Dagur - 19.01.1966, Blaðsíða 7
7
Minkar og útigöngufé í Bárðardal
Stórutungu 18. jan. Um jól og
áramót voru töluvert mikil
snjóalög og sátu menn heima
að mestu. Nú er hins vegar
greiðfært um allt, á sumum
stöðum ekið á hjami og svell-
um. Nú heimsækja menn ná-
granna sína og grípa í spil, og
börnin fengu sína skemmtun í
skólanum.
Það bar til tíðinda að fjórar
ær skriðu úr fönn hér í heima-
]andi nú í vetur, hafði þær fent
í norðanáhlaupi, sem kom á
snjólausa jörð.
Þá má til frétta teljast, að nú
nýlega kom útigengin tvílembá
í beitarfé frá Bólstað. Ær og
lömb voru sæmilega vel á sig
komin. Eigandi var Baldur á
Stóruvöllum.
Búið er í haust og vetur að
vinna 29 minka, Þeir halda mest
til við Svarta, -en eru þó á öðr-
um stöðum um heiðar einkum
J
við vötn. En nú er aðalminka-
baninn, Tryggvi Harðarson í
Svartárkoti, kominn suður til
Vestmannaeyja, og nokkrir
aðrir héðan úr Bárðardal, en
koma væntanlega allir aftur.
Lítið hefur orðið vart við refi.
Flestir nota nú góða beitarjörð
og stillt veður til að spara fóður.
En slíkt er jafnan mjög mikil-
vægt, einkum þar, sem að
nokkru er treyst ó beit.
Víðast er fátt fólk á heimilum
um þessar mundir. Okkur þykja
illar fréttir, sem stjórnarvöldin
sendu okkur í gær um hækkað
verð á jeppabílum. Þ. J.
Fréttaritari Dágs í Ðárðar-
dal, Þórólfur bóndi í Stóru-
tungu, símsendi þá frétt til við-
bótar, að komin væri heim að
húsum ær ein, sem hann á sjálf
ur og ekki hefur séðst síðan í
fyrstu göngum í haust. Hafði
hún tvö lömb sín með sér. Ær-
in var hin sprækasta en lömbin
í afleggingu. □
TILKYNNING
frá skattstjóra Norðurlandsumdæmis
eystra
Allir þeir, sem skattstjóri hefur krafið skýrslugerðar
um greidd laun, hlutafé og arðgreiðslur, eru áminntir
um að gera skil eigi síðar en 20. janúar n.k. Frekari
frestur verður ekki veittur. Þótt um engar kaupgTeiðsI-
ur hafi verið að ræða, er eigi síður nauðsynlegt að skila
eyðublöðunum aftur.
Frestur til að skila skattframtölum til skattstjóra eða
umboðsmanna hans er til 31. janúar n.k. Þeir/sem at-
vinnurekstur hafa með höndum, þurfa þó ekki að hafa
skilað framtalsskýrslu fyrr en fyrir febrúarlok. Með
því að frekari framtalsfrestir verða ekki veittir, nema
sérstaklega standi á, er því hér með beint til allra, sem
geta búizt \ ið að vera fjarverandi eða forfallaðir af
öðrum ástæðum við lok framtalsfrestsins, að telja fram
nú þcgar.
, Þgir aðilar, ■ sem nauðsynlega þurfa á frekari fram-
talsfresti að halda, verða að sækja um frest til skatt-
stjóra eða umboðsmanns hans og fá samþykki fyrir
frestinum.
í 47. gr. lága nr. 90/1965, um tekjuskatt og eignar-
skatt er kveðið svo á, að ef framtalsskýrsla berst eftir
að framtalsfrestur er liðinn, skal miða skattmatið við
raunverulegar tekjur og eign að viðbættúm 25%. -
Til 31. janúar veitir skattstjóri eða umboðsmaður
hans, þéiiíi, sem þess óska og sjálfir eru ófæyir að rita
framtalsskýrslu sína, aðstoð við framtalið. Er þeim til-
mælum beint til Jreirra, sem ætla sér að fá framtals-
aðstoð, að koma sem allra fyrst til skattstjóra eða um-
boðsmanns hans.
í hreppum, Jrar sem framteljendur eru að meiri-
hluta atvinnurekendur, hefir framtalsfresturinn verið
framlengdur til 28. febrúar n.k.
Verður skattstofan í Strandgötu 1, opin, auk venju-
legs skrifstofutíma kl. 4—7 og laugardaga kl. 1—4 e. h.
til loka þessa mánaðar.
Akureyri, 17. janúar 1966.
HALLUR SÍGURBJÖRNSSON,
skattstjóri.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og jarðarför litlu dóttur okkar,
SIGRÚNAR.
Kristbjörg Halldórsdóttir, Magnús Brynjólfsson.
Haraldur Hallsson
frá Steinkirkju.
K V E Ð J A
Huldi stigu faimafeldur,
féll svo yfir húm.
Vermdi ei framar arineldur
— autt og kalt varð rúm.
En geislablik frá glöðu vori
glæða nýjan byr.
Lífsins veg með leik í spori
löngum gekkstu fyr.
Virtist blómgvast vel þinn
hagur,
vegferð þrautum firrt.
En enginn dagur er svo fagur
að eigi geti syrt.
Óvænt þverra sumir sjóðir —
samt ei bregðast jól.
Rökkur hylur röðulglóðir
— rís þó aftur sól.
Er sem englar bjartir bendi,
brosi til þín hlýtt.
„ÖIlu er stýrt af Alvaldshendi
— opnast lífssvið nýtt.
Tendrist Ijós og treginn dvíni,
trúin ríki ein.
Ljómi yfir leiðum skíni,
laufi skrýðist grein.
Vertu sæll. — f vorsins heimi
veitist fegri sýn.
Lífsins til í Ijóssins geimi
liggja sporin þín.
Jórunn Ólafsdóttir
frá Sörlastöðum.
— Höfðingleg gjöf
(Framhald af blaðsíðu 2).
rækt á íslandi hlýtur að byggja
á í framtíðinni. Veltur því á
öllu, að undirstaðan sé traust.
Með slíkri gjöf og þessari er
stefnt að því að vanda undir-
stöðuna.
Fyrir hönd Skógræktar ríkis-
ins vil ég færa börnúm Gutt-
orms Pálssonar hjartanlegal-
þakkir fyrir þessa ágætu gjöf
og þann góða hug, sem að baki
liggur. *
Reykjavík á þrettándanum 1966.
Hákon Bjamason.
Nýjar síldajbræðslur
(Framhald af blaðsíðu 8.)
Bræðurnir Aðalsteinn og
Kristinn Jónssynir hafa ákveð-
ið að byggja þi-jú þús. mála
síldarbræðslu á Eskifirði, til við
bótar þeirri, sem þar er fyrir á
staðnum í eigu þeirra bræðra.
Nýja bræðslan verður innan
við kaupstaðinn, við hafnar-
mannvirki, sem þar er verið að
gera við fjarðarbotninn.
Þá er afráðið að byggja þús-
und mála síldarverksmiðju á
Stöðvarfirði.
Tvö hlutafélög hafa verið
stofnuð til að reisa tvær síldar-
verksmiðjur á Seyðisfirði. Hluta
fé annars er 6 millj. kr. og
áformar það að reisa þúsund
mála verksmiðju yzt á Búðar-
eyri. Hitt hlutafélagið hefur 20
millj. kr. hlutafé eða meira og
ætlar að reisa sína bræðslu á
Hánefsstaðaeyri, sem er yzt við
Seyðisfjörð, að sunnan. V. S.
□ RUN 59661197 — 1 .-.
I. O. O. F.
14712181,4
MESSAÐ verður í Akureyrar-
kirkju n. k. sunnudag kl. 2
e. h. — Sálmar: 18 — 337 —*
208 — 207 — 14. B. S.
MESSAÐ í Lögmannshlíðar-
kirkju á sunnudaginn kemur
kl. 2 e. h. — Sáímar nr. 500 —f
684 — 112 —669 — 681! Aðal-
safnaðarfundur að lokinni
messu og kosningar. Bílferð
úr Glerárhverfi kl. 1.30 e. h.
F. S.
GUÐSÞJÓNUSTUR í Grundar-
þingaprestakalli. MÍitikáþverá
sunnudaginn 23.: jany kl. 1.3Q
e. h. Almennur safnaðarfund-
ur verður eftir mejsuna.
SUNNUDAGASKÓLI Akureyr
arkirkju er á sunnudaginn. —1
Yngri börnin í kapellunni ,og
eldri börnin í kirkjuiini..
AÐ ALDEIl D.
Fundur verður hald-
inn fimmtudaginn 20.
þ. m. kl. 8.30 é. h. í
kapellunni. Fjölbreytt fundar
störf. Veitingar. Eflum félags
starfið. Stjómin.
ZION. — Sunnudaginn 23. jan.
Sunnudagaskóli kl. 11 f. h.
OIl böm velkomin. Samkoma
kl. 8.30 e. h. Allir velkomnir.
Möðruvallaklaustursprestakall:
Frá og með s. 1. áramótum
hefur presturinn á Möðru-
völlum alla umsjá og um-
hirðu kirkju og kirkjugarðs
á staðnum með höndum. Við-
komandi ber því eftirleiðis að
snúa sér beint til prestsins
um legstaði og annað það, er
þessu heyrir. Ágúst Sigurðs-
son.
FfLADELFÍA Lundargötu 12.
Opinberar samkomur hvern
sunnudag kl. 8.30 s. d. Sunnu-
dagaskóli hvem sunnudag kl.
1.30 e. h. Oll böi-n velkomin.
Saumafundir fyrir telpur
hvern miðvikudag kl. 6 s. d.
All^r teljSur velkomúár.'
Fíladelfía.
I. O. G. T. Stúkan Ísafold-Fjall-
konan nr. 1. Fundur fimmtu-
daginn 20. þ. m. kl. 8,30 e. h.
að Bjargi. Fundarefni: Vígsla
nýliða. Kosning og innsetning
embættismanna. Eftir fund
verða afgreiddir miðar á
þorrablótið. Æ. T.
I.O.G.T. S.K.T: Þorrablót verð-
ur í Alþýðuhúsinu föstud.
21. jan. kl. 7.30 e. h. Þorramat
ur,- skemmtiatriði, daná. Að-
göngumiðar á - kr. 240.00
verða seldir í bláðavagrþnum
og við innganginn. Skemmt-’
um okkur án áfen^is. á.K.Ti
- VETRARVERTÍÐ
(Framhald af blaðsíðu 8.)
þeirri síld verið frýst og saltað.
Afli togara hefur yfirleitt ver
ið lélegur frá áramótum, en ,á-
gætt verð hefur fengizt fyrir
aflann á erlendum mörkuðum.
Hér norðanlahds vofu iróðrar
hafnir úr áramótum og á nokkr
um stöðum hefur verið reitings
afli þegar gefið hefur, t. d. var
róið alla síðustú ýiikú í Ólafs-
firði og afli var sæmilegur, og
á Húsavík var betri afli upp úr
áramótum eh oftast áður á
sama árstíma. Fjöldi útléndinga
mun stunda vinnu á verstöðv-
um syðra í vetur. □
HJÚSKAPUR. Hinn 9. jan. sl.
voru gefin saman í hjónaband
í Möðruvallaklausturskirkju,
af settum sóknarpresti, ung-
frú Bertha Svala Bruvik og
Jóhannes Þór Hermannsson
kennari við Hjalteyrarskóla.
Heimili þeirra er að Syðsta-
Kambhóli í Amarneshreppi.
Ágúst Sigurðsson.
KENNSLA í íshockey fer fram
á Krókeyri þessa viku kl.
5.30—7 e. h. Öllum heimil þátt
taka. Kennsla í listhlaupi á
skautum heldur áfram í
kvöld á íþróttavellinum kl.
8 e. h. Æskulýðsráð.
BRAGVERJAR. Fundur verð-
ur haldinn fimmtudaginn 20.
þ.m. kl. 8.30 s.d. í Fjólugötu 1
SLYSAVARNARKONUR Ak-
ureyri. Gjörið svo vel og kom
ið bazarmunum og kaffipen-
ingum til eftirtaldra kvenna
ekki síðar en fimmtudaginn
27. janúar n. k.: Jóna Frið-
bjarnardóttir Aðalstræti 34,
Valgerður Franklín Aðal-
stræti 5, Guðlaug Steinsdótt-
ir Ránargötu 25, Fríða Sæ-
mundar Markaðinum, Krist-
rún Finnsdóttir Ásvegi 14,
Sigríður Árnadóttir Vana-
byggð 5 og Sesselja Eldjárn
Þingvallastræti 10.
BRIDGEMÓT UMSE
hefst í Árskógi sunnu-
daginn 23. þ. m. kl. 2
e. h. — Þátttaka til-
kynnist í síðasta lagi tveimur
dögum áður, til Þórodds Jó-
hannssonar eða Sveins Jóns-
sonar. UMSE
KVIKMYNDASÝNING verður
í kirkjukapellunni miðviku-
dag kl. 5 (fyrir sunnudaga-
skólabörn úr 11.—21. bekk
stúlknamegin). Sóknarprestar
SKÓGRÆKTARFÉLAG Tjarn-
argerðis heldur fund á Stefni
fimmtudaginn 20. þ. m. kl.
8.30 e. h. Stjórnin.
KVENFÉLAGIÐ Framtíðin
þákkar gestum síiium á Hótel
KEA sl. sunnudag 16. janúar
mjög ánægjulega samveru og
góðar óskir. Sömuleiðis þökk
um við kærlega bifreiðastjór-
um á BSO fyrir ókeypis akst-
ur og harmonikuleikurunum
Hauk og Kalla fyrir þeirra
framlag. Síðast en ekki síst
þökkum við fyrir lán á húsa-
' kynnum Hótel KEA og alla
aðstoð fyrr og síðar. Stjórnin.
SJÁLFSBJÖRG
Félagsvist verður að
Bjargi láugardaginn
22. janúar og hefst kl.
8V2 e. h. — Skemmti-
atriði. — Félagar, takið með
ykkur gesti. Nefndin.
TIL Fjórðungssjúkrahússins. —
Áheit frá Kristínu M. Sigurð-
ardóttur kr. 500. Gjöf frá
sjúklingi kr. 1000. Með þökk-
um móttekið. G. K. Pétursson
Gilsbakkasöfnunin: Söfnuninni
er nú að mestu lokið, en upp
gjör vantar þó enn frá öðrum
blöðum en Degi, Morgunblað
inu og Tímanum. Um leið og
öllum þeim mörgu, sem hér
hafa hjálpað og sýnt í verki
hve mikils má sín samhugur
og samhjálp, skal leiðrétt
greinargerð um rausnarlegt
framlag frá fólkinu á Ár-
skógsströnd; það var frá fólki
þar almennt, en ekki þeim
tveim félögum, sem greint
var. Hafi allir heila þökk. —
Sóknarprestur.