Dagur - 16.02.1966, Blaðsíða 8
8
/;
fttfis
awffBBSa&y ^
llSfelÉÉÍIi^
-~— m . - •
'^^ÉÉQOH * J
■ ,.M ^
Hlíðarfjall.
Skíðahótelið merkt.
(Ljósm: E. D.)
SMÁTT OG STÓRT
HLÍÐARFJALL
Á fimmta hundrað manna voru
í Hlíðarfjalli á sunnudaginn í
dásamlegu veðri og fljúgandi
skíðafæri. Þar sést hvergi á
dökkan díl og vetrarfegurð eins
og hún er mest, í sól og logni.
Togbrautir léttu fólki brattann,
kastljós lýsa er skyggja fer og
í Skíðahótelið er svöngum,
þyrstum og göngumóðum gott
að koma. Þama vom ungir og
gamlir og allir virtust una sér
hið bezta.
OFÆRI VEGAPARTURINN
Nokkrir menn höfðu orð á því
í Hliðarfjalli, hve lítil sú þjón-
usta væri af hendi bæjarins, að
clíkÍ SlljÓ öf VCgÍ þcHlll
kafla leiðarinnar í Hlíðarfjalli,
sem ófær var þeim fólksbifreið-
um, sem almennastar em. Ef-
laust hefði mun fleira fólk lagt
leið sína í Hlíðarfjall á sunnu-
daginn, fleiri notið fjallaloftsins,
meiri peningar orðið eftir í pen
ingakassa hótelsins, ef vegurinn
hefði verið góður frá bænum
upp í Skíðahótel. Er ábendingu
lun þetta hér með komið á fram
færi.
Átfi Magnús Jónsson ekkert „tromp"?
ÞAÐ bar til tíðinda á öðru ári
hinnar svonefndu „viðreisnar-
stjórnar", að iðnaðarmálaráð-
herrann þáverandi, Bjami
Benediktsson, skipaði „stóriðju-
nefnd“, til að kanna möguleika
á vinnslu aluminium hér á
landi.“ Nefndarmenn voru sex
og allir búsettir í höfuðborg-
inni.
Síðar urðu mannaskipti á þá
leið, að Magnús Jónsson alþing-
ismaður og þáverandi banka-
stjóri tók sæti í nefndinni í stað
Jóhanns Hafsteins alþm. og þáv.
bankastj., er þá var skipaður
ráðherra.
En Magnús Jónsson hafði á
sínum tíma verið meðflutnings-
maður að tillögu til þingsálykt-
unar um fullnaðaráætlun um
virkjun Jökulsár á Fjöllum til
stóriðju, er samþykkt var á Al-
þingi 22. marz 1961.
Á öndverðu ári 1964 urðu hér
á Akureyri nokkur blaðaskrif
um þessi mál. I íslendingi birt-
ist viðtal við Magnús Jónsson,
sem stóriðjunefndarmann, og í
tilefni af því voru gerðar til
hans nokkrar fyrirspurnir hér
í blaðinu. Magnús Jónsson svar
aði fyrirspurnunum og birti
Dagur svörin eftir ósk hans.
Þar lýsti M. J. því m. a. yfir,
að hann hefði ekki haft neitt
samráð við meðflutningsmenn
sína að Jökulsártillögunni um
störf sín í stóriðjunefnd og
væri ekki skipaður í hana sem
sérstakur fulltrúi Norðurlands-
kjördæmis eystra.
Gengið um Þorvaldsdal
Á SUNNUDAGINN gengu tveir
menn af Árskógsströnd, þeir
Sveinn Jónsson bóndi í Kálfs-
skinni og Jón Halldórsson kenn
ari, Þorvaldsdal endilangan frá
Stærra-Árskógi til Fomhaga.
Voru þeir fjórar klukkustundir
á leiðinni, þó alla leið að Lauga-
landi á Þelamörk.
Fagurt þótti þeim í Þorvalds-
dal og skíðafæri ágætt. Manna-
slóðir voru þar engar en refir
höfðu skilið eftir spor sín í
snjónum. Yfir 20 snjóflóð höfðu
fallið úr austurhlíðum dalsins
og sum allstór. Q
Hann minnist á þann mögu-
leika, að orkulína yrði lögð til
Eyjafjarðar frá Búrfellsvirkjun
og taldi „líklegt“, að orkusala
á Norðurlandi gæti staðið undir
þeim kostnaði. Sagðist telja
þjóðhagslega séð æskilegt, að
virkja Þjórsá við Búrfell, leiða
orku norður og staðsetja alu-
miníumverksmiðju við Eyja-
fjörð. Kvað úrslit málsins enn í
óvissu og vildi, að hygginná
manna hætti, engu um það spá,
en var íbygginn í lokin. Komst
hann þar þannig að orði:
„Það er yfirleitt ekki hyggi-
legt að sýna öll spil áður en
spilinu er lokið“.
Þessi ummæli M. J. voru, sem
vænta mátti, skilin á þá leið
hér nyrðra, að hann byggi yfir
úrræðum, sem duga myndi til
að tryggja hagsmuni Norður-
lands í þessu máli. Að í spilinu
við stórborgaröflin syðra hefði
hann það tromp á hendi, sem
úrslitum réði, en teldi ekki rétt
að sýna trompið fyrr en í síð-
ustu lög.
í trú á þetta „tromp“ í bak-
höndinni gerðust ýmsir hér
bjartsýnir á orkuveitu hingað,
að sunnan.
Bæjarstjóm Akureyrar ákvað
að leggja sitt lóð á vogaskálina
og lýsti yfir áhuga sínum fyrir
því að aluminíumverksmiðja
yrði, ef til kæmi, reist við Eyja-
fjörð, en hélt þó fast við hið
norðlenzka sjónarmið um stór-
virkjun á Norðurlandi.
Því miður lítur helst út fyrir,
að drýgindatal M. J. um „spil-
in“ hafi verið hjal eitt. Að spil
hans frá öndverðu hafi verið
svo léleg, að engu skipti, hvort
hann sýndi þau eða ekki. Að
hann hafi aldrei haft neitt
tromp á hendinni eða ekki átt-
að sig á, hvað var tromp í
þessu spili.
Þegar Norðmenn sömdu við
Svisslendinga um að koma upp
og reka aluminíumverksmiðju í
Noregi, gerðu þeir það að skil-
yrði, að þeir (þ. e. Norðmenn)
réðu sjálfir staðsetningu verk-
(Framhald á blaðsíðu 4.)
FLEIRI — MIKLU FLEIRI
Hlíðarfjall og Skíðahótel bæjar-
ins þar, ætti að vera kjörstaður
bæjarfólks þegar vel viðrar og
skíðafæri er gott. Hreinleiki
náttúrunnar, töfrafegurð, fjalla
loftið og nokkur áreynsla við
gönguferðir eða skíðaíþrótt er
heilsulind fyrir sál og líkama.
Það finna allir, sem notið liafa
og því má með góðri samvizku
hvetja fólk til að Ieggja Ieið sína
upp í Iilíðarfjall.
HARKALEGUR DÓMUR
í Moskvu var á mánudaginn
kveðinn upp dómur yfir tveim
sovézkum rithöfundum. Hlaut
annar 7 ára þrælkunarvinnu en
hhm 5 ára. En ritliöfundum
þessum er gefið að sök, að hafa
skrifað órettmæta gagnrýni á
hendur yfirvöldum lands síns
til birtingar í öðrum löndmn. Út
af dómi þessum, sem þykir
harkalegur, hefur risið mót-
mælaalda.
HAGKAUP
Sagt er, að mikil ös sé dag
hvem hjá Hagkaup, síðan þau
opnuðu hér skyndimarkað í
bænum. Líta vefnaðarvöruverzl
anir þennan keppinaut fremur
óhýru auga þessa dagana, og
finnst ýmsum hin svokallaða
aukna þjónusta í dým húsnæði
og miklum verzlunarbúnaði lít-
inn ávöxt bera. En vissulega
kostar sú þjónusta peninga,
sem hlýtur að leggjast á vöru-
verðið, en í þessari tegund þjón
ustu hefur verið hreint kapp-
lilaup síðustu árin. En við slikt
skapast skilyrði fyrir viðskipti
þau, sem fólk sækir mest og
liér em að framan nefnd. Ilvern
ig verzlunarstéttin bregzt við
hinum nýja keppinaut, er svo
annað mál.
Vegir innan héraðsins eru nú
flestir greiðfærir og samgöngur
eðlilegar á því svæði eins og
er. Q
Öxnadalsheiðin var opnuð í gær
Jeppar fara í ýtuslóðum yfir Vaðlaheiði
VEGAGERÐIN opnaði Öxna-
dalsheiði í gær, til umferðar
stærri bílum. Bílstjórar frá Ak-
ureyri, sem áttu bíla sína vest-
an heiðar síðasta hálfan mán-
uð, flugu til Sauðárkróks í gær-
morgun og óku bílum sínum
heim. Bílar þeir, sem um ræð-
ir, voru vöruflutningabílar frá
Stefni o. fl.
Vegurinn til Húsavíkur er
enn ófær bifreiðum. En ein-
hverjir jeppar hafa þó komizt
yfir Vaðlaheiði eftir ýtuslóðum.
AFLIAÐ GLÆÐAST
BÁTAR af Litla-Árskógssandi
fengu í fyrradag nokkum afla
og Dalvíkurbátur fékk í gær 8
þús. pund af rígaþorski á línu
norðan við Hrólfssker. Fleiri
fréttir þykja til þess benda, að
afli kunni nú að glæðast á nær-
liggjandi miðum.
Síðdegis í gær voru margir
Dalvíkingar farnir að beita. Q
Flugfél. Islands synjað m
lendingarleyfi í Franklurt
ÞÝZK flugyfirvöld hafa nú ild til farþegaflutninga milli
synjað Flugfélagi íslands um Glasgow og Frankfurt.
lendingarleyfi í Frankfurt am Þar sem engar flugsamgöng-
Main, en þangað hugðist félagið ur eru nú milli íslands og Þýzka
taka upp flugferðir í vor. lands, en mikil viðskipti og sam
Eins og frá var skýrt í frétt- skipti milli landanna á öðrum
um, sótti Flugfélag íslands sviðum, þótti einnig mega
snemma í október sl. um leyfi vænta þess, að jákvætt svar við
til áætlunarflugferða milli
Reykjavíkur og Frankfurt, með
viðkomu í Glasgow í báðum
leiðum. Brezk flugyfirvöld
brugðust mjög vel við þessari
málaleitan og veittu leyfi til
flugsins fyrir sitt leyti og einn-
ig var Flugfélaginu veitt heim-
Hafna erlendu auSvaldi
Á FUNDI miðstjómar Alþýðu-
sambands Norðurlands var eftir
farandi áskorun til Alþingis ein
róma samþykkt:
„Fundur haldinn í miðstjórn
Alþýðusambands Norðurlands,
5. febrúar 1966, mótmælir yfir-
standandi samningum ríkis-
stjórnarinnar við erlent auðfyr-
irtæki um byggingu og rekstur
aluminiumverksmiðju hér á
lahdi.
Miðstjómin telur, að reynsl-
an hafi sýnt, að íslenzka þjóðin
er fær um að byggja upp at-
vinnuvegi sína með eigin fram-
takj og því lánstrausti, sem hún
hefur unnið sér hjá öðrum þjóð
um. Á sama hátt er þjóðin ein-
fær nú eins og áður um að
byggja upp nauðsynlegar raf-
orkustöðvar fyrir þarfir þjóðar-
innar án þess að það sé háð því,
að ráðizt verði i stóriðju á veg-
um erlendra aðila. Vill mið-
stjórnin sérstaklega vara við
þeirri nýju stefnu, sem núver-
andi stjórnarvöld hafa lýst sig
fylgjandi, að hleypa erlendum
auðfyrirtækjum inn í íslenzkt
atvinnulíf í samkeppni við ís-
lenzka atvinnuvegi og uppbygg
ingu þeirra, og skorar því á Al-
þingi að hafna væntanlegum
samningum, þegar til þess kasta
kemur að afgreiða það mál.“
umsókn Flugfélagsins bærist
frá Þýzkalandi. Með þetta í
huga, var í flugáætlun félagsins
fyrir sumarið 1966, ákveðin ein
ferð í viku milli Reykjavíkur,
Glasgow og Frahkfurt. Flogið
skyldi á miðvikudögum fram
og aftur. Strax eftir að ferða-
skrifstofum hafði verið tilkynnt
um þessa áætlun, tóku að ber-
ast farpantanir í ferðirnar.
Fyrir nokkru barst svo svar
frá þýzkum flugyfirvöldum þar
sem umsókn Flugfélagsins um
lendingarleyfi í Frankfurt er
synjað.
Þessi viðbrögð þýzkra yfir-
valda hafa valdið félaginu von-
brigðum og orsakað að hinu
(Framhald á blaðsíðu 2).
NIU ÁREKSTRAR
SÍÐUSTU daga hafa árekstrar
verið tíðir á götum Akureyrar-
bæjar og taldi yfirlögreglu-
þjónninn 9 slíka, er blaðið leit-
aði frétta í gær af umferðinni.
M. a. hafði dráttarvagn rekizt á
þrjá bíla í einni lotu. Skemmd-
ir urðu töluvert miklar, en slys
engin á mönnum. Q