Dagur - 19.01.1966, Side 1
Bagur
SÍMAR:
11166 (ritstjóri)
11167 (afgreiðsla)
AGU
XXIX. árg. — Akureyri, miðvikuJagiiin 19. jan. 1986 — 4. tbl.
Daímr
o -
kemur út tvisvar í viku
og kostar kr. 30.00 á
mán. I lausasölu kr. 5.00
FRÁ BÆJARSTJÚRN
í SAMÞYKICTUM bæjarráðs
írá 6. janúar sl. er m. a.:
Húsavíkurbæ seídur þurrkari.
Með bréfi dags. 7. desember
sl. gerir Sigtryggur Stefánsson
tæknifræðingur f. h. Húsavíkur
bæjar tilboð í kaup á 3” þurrk-
ara frá Krossanesverksmiðju
með matara og gamalli hræri-
vél sem er í eign vélasjóðs Ak-
ureyrarbæjar, fyrir kr.
500.000.00.
Bæjarráð ssmþykkir að selja
Húsavíkurbæ oíangreind tæki
fyrir kr. 570.000.00 og greiðist
andvirðið þannig:
a) Kr. 350.000.00 við afhend-
ingu á næsta sumri.
b) Kr. 220.000.00 1. júní 1967.
Láníökuheimiíd.
Með bréfi dags. 4. þ. m. skýr-
ir stjórn Krossanesverksmiðj-
unnar frá því, að hún hafi fyrir
sitt leyti samþykkt að festa
LEIKSTARFSEMI M.A.
LEIKFÉLAG Menntaskólans á
Akureyri frumsýndi í gær sinn
skólaleik, sem er þýddur gam-
. anleikur og verður hans nánar
getið, væntanlega í næsta blaði.
Leikfélag Akureyrar æfir af
kappi sænska sjónleikinn Swed-
enhielms-fjölskylduna og verð-
ur frumsýningin snemma í
næsta mánuði.
Báða leikina sviðsetur Ragn-
hilaur Síeingrímsdóttir. Q
kaup á tveimur síldarpressum
fyrir verksmiðjuna og að láta
endurbyggja pressuhús hennar,
þar eð núverandi pressur væru
orðnar úr sér gengnar, enda um
50 ára gamlar. Kostnaður við
þessa framkvaémd er áætlaður
um 5% millj. króna.
Æskir verksmiðjustjórnin eft
ir heimild bæjarstjórnar til þess
arar framkvæmdar og ennfrem
ur eftir heimild bæjarstjórnar
til lántöku og bæjarábyrgðar
fyrir láni eða lánum allt að 6
millj. króna til þessarar fram-
kvæmdar og til að koma upp
síldarviktunarbúnaði, sem verk
smiðjunni hefur verið gert skylt
að koma upp fyrir næsta vor.
Bæjarráð leggur til að orðið
verði við erindinu.
Nýja dráttarbrautin.
Frá fundi hafnarnefndar er
þetta bókað:
Bæjarstjóri skýrði frá því, að
hann hefði í lok nóvembermán-
aðar átt viðraéður við iðnaðar-
málaráðherra varðandi fram-
kvæmdir varðandi byggingu
nýrrar dráttarbrautar á Akur-
eyri og í framhaldi af þeim við-
ræðum hafi hann skrifað hag-
fræðideild Seðlabankans og
Efnahagsstoínuninni og óskað
eftir því að framkvæmd þessi
verði tekin upp í íramkvæmda-
áætlun 1966 og 1967 og gerðar
yrðu nauðsynlegar ráðstafanir
til útvegunar á nauðsynlegu
(Framhald á blaðsíðu 2).
Fyrirhugaðar eru nú frantkvæmdir við Menntaskólann á Akureyri, m. a. nýbygging, sem
sennilega verður valinn staður við liið sextuga skólahús, sem reist var af síórhug á sinni tíð.
Þessi mynd var tekin 19. des. í vetur á sextugsafmæli skólameistara. (Ljósm.: E. D.)
Utveffsmenn mótmæla fiskverði
Telja 330-350 þúsund króna tap á því að
gera út báta á þorskveiðar í vetur
STJÓRN Útvegsmannafélags
Reykjavíkur hefur harðlega
mótmælt afstöðu stjórnarvald-
anna til útgerðarmanna, sem
gera út minni báta. Hún telur,
að verðákvörðun á bolfiski
skapi ekki grundvöll til útgerð-
Enn kemm* kveðja að suniian
30% leyfisgjald sett á jeppabifreiðar
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ til
kynnti í fyrrakvöld innflytjend-
um jeppabifreiða, að ákveðið
hefði verið 30% leyfisgjald á
þær. En fram að þessu hefur
ÍSLENDINGAR NOTA
MIKIÐ AF SEMENTI
DR. JÓN E. VESTDAL hefur
upplýst, að heildarsala Sements
verksmiðjunnar hafi á sl. ári
verið 118.910 tonn. Afkastageta
verksmiðjunnar er hins vegar
115.000 tonn og var salan því
meiri en ársframleiðslan.
Sementsnotkun á hvern íbúa
varð, samkvæmt þessu 625 kg.,
sem er þriðja mesta notkun
slíks efnis í Evrópu. Sements-
notkun er meiri í Sviss, 724 kg.
og í Luxemburg er 646 kg. á
íbúa. Af því sementsmagni, sem
verksmiðjan seldi á sl. ári voru
12 þús. tonn í Keflavíkurveginn
nýja. Q
slíkt gjald ekki náð til þeirra
bifreiðategunda, enda jeppar
taldir með landbúnaðartækjum,
þótt fjölmargir aðrir en bændur
hafi keypt þá og notað, bæði til
fólksflutninga og annars.
Hækkun þsssi gengur strax í
gildi, nema fyrir þá, sem þegar
hafa fengið- pöntun sína stað-
festa.
Þess má geía, að leyfisgjöld
íólksbíla er 125% og til leigubíl
stjóra 30%.
Með hinni nýju tilskipun nær
30% leyfisgjaldið jafnt til
bænda og annarra. Jeppabif-
reiðir, sem hér eftir verða flutt
ar inn, hækka samkvæmt fram-
anskráðu um 22—50 þúsund
krónur, að því er talið er. Fer
það efiir tegundum og hvernig
útbúnir þeir eru,
Búast má við- að vegna þess-
arar verðhækkunar muni draga
úr innfluiningi jeppa, sem þó
henta vel islenzkum staðhátt-
um. Fyrir bændur er þetta þó
tilfinnanlegast. Q
ar, samanber ályktun félagsins
um þetta efni. En þar ségir svo
meðal annars:
„Samkvæmt þeirri áætlun,
sem lögð var fram sem, grund-
völlur fyrir línu og netaveiði á
vertíðinni 1966 og ekki hefur
verið hrakin, sýndi að bátinn
vantaði við óbreyttar aðstæður
kr. 548.000.00 til að ná rekstrar-
jöfnuði. Við þær breytingar á
verði, sem yfirnefnd verðlags-
ráðs sjávarútvegsins hefur
ákveðið, lækkar þessi tala um
ca. 200—220 þús., vantar því kr.
330-—350 þús. fyrir bátinn, til að
rekstrargrundvelli verði náð.
Þeirri verðhækkun, sem yfir-
nefnd verðlagsráðs sjávanitvegs
ins ákvað, var þó aðeins náð
með því að færa frá annarri
grein sjávarútvegsins, síldveið-
unum, yfir til bolfisksveiðanna.
Er því sýnilegt, að enginn grund
völlur er enn íyrir bolfiskveið-
unum.
Til þess að forðast, að hinir
Utaiibæjarmaður slegimi niður
Liggur höfuðkúpubrotinn á sjúkrahúsi
ADFARARNÓTT síðasta laug-
ardags bar það við í miðbæn-
um, hér á Akureyri, að utan-
bæjarmaður leníi í illindum og'
var sleginn niður. Sjónarvottar
gerðu lögreglunni aðvart og
kom hún fljótlega á staðinn, tók
hinn slasaða mann og flutti
hann á varðstofuna. Þar fór
lækriisskoðun fram. Maður
þessi fór síðan heim til sín. á-
samt ferðafélögum sínum.
Bráðlega var hann þó aftur á
leið til Altureyrar og nú á
sjúkrahúsið. Við rannsókn þar
kom í ljós, að hann er höfuð-
kúpubrotinn.
Lögreglan hóf þegar rann-
sókn i máli þessu, fangelsaði
m. a. mann þann, sem grunað-
ur var um verknaðinn, og yfir-
heyrði hann. Hins vegar hefur
hinri slasaoi maður enn ekki
verið yfirheyrður og málsrann-
sókn af þelrri ástæðu o. fl.
alvarlegustu hlutir geti gerzt,
sem skaða mundu ekki aðeins
útgerðina, heldur allt þjóðfélag-
ið, skorar fundurinn á Alþingi
og ríkisstjórn og sérstaklega
hina stjórnskipuðu nefnd að
fara eftir tillögum útvegsmanna
með að létta af þeim hluta fiski-
flotans sem bolfiskveiði stunda,
einhverjum af þeim álögum,
sem á honum hvíla nú.
Telur fundurinn, að þar eð
Alþingi og ríkisstjórn hefur
ekki íekizt að halda dýrtíðinni
það niðri, að aðal gjaldeyrisöfl-
unin gæti staðið undir sínum
rekstri, beri þeim að fara þær
leiðir, sem tiltækastar þykja til
að tryggja örugga afkomu þessa
lífakkeris þjóðarinnar". Q
Bændaklúbbsfuiidur
FYRSTI FUNDURINN á þessu
. ári verður að Ilótel KEA mánu-
daginn 21. þ. m. á vcnjulegum
tíma kl. 9 að kveldi.
Umræðuefni verður: Gróður-
vernd, skógrækt og skjólbelti.
Framsögu hefur Hákon Bjarr.a-
son skógræktarstjóri. Ef til vill
mætir Einar G. E. Sæmundsen
skógarvörður einnig á fundin-
um og svarar þá fyrirspurnum
varðandi ræktim skjólbelta.
Myndasýning verður í sambandi
við framsöguermdi. Q
Fjárhagsáætlim bæjar-
ins afgreidd í gær
FJÁRHAGSÁÆTLUN bæjar-
ins var til síðari umræðu í gær
og ekki lokið er blaðinu var
lokið. Nánar síðar. Q