Dagur - 23.02.1966, Blaðsíða 1
Dag
ur
SÍMAR:
11166 (ritstjóri)
11167 (afgreiðsla)
XLIX. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 23. febrúar 1966 — 14. tbl.
annast ferðalagið.
Ekkert aukagjald.
Ferðaskrifstofan SAGA
Sími 1-29-50
Allir vegir lokuðust á ný
FRÁ AKUREYRI var ófært bif
réiðum í allar áttir í gær, er
blaðið spurðist fyrir um ástand
veganna. Síðasti bill fór yfir
Öxnadalsheiði síðdegis á sunnu
daginn. Mjólkurbílar frá Dalvík
vöru 14 klst. að komast heim til
sín í fyrradag, með hjálp ýtu.
Bílum var hjálpað til Svalbarðs
eyrar og Grenivíkur sama dag,
og fór bíll með snjóplóg fyrir.
Hjálparbíllinn komst til baka
með hjálp ýtu, kom í bæinn kl.
7 í gærmogun.
Trukkar úr Ö^nadal og
Hörgárdal voru ókomnir að
Bægisá um hádegi í gær.
Engin teljandi mjólk hafði
borizt til Samlagsins nokkru
eftir hádegi í gær, en bílar á
leiðinni úr Saurbæjarhreppi
með mjólk en gekk seint. □
Flugfélag íslands flufti yfir 130
þús. farþega í áætlunarflugi sl. ár
FLU GREKSTUR Flugfélags
íslands gekk mjög vel árið
1965 og fluttu flugvélar félags-
iris fleiri farþega en nokkru
sinni fyrr á einu ári. Veruleg
aukning var einnig á vöruflutn-
ingum og póstflutningum. AIl-
mörg leiguflug voru farin á ár-
inu. Félagið annaðist allt flug
á árinu með eigin flugvélum,
en að undanförnu, hafa verið
leigðar flugvélar erlendis frá
yfir mesta annatímann. Frá
mánaðamótunum maí—júní var
hin nýja Friendship skrúfuþota
félagsins að fullu í áætlunar-
flugi innanlands.
Millilandaflug.
Farþegar félagsins í áætlunar
flugi milli landa voru árið 1965
42.986, en voru 36.952 árið áður.
Aukning er 16,3%. Vöruflutn-
ingar milli landa jukust einnig.
Skemmdir af ísnum
1 FYRRADAG urðu skemmdir
á Torfunefsbryggju á Akureyri
af völdum ísreks. Ofurlítil
staurabryggja fram af hafskipa
bryggjunni, sunnan við dokk-
ina, lét undan og brotnuðu 13
eða 14 bryggjustaurarnir undan
ísnum. Er það mikið tjón á
þörfu mannvirki. □
Fluttar voru 437 lestir af vör-
um á móti 412 árið áður og er
aukning 6%.- Póstflutningar
milli landa námu 137 lestum á
mót; 115 lestum árið áður.
Aukning 19%.
Innanlandsflug.
í áætlunarflugi innanlands
fluttu flugvélar félagsins 88,064
farþega á móti 69,834 órið áður.
Aukning er 26%. Vöruflutning-
ar innanlands námu 1288 lest-
um á móti 1049 lestum árið áð-
ur, aukning 22,7%. Póstflutning
ar innanlands jukust einnig
verulega. Fluttar voru 177 lest-
ir, en 128 lestir árið á undan.
Aukning 38,2%,
Flugið í heild.
Samanlagur fjöldi farþega
Flugfélags fslands á áætlunar-
flugleiðum innanlands og milli
landa árið 1965 var því 131.050,
en voru 106,786. Aukning far-
þega í áætlunarflugi er 22,7%.
Allmargar leiguflugferðir voru
farnar á árinu, og voru í þeim
ferðum fluttir 5743 farþegar.
Samlögð tala farþega fluttra í
áætlunarflugi og leiguflugi s. 1.
ár er því 136,793. Sem fyrr seg-
ir gekk starfsemi félagsins vel
á árinu. Flugvélar þess voru á
lofti samtals 10.769 klst. og
flugu á fjórðu milljón kíló-
metra. (Fréttatilkynning).
Snjómokstursbíll að hreinsa snjó af bifreiðavegi í Alpafjöllum. Þessi vél vinnur á hjarnsnjó.
Hún tekur 2,5 m. á breidd og skafla allt að 1,5 m. djúpa í einni ferð og þeytir snjónum upp í
25 m. fjarlægð. Myndu ekki slík verkfæri henta hér?
Akureyrarhær auglýsir liúsnæði
í Skarðshlíðiimi,
sem hann byggði til að útrýma heilsuspillandi
íbúðum í kaupstaðnum
NÝVERIÐ hafa verið auglýstar
til sölu 8 íbúðir sem verið er að
byggja af Akureyrarbæ. Eru
þessar íbúðir í austurhelmingi
3ja hæða fjölbýlishúss við
Skarðshlíð, skammt norðan við
Glerá, og ætlaðar til útrýming-
ar heilsuspillandi húsnæði hér
í bæ. Hér er um að ræða 2
fjögurra herbergja íbúðir, 3
þriggja herbergja og 2 tveggja
herbergja íbúðir, en hverri í-
búð fylgir sérstakt þvottaher-
bergi og geymsla, auk sameig-
inlegrar geymslu fyrir reiðhjól
o. fl. þess háttar, en sameigin-
Búnaðarþing self í Bændahöllinni í gær
Formaður Búnaðarfélagsins og landhúnaðar-
ráðherra fluttu ávörp við þingsetninguna
BUNAÐARÞING var sett í
Bændahöllinni í Reykjavík ár-
degis í gær að viðstöddum
fjölda manns.
Búnaðarþingsfulltrúar frá hin
um ýmsu héruðum voru komn-
ir til þings og aðeins tveir
ókomnir er þingsetningin fór
fram. Þorsteinn Sigurðsson
bóndi á Vatnsleysu, formaður
Búnaðarfélags íslands bauð
þingfulltrúa og aðra viðstadda
velkomna og minntist sérstak-
lega tveggja látinna manna, sem
Búnaðarþing hafa setið en eru
nú látnir, þeirra Guðjóns Jóns-
sonar bónda í Ásum í Holtum
og Þórólfs Guðjónssonar bónda
í Fagradal í Dölum.
Þorsteinn gerði m, a. trygg-
ingamál landbúnaðarins að um-
talsefni, en það mál hefur verið
umræðuefni siðustu slíkra þinga
og í þeim hefur starfað stjórn-
kjörin nefnd á vegum ríkis-
stjórnarinnar. Er þar um að
ræða eflingu Bjargráðasjóðs og
búfjártryggingar. Ennfremur
ræddi formaðurinn um fóður-
bætiskaup og nauðsyn þess að
gefa frjálsan fóðurinnflutning
og innleiða nýja tækni, svo sem
að flytja fóðurkornið inn á tank
skipum og koma upp aðstöðu á
Akureyri og í Þorlákshöfn til
að taka á móti korninu, vinna
það og afgreiða til annarra
staða landsins. Þá ræddi hann
tímabundna offramleiðslu í
landbúnaðinum og óskaði, að
hún yrði ekki látin draga úr
framförum landbúnáðarins og
nauðsynlegum framkvæmdum.
Ingólfur Jónsson landbúnað-
arráðherra ávarpaði þingið.
Ræddi hann einkum offram-
leiðsluna, einkum smjörið, gerði
ekki grein fyrir úrræðum, en
taldi- óhæfu að draga úr fram-
leiðslunni. Betra vær; að framr
leiða of mikið en of lítið. og flest
ar landbúnaðarþjóðir hefðu við
einhverskonar offfamleiðslu að
stríða. Efling landbúnaðarins
væri þjóðinni nauðsyn.
í gær var skipað í hinar ýmsu
nefndir, sem venja er á Búnað-
arþingi. Mörg mál bíða af-
greiðslu þingsins. □
-Búnaðarþing er ráðgefandi
samkoma, sem þing og stjórn
hafa jafnan borið mikið traust
til í málefnum bænda. □
leg kynding er fyrir allar ibúð-
irnar. íbúðirnar eru fullfrá-
gengnar, bæði að utan og inn-
an. Ennfremur verður lóð jöfn-
uð og sáð í hana grasfræi og
innakstursbraut og bifreiða-
stæði púkkuð.
Um verð og greiðsluskilmála
segir svo á umsóknareyðublöð-
um:
Verð íbúðanna er:
2ja herb. íbúð kr. 540.000.00
3ja herb, íbúð kr. 660.000.00
4ra herb. íbúð kr. 890.000.00
Bæjarstjórn Akureyrar og
húsnæðismálastjórn háfa sam-
þykkt að lána út á hverja íbúð
samkvæmt IV. kafla laga nr.
19/1965, svo sem hér segir:
Út á 2ja herb íb. kr. 210.000.00
Út á 3ja herb. íb. kr. 280000.00
Út á 4ra herb. íb. kr. 390.000.00
Lán þessi verða til 40 ára og
vextir 7% p. a., jafngreiðslulán
(annuitet).
Reiknað er með, að kaupandi
sæki um og fái E-lán'húsnæðis-
málastjórnar,. sem nema kr.
280.000.00 á ibúð. Kaupandi gef
ur bæjarsjóði umboð til lán-
töku þessarar og bæjarsjóður
tekur við lánsfénu frá húsnæð-
ismálastjórn sem greiðslu.
Samkvæmt framanskráðu
þyrftu kaupendur því að greiða
bæjarsjóði, áður en afsal verð-
ur gefið út og íbúðirnar afhent-
ar, svo sem hér segir:
Fyrir 2ja herb. íb. kr. 50.000.00
Fyrir 3ja herb. íb. kr. 100.000.00
Fyrir 4ra hb. íb. kr. 220.000.00
Eins og þessar upplýsingar
béra með sér er varla um hag-
stæðari húsakaupamöguleika áð'
ræða nú sem stendur og líklegt
að allmargir vildu eiga þess kost
að ganga í kaup þessi og vonir
standa til að Akureyrarbær sjái
sér fært að halda áfram á þess-
ari braut. En jafnframt er þó
Ijóst að bærinn verður sjálfur
að eiga nokkum húsakost til að
leigja fólki, er ekki hefir að-
stöðu til að kaupa eigið hús-
næði enda þótt um hagstæða
greiðsluskilmála sé að ræða
miðað við núverandi aðstæður.
Blaðið hefir aflað sér upplýs-
inga um hver árleg afborgun er
af þeim lánum sem völ er á
samkvæmt ofanrituðu.
Af 40 ára láninu þarf að
greiða árlega:
Af 210 þús. kr. um 15.700 kr.
Af 280 þús. kr. um 21.000 kr.
Af 390 þús. kr. um 29.000 kr.
og af 280 þús. kr. láninu 18.500
kr., auk vísutöluálags.
Miðað við að væntanlegir
kaupendur þurfi ekkj að taka
lán til þess að standa við fyrstu
útborgun er árleg borgun af
húseigninni með fasteignagjöld-
um og lögboðinni tryggingu um:
38 þús. kr. af 2ja herbergja íbúð
45 þús. kr. af 3ja herbergja íbúð
53 þús. kr. af 4ra herbergja íbúð
eða frá 3200 kr. til 4400 kr. á
mánuði.
Eins og fyrr er sagt munu
margir verða að bíða eftir íbúð-
um, sem fást með slíkum kjör-
um, og enn fleiri, sem ekki eru
færir um, að inna af hendi þess-
ar- greiðslur. Er nauðsynlegt að
greiða á einhvern hátt úr þess-
um málum. □
Akureyrartogararnir
KALDBAKUR seldi í Grimsby
í gær 146 tonn fyrir 10.728 pund.
Svalbakur seldi á sama stað -í
fyrrádag 138 tonn fyrir 10.688
púnd. Harðbakur selur í Grims-
by í dag. Afli hans er 160 tonn.
Sléttbakur var á ísafirði í gær,
landaði þar einhverju af fiski,
en heldur út til veiða þegar
veður skánar.
□