Dagur - 02.03.1966, Side 7
7
Ingimar Eydal og Haraldur Sigurgeirsson við raíknúið orgel.
(Ljósm.: H. M. S.)
Hljóðfæra- og fónfistarkynning
fór fram í Lóni sl. sunnudag á
vegum Hljóðfæraumboðs Har-
alds Sigurgeirssonar, Akureyri.
Yoru m. a. sýnd og kynnt nýj-
ustu, sænsku hljóðfærin TU-
BON, KLAVINETT og KLA-
VITRON. Leikin • var af segul-
bandi tónlist, leikin á þessi hljóð
færi en einnig lék Ingimar Ey-'
dal á TUBÖN með aðstoð Egils
Eðvarðssónar, sem lék á CEM-
BALET. Létu áheyrendur undr
un í ljós yfir eiginleikum hljóð-
færisins, sem er hið fyrsta, sem
hingað kemur. Má velja um 4
tónbrigði þ. e. tón kontrabassa,
gítarbassa, saxofóns og fagotts.
Ingimar taldi TUBON mjög
skemmtilegt og hentugt hljóð-
færi fyrir minni hljómsveitir.
Af hljómplötum var svo leik-
in tónlist spiluð á HOHNER-
hljóðfærin PIANET, CEM-
BALET og 5 stærðir af raf-
magnsorgelum. Þar var tónlist
fyrir alla, allt frá villtum jazz
VORFERÐ MEÐ GULLFOSSI
Siglt með Gullfossi 7. maí. Komið til Kaupmannaliíafn-
ar 12. maí. Þaðan er ekið í langferðábíl um Danmörku
til Þýzkalands og Hollands. Gist er í bænum Debuen-
borst skainmt frá Ilamborg og í Amsterdam. A baka-
Jeiðinni er gist í Hamborg og dvalið í Kaupmanna-
liöfn. Þaðan er sigit 18. maí og komið til Reykjavíkur
23. .maí. \'erð lrá kr. 9.620.00 til 13.205.00, breytilegt
eftir því á hvaða farrými er ferðazt.
FERÐASKRIFSTOFAN
LÖND & LEIÐIR
GEISLAGÖTU . AKUREYRI
SÍMI 12940
Faðir okkar, fpsturfaðir og stjúpfaðir,
ARINBJÖRN ÁRNASON,
andaðist 26. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Akur-
eyrarkirkju föstudaginn 4. marz kl. 1.30 e. h.
Bjarney Arinbjarnardóttir,
Rágnheiður Arinbjarnardpttir, Snorri Arinbjarnái^on,
Skjöldur Guðmundsson, Ingimar Davíðsson
........ —, og aðrir vandamen.
til Handels og Bachs. Fram-
leiðsla á þessum elektronisku
orgelum er komin á mjög hátt
stig og sumir hljómar og blæ-
brigði („vibrato" og ,,echo“) hin
ótrúlegustu.
Til sýnis voru einnig margar
tegundir af HOHNER-munn-
hörpum, harmonika, melodikur
og rafknúið orgel, en þessi hljóð
færi eru orðin verulega út-
breidd hér. Orgelstóla, píanó-
stóla, píanóbekki og nótnagrind
ur útvegar Haraldur einnig.
Ennfremur veitir hann aðstoð
við kaup og sölu á notuðum
hljóðfærum.
Haraldur gat þess að lokum,
að hann hefði umboð fyrir flest-
ar tegundir hljóðfæra frá verk-
smiðjum í Danmörku, Svíþjóð
og V-Þýzkalandi en í þessum
löndum er hljóðfæraiðnaður á
mjög háu stigi. □
Leikfélag
Akureyrar
SWEDENHIELMS-
FJÖLSKYLDAN
Sýning í kvöld, miðviku-
dag, kl. 8.30.
Næsta sýning föstudag.
ELDRI-DANSA
KLÚBBURINN
Dansað í Alþýðuhúsinu
laugardaginn 5. marz^.
9 e. h. Húsið öpnað fyrir
miðasölu kl. 8 sanra kvöld
Fastir miðar seldir á föstu-
dagskvöld milli kl. 8—10.
Munið að nræta eða
hringja og tryggið ykkur
borð og nriðá. Föstu mið-
arnir aðeins seldir fyrra
kvöldið.
NEMÓ leikur.
Stjórnin.
Guðmundur Gunnarsson í hlut-
verki Swedenhielnis, en fyrir
það hlutverk hefur hann hlotið
einróma lof.
Leikfélag Akureyrar
hefur nú sýnt gamanleikinn
Swedenhielmsfjölskylduna sex
sinnum við ágæta aðsókn og
undirtektir áhorfenda.
Sýningum verður nú hraðað
eftir föngum og verða næstu
sýningar í 'kvöld, miðvikudags-
kvöld, og föstudagskvöld. □
□ RÚN 5966327 — 1 \ Atkv.
I.O.O.F. 147348%,
MESSAÐ verður í Akureyrar-
kirkju n. k. sunnudag (æsku-
lýðsdaginn) kl. 2 e.h. Kristján
Guðmundsson stud. theol.
prédikar, en ungmenni lesa
pistil og guðspjall. — Sálmar:
23 — 648 — 420 — 424 — 318.
B. S.
FÖSTUGUÐSÞJÓNUSTA í Ak
ureyrarkirkju í kvöld (mið-
vikudag) kl. 8,30. Sungið
verður úr Passíusálmunum
og er fólk beðið um að taka
þá með sér í kirkjuna. Það
verða þessir sálmar: 5. sálm-
ur 1—5 vers, 6. sálmur 8—13
vers, 7. sálmur 1—5 vers, og
Son Guðs ertu með sanni. —
P. S.
LÖGM ANN SHLf Ð ARKIRK J A.
Hinn álmenni æskulýðsdagur
er á sunnud^ginn. Messað kl.
2 e. h. Unglingár lesa ritning-
arorð og auk kirkjukórsins
syngur barnakórinn yið Gler-
árskólann eitt lag. Sálmar m-.
43, 572, 318, 420 og 4’24. Ösk-
að er eftir að eldri sem yngri
fjölmenni. Bílferð verðúr frá
gatnamótum Glerárhverfis
hálf tíma fyrir messu. P. S.
SUNNUDAGASKÓLI AKUR-
EYRARKIRKJU verður n. k.
sunnudag kl. 10.30 í kapell-
unni og kirkjunni. Oll börn
hjartanlega velkomin.
Sóknarprestar.
MÖÐRUVALLAKLAUSTURS
PRESTAKALL. . Nk. spnnu-
dagur er hinn s. n. æskúlýðs-
dagur kirkjúnnar. Til þess ér
ætlazt, að sérstök æskulýðs-
guðsþjónusta fari fram þann
dag. En þegar aðstæður
sveitaprestanna eru teknar
til greina, hinna mörgu sókna
þeirra flestra, og auk þess
vetraríki þessa tíma, eru auð
sénir agnúar á framkvæmd
einstakra sérhæfðra messu-
daga. Tilhögunin hér verður
þessi um æskulýðsdaginn:
Þelamerkurskóli miðvikudag
2. marz kl. 8 eftir hádegi
(yngri deild), miðvikudag 9.
marz kl. 8% e. h. (eldri
deild). Hjalteyrarskóli sunnu
daginn 6. marz kl. 10% fyrir
hádegi. Þá skal á það minnt,
að æskulýðsmessa verður á
Möðruvöllum á pálmasunnu-
dag samkvæmt venju fráfar-
andi sóknarprests. Á. S.
MÖÐRUVALLAKLAUSTURS-
PRESTAKALL. Messað í
Glæsibæ sunnudaginn 6. marz
kl. 2 e. h. Föstumessa að
Bægisá sama dag kl. 9 e. h. —
Sálmar: 148 — 330, 374 —
232. A. S.
wmmew
LÍTIL ÍBÚÐ ÓSKAST
Einhleyp kona, sein vinn-
ur 6—8 mánuði á áii utan
bæjarins, óskar eftir lítilli
íbúð eða herbergi með að-
gangi að eldbúsi.
Uppl. í síma 2-11-94.
Fjögurra herbergja
ÍBÚÐ Á ODDEYRI
til sölu.
Uppl. í sírha 1-17-52.
FRA GUpSPEKISTÚKUNNI.
Aðalfundur verður haldinn
fimmtudaginn 3. marz kl. 8,30
síðdegis, á venjulegum fund-
arstað. Erindi.
ZION: — Sunnudaginn 6. marz.
Sunnudagaskóli kl. 11 f. h. —
Öll börn velkomin. Samkoma
kl. 20.30. Halla Bachmann
kristniboði flytur kristniborðs
þátt. Allir velkomnif.
ÁRSHÁTÍÐ Vestfirðingafélags-
ins verður í Sjálfstæðishús-
inu 5. marz. Fjölmennið og
takið með ykkur gesti. Sjá
auglýsingu í síðasta blaði. —
Skemmtinefndin.
TIL fólksins sem missti heimili
sín í brunanum á Gleráreyr-
um: G. S. kr. 200, Björg kr.
200, S. I. kr. 300. Beztu þakk-
ir. Birgir Snæbjöi-nssön.
TIL Rauðakross fslands frá
öskudagsflokki Ásdísar Gunn
laugsdóttur og Sigríðar Sig-
urðardóttur kr. 165. — Beztu
þakkir. Birgir Snæbjörnsson.
TIL Styrktarfélags Vangefinna
frá öskudagsliði Sigurveigar
og Ingibjargar Glerárhverfi
kr. 210. — Með þakklæti mót-
tekið. J. Ó. S.
Á R S Þ 1 N G í. B. A.
(síðari þingdagur) fer
fram föstudaginn 4.
marz n. k. í Sjálfstæð-
ishúsinu (litla sal) og hefst
kl. 8.30 e. h. Framkvæmda-
stjórn í. S. í. mætir á þing-
inu. Stjórn f. B. A.
I.O.G.T. Stúkan fsafold-Fjall-
kbnan nr. 1. Fundur fimmtu-
daginn 3. marz kl. 8,30 e.
h. í Alþýðuhúsinu (ekki
Bjargi). Systur í öllum emb-
ættum. Fundarefni: Vígsla
nýliða. Eftir fund skemmtiat-
riði, kaffi, dans. Bræðurnir
sérstaklega boðnir á fundinn.
Mætum stundvíslega. Æ. T.
Opinn í kvöld í Sjálfstæðis-
húsinu niðri. Dagskrá: Kvik-
myndasýning, dans. Hinir vin
sælu Comet leika. Aukið úr-
val leiktækja.
Framkvæmdanefndin.
FRÁ SJÁLGSBJÖRG.
Munið árshátíðina n.k.
laugardagskvöld að
Bjargi.
ÍSLENZK-AMERÍSKA FÉLAG
1Ð. Kvikmyndasýning verður
í Lesstofu félagsins miðviku-
daginn 2. marz kl. 8.30 e. h.
Sýnd verður mjög falleg og
vel gerð mynd frá Suður-
heimskautsleiðangri Dr.
Vivian Fuchs og Sir Edmund
Hillary. Auk þess yfirlits-
mynd með íslenzku tali.
Stjórnin.
iK«8pipiC«ð58Iið6aðW»9(
AUGLÝSIÐ í DEGI