurinn, sem Gunnar Gíslason. styrkti hann þannig, þótt ég nyti hans ekki — var þá farinn. Ég borgaði Sólborgarhól, án þess að taka lán og kom svo þangað með 3 kýr, 3 hross og tvær kvígur. Fyrir vestan seldi ég 80 ær veturgamlar á 300 krónur hverja og keypti lömb þegar hingað kom, nærri jafn- dýr. Hrossakynið að vestan á ég ennþá. Þú munt hafa haft gaman af hestum? Ég átti einu sinni gráan hest, sem var mikill fjörhestur, fljót- ur með afbrigðum og öruggur vatnahestur. Ég hef aldrei, fyrr eða síðar eignast hans líka. Hann var töluverður ofsi í geð- inu. Jónas læknir Kristjánsson fékk hann stundum, en hann fór jafnan geyst og ekki sízt á þeim gráa. Hann hafði oft orð á fjöri og flýti hestsins. Við vor- um einu sinni samferða við Jón- as í Vallholti. Hann var með tvo brúna, skínandi hesta. Svo hleyptum við og Gráni va'rð á undan. Vegurinn var rennandi blautur. Að sprettinum loknum sá varla i Jcnas fyrir aurslett- um. Hann bölvaði og sagði: „Ég óskaði að helvítis klárinn færi á hausinn. Þá hefði ég riðið yfir þig.“ Ég fór oft á Grána yfir Vötn- in og sjaldnast á þeim vöðum, sem flestir fóru og fataðist hon- um aldrei sundið. Ilve marga vetur varstu einn í Ábæ? Ég bjó á Ábæ í 12 ár en flutt- ist þá að Víðivöllum. En ég tímdi ekki að yfirgefa jörðina alveg, svo ég heyjaði þar og hafði þar á fóðrum 100—120 fjár, sem ég hirti þar í 8 vetur oftast aleinn. Ég fór til fjár- gæzlunnar svona hálfan mánuð af vetri og var þar þangað til fénu var sleppt. Þetta þætti víst einhverjum dauft. Hvorki hafði ég síma eða útvarp, eins og nú er í hverju húsi. En mér leidd- ist aldrei verulega, þótt ég sakn aði auðvitað fjölskyldu minnar. Ég matreiddi handa mér og fór heim öðru hverju og stundum til næstu bæja, mér til skemmt- unar, bæði í Skatastaði og fyrir kom, að ég færi alla leið út í Gilsbakka. fóta Var nokkur draugagangur á Ábæ? Ja, nei nei, ekki svo heitið gæti. Þó bar það stundum við, að það var bankað þótt enginn væri gesturinn sjáanlegur. En þá brást það ekki, að einhver kom skömmu síðar. En gesta- gangurinn var nú ekki mikill. Hundurinn Lappi, sem fylgdi mér lengi, var eitthvað við- kvæmur fyrir gestum, því hann varð alltaf hálf hræddur og lét illa þegar einhver var að koma. Það vissi á gestakomu þótt þá væri hún lengra undan en svo að sæist til mannaferða. Ég neita því ekki að hafa fundið einhvern fiðring í mér, svo sem lítilsháttar aðsókn eða í líkingu við það, stundum. En Ábæjarskotta? Á hana er logið eins og fleiri. . Ég var einu sinni staddur hjá þeim nöfnum Hjörleifi Jónssyni og Hjörleifi Kristinssyni á Gils- bakka. Þá var mikið skrafað, eins og oftar. Hjörleifur Jóns- son fór þá að tala um það, hvort ég gæti ekki látið Skottu hirða fyrir mig féð á meðan ég væri að flækjast þetta. Ég sagðist ekki vita það, en sama væri mér og kvaðst ekki hræddur við hana. Hún mætti meira að segja sofa hjá mér ef hún vildi, og fleira var gálauslega talað. Hjör leifi Kristinssyni var nóg boðið. Hann sagði að Skotta væri draugur og ekki að vita upp á hverju hún gæti tekið. Svo fór ég heim og þegar ég var búinn að gera mín verk, fór ég að heyra einhver dump eða bank. Ég gerði lítið með það fyrst, þangað til ég fór þó út til að vita hvort nokkur væri kominn. En það var enginn og bærinn lokaður. Svo háttaði ég og ætl- aði að fara sofa, þá hélt þetta áfram. Það var bankað og rjálað við hurðir, fyrst frammi og svo var barið í hurðina á eldhús- inu, þar sem ég svaf. Datt mér þá í hug, að einhver hefði leynzt í bænum áður en ég lokaði úti- dyrum. Ég opnaði nú hurðina og sagði, að ef einhver væri þarna, væri bezt fyrir hann að koma innfyrir. En ég fékk ekkert svar. Ég fór svo aftur upp í rúm, gramur yfir þessu ónæði en ekki hræddur. Ekki átti ég sök- ótt við Skottu eða aðra, og fannst ég ekki hafa unnið til áreitni. En ekki hafði ég lengi legið þegar komið er við sæng- ina og eitihvað lagðist þvert yf- ir fætur mér. Þetta þótti mér illt. Ég var að reyna að hreyfa fæturna, en gat það ekki. Liggi það þá, hugsaði ég og víst datt mér Skotta í hug. Ef ég hefði orðið hræddur, hefði ég misst vitið, lield ég. En þannig áhrif hafði þetta ekki. Mér fannst ég svo sofna út frá þessu, en veit það þó ekki með vissu. En hvort sem það heldur var í draumi eða vöku yrðir Skotta nú á mig og kynnir sig, segir flest rang- hermt, sem um sig sé sagt. Hún sagðist vera norðan fyrir fjall að uppruna. Ekki hefði ég nú gert raikið með þetta. En þegar hún lýsti mér og ýmsum ná- grönnum; ásamt sjálfri séf, fór ég að taka mark á, svo vel lýsti hún ýmsum, og af miklum kunn ugleik. Hún liefur svo ekki ónáðað þig meira? Nei, hún er víst ekki verri en aðrar þær verur, sem í kring um mann eru. Ég er viss um, að hún hefur aldrei verið vond manneskja, sú er þarna heim- sótti mig og sagði skilmerkilega til sín. Nokkuð fleira um þá, sem gengnir cru? Sennilega bezt að vera fáorð- ur um þá hluti, sem maður skil- ur minnst. Þó get ég sagt þér atvik frá búskaparárum mínum í Ábæ, sem ég minnist alltaf með glöðu hjarta. Við vorum í vegavinnu í Kjálkavegi. Stein- hrúga var við veginn, nokkuð stór, á gilbarmi, þrem steinum átti hver að kasta þar á, ef þeim átti vel að farnast. Sagt var að þar hvíldi ung stúlka frá Merkigili, sem drepin var og þarna dysjuð. Vegagerðarmenn köstuðu steinum í grjóthrúg- una, nema ég. Þegar vinnutíma lauk gekk ég niður í gilskriðuna og valdi mér þrjá steina, alla aflanga og einn lengstan. Þá var hlegið að mér. En ég gekk að kumlinu, gjörði krossmark á það með steinunum. Þá urðu félagar mínir hljóðir. Um kvöld ið, þegar ég var nýsofnaður dreymdi mig unga stúlku, ein- kennilega klædda, föla og grannvaxna. Hún ávarpaði mig á þessa leið: Ég þakka þér fyrir krossinn, Gunnar minn, og hvarf síðan. Oftar hefur mig dreymt stúlku þessa og ætíð mér til hjálpar. Gæti ég nefnt dæmi um það. Og stundum hef- ur mér fundizt þessi stúlka vera hjá mér, þegar vanda hef- ur borið að höndum. Er það rétt Gunnar, að þú liafir tekið á móti börnum þín- um sjálfur? Já, af vissum ástæðum kom það í minn hlut að taka á móti fimm yngstu börnunum. Þetta var náttúrlega nokkuð djarft, enda ekki laust við að ég kviði fyrir. Hins vegar var konan mín óhrædd og vildi mína aðstoð fremur en Ijósmóðurinnar. Og þrjú þessi börn eru nú búsett á Akureyri eitt í Reykjavík, lög- regluþjónn, og stúlka, sem er húsmóðir suður í Árnessýslu, segir Gunnar að lokum og þakk ar blaðið viðtalið. E. D. - SMÁTT OG STÓRT (Framhald af blaðsíðu 8). bættisveitingar hans í Hafnar- firði, sem talin er misnotkun veitingavalds. Greinilegt sýnist mönnum, að þar sem Alþýðu- flokkurinn með formann sinn Emil í broddi fylkingar, hefur vítt verknað þennan liarðlega, yrði ríkisstjórnin í minnihluta á Alþingi, ef um atkvæða- greiðslu um vítur eða vantraust á hendur dómsmálaráðherra væri að ræða. En þótt meim ræði þetta fram og aftur, vilja Sjálfstæðismenn lítinn þátt taka í þeim umræðum! Stofna þarf neytenda- samtök á Akureyri --- d NÝKOMINN FRÁ Akureyri sendi ég þangað beztu kveðjur og þakkir. Erindi mitt v'ar að kynna markmið og starfsemi Neytendasamtakanna og kanna horfur á stofnun deilaar á Ak- ureyri. Allir, sem orðnir eru 16 ára, geta orðið félagsmenn sam- takanna, hvar sem þer búa á landinu. Af um 6000 félags- manna munu um 1500 búa utan Reykjavíkur. Mörg rök hníga að því, að deildir verði stofnað- ar víðsvegar á landinu, til þess a'ð samtökin geti betur þjónað tilgangi sínum. Það er meira en æskilegt, að fulltrúar félags- manna utan Reykjavíkur sæki aðalfund samtakanna, og nauð- synlegt er, að hægt verði að veita þá þjónustu sem víðast, sem skrifstofa samtakanna í Reykjavík veitir félagsmönnum persónulega. 3. gr. laga Neyt- endasamtakanna hljóðar svo: „Markmið samtakanna er: að gæta hagsmuna neytenda í þjóð félaginu. Tilgangi sínum hyggj- ast samtökin ná m. a. með því: a) að vaka yfir því, að sjónar- mið neytenda almennt séu virt, þegar ákvarðanir eru teknar eða reglur settar, er varða hags- muni neytenda. b) að reka útgáfu- og fræðslu starfsemi til aukningar á verð- og vöruþekkingu neytenda og til skilningsauka á málum, er varða hagsmuni þeirra. c) að veita félagsmönnum sín um leiðbeiningar og fvrir- greiðslu ef þeir verða fyrir tjóni vegna kaupa á vörum og þjón- ustu. Að þessu hafa Neytendasam- tökin unnið eftir mætti á víð- tækasta verksviði, sem hugsazt getur. En einnig með tilveru sinni einni og viðbúnaði þjóna þau tilgangi sínum. Þau hafa sagt álit sitt varðandi setningu ýmissa laga og reglna, en einn- ig haft afskipti af framkvæmd þeirra, sem gilt hafa. Þau hafa ekki liika'ð við að leita tl dóm- stólanna, þótt opinber eða hálf- opinber fyrirtæki ættu í hlut. Fyrst var þeim sjálfum stefnt fyrir að g£fa neytendum upp- lýsingar opinberlega, og þau og stjórnendur þeirra persónulega voru dæmdir til stórfelldra skaðabóta fyrir undirrétti, en sýknun í Hæstarétti skapaði þeim réttargrundvöll. Síðan hafa þau stefnt. Fulltrúa hafa þau átt og eiga í ýmsum opin- berum nefndum, sem fjalla um mikilsverð hagsmunamál neyt- enda. Sem dæmi má nefna, að Neytendasamtökin eiga fulltrúa í nefnd, sem borgarstjórn hefur skipað og fjallar um afgreiðslu- tíma verzlana í Revkjavík. Einnig í nefnd, sem atvinnu- málaráðuneytið hefur skipað til að enduskoða lög um verzlunar atvinnu o. fl. Sem dæmi um almenn hags- munamál, sem samtökin hafa barizt fyrir, éru vörumerkingai'. Þau vilja, að sett verði lög um merkingu vara, þannig að neyt- andinn fái allar þær upplýsing- ar um vöruna, sem auðvelt er að gefa og hann á skýlausa kröfu á, áður en kaup eru gerð, og þær skriflegar. Dæmi: Vefn- aðarvörur. Það eiga að fylgja upplýsingar um samsetningu, siitþol, ljósþol, hvort efnið hlaupi eða krumpist, meðhöndl- un við þvott eða hreinsun o. s. frv. Annað stórvægilegt mál er réttleysi neytenda í reynd, þar sem leiðin til dómstólanna er í fæstum...tilfellum fær vegna þess, hversu löng, dýr, erfið og áhættusöm hún er. Um b-li'ð: Neytendasamtökin hafa gefið út Neytendablaðið og og íjölmarga leiðbeiningabækl- inga frá upphafi. 1962 var Neyt- endablaðið stækkað og efni leiðbeiningabækiinganna feilt inn í það. Hefur það komið út eftir efnum og ástæðum, 3—5 á ári. Um c-lið: Neytendasamtökin hafa haft opna skrifstofu dag- lega í 12 ár, þar sem félagsmenn hafa fengið leiðbeiningar og að- stoð vegna kaupa á vörum og þiónustu án sérstaks endur- gjalds. Þessa þjónustu þarf að veita sem víðast á landinu, og það er m. a. þess vegna, sem stofnun deilda utan Reykjavík- ur er nauðsynleg. Sérstakur lög fræðingur samtakanna annast þessi mál, sem skipta orðið þús- undum. Það er ekki einungis til að aðstoða menn persónu- lega, sem reynt hefur verið að veita þessa þjónustu, svo tíma- frek sem hún er, heldur hafa afskipti samtakanna af þessum málum víðtæk áhrif á viðskipta háttu. Seljendum er svo oft al- gjörlega ókunnugt um þá ábyrgð, sem þeir bera lögum samkvæmt, en fá ítarlega fræðsiu um það við meðferð málsins, Einnig lærist neytand- anum væntanlega að gæta sín við kaup síðar meir. Hann má vita, að það er ekki nóg, að sagan sé sönn. Það þarf að sanna hana. Hann þarf að hafa eitthvað í höndunum, en ekki aðeins munnlega gefnar upplýs- ingar hljómandi í eyrunum. Ég læt þetta nægja til að gefa mönnum nokkra innsýn í mark- mið og starfsemi Neytendasam- takanna. Okkur hefur að sjálf- sögðu þótt eðlilegast að gera fyrst tilraun með stofnun deild- ar á Akureyri. Fyrst þarf að stórfjölga félagsmönnum þar, en þeir voru aðeins um 60, er ég hélt þangað. Þeir eru nú orðnir mun fleiri, en margir áhuga- menn og konur eru með áskrift- arlista þar nú, og við bíðum með eftirvæntingu eftir árangrinum, Það er sérstakt kostaboð, sem við getum veitt um 300 manns Það er, að þeir sem gerast fé- lagsmenn 1965 fyrir árgjalc kr. 100.— fá eldri Neytenda- blöð eftir að það var stækka'í póstsend frá skrifstofu samtak anna. Allar bókaverzlanir á Ak ureyri annast innritun og af greiða skírteini sem og skrif stofa DAS og SÍBS í Hafnar stræti 96. Auk þess munu ofan nefndir listar væntanlega konn fyrir sjónir margra þessa dag ana. Þeim mun fieiri sem félags menn eru, þeim mun meirí síarf megna Neytendasamtökir að inna af hendi í þágu neyt enda almennt. Þeim mun fleir tölublöð Neytendablaðsins á ár hverju. Þeim mun meiri aðstoi við einstaklinga. Þeim mui þyngra á metunum verður sión armið neytenda í þjóðíélaginu Sveinn Ásgeii-sson. ARBOK F. I. ÁEBÓK Ferðafélags íslends 1965 er nýlega komin út, og er að þessu sinni helguð Norður- Þingeyjarsýsiu, Tjörnesi og Strönd, með nálega 150 bls. rit- gerð eftir Gísla Guðmundsson alþingismann. Sýslulýsing Gísla er fróðleg mjög og auk þess hreinn skemmtilestur. □ m lilbúna áburoinn, sem noiaour vero í TILiEFNI af auglýsngu frá Kaupfélagi Eyfirðinga' hér' í blaðinu um áburðarpantanir, snéri blaðið sér til Aðalsteins Einarssonar gjaldkera í KEA og spurðist fyrir um horfur á út- vegun tilbúins áburðar á næsta ári. Aðalsteinn lánaði blaðinu tilkynningu þá, sem Áburðar- sala ríkisins hefur sent kaup- félögum o. f. aðilum, og fer hún hér á eftir: „Nú fer í hönd sá tími, sem nota þarf til að gera sér ljósa þörf landsins fyrir tilbúinn áburð á árinu 1966. Ráðstafanir hafa nú þegar verið gerðar til að tryggja að áætlaðri þörf fyrir áburð á næsta ári verði fullnægt. Að þessu sinni verður landið minna háð erlendu framboði á köfnunarefnisáburði, en verið hefir í þrjú síðastliðin ár. Þetta er í fyrsta lagi vegna þess að Áburðarverksmiðjan hefir get- að unnið á fullum afköstum síð an í febrúarbyrjun þessa árs, vegna innflutnings á ammoníaki eftir því sem þörf hefir verið a til viðbótar eigin ammoníak- f ramleiðslu, sem er ' beint háð raforkuframboði, svo og í öðru lagi vegna óseldra birgða í lok síðasta sölutímabils, þar sem aukning á notkun köfnunarefn- is varð því nær engin miðað við notkun ársins 1964. Áburðarverksmiðjan mun því sjá fyrir um 86% af áætlaðri þörf köínunarefnisáburðar fyr- ir árið 1966, en inn mun þurfa að flytja um 14% af áætlaðri þörf. Hér er að sjálfsögðu mið- að við hreint köfnunarefni. Á liðnum árum hafa komið fram í ræðu og riti óskir um að kalkblandaður áburður yrði á boðstólum í ríkari mæli en ver- ið hefir. Á síðastliðnu ári var hann ekki fáanlegur, nema í mjög takmörkuðu magni (Nor- egssaltpétur). Til þess að mæta slíkum ósk- um, hefir því allur köfnunar- efnisáburður sem inn þarf að flytja til grasræktar verða keypt ur sem 26% N kalkammon áburður og nokkuð af Noregs- saltpétri. Kalkammon inniheld- ur 9.2% calcium, en Noregssalt- péturinn 35% calcium. Ætlunin er að þessum áburðartegundum verði dreift hlutfallslega jafnt til allra landshluta. Pantanir þurfa því að miðast við að S6% hreins köfnunarefn- is verði afgreiddar í Kjarna, en 14% í kalkammonáburði 26% N, og að einhverju litlu leyti með Noregssaltpétri 15.5% N, eins og verið hefir. Fosfcrsýruþörfinni mun verða fullnægt eingöngu með 45% Po03 þrífosfati. Kalí, 50% KoO mun verða á boðstólum eins og fyrr. Blandaður garðáburður 9-14- 14 mun einnig verða á boðstól- um eins og verið hefir. Ýmsar smátegundir, sem not- aðar hafa verið í litlu magni ur a næsta ari verða til staðar, svo sem áburð- arkaik o. fl. Þar sem innkaupasamningar fyrir áburð til notkunar á næsta ári hafa verið gerðir nú sem fyrr á grundvelli áætlaðrar þarf ar, er nauðsynlegt að hinar raunverulegu þarfir komi sem fyrst í ljós með pöntunum allra þeirra er með áburð verzla, svo unnt verði að vinna að breyt- ingum, er lúta að magni, sem afgreiða þarf frá útlöndum. Til þess þurfa pantanir'að hafa bor- izt oss eigi síðar en 15. desem- ber n. k. Rétt er að taka hár fram, að vænta má einhverrar hækkunar á áburði á næsta ári frá þessa árs verði. Nægir í þessu sam- bandi að benda á síhækkandi tilkostnað hér á landi, svo og að enn er ósamið um flutnings- gjöld, sem e. t. v. má búast við að hækki frá því sem síðast var samið um. Þó erfiðleikum sé háð að hafa á boðstólum allar þær sérteg- undir áburðar, sem ýmsum ein- staklingum kann að vera hug- leikið að fá, þá viljum vér gera vort ýtrasta til að mæta slíkum óskum eftir því sem þær berast oss og unnt er að verða við, inn- an þeirra takmarka sem rædd hafa verið hér að framan, og innan ramma þeirra innkaupa- samninga sem gerðir hafa ver- ið“. □ - Iðnaðarbankinn (Framhald af blaðsíðu 1). Akureyri er hlutfallslega mesti iðnaðarbær landsins. Má því álykta sem svo, að iðnaðar- banka væri þörf. Ekki verður í efa dregið að óreyndu, að iðn- aðarbankaútibú sé þörf stofn- un við Eyjafjörð, og í því trausti flytur blaðið því hinar beztu árnaðaróskir. Q - Rafiína í Laxárdal (Framhald af blaðsíðu 1). Mælt hefur verið fyrir nýjum vegi frá Reykjahlíð til Laxa- mýrar eða Húsavíkur um Laxár dalsheiði og Hólasand og hann boðinn út. Veg þennan á að hyggja vegna kísilgúrframleiðsl unnar. Margir hafa komið hing- að til að kynna sér vegarstæðið, væntanlega með það í huga, að gera tilboð í vegagerðina. Því miður á vegur þessi ekki að þjóna hagsmunum bænda í Lax árdal jafnframt, því hann ligg- ur svo austarlega, t. d. 3 km. fi'á Kasthvammi og toi'leiði að komast þangað. Silungsveiði í Laxá í sumai', var sú minnsta, sem vitað er um. Sumir kenna hóflausu veiðiálagi uppi í Mývatnssveit og efst í Laxárdal um þetta, en margir Mývetningar halda því fram, að orsakanna sé að leyti til breytinga við Mývatnsósa, sem gerðar voru fyrir nokkr- um árum. G. G.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.