Dagur - 05.01.1966, Qupperneq 1
Dagur
SÍMAR:
11166 (ritstjóri)
11167 (afgreiðsla)
r, ..........
Dagur
kemur út tvisvar í viku j
og kostar kr. 30.00 á i
mán. í lausasölu kr. 5.00
v ---------------------
1
VEXTIR HÆKKAÐIR - SPARI-
FJÁRBINDING AUKIN
í FRÉTTATILKYNNIN GU frá
Seðlabankanum síðasta dag árs
ins 1965 segir svo:
„í fyrsta lagi er skylda banka
og annarra innlánsstofnana til
að binda fé í Seðlabankanum
aukin úr 25% í 30% af innláns-
aukningu, en hámarksbindi-
skylda hverrar stofnunar hækk
uð úr 18% í 20% af heildar-
innistæðum.
í öðru lagi hefur bankastjórn-
in ákveðið, að innlánsvextir
skuli hækkaðir almennt um 1%,
svo að þeir verði hinir sömu og
giltu fram til ársloka 1964. Hlið
stæðar hækkanir eru ákveðnar
á útlánsvöxtum, þó þannig, að
mjög lítil hækkun verður á vöxt
um af afurðalánum með veði í
NÝÁRSGJAFIR
PÓSTGJÖLDIN hæklvuðu um
þessi áramót, svo og afnota- og
stofngjöld sínians. Innanbæjar-
símtöl á sjálfvirkum stöðvmn
hækka um 18%, en stofngjöid
um 40% eða upp í kr. 5000.00 á
sjálfvirkum stöðvum.
Auk þess bætist enn við
hækkun á rafmagnsverði, er
munar verulcga. Þessar „glaðn-
ingar“ eru einskonar nýársgjaf-
ir stjórnarvaldanna til viðbótar
jólagjöfum þeim, sem fólust í
fjárlagafrumvarpinu og frá var
sagt fyrir jólin, að ógleymdri
vaxtahækkun og aukinni spari-
fjárfrystingu.
Þá hefur benzín hækkað um
nær 20% og kostar nú kr. 7.05
lítrinn.
útflutningsframleiðslu, og
hækka vextir af slíkum lánum
sem endurkaupanleg eru af
Seðlabankanum um y4%, en af
viðbótarafurðalánum um V2%.
í þriðja lagi hefur banka-
stjórn Seðlabankans beint þeim
tilmælum til bankanna, að þeir
gæti hófs í útlánum á komandi
ári, en leggi jafnframt kapp á
að láta rekstrarfjárþörf atvinnu
veganna, og þá einkum sjávar-
útvegsins, sitja fyrir um lán-
veitingar. Mjög er brýnt fyrir
bönkunum að takmarka lán til
fjárfestingar, einkum bygging-
arframkvæmda og fasteigna-
kaupa“.
í fréttatilkynningunni scgir,
að þensla í efnahagsmálum inn
á við hafi farið sívaxandi og
hafi hún lýst sér bæði í miltlum
vinnuaflsskorti og tilhneigingu
til verðhækkana, ekki sízt á
íbúðum -og öðrum fasteignum.
Um orsakir þenslunnar segir,
að þær séu margar, „þar á með-
al áframhaldandi halli á fjár-
málum ríkisins á árinu 1965,
samfara almennu kapphlaupi
um framkvæmdir' og fjárfest-
ingu, bæði á vegum einstakl-
inga og opinberra aðila. Við
þetta hefur svo bætzt, einkum
síðustu mánuðina, stórfelld út-
lánaaukning bankakerfisins,
sem hætt er við að valdi enn
aukinni þenslu á næstunni, ef
elvkert er að gert“.
Segir síðan, að takmark ofan-
greindra aðgerða sé að draga úr
útlánaþens'unni og því efnahags
lega jafnvægisleysi, sem hún
skapi. Sparifjárskuldbinding
eigi að draga úr útlánaaukningu
bankanna en vaxtahækkunin
eigi að draga úr eftirspurn eftir
lánsfé. Segir, að þetta ætti að
stuðla að betra jafnvægi í efna-
hagsmálum en ríkt hefur um
skeið. □
■ "****'.:» v. ' •>**
* L
Bíll dreginn upp úr Akurcyrarhöfn á gamlársdag.
(Ljósm.: E. D.)
TVÖ BANASLYS URÐU Á AK-
UREYRI UM ÁRAMÓTIN
AÐ MORGNI síðasta dags árs-
ins varð dauðaslys við Torfu-
nefsbryggju á Akureyri. Þrítug-
ur maður, Heimií- Baldvinsson
Ásbyrgi í Glerárhverfi, starfs-
maður Olíuverzlunar íslands,
lenti fram af bryggjunni í bíl
sínum og drukknaði. Hann var
staddur nálægt Sjöfn, er hann
skyndilega missti stjórn á bíln-
um. Rann bíllinn allt til sjávar
en rakst þó á tvær byggingar á
leið sinni. Talið er, að maðurinn
hafi fengið aðsvif eða krampa
við stýrið. Öryggisbúnaður bíls-
ins reyndist í fullkomnu lagi.
Heimir heitinn var ættaður úr
Bárðardal og var heill heilsu
og við vinnu sína um morgun-
inn, en slysið varð á níunda
tímanum.
Kaíari, Gauti Gesísson náði
líkinu og bíllinn var síðar tek-
inn upp með krana.
Á gamlárskvöld eða nýárs-
nótt drukknaði Jón Hjaltalín,
29 ára gamall Akureyringur.
Sást til ferða hans í bænum um
ltl. 10 sama kvöld, en lík hans
fannst á nýársdag við bryggju
niðursuðuverksmiöjunnar á
Oddeyri. Jón Hjaltalín var
ókvæntur maður, heilsuvfeill og
var lengi hafnarverkamaður
hér í bæ.
□
Banaslys urSu 95 á árinu
Tjón aí umferðarslysum 250 millj. kr. á einu ári
BIFREIÐATR Y GGIN G AFÉ-
LÓG landsins gáfu blaðamönn-
um nýlega þær upplýsingar, að
þau myndu greiða 120—130
millj. kr. í fébætur vegna marg-
TUTTUGU BRENNUR
SAMKVÆMT upplýsingum lög
reglunnar voru jól og áramót
róleg á Akureyri. Tuttugu
brennur voru á gamlárskvöld
víðsvegar í úthverfum bæjar-
ins. Safnaðist þangað fjöldi
fólks. Óspektir voru engar eða
skrílslæti af nokkru tagi um
áramót, svo heitið gæti. Dans-
leikir voru á 6 stöðum í bænum.
Ölvun var nokkur, en til veru-
legra átaka kom ekki, en all-
marga menn þurfti þó að að-
stoða til að komast heim til sín
eða í aðra vörzlu. Smáárekstrar
urðu í umferðinni en án meiðsla
á fólki. □
víslegra tjóna í umferð á ár-
inu 1965, sem þá var ekki út
runnið. Þess var þá jafnframt
getið, að ekki fengjust tjón bætt
að fullu, svo heildarupphæð
tjóna, sem þó væri hægt að
meta til verðs, yrði samanlögð
allt að 300 milljónir króna.
Með þessar háu tölur í huga,
er auðsætt hve umferðarslysin
eru gífurlega frek til fjármagns,
og að ástandið í umferðarmá!-
um er gjörsamlega óviðunandi.
Heilsutjón og dauði bætist svo
við hinar tölulegu upplýsingar.
Þriðja hver bifreið á íslandi
lendir árlega í umferðarslysi af
einhverri tegund, móti einum
bíl af hverjum tíu í Svíþjóð og
einum af hverjum sex í Dan-
mörku. Vondir vegir eiga minni
þátt í umferðarslysunum, en lát
ið er í veðri vaka. Vöntun á
umíerðarmenningu almennt, er
höfuðorsök slysanna. Aukning
liennar þyrfti að vera í réttu
hlutfalli við bílaaukninguna í
landinu, en gerði það ekki og
gerir ekki enn.
Try-ggingafélögin telja þrjú
atriði mikilvæg til bættrar um-
(Framhald á blaðsíðu 2.)
SAMKVÆMT opinberum upp-
lýsingum ur&u 93 banaslys hér
á landi á liðnu ári. Þau skiptast
þannig:
Sjóslys og drukknanir: 35
manns, þar af fórust 7 með skip
um, 2 féllu útbyrðis, 26 drukkn
uðu í ám, vötnum eða höfnum.
Banaslys í umferð: alls 24,
þar af var ekið á 9 vegfarendur,
3 létust við veltu ökutækja, 3
við veltu dráttarvéla, 3 íslend-
ingai- fórust erlendis, 4 í árekstr
um og 1 varð á milli ökutækja.
Bæjarstarfsmenn fengu 1%
STARFSMENN fimm bæjarfé-
laga fá nú 7% launahækkun, að
úrskurði Kjaradóms, sem féll
29. des. sl. Eru það starísmenn
kaupstaðanna á Akureyri, Hafn
arfirði, Keflavík, Vestmanna-
eyjum og ísafirði. Launastigi
var ákveðinn allur hinn sami
hjá þessum bæjarfélögum og
Kjaradómur hafði áður dæmt
hjá ríkisstarfsmönnum. Einn
DAGUR kemur næst út mið-
vikudaginn 12. janúar.
kiaradómari, Eyjólfur Jónsson
skilaði sáratkvæði um launa-
stigann.
U.m vinnutíma, yfirvinnu o. fl.
hafði náðst samkomulag milli
aðila, sem byggt var á dómi
Kjaradóms um þessi atriði í
máli ríkisstarísmanna.
• Varðandi röðun starísheita
byggði Kjaradómur á fyrri
samningum við bæjarstarfs-
menn með nokkrum tilfærslum
til hækkunar, sem voru þó all-
mjög mismunandi á hinum
ýmsu stöðum. v □
Banaslys af ýmsum orsökum:
alls 34. Af rafmagnslosti fórst
1, af hrapi og byltu 8, á vinnu-
stað og heimilum 12, af bruna
og reyk 2, af eitrun 2, úti urðu
2, af voðaskoti 2, í flugslysum
5 allir varnarliðsmenn, sem fór-
ust með þyrlu á Reykjar.es-
skaga.
Á árinu var 118 manns bjarg-
að frá bana, þar af 70 úr skip-
um, sem fórust á rúmsjó, 1 úr
strönduðu skipi, 30 frá drukkn-
un nærri landi, 12 úr eldsvoða,
2 frá því að verða úti, 2 frá
köfnun og 1 úr sjálfheldu í
klettum.
Auk þessara slysa urðu tvö
banaslys á Akureyri á gamlárs-
dag. □
FR AMSOKN ARMENN!
FRAMSÓKNARFÉLÖGIN á
Akureyri halda fund á Hótel
KEA mánudaginn 10. janúar kl.
8.30 e. h. Umræðucfni: Fjár-
hagsáætiun bæjarins fyrir árið
1966.
Allir síuðnmgsmenn flokks-
ins velkoinnir. □