Dagur - 30.03.1966, Blaðsíða 4
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
NÝJA UPPBÓTARKfJtFIÐ
F R U M V A R P ríkisstjómarinnar
vegna sjávarútvegsins, bar vott um
jtað, sent ratinar orkar ekki lengur
tvímælis, að kornið er á hér á landi
nýtt uppbótarkerfi í verulegum
hluta útflutningsframleiðslunnar,
samhliða niðurgreiðslukerfinu. En
til niðurgreiðslu á vörum innanlands
er í fjárlögum fyrir árið 1966 gert
ráð fyrir að verja nálega 560 milljón-
um króna á yfirstandandi ári.
I>etta uppbóta- og niðurgreiðslu-
kerfi er að sjálfsögðu rökrétt afleið-
ing af þeirri þróun, sem orðið liefur
á öðrum sviðunt efnahagslífsins, þ. e.
hinni sívaxandi dýrtíð síðustu ára.
í 1. gr. þessa frumvarps er ákveðið
að greiða úr ríkissjóði 25 aura verð-
uppbót á livert kíló af línufiski og
handfærafiski, og áætlað að sú upp-
hæð nemi um 200 millj. króna. Sam-
kvæmt 2. gt'. frumvarpsins á að
greiða 50 milljónir króna á frain-
leiðslu hraðfrystihúsanna, og í 3. gr.
heimilaö að greiða allt að 10 millj.
kr. til verðuppbóta á skreiðarfram-
leiðsluna. Það er að vísu orðað svo,
að 50 milljónirnar skuli greiða til
framleiðsluaukningar og endurbóta,
en í umræðum um þetta mál kom
glöggt fram, hverskonar greiðslur
hér er raunverulega um að ræða.
Samtals eru gjöld samkvæmt frum-
varpinu áætluð 80 millj. kr. Við
jietta bætist svo Jtað fé, sem greitt er
vegna framleiðslu togarafisksí 40
millj. kr.
Bætur Jtarf að inna af höndum á
sama tíma sent verð hefur hækkað
I tií muna á sjávarafurðum erlendis.
Að Jtví hníga nú flest rök, að Jtær
uppbætur, sem hér hafa verið gerðar
að umtalsefni, séu óhjákvæmilegar
til þess að sú útflutningsframleiðsla,
sem hér á lilut að, fái staðizt. Á sum-
um sviðum Jtyrfti meira til að koma,
ef duga skal. Uppbótin til frystihús-
anna verður, ef hún verður greidd á
sama liátt og áður, allskostar ófull-
nægjandi fyrir Jtau frystihús eða
vinnslustöðvar, er erfiðasta hafa að-
stöðuna, og eru Jtá einkum höfð í
Ituga ýmis frystihús á Jtví svæði, Jtar
sem sumaryeiðar eru stundaðar, og
Jtá sérstaklega norðanlands.
Fé til Jteirra upbóta, sem gert er
ráð fyrir, er ekki veitt á fjárlögum
Jtessa árs. í Jtess stað gerir fjármála-
ráðherrann nú tilfærslu í vippbóta-
og niðurgreiðslukerfinu, til að hægt
sé að greiða Jtessar 80 millj. kr. Hann
gerir Jtað með Jtví að lækka niður-
greiðslur á vöruverði innanlands um
80 millj. kr. á þessu ári. Við Jtað hlýt
ur vöruverð að hækka að mun, sem
aftur leiðir af sér hækkaða vísitölu
og meiri og minni útgjaldaaukningu
hjá ríkissjóði.
„ÞVf HEFUR LORELEI VALDID"
ALÞÝÐUFLOKKURINN hélt
upp á fimmtugsafmæli sitt hér
á dögunum og tyllti sér þá sem
bezt hann gat á tá til þess að
reyna að leyna smæð sinni.
Flokkurinn gaf við þetta tæki
færi út sérstakt rit (fylgirit með
Alþýðublaðinu) að vísu „í litlu
broti“, en „prentað á góðan
pappír“, eins og Alþýðublaðið
komst að orði í auglýsingu.
í þessu riti grobba forkólfar
Alþýðuflokksins af sjálfum áér
og flokknum. Þó er þar ein und-
antekning að því, er flokks-
grobbið snertir. Á bls. 17—22 er
þáttur úr óprentaðri minninga-
bók, sem Stefán Jóh. Stefánsson
kvað vera búinn að rita. Nefnir
hann þennan þátt: „Hrævarelda
og Lóreleiseið“. Er tekið fram
að með fyrirsögninni sé skírskot
að til villuljósanna, sem kölluð
hafa verig hrævareldar, „blossa
fagurlega, lýsa og lokka“, og til
sögunnar af Lorelei, sem töfraði
með unaðsfögrum söng sínum
hina gálausu skipsíjóra, er
sigldu um Rín, svo þeir misstu
stjórn á skipi sínu.“
Allir munu kannast við hið
fræga kvæði eftir Heine um
Lorelei. Það þýddu þeir báðir,
hvor í sínu lagi, á íslenzku
Steingr. Thorsteinsson og Hann
es Hafstein.
Stefán Jóhann Stefánsson
segir hreinskilnislega: „Til hafa
orðið þeir kaflar í sögu Alþýðu-
flokksins, er minna á sjónhverf-
ingu hrævarelda og seiðandi
söng LoreIei“.
Stefán Jóhann Stefánsson seg
jr í þessum þætti sínum frá,
þeim raunakafla í sögu Alþýðu-
flokksins, þegar flokkurinn heill
aðist af söng kommúnista á ár-
unum 1937 og 1938 og Héðinn
Valdimarsson hvarf til þeirra
með fjölda manns, en samþykkt
var í Dagsbrún mótatkvæðalít-
ið að reka Jón Baldvinsson, og
með því „skorið á hina veiku
lífstaug11 hans.
Þá var það, sem Jónas Jóns-
son frá Hriflu skrifaði í Tímann
um þessa atburði o. fl. grein
undir fyrii’sögninni: „Með
leiðslutöfrasöng“, sem er tilvitn-
un í kvæðið um Lorelei. Er aug-
ljóst að áhrif greinar J. J. sitja
enn í huga Stefáns og gefa hon-
um sýn. Svo sterk geta tök list-
arinnar verið. —
Umræddur þáttur Stefáns
Jóh. í afmælisritinu nær ekki
nema til eins kafla um Lorelei-
seið, sem Alþýðuflokkurinn hef
ir orðið fyrir á fimmtíu ára
skeiði sínu, en þess er þar rétti-
lega getið, að þeir hafi orðið
fleiri. Foringjar hans hafa verið
veikir af sér fyrir villuljósum
hrævarelds og söngvaseiðum.
Árið 1956 þvarr Hannibal
Valdimarssyni varúð, svo hann
sigldi á sama skerið og Héðinn
Valdimarsson og með honum
týndist ótalinn hluti Alþýðu-
flokksins.
Á sjö síðastliðnum árum hafa
fyrirliðar Alþýðuflokksins ekki
haft stjórn á skipi sínu,
vegna þeirra söngva, sem Sjálf-
stæðisflokkurinn hefir sungið
þeim. Á þá Lorelei hlusta þeir
í leiðslu, dást að gullkambinum,
sem hún greiðir sér með, svipt-
ir ráði og rænu.
Framundan þeim eru „löðr-
andi rifin“, en þeir taka ekkert
tillit til þeirra, því svo heillaðir
eru þeir af seiðkonunni.
Þeir hafa kastað fyrir borð
sínu gamla heiðarlega leiðar-
korti. Og í þessari Rínarferð
sinni hafa þeir — svo aðeins
eitt dæmi af ótal sé nefnt —
gengið • inn á samning við
Lorelei gullkambsins, um að
þeir fátæku menn, sem taka lán
til íbúðabygginga hjá Húsnæðis
málastofnun ríkisins, skuli
greiða lán sín, og vexti með vísi-
töluálagi, þó við aðrar lánveit-
ingar gildi ekki sú regla. Borga
þeir lántakendur nú í fyrsta ár-
gjald kr. 18.398.00 og með sömu
verðbólguþróun og síðustu ár,
þ. e. sömu töfrasöngssiglingu,
verður seinasta árgjaldið komið
upp í kr. 199.272.00.
Þrátt fyrir þetta grobbuðu
þessir foringjar óspart á fimm-
tugsafmælinu af flokksafrekun-
um, nema Stefán Jóhann.
Sagan af seiðkonunni, Lorelei,
endar þannig, að „fljótsaldan
ströng“ hvolfir fleyinu. □
- Erfiðar samgöngur
(Framhald af blaðsíðu 8.)
byggða á snjóbílnum. Þessi
læknisþjónusta væri tvímæla-
laust nær óframkvæmanleg við
núverandi samgöngur, ef ekki
nyti við snjóbílsins. í annan stað
mætti þetta verða mönnum um-
hugsunarefni, hvernig komið er
læknisþjónustu í dreifbýli hér á
landi.
Að sjálfsögðu hefur ótíðin
dregið mjög úr félagslífi innan
sveitar. Helzt hafa bridgemenn
reynt að ná saman til keppni
einu sinni í viku og þorrablót
komst á í þorralokin. Nýbreytni
í skemmtanalífi hér var bingó-
kvöld er Lionsklúbburinn Nátt-
fari gekkst fyrir og þótti mörg-
um góð tilbreyting. Um síðustu
helgi var fyrirhuguð upptaka á
þættinum „Sýslurnar svara“
hér á Breiðumýri, keppni Norð-
Mýlinga og Þingeyinga. Sam-
gönguerfiðleikar og óhöpp lögð
ust á eitt með að hindra, að
stjórnendur þáttarins og kepp-
endur Norð-Mýlinga kæmust
hingað austur. Flugvöllur í
Aðaldal var lokaður og snjóbíll
bilaði, er flytja skyldi fólkið
hingað austur fx-á Akureyri.
Fóru keppendur Þingeyinga þá
á snjóbíl til Akureyrar sl. sunnu
dag, svo sem skýrt hefur verið
fi'á í blöðum.
Sl. sunnudagskvöld og á mánu
dagsnóttina tefldu nemendur
Reykjaskóla og Laugaskóla sím
skák sín í milli á 12 borðum.
Veitti hinum fyi-i-nefndu betur
og hlutu 8y2 vinning á móti 3V2.
Skólahald hefur gengið með
agætum að Laugum í vetur og
heilsufar nemenda verið áber-
andi gott. Má e. t. v. þakka það
slæmum samgöngum, að kvill-
ar og farsóttir hafi síður borizt
í skólann en ella. G, G.
Frú Sólveig Pétursdóttir Eggerz níræi
ÁRIÐ 1901 urðu prestaskipti
að Völlum í Svai'faðai'dal, er
séra Tómas Hallgi'ímsson, er
hafði þjónað því prestakalli all-
lengi féll frá.
Þann 21. ágúst sama ár voru
Stefáni Kristinssyni guðfræði-
kandidat frá Yztabæ í Hrísey,
glæsilegum gáfumanni, veittir
Vellii'. Hann vígðist til pi-esta-
kallsins 22. september sama ár.
Séra Stefán þjónaði Valla-
prestakalli alla sína pi'estskap-
artíð við mikla vinsemd og virð
ingu sóknax-bai'na sinna. Hann
lét af embætti 1941 og hafði þá
þjónað því í 40 ár og jafnframt
verið prófastur Eyjafjarðar-
sýslu frá 1927.
í prestskapartíð séra Stefáns
sameinaðist Tjarnarprestakall
Vallaprestakalli og tók það þá
yfir Svarfaðardal allan, Árskógs
strönd og Hrísey.
Séra Stefán var kvæntur Sól-
veigu Pétursdóttur Eggerz, al-
systur Guðmundar og Sigurðar
Eggerz fyrrverandi forsætisráð-
herra og Ragnheiðar, er gift var
Olafi Thorlacius lækni. Öll voru
þessi systkin landskunn að
glæsileik og atgerfi.
Þegar þau prestshjónin Stef-
án og frú Sólveig fluttu að
Völlum í Svarfaðardal var ég
piltur um fermingaraldur og
átti síðar eftir að verða heima-
gangur á heimili þeirra og njóta
vináttu þeirra, því lætur að lík-
um er ég nú læt hugann reika
til baka yfir liðna tíð, þá renna
margar myndir upp úr djúpi
minninganna, sem Ijúft er að
orna sér við. Það ber þó eigi
svo að skilja, að níræðisafmæli
frú Sólveig hafi vakið þessar
minningar úr dái, því fer víðs-
fjarri. Þær hafa jafnan án þess
verið í fullu fjöri, aðeins ekki
festar á blað fyrr.
Mér hefir jafnan verið í ljósu
minni, er ég leit frú Sólveigu í
fyrsta sinni. Það var sumarið
1901, eða sama árið og þau
fluttu að Völlum. Þau hjónin
komu í heimsókn til foreldra
minna að Tjörn í hópi mennta-
manna.
Meðan gestirnir dvöldu var
ekki skortur á umræðuefni og
skoðanir skiptar, og er ekki í
sögur færandi. En það var kon-
an í hópnum, sem vakti undrun
mína. Ég ^at ekki betur fundið,
en hún væri skeleggust af öll-
um í orðaviðskiptunum og bæri
sigur af hólmi. Aldrei hafði ég
orðið þess var áður að konur
dirfðust að leggja út í kappræð
ur við hámenntaða menn og
ætla sér að hnésetja þá, en þetta
fannst mér frú Sólveig gera og
voru þp þarna engir meðalmenn
á ferðinni.
Þetta var mér einskonar opin
berun og opnaði mér nýjan
skilning á því, hversu fjarri
sanni það væri að konur ættu
að vera einskonar bergmál af
mönnum sínum skoðanalega,
og helzt þegja og láta sem
minnst á sér bera. En sá var, að
ég ætla all-almennur skilningur
um aldamótin síðustu.
Þessi voru mín fyrstu kynni
af frú Sólveigu. Ég varð hrifinn
af glæsileik hennar og persónu-
töfrum. Ég fann þó fáfróður
væri að um þessa konu lék nýr
ferskur hressandi andblær.
Fann að þar fór sannmenntuð
kona, hvort sem hún hefði öðl-
azt þá menntun í gegnum skóla
göngu eða á annan hátt. Og
þessi ferski andblær átti eftir
að vinna sitt verk í svarf-
dælsku félagslífi.
Ekki höfðu ungu presthjónin
setið lengi á Völlum er heimili
þeirra var orðin miðstöð sveita-
lífsins. Þangað sóttu ungir og
gamlir og allir jafn hjartanlega
velkomnir. Þar ríkti húsmóðir-
in sem drottning í ríki sínu, og
lét ekkert við neglur skorið,
veitingar, vinsamlegt viðmót
eða glaðværð. Húsbóndinn mun
hiklaust hafa fengið henni þau
völd í hendur, og látið sér vel
líka þó mikið þyrfti til heimilis-
ins að leggja. Þar virtist aldrei
skortur á neinu. En þau söfn-
uðu heldur ekki miklum auði á
Völlum, en þeim mun meira
þakklæti og virðingu.
Þeim sem kynntust Valla-
heimilinu í tíð þeirra hjóna
mun það seint úr minni líða.
Höfðingsskapur frú Sólveigar
náði langt út fyrir heimilið.
Fátækir nágrannar munu ósjald
an hafa orðið þess varir að auga
var haft með þeim og hjálpsam-
ar hendur prestsfrúarinnar á
Völlum bættu úr ýmissi nauð-
þurft þeirra enda virtu þeir
hana og dáðu í senn.
Sami ljósi skilningurinn á
þörf æskunnar til félagslífs og
heilbrigðar gleði kom greinilega
í ljós. Þau studdu hverskonar
viðleitni til félagslegra samtaka
æskunnar og voru innilega
hlynnt ungmennafélagshreyfing
unni er hún var að stíga sín
fyrstu spor hér og studdu hana
á margan hátt.
Frú Sólveig er þannig að eðl-
isgerð, að hún lætur sér ekkert
mannlegt óviðkomandi, það
ættu Svarfdælingar bezt að vita,
sem voru svo hamingjusamir að
njóta samskipta þeirra hjóna
um 40 ára skeið, meðan þau
voru í blóma lífsins.
Hjálpsemi frú Sólveigar var
frábær og hluttekning hennar í
raunum og sjúkleika annarra
beindust jafnan að raunhæfum
aðgerðum, ef unnt var úr að
bæta.
Engan hvorki karl né konu
hefi ég þekkt, er betur kunni að
bera mönnum sorgarfréttir eða
voveiflega hluti, enda kom það
ósjaldan í hennar hlut að fara
svo þungra erinda. Hin innilega
en rólega hluttekning hennar
með syrgjendunum, ásamt sterk
um persónuleika verkaði frið-
andi og styrkjandi og dró úr
sárasta sviða.
Félagsmál kvenna í Svarfað-
ardal lét hún til sín taka og var
í forystustöðu um stofnun
kvenfélags og formaður þess um
mörg ár og fulltrúi á sambands-
fundum íslenzkra kvenfélaga.
Starfsemi kvenfélagsins var
frá upphafi fyrst og fremst hugs
uð sem hjálparstarfsemi innan
sveitarinnar, og er svo enn, og
eru þeir ótaldir er frá þessari
starfsemi hafa hjálpar notið.
Það yrði of langt mál ef rifja
skyldi upp allt það er frú Sól-
veig lagði lið, meðan hún dvaldi
hér í Svarfaðardal og skal ég
því eigi lengja mál mitt frekar,
en það skal þó sagt að flest
spor frú Sólveigar voru mörk-
uð sama markinu. Stuðningur
við góð málefni og hjálp til
þeirra er hjálpar var þörf. Eig-
um við nokkuð göfugra að
stefna að?
Ég óska henni til hamingju
með lífsstarfið. Ég vil þá að lok-
um fyrir mína hönd barna
minna og sveítunga allra færa
frú Sólveigu hinar hjartanleg-
ustu hamingjuóskir á níræðis-
afmæli hennar og ástarþakkir
fyrir óvenju skemmtilega og
lærdómsríka samfylgd og vin-
áttu alla. Jafnframt sendum við
börnum og sifjaliði hennar öllu
beztu kveðjur og hamingju-
óskir.
Þórarinn Kr. Eldjárn.
UM UTCAFU NAFNSKIRTEINA
Á SÍÐASTLIÐNU ári voru
gefin út nafnskírteini til allra
einstaklinga fæddra 1953 og
fyrr, sem voru skráðir hér á
landi 1. desember 1964. Var
þetta gert sámkvæmt lögum
nr. 25/1965, um útgáfu og notk-
un nafnskírteina. Þessi fyrst út
gefnu skírteini voru um 140.000
að tölu. Hófst afhending þeirra
um mitt ár 1965 og henni var að
mestu lokið fyrir áramót. Lög-
reglustjórar önnuðust dreifingu
skírteina.
Nafnskírteini eru gerð fyrir
STÓR HÁKARL
Ólafsfirði 28. marz. Hér eru
ógæftir og erfitt um sjósókn.
Margir bíða með grásleppunet
sín þangað til veður stillast. Og
enn er hér hríðarhraglandi.
Hér kom á land um daginn
vænn hákarl, sem Guðbjörg
fékk í þorskanet og reyndist
rúmlega 1100 ltg. Hákarlinn á
að verka að gömlum og góðum
sið. Það kemur oft fyrir að smá-
got (litlir hákarlar) festast á
línu og hefur það einnig verið
svo í vetur. Hvort meira sé af
hákarli nú en áður á fiskimið-
um, skal ósagt látið. B. S.
alla einstaklinga 12 ára og eldri,
og þarf því árlega að gefa út
skírteini til barna, sem verða 12
ára á viðkomandi ári, o gtil
einstaklinga erlendis frá, sem
orðið hafa skráningarskyldir hér
á landi á undanförnu þjóðskrár-
ári. Hafa nú verið gefin út nafn
skírteini til þeirra, sem eiga að
fá þau 1966, og eru þau nú til-
búin til afhendingar hjá lög-
reglustjórum um allt land. —
Tala barna í árgangi 1954, sem
fær nafnskírteini í ár, eru um
4.700. Þar við bætast einstakl-
ingar, sem voru nýskráðir hér
á landi 1. desember 1965, um
800 manns.
í Reykjavík og nokkrum öðr-
um umdæmum fer afhending
nafnskírteina til 12 ára barna
fram í skólum, en þar sem svo
er ekki skulu 12 ára börn vitja
nafnskírteinis síns í skrifstofu
hlutaðeigandi sýslumanns eða
bæjarfógeta.
Einstaklingar eldri en 12 ára,
sem nú hafa verið gefin út
nafnskírteini til, vitja allir nafn
skírteinis síns í skrifstofu hlut-
aðeigandi lögreglustjóra, sýslu-
manns eða bæjarfógeta.
Ekki er skylda að hafa mynd
á nafnskírteininu, en einstakl-
ingar 12—25 ára eru hvattir til
að láta setja mynd á skírteinið,
helzt um leið og þeir fá það
afhent. q
Fyrsta keppni um hið fagra glímuhorn Norðlendingafjórðungs, sem
KEA gaf, fer fram á Akureyri nú í vor.
GSímunámskeið hðldið á Akureyri
ÍÞRÓTTABANDALAG AKUR-
EYRAR og Ungmennasamband
Eyjafjarðar hafa ákveðið að
efna til glímunámskeiðs hér í
bænum, ef þátttaka fæst. Kenn
arar verða Haraldur M. Sigurðs
son og Þóroddur Jóhannsson og
auk þeirra mun Þorsteinn
Kristjánsson glímukennari
Glímusambands íslands leið-
beina einhvern tíma. Glímunám
skeið þetta, sem hefst nú í vik-
unni stendur öllum opið og
skulu væntanlegir þátttakendur
hafa samband við Harald í síma
11880 eða Þórodd í síma 12522
fyrir n. k. föstudag og þeir
munu veita nánari upplýsingar
um námskeiðið.
Glímusambandið hefir gefið
út ný glímulög, sem miða að því
að glímunni sé ekki misþyrmt,
eins og oft hefir átt sér stað
undanfarin ár. Verður lögð sér-
stök áherzla á, að útskýra og
framfylgja þessum nýju reglum
á námskeiðinu, og einnig verða
sýndar glímumyndir. Ef aðstæð-
ur leyfa verður efnt til glímu-
keppni í lok námskeiðsins.
Glímuáhugi er vaxandi og all
mikill í landinu, sérstaklega fyr
ir sunnan, þar æfa mörg hundr-
uð manns glímu. Um nokkurt
skeið hafa Norðlendingar sýnt
glímunni mjög takmarkaðan
áhuga, en tæplega getur sú þró-
un talist eðlileg. Það glímunám-
skeið sem framundan er, mið-
ar að því, að endurvekja þessa
karlmannlegu íþrótt hér um
slóðir, og ættu sem flestir pilt-
ar að kynnast kostum glímunn-
ar af eigin raun, með því að
sækja námskeiðið.
REGLUGERÐ
um Glímuhorn Norðlendinga-
fjórðungs
1. gL'.
Glímuhorn Norðlendingafjórð-
ungs er gefið af Kaupfélagi Ey-
firðinga til glímukeppni (al-
menn glíma) í Norðlendinga-
fjórðungi.
2. gr.
Rétt til þátttöku í þessari glímu
keppni hafa allir félagar íþrótta
og ungmennafélaga í eftirtöld-
um sýslum og kaupstöðum
Norðlendingafjórðungs: Vestur-
og Austur-Húnavatnssýslur,
Skagafjarðarsýsla, Eyjafjarðar-
sýsla, Norður- og Suður-Þing-
eyjarsýslur og Sauðárkrókur,
Siglufjörður, Ólafsfjörður, Ak-
ureyri og Húsavík.
lí
3. gr.
Keppt skal um glímuhornið ár-
lega að vetrinum. Handhafi
þess verður sá, er vinnur glím-
una hverju sinni.
4. gr.
Vinni sami maður glímuhornið
þrisvar í röð eða fimm sinnum
alls, hlýtur hann það til eignar.
5. gr.
Handhafi glímuhornsins ber
ábyrgð á því meðan það er í
vörzlu hans. Nafn hans og
keppnisdag skal grafa á glímu-
hornið og er þeim, sem sér um
mótið, skylt að sjá um, að svo
sé gert.
6. gr. '
Glímuhorninu fylgir gerðabók.
í hana skal rita nákvæma grein
argerð um hverja glímukeppni,
þar sem tilgreind séu nöfn alh-a
keppenda, aldur, heimili og
vinningar. Þar skal skrá nöfn
starfsmanna mótsins, svo og
söguleg atriði, ef einhver verða.
7. gr.
Glímusamband íslands sér um
fi-amkvæmd þessa glímumóts
eða felur það öðrum aðila.
i
8. gr.
Reglugerð þessi öðlast gildi 1.
febrúar 1966. Q
I Rauðhausafélagið |
Saga eftir
SIR ARTHUR CONAN DOYLE
12
— Ég er hræddur um, að svo verði að vera. Ég lrafði nú
stungið spilunr í vasann, því að mér datt í hug, að úr Jtví að
við værurn hér fjórir, Jtá gætum við komið því svo fyrir, að
Jtér fengjuð að taka í slag, bankastjóri, Jtrátt fyrir allt. En ég
þykist sjá, að aðgerðir óvinanna séu Jiað langt á veg konmar,
að við getum ekki freistað þess að hafa ljós. í fyrsta lagi
verðum við að kjósa okkur stöðu. Þetta eru menn, sem láta
sér fátt fyrir brjósti brenna, og Jró að við ráðumst að Jreirn
úr launsátri, geta þeir unnið á okkur, ef við gætum ekki
fyllstu varúðar. Ég ætla að standa á bak við Jrennan kassa,
og þið skýlið ykkur bak við þessa Jrarna. Samstundis og ég
varpa Ijósinu á Jiá, umkringjum við Jrá eldsniiggt. Ef Jieir
skjóta, Watson, hikarðu ekki eitt andartak við að skjóta Jrá
niður.
Ég sétti skammbyssuna, með spenntan gikk, ofan á kass-
■ann, sem ég kraup bak við. Holrnes dró lokuna fyrir ljós-
opið á ljóskerinu. Allt í einu vorum við þarna í niðamyrkri,
svo kolsvcirtu myrkri, að ég hafði aldrei reynt annað eins.
Lyktin af heitum málminum var það eina, sem gaf okkur
til kynna, að ljósið væri þarna enn [rá og gæti leiftrað upp
hvenær sem væri. Taugar mínar voru spenntar af eftir-
væntingunni. Það var eitthvað þrúgandi, allt að því yfir-
Jryrmandi við þetta skyndilega myrkur og kalda og raka
kjallarahvelfinguna.
— Þeir eiga ekki nema eina undankomuleið, hvíslaði
Holrnes. Það er til baka gegnum húsið og út á Kóburg-
torgið. Ég vona, að Jrér hafið gert Jiað, sem ég bað yður,
Jones?
— Ég setti einn lögregluforingja með tveimur lögreglu-
Jrjónum við útidyrnar. Þeir bíða Jrar.
— Þá höfum við troðið í öll a,öt. En nú verðum við bara
að bíða — og það steinþegjandi.
Hvílíkan óratíma biðurn við ekki! Eða svo fannst okkur
að minnstá kosti, Jxí að við athugun eftir á reyndist það
vera fimm stundarfjchðungar. Mér fannst Jrað vera næsturn
öll nóttin, og dögunin hlyti að vera á næstu grösum. Ég var
allur orðinn sárjrreyttur og limir mínir stirðnaðir, [rví ég
Jrorði ekki að róta mér. Taugar mínar voru spenntar til
hins ýtrasta og heyrn mín svo næm í myrkrinu, að ég heyrði
ekki aðeins andardrátt félaga rninna, heldur greindi ég
greinilega djúpan undirtón, Jregar jötunninn hann Jones
dró andann, frá mjóróma andvarpssuðinu í andardrætti
bankastjórans. Úr felustað mínum gat ég horft yfir kassatm
og frarn á gólfið. Allt í eíriu tók ég eftir örlitlu íjósbliki.
í fyrstu var [rað eins og ljósvana gneisti á flísarhellunum.
Svo lengdist Jretta í gulleíta ljósrák, og þá opnaðist alveg
hljóðlaust dálítil gátt og í ljós kom hönd, grönn og hvít eins
og konuhönd, sem þreifaði fyrir sér í daufri birtunni. Stund-
arkorn störðum við á Jiessa hvítu hönd, sem stóð með Jrreif-
andi fingrum upp úr gólfinu. Svo hvarf luin skyndilega.
Allt var aftur í rnyrkri, nema Jressi ljósvana geislarönd, sem
markaði rifuna rnilli hellnanna.
Myrkrið varaði Jró ekki nema andartak. Ein af breiðu,
hvítu steinhellunum reis allt í einu á rönd með nokkrum
brestum og rnarri. Ferhyrnt gapandi gat blasti við augum.
Upp um það ljómaði birta frá litlu ljóskeri. Upp yfir brún-
ina gægðist sléttleitf andlit með unglingslegum svip og
horfði hvössum forvitnisaugum allt í kringum sig. Maður-
inn tyllti höndurn á hellubrúnirnar og lyftist upp, svo að
liann kom rneira en hálfur upp úr gatinu og gat hvílt annað
lniéð á brúninni. Andartaki síðar stóð hann á gólfinu við
gatið og dró félaga sinn upp úr, lágvaxinn og snarlegan
náunga, fölan á vanga, en með mikinn eldrauðan hárlubba.
— Allt í lagi, hvíslaði sá, sem fyrr hafði skriðið úr gatinu.
Ertu með meitilinn og pokana? Djöfullinn! Stökktu niður,
Archie! Láttu mig dingla!
í einu vetfangi hafði Sherlock Holmes stokkið fram á
gólfið og náð taki á hálsmáli ræningjans. Hinn steyptist nið-
ur í gatið. Ég heyrði léreft rifna, Jregar Jones greip í skyrtu
hans um leið og hann hvarf. Ljósið leiftraði á skammbyssu-
hlaupi, en veiðisvipa Holmes skall í sama bili á úlnlið ræn-
ingjans, og vopnið féll glamrandi á steingólfið.
— Þetta er Jrýðingarlaust, John Clay, sagði Holmes ofur
rólega. Þér eigið nú engra kosta völ.
— Ég [rykist sjá Jrað, svaraði Clay án Jress að láta sér
bregða. Ég vona Jx>, að félagi minn sé sloppinn, J>ó að ég
sjái, að þið hafið tekið toll af föturn hans.
— Þrír menn bíða hans við dyrnar, mælti Holmes.
— Ó, er Jxað svo. Þér virðist hafa hugsað fyrir öllu. Ég
verð að hæla yðttr fyrir frammistöðuna.
— Éig gæti sagt: Sömuleiðis, svaraði Holmes. Rauðhausa-
hugmynd yðar var bæði nýstárleg og dugði ágætlega.
— Þú hittir félaga, Jjinn rétt bráðum, sagði Jones, Jjótt
hann væri fljótari en ég að smjúga í holuna. Réttu fram
lúkurnar, karlinn, meðan ég tylli á þig armskrautinu.
— Má ég biðja yður að snerta mig ekki með yðar skítugu
Framhald. ,