Dagur - 27.11.1965, Side 8
8
Ilér birtast mj-ndir af stjórnar-
mönnum F.U.F. á Akurej’ri, sem
kjörnir voru á aðalfundi félags-
ins, sem haidinn var fyrir
skömmu. — Að ofan frá vinstri:
Karl Síeingrímsson, formaður,
Rafn Sveinsson, ritari, Hákon
Hákonarson, gjaldkeri. Að neð-
an: Svavar Oííesen, varaformað-
ur og Þórarinn Magnússon
spjaldskrárritari. — Meðstjóm-
endur voru kjörnir: Jóhann Æ.
Jakobsson og Gunniaugur Guð-
mundsson. Varamenn í stjórn:
Óiafur Axelsson og Guðjón
Baidursson.
Mjólkurlaust og vatnslítið á Seyðisfirði
SMÁTT OG STÓRT
Egilsstöðum 26. nóv. Fúlviðri
síðustu daga, kominn snjór og
skaflar, sem torvelda flutninga
að mestu. Allir fiallvegir eru
lokaðir. Fjarðarheiði lokaðist
fyrst og Oddsskarð og Fagri-
dalur í gær. Mjólkurflutningar
lágu að mestu niðri í gær.
Á Seyðisfirði er búið að vera
mjólkurlaust í þrjá daga. Þar
verða menn að væta kverkam-
ar með brennivíni og gosi því
vatnsskortur er þar tiifinnan-
legur. Enn er óvíst hversu úr
rætis með flutninga til Seyðis-
fjarðar og er það alvarlegt mál.
Enginn snjóbíll er þar nú. En
Nýr flugvöllur
við Pafreksf jörð
Á FÖSTUDAGINN var nýr
flugvöiiur vígður á sandodda
við Patreksfjörð. Er hér um að
ræða völl með 1400 metra flug-
braut og annarri 540 metra
langri. Kostnaður var um 6,8
milljónir króna.
Þangað hefst reglulegt áætl-
unarflug hjá Flugfélagi íslands
snemma í næsta mánuði. Flug-
völlurinn er í landi hins forn-
fræga staðar, Sauðlauksdals og
er þriðji stærsti flugvöllur
landsins.
Flugvöllurinn og áætlunar-
ferðir þangað gjörbreyta sam-
göngum fyrir allstórt svæði þar
vestra, og er það fagnaðarefni.
um vatnið er það að segja, að
miklar endurbætur á vatns-
kerfinu hafa staðið yfir, en
asbeztrör í stofnleiðslu springa
stöðugt og virðast ekki þola
vatnsþrýstinginn.
Til Reyðarfjarðar kom skip
með 150 hesta af heyi, sem fara
átti upp á Hérað. Fagridalur
var þá að lokast og var heyinu
skipað upp í Neskaupstað. V. S.
Ávarp vegna fjársöfnunar
fyrir börn í Víef-Nam
í LáNDI okkar ríkir friður, við
höfum nóg að bíta og brenna,
og börn okkar leika sér án ótta
við ófrið.
Langt í fjarska er annað land,
þar sem styrjöld hefur geisað
fjölda ára. Daglega berast okk-
ur fregnir af bardögum og
sprengjuregni. Þar er hvergi
friður, hvergi öryggi.
Við vitum líka að það eru
börnin, sem líða mest, saklaus
börn, sem allar hörmungar ófrið
ar bitna fyrst og fremst á.
Menningar og friðarsamtök
íslenzkra kvenna hrinda nú af
stað fjársöfnun fyrir þau börn,
sem eru fórnarlömb styrjaldar-
innar í Víet-Nam. Framar öllu
öðru vantar peninga til kaupa á
lyfjum og lífsnauðsynjum.
Stofnað hefur verið til hjálp-
arstarfsemi fyrir Víet-Nam um
allan heim, meðal annarra aðila
af Alþjóða-Rauða-krossinum.
Sérstök alþjóðleg nefnd hefur
starfið með höndum og starfar
hún sjálfstætt. Ráðstafar hún
því fé, sem inn kemur. Ennfrem
ur hefur Rauði Kross íslands
fúslega tjáð sig reiðubúinn að
senda fyrir hönd MFÍK söfnun-
arféð beint til Víet-Nam.
Við skírskotum til allra ís-
lendinga að bregðast vel við og
sanna með framlagi sínu, að við
(Framhald á blaðsíðu 5)
MOLDIN SVÍKUR EKKI
„í moldinni höfum vér, einnig
rætur. Ilún er jarðvegurinn
hins líkamlega lífs. Því meira
sem við fjarlægjumst liana, því
öryggislausari og óstöðugri verð
um við. Af jörðinni kemur allt,
sem hið líkamlega líf þarfnast.
Og moldiii hefur engan svikið
hvorki urh rótfestu né fæðu.
Hún breiðir faðm mót öllum,
sem heiðra hana á réttan hátt
með hug og höndum. Hún brú-
ar höf af fjárhagsvandamálum,
ef rétt er á haldiö. Enginn trygg
ingarsjóðuír verkamanna getur
jafnazt á við samning þann, sem
bóndinn gjörir við jörð sína.
Það er bóndinn, sem öllum öðr-
um fremur fæðir þjóðina í rækt-
unarlöndum. Borgin er fyrsti
staður fjrir hungrið. Sveiíin, —
moldin annast sín böm.“
(Henry Ford.)
BARN ALEIKFÖNG
Ef að vanda lætur fá börnin leik
föng af ýmsum gerðum í jóla-
gjöf, og af mörgu er að velja til
slíkra gjafa. Horft hefi ég í búð-
arglugga þakinn margs konar
„drápstækjum“ handa börnum,
en þar voru skotvopn í meiri-
hluta. Þessi gluggi var hörmu-
legur.
Dönsk blöð segja frá nýjung-
um í Ieikfangagerð, m. a. fall-
öxi með fórnardýri, meira að
segja fötu fyrir höfuðið, er það
fýkur af bolnum. Verð 80 krón-
ur íslenzkar. Selt ósamansett!
Það er viðurstyggð að gefa böm
um eftirlíkingu drápstækja og
getur liaft varanleg áhrif.
BANKARNIR OG SKATTA-
LÖGREGLAN
Fyrir skömmu óskaði ríkisskatt
stjóri þess, að sakadómur felldi
um það úrskurð, hvort bönkun-
um bæri skylda til að Iáta í té
við yfirvöld skattamála ýmsar
llnglingabókin SONUR VITAVARÐARINS
Maðurinn fannst á fjöllum uppi
FAGNAÐAR ALDA fylgdi
þeirri útvarpsfrétt á miðviku-
daginn, að Jóhann Löve lög-
regluþjónn frá Reykjavík væri
fundinn í Þjófahrauni næstum
heill heilsu. En Jóhann fór til
rjúpna á sunnudaginn og hafði
legið úti þrjár nætur. Um 400
manns tóku þátt í leit að Jó-
hanni og 9 flugvélar flugu yfir
leitarsvæðið. Úr þyrlu frá varn-
arliðinu sást Jóhann og var
hann þegar fluttur á sjúkrahús
og er eitthvað kalinn, en heill
að öðru leyti. Þykir hin mesta
furða, jafnvel ganga kraftaverki
næst, að hann fannst lifandi eft-
ir svo langa útilegu. Q
í GÆR barst fréttamönnum
á Akureyri í hendur ungl-
ingabókin, Sonur vitavarðar-
ins, eftir séra Jón Kr. ísfeld.
Útgefandi er Bókaútgáfa
Æ.S.K. í Hólastifti. Formað-
$ ur bókaútgáfunefndar er
séra Jón Bjarman en fram-
kvæmdastjóri hennar er
Gunnlaugur P. Kristinsson
fulltrúi. Þessi bókaútgáfa hef
ur það að markmiði, að efla
f; siðgæði og sanna menningu.
Útgáfan hafði ekki annað fé
handbært en 10 þúsund
króna gjöf frá Menningár-
sjóði K.E.A. Séra Bolli Gúst-
afsson skreytti bókina teikn-
ingum, og -kostar hún 168
krónur í bókabúðum.
í þessari bók segir frá
hetjudáðum drengs og allt
er efni hennar góður lestur.
Á myndinni er höfundur og
tveir drengir úr Æskulýðs-
félaginu á Akureyri. Q
upplýsingar um þau mál, er
skattaj-firvöldin þörfnuðust —
í þessu tilfelli tilgreindar upp-
lýsingar um tilgreinda aðila. En
svo sem augljóst er, hlýtur það
að vera veigamikið nauðsynja-
atriði í meðferð skattarann-
sókna, að bankarnir setji ekki
stólinn fyrir dyrnar, en veiti
þær upplýsingar, sem skatta-
rannsókninni er þörf á. En fram
að þessu hafa bankastjórarnir
talið sér skj’Idara að hugsa um
liag sinna viðskiptavina en rík-
isskatístjóra og skatta-„Iög-
reglu“, og talið sig bundna þagn
arskyldu.
BANKASTJÓRARNIR FÓRU
HALLOKA
Bankastjórar voru síðan kallað-
ir til yfirheyrslu í sakadómi og
hvort sem þeir hafa kunnað þar
vel við sig eða miður vel, sem
er Iíklegra, felldi sakadómur
úrskurð um upplýsingaskyldu
bankanna um þau atriði, sem til
umræðu voru. Með úrskurði
þessum ætti skattarannsókn að
vera auðvelduð til muna og er
það vel. Hins vegar láta kunn-
ugir menn sér það um munn
fara, að rannsókn á bankastarf-
seminni væri þörf, ekki síður
en að fá þar upplýsingar um
viðskiptaleg atriði hinna ýmsu
borgara.
BANKASTJÓRAR NEITA
Bankastjórar una ekki úrskurði
sakadóms og hafa skotið mál-
inu til Hæstaréttar, og er búizt
við að þar verði mál þctta af-
greitt í næsíu viku.
MIKILL ER SÁ ÁVÖXTUR!
Þegar vel aflast minna stjórnar
blöðin á blessaða ríkisstjórnina
og viðreisn hennar. Þegar illa
gengur er Ej’steinn skammaður,
og svo náttúrlega kommúnistar.
í vikunni segir stjórnarblað:
„Útflutningsframleiðsla íslend-
inga mun á þessu ári verða
meiri en nokkru sinni fyrr.
Gjaldeyrisstaða þjóðarinnar er
góð og íslendingar eiga nú
stærri gjaldeyrissjóði en nokkru
sinni fyrr. Allt er þetta ávöxtur
hyggilegrar stjómarstefnu“.!
ÁTTA BÁTAR RÓA
FRÁ SKAGASTRÖND
Skagaströnd 26. nóv. Hér er
vetrarlegt um að litast. Um síð-
ustu helgi byrjaði að snjóa og
er kominn þæfingssnjór og
ófært fyrir smærri bíla um
kaupstaðinn og nágrenni. En nú
er stytt upp.
Fiskveiðin er heldur treg.
Mb Sigrún, eign Útgei’ðarfélags
Höfðakaupstaðar bættist í hóp
línuveiðibáta í gær og róa héð-
an því 8 bátar, stórir og smáir.
Tveir þeirra verka fiskinn sjálf-
ir, Vísir og Farsæll, en hinir
leggja aflann upp hjá hraðfrysti
húsum Hólanesi og Höfðaveri,
og er þar nú nokkur vinna.
Annars eru margir menn héðan
ennþá i síldarvinnu á Austur-
landi og síldarskipunum. H.