Dagur - 05.01.1966, Side 8
SMATT 00 STORT
Fuglarnir eru taldir hinn 26. desember ár hvert
Athugunarmenn á Akureyri sáu 21 tegund fugla
FUGLATALNINGADAGUR-
INN er 26. desember ár hvert.
Trúnaðarmenn Náttúrugripa-
safnsins gera þá allsherjartaln-
ingu fugla, hver á sínu svæði.
Fuglatalið er sjálfsagt ekki
nákvæmt eins og manntalið.
Engu að síður segir það þó til
um sveiflur í styrkleika hinna
einstöku fuglastofna, ennfrem-
ur um nýja fugla. Fuglalífið er
ekki óvenjulegur þáttur í lífi
Enn gos við Surtsey
JAFNFRAMT boðskap síðustu
jóla bárust af því fréttir, að á
annan dag jóla hef^i gosið neð-
ansjávar við Surtsey og kollur
nýrrar eyjar náð upp að yfir-
borði sjávar. Gosið var 800 m.
suðvestur af Surtsey, eða í
gagnstæðri átt við Syrtling, eða
Litla-Surt, sem reis úr sæ og
hvarf síðan.
Jarðfræðingar telja, að hér
sé um að ræða gos út frá Surts-
ey sjálfri, þ. e. neðansjávarhlið-
um hennar.
Á mánudaginn var feiknamik-
ið gos á hinum nýja stað, og þar
var þá komin ný eyja, 100 m.
löng og 50 m breið. □
ELDUR varð laus í Lækjargötu
2 á Akureyri, hinn 27. desem-
ber sl. stuttu eftir hádegi. Kvikn
að hafði í geymsluherbergi. En
slökkviliðið slökkti eldinn á lít-
illi stundu, og hafði þá rofið gat
Sýningin gaf 800 þús.
AFMÆLISSÝNING á málverk-
um Kjarvals var haldin í októ-
ber í haust. Heildarágóði af
henni var rúmlega 800 þús. kr.
Ágóði þessi rennur til bygg-
ingar myndlistahúss á Mikla-
túni í Reykjavík. Q
náttúrunnar og fjölmargir fylgj-
ast með fuglum af áhuga, taka
enda mark á háttalagi þeirra
enn þann dag í dag, einkum í
sambandi við veður. Hins veg-
ar þurfa þeir, sem sjá einkenni-
Heildarafli 20%
EFTÍR þeim upplýsingum, sem
fyrir liggja um fiskafla íslend-
inga á árinu 1965 má gera ráð
fyrir, að heildaraflinn hafi orð-
ið um 1.166 þús. lestir. í árinu
1964 varð heildaraflinn 972 þús.
lestir og nemur því aukningin
á árinu 194 þús. lestum, eða
tæplega 20%. Afli þessi skiptist
þannig, að af síld komu á land
753 þús. lestir, sem er 209 þús.
lestum meii-a en á árinu 1964
eða 38% aukning en hins vegar
minnkáði aflinn á þorskveiðun-
um og nam aflinn þar í heild
361 þús. lestum, sem er 54 þús.
lestum eða 13% minna en á ár-
inu 1964. Þá voru veiddar nær
50 þús. lestir af loðnu, sem er
mikil aukning frá fyrra ári þeg-
ar aðeins veiddust rúmlega 8
þús. lestir og loks hátt á 4. þús.
lestir af krabbadýrum (humar
á þak hússins. Skemmdir urðu
nokkuð miklar, einkum af vatni
og reyk svo þar var ekki íbúð-
arhæft.
Lækjargata 2 er gömul
tveggja hæða timburbygging,
áföst við fleiri byggingar. Þann
hluta, er hér um ræðir, á ekkj-
an Aðalheiður Albertsdóttir og
bjó hún og hennar fólk, sjö
manns, í húsinu. Fóik þetta var
fyrstu nóttipa eftir brunann hjá
Ola klæðskera Daníelssyni en
flutti síðan á Hótel KEA.
Talið er ljklegt, að kviknað
hafi í út frá rafmagni eða reyk-
háfi. □
lega eða sjaldgæfa fugla, að láta
um það vita og fylgjast með
háttalagi þeirra og viðdvöl.
Fuglateljarar á Akureyri eru
þeir Guðmundur Karl Pétui-s-
son, Friðþjófur Guðlaugsson og
Jón Sigui-jónsson. Þeir fundu
(Framhald á blaðsíðu 5).
meiri en í fyrra
og i-ækju), sem var lítið eitt
meira en á fyrra ári.
Af heildaraflanum á þoi-sk-
veiðum öfluðu togararnir 75
þús. lestir, sem er um 10 þús.
lestum meira en á árinu 1964.
(Frétt frá Fiskifélaginu)
Klausturseli 3. jan. Hinn 22. des.
sl. fóru 5 menn í fjárleit frá
Vaðbrekku. Aðalsteinn Aðal-
steinsson Vaðbrekku, Einar
Pálsson Aðalbóli, sem voru á
sínum jeppánum hvor, og svo
þrír 16—18 ára unglingar, þeir
Páll og Baldur Pálssynir Aðal-
bóli og Hrafnkell Jónsson
Klausturseli.
Klukkan 5 að morgni var lagt
af stað og kl. 10 voru þeir komn
ir á Búrfell á Vesturöræfum.
Þaðan sáu þeir fé hingað og
þangað í sjónauka. Skiptu menn
sér þá, hófu smalamennsku og
náðu-saman 32 kindum, og Bald
ur fann 3 kindur á öðrum stað.
Flest var féð hjá Fífuleii-uvatni.
Hrafnkell og Páll héldu með
féð í átt til Hrafnkelsdals og
ráku fram í myrkur. En féð var
þá orðið þreytt. Síðan var bíl-
anna leitað, en án árangurs,
enda skall á dimm hrímþoka.
Gengu þeir félagar þá til
byggða og náðu til Aðalbólg eft-
ir 11 klst. göngulag, þ. e. frá
því þeir yíirgáfu bílana um
morguninn. Baldur var þangað
komimi litlu fyrr. Þessir sömu,
ungu menn sóttu féð næsta dag.
JÓLAKVEÐJURNAR
Biskup landsins sendi landslýð
sínar jólakveðjur og boðskap
sinn í prédikun. Bílasalar sendu
líka sínar jólakveðjur í hverja
sveit og almenningur sendir
jólakveðjur sín í milli á öldum
Ijósvakans. Svo komu íslend-
ingar erlendis með sínar kveðj-
ur — eftir jólin —. Líklega hafa
þeir fengið afslátt á þeim, þar
sem þær voru ekki fluttar í
tæka tíð. En hvað um það, jóla-
kveðjurnar eru alltaf fallegar
hvort sem þær koma í pósti eða
í útvarpi, og livort sem þær
berast deginum fyrr eða síðar.
LOKSINS HÆTTIR JAKOB Ó.
PÉTURSSON?
Um þessi áramót lætur Jakob
Ó. Pétursson af ritstjómarstörf
um við íslending. En útgáfa
blaðsins hefur gengið skrykkj-
ótt og í sumar féll útgáfa þess
niður um skeið vegna óánægju
og fjárhagserfiðleika. Margir
héldu að það væri dautt og
voru farnir að birta eftirmælin.
En Eyjólfur liresstist í það sinn
og ritstjóraskipti urðu ekki fyrr
en nú. Jakob Ó. Pétursson hef-
ur um fjölda mörg ár annazt
ritstjóm íslendings, stundmn
horfið þaðan en jafnan komið
að blaðinu á ný, eftir skamman
tíma. Hvort svo verður enn,
skal ósagt látið og er ekki
áhyggjuefni Dags.
VANMETIN RITSTJÓRA-
STÖRF
Án þess að leggja dóm á störf
Jakobs Ó. Péturssonar, má á
það minna, að hann hefur
verið flokki sínum trúr
starfsmaður. — Hins vegar
hefur liann oft mæít van-
þakklæti sinna maima, umfrani
Féð leit ágætlega út. í hópnum
voru 11 kindur veturgamlar, 6
dilkar og svo ær. Margt af fé
þessu hafði ekki komið í réttir
í haust.
í fyrra var gerður út svipaður
leiðangur með þeim ái-angri, að
rúmlega 20 kindur fundust.
Sennilegt er að eitthvað af fé
(Framhald á blaðsíðu 5.)
Karlmennirnir fara -
Skagaströnd 4. jan. í fyrradag
fóru héðan 16 menn áleiðis til
Reyðarfjarðar til ýmissa starfa
og Akureyi-ar. Síðar munu
margir fai-a suðui-, þegar neta-
veiði byi-jar því á Skagaströnd
vantar atvinnu. Hér vei-ða Sig-
rún og Húni á veiðum þennan
mánuð og einnig minni bátar.
Margir hafa nú hug á að not-
færa sér nýfundin rækjumið í
Hrútafirði.
Um áramótin var hér mikil
brenna og fjölmennur dansleik-
ui-, sem fór vel fram.
í dág er hér barnaskemmtun.
Mikill snjór er hér en vegin-
um til Blönduóss er haldið opn-
um. H.
það, sem réttlátt er, og ekki
fengið þá starfsaðstöðu, sem lík
leg var til meiri álirifa og nauð-
synleg er hverjum ritstjóra. Við
þessi þáttaskil sendir Dagur
Jakobi Ó. Péturssyni þakklátar
kveðjur fyrir margt það, sem
vel hefur verið í sameiginlegu
starfi blaðamanna og fyrir sam-
skiptin í heild, og ámar lionum
velfarnaðar í nýju starfi.
ÞORSKAFLINN MINNKAR.
Þótt sjávarafli hafi aldrei verið
eins mikill og sl. ár, eða 1.166.000
tonn, sem er 20% aukning frá
metárinu 1964, var þorskaflinn
13% minni en árið áður. Nem-
ur sá mismunur 54 þús. tonn-
um og þykir mörgum það
ískyggileg þróun. Þá vekur það
og nokkum ugg, að samkvæmt
áliti fiskifræðinga eru íslenzku
síldarstofnamir nú mjög veikir,
en norska síldin var uppistaða
síldveiðamia á síðastliðnu ári.
ÖRYGGISLJÓS
SKIP ASKOÐUN ARST J ÓRI
hefur hvatt skipstjóra á síld-
veiðiskipum, til að setja upp
öryggisljós eftir ákveðnum regl
um, sem Rússar og Norðmenn
hafa lofað að vii-ða. í gi-einar-
gei-ð skipaskoðunarstjóra segir
m. a.:
„Vélknúið skip að fiskveiðum
með herpinót og kraftblökk má
hafa tvö i-afgul ljós hvort þráð-
beint upp af öðru á þaki stýi-is-
hússins. Neðra ljósið á að vera
minnst 5 fetum og efra ljósið
minnst 8 fetum ofar en hliðar-
Ijósin, ennfremur skulu þau
sjást, hvaðan sem litið er 2 sjó-
mílur álengdar að minnsta
kosti. Ljós þessi skulu þannig
gerð, að þau tendrist og slokkni
á víxl með um það bil einnar
sekúndu millibili, þannig að
efra ljósið tendrist þegar slokkn
ar á því neðra og öfugt. Þessi
ljós má aðeins sýna meðan
veiðafærið er í sjó og eiga þau
að vara önnur skip við að fara
of nærri“. □
ÞEIR KUNNA AÐ
KRAFSA SNJÓ
Blönduósi 3. jan. Hér og í naer-
sveitum hefur allt vei-ið með
kyrrð og spekt um jól og ára-
mót. Samgöngur hafa verið
sæmilega góðar, miðað við árs-
tíma, snjór yfir öllu en stillt
veður. Jólaös var meiri hjá
kaupfélaginu en nokkru sinni
fyi-r og vei-zlun mikil í hinum
nýju húsakynnum félagsins.
Bænduj- munu telja hesta-
göngu sæmilega ennþá, enda
vanir að láta hrossin bjai-ga sér
og hestarnir kunna að krafsa
snjó, hvað sem annai-s má um
stóðið og meðferð á því segja.
En um það munu ekki allir á
einu máli.
Samkomur um jól og nýár
fóru fram að venju, bæði hér og
á öðrum stöðum í nági-enninu,
og allt fór þar vel fram og slysa
laust. Ó. S.
Eldur í Lækjargöfu 2 á Akureyri
Fundu 35 kindur á Vesturöræfúm