Dagur - 06.04.1966, Side 2
Reynir Brynjólfsson; Þór, sigraði
Skíðamóti Akureyrar lauk um siðastliðna helgi
með keppni í stórsvigi í öllum fLkarla og kvenna
Drengir 11 og 12 ára. sek.
1. Gunnl. Frímannsson KA 35,2
2. Guðm. Sigurðsson Þór 35,5
3. Halldór Jóhannesson Þór 37,0
SÍÐASTLIÐINN sunnudag fór 2. -'Orn- -Þórsson KA
fram lokaþáttur Skíðamóts Ak-
ureyrar, en þá var keppt í stór-
svigi og fór keppni fram við
Strompinn. Brautirnar lagði
Guðmundur Tuliníus og voru
þær skemmtilegar en erfiðar,
en nú skyldi þrautreyna getu' •
skíðamanna okkar eftir vetur-
inn og einnig búa þá undfr'
Skíðalandsmótið. Veður var gott .
mestan hluta dags en snjóaði *
iítilsháttar meðan á keppni stóð.
Óhætt mun að fullyrða að aldrei
fyrr í vetur hafi verið mann-
fleira í fjallinu. Urslit urðu
þessi:
Akureyrarmeistari varð Reyn
ir Brynjólfsson Þór, sem fór
hrautina á 58,2 sek. en hann
sigraði einnig í svigi Akureyrar-
móts sem fór fram fyrr í vetur.
Hlýtur hann því einnig sigur í
Alpatvíkeppni.
A-flokkur. sek.
1. Reynir Brynjólfsson Þór 58,2
2. ívar Sigmundsson KA 59,0
3. Ottó Tuliníus KA 68,8
B-flokkur. sek.
1. Þorlákur SigurSsson KA 65,2
2. Hörður Sverrisson KA 66,0
3. Guðmundur Finnss. Þór 72,9
Þorlákur hefur sigrað í B-
flokki í öllum keppnum í vetur.
C-flokkur. sek.
1. Sigurður Jósafatss. ÍMA 69,9
2. Valdimar Gunnarss. KA 74,0
3. Jón Erlendsson Þór 75,9
3. Árni Óðinsson KA
60,2
60,5
Stúlkur. sek.
1. Sigþrúður Siglaugsd. KA 40,8
2 -Bima Aspar KA 59,4
3. Sigríður Frímannsd. KA 64,0
Tíu Akureyringar keppa á
Skíðamóti íslands á ísafirði
Þátttakendur okkar í Skíða-
landsmótinu, sem háð verður á.
ísafirði um páskana, fóru héðan
á mánudag, en þeir eru 10 að
þessu sinni. Fararstjóri er Jens
Sumarliðason. Fylgja; þeim
beztu óskir um góðan árangur.
Handknaf tleiksmenn stóðu sig vel
sek.
70,0
79,6
Kvennaflokkur.
1. Karólína Guðm.d. KA
2. Guðrún Siglaugsd. KA
Árangur Karólínu í vetur er
rojög góður og er það afrek
út af fyrir sig að hafa verið á
toppnum í 15—20 ár og veita
þeim yngri enn fulla keppni.
Unglingafl. 13—15 ára. sek
1. Jónas Sigurbjörnss. Þór 60,0
'SL."FÖSTÚDAG fóru hand-
knattleiksmenn frá Akureyri
(meistarafl. karla) í keppnis-
ferð suðu’r a l’and og tóku Hauk-
ar frá Hafnarfirði á móti þeim.
Á föstudágskvöld léku Akur-
eyringar í íþróttahúsinu á Kefla
víkurflugvelli við Hauka og
Keflvíkinga og var leiktími 2x15
mín. Fyrsti leikurinn var milli
-Hauka og f-BA og var það fyrsti
leikur Akureyringa á stórum
velli, (18x38 m.). Leikur þessi
var skemmtilégur og sýndu Ak-
ureyringar góðan leik og betri
á þessum stóra velli en í Raf-
veituskemmunni hér.
Akureyringar skoruðu fyrsta
markið og héldu forystu allan
leikinn út. í hléi stóðu leikar 9:4
fyrir ÍBA, en leiknum lauk 18:16
fyrir ÍBA. Þó vantað hafi 2—3
menn í Haukaliðið má segja að
þessi frammistaða Akureyringa
sé mjög góð, ékki sízt ef tekið
er tillit til þess, að þetta var
fyrsti leikur liðsins á stórum
velli.
Nagst léku Haukar og Kefl-
víkingar og lauk þeim leik með
jafntefli 18:18.
Að lokum léku svo Akureyr-
ingar og Keflvíkingar og var
fyrri hálfleikur jafn, en í síðari
hálfleik tóku Akureyringar leik
inn algjörlega í sínar hendur og
sigruðu með 20:11.
Þetta var mjög kærkomið
tækifæri fyrir ÍBA-liðið að fá
þessa leiki fyrir sunnan, og lof-
ar frammistaða þeirra á þessum
stóra velli góðu, því væntanlega
fer íslendsmótið í handknatt-
leik fram í Laugardalshöllinni
næstu áriri.-
Akureyringar horfðu svo á
landsleikinn við Dani á laugar-
dag, og var það góð skemmtun,
þó ekki tækisi íslendingum að
sigra eftir mjög góðan leik í
Flugfélag íslands gefur út landkynningar-
bækling um sumarfrí á Islandi
UM ÞESSAR MUNDIR sendir
Flugfélag íslands frá sér nýjan
landkynningarbækling, að þessu
sinni um sumarfrí á íslandi, en
einnig er sagt frá Grænlands-
ferðum félagsins.
Þessi nýi bæklingur er prent-
aður í fjórum litum, og kemur
út á ensku, þýzku, frönsku og
dönsku. í honum eru margar
litmyndir og teikningar. Kápu-
myndir eru frá Mývatni, Surts-
ey og af fossi á Fjarðarheiði.
Flugfélag íslands hefir á
nokkrum undanförnum árum
gefið út marga landkynningar-
bæklinga um ýmsa þætti ís-
lenzkrar náttúru, svo sem fugla-
líf, flóru, landafræði, jarðfræði
og veðurfar, Þá hefir félagið gef
ið út bæklinga um hesta-
mennsku, lax- og silungsveiði,
fjallgöngur og bækling um Mý-
vatn. Ennfremur tvo bæklinga
um Grænland og innan skamms
er von á bækling um Færeyjar.
Þá er í ráði að gefnir verði út
bæklingar um ýmis byggðarlög
hér á landi og verður fyrsti
bæklingurinn í þeim flokki um
EskifjÖrð. Ennfremur hefir Flug
félagið gefið út baeklinga um er-
lendar börgir, sem flugvélar fé-
Iagsins fIj úga til,_svo sem Kaup-
mannahöfn, OsTo“og Bergen.
(Fréttatilkynning)
fyrri hálfleik og 5 marka for-
skot.
Þessi ferð handknattleiks-
manna var mjög ánægjuleg í
alla staði, og tókst vel. □
- Ál-sáttmálinn
(Framhald af blaðsíðu 8).
þó aðeins broti af því, sem þurft
hefði að gera þótt engin alumín
verksmiðja hefði komið til. —“
Ólafur Jóhannesson:
„Það er og vitað, að gert er
ráð fyrir sérstöku og alveg
óvenjulegu réttarfari í ágrein-
ingsmálum, sem rísa kunna út
af stóriðjusamningunum, eða í
sambandi við þá. í þeim málum
eiga íslenzkir dómstólar ekki að
hafa lögsögu, nema um það
verði samkomulag á riiilli aðila.
Þau ágreiningsmál eiga að fara
fyrir eins ’konar alþjóðlegan
gerðardóm, sem sitja skal í út-
löndum og skipaður skal full-
trúum frá aðilum, en oddamað-
ur tilnefndur af þeim í samein-
ingu, en ef samkomuíag ekki
næst, þá af forseta alþjóðadóm-
stólsins. Segja má, að þetta væri
ekki athugavert, ef um væri að
ræða venjulegan milliríkjasamn
ing, en hér er ekki um milli-
ríkjasamninga að ræða, hér er
ekki um samning milli tveggja
ríkisstjórna að tefla. Hér er um
að ræða samninga ríkisstjórnar-
innar, Landsvirkjunar 'og Hafn-
arfjarðarkaupstaðar við privat
fyrirtæki. Eftir öllum venjuleg-
um reglum heyra ági-einingsmál
út af slíkum samningum undir
almenna dómstóla, þar sem með
er farið, þ. e. hér á landi undir
venjulega dómstóla alveg án til-
lits til þess, hvort samningsaðili
er innlendur eða útlendur. Þetta
er viðurkennd regla í öllum
réttarríkjum. Ég efast um, að í
nágrannalöndum okkar sé for-
dæmi fyrir því, að ríkisstjórnir
semji hliðstæð mál undan eigin
dómstólum. Krafa einkafyrir-
tækis — erlends hlutafélags —
um að taka þessi ágreiningsmál
undan lögsögu íslenzkra dóm-
stóla, hlýtur að byggjast á van-
trausti á íslenzku réttarfari og
tortryggni í garð íslenzkra dóm-
stóla. Á bak við hlýtur í raun og
veru að búa sú skoðun, að hér
sé ekki fullkomið réttarríki.
Víst er þetta óvenjulegt og
óviðunandi þegar um er að
ræða ágreining hins svissneska
hlutafélags við stjórnarvöld hér
á landi. En þó ofbýður manni
þá fyrst, þegar gert er ráð fyrir
að sama regla gildi um ágrein-
ingsmál út af samningum við
hið íslenzka álfélag, sem svo er
kallað, en það félag er látið heita
íslenzkt félag, á að skrásetjast
sem slíkt, á samkvæmt orðanna
hljóðan að fara að íslenzkum
lögum og hafa stjórn, sem að
meirihluta er skipuð íslenzkum
ríkisborgurum. Hvernig á ríkið
að semja svo um, að ágreinings-
mál þess, Hafnarfjarðarkaup-.
staðár eða Landsvirkjunar við
íslenzk hlutafélög séu tekin und
an íslenzkum dómstólum og
fengin alþjóðlegum gerðardómi
til úrlausnar. Fyrr má nú rota
en dauðrota. Og hvernig í ósköp
unum er hægt að kalla það ís-
lenzkt félag, sem ekki lýtur lög
sögu íslenzkra dómstóla. Ég ef-
ast ekki um, að ráðh. hafi lagt
sig alla fram við þessa samnings
gerð, og ég efast ekki um, að
hann hafi ýmsu fengið breytt til
batnaðar í þessum samningum.
Ég tel víst, að hann hafi reynt
að fá breytingu á þessum ákvæð
um, en það hefur ekki tekizt.
Þá hefði hann, að mínum dómi,
átt að setja hnefann í borðið og
segja: Hingað og ekki lengra
Undir svona nokkuð er ekki
hægt að skrifa fyrir fullvalda
ríki, sem vill telja sig í hópi
réttarríkja. Það er niðurlægj-
andi og í því felst frekleg móðg-
un bæði gagnvart þjóðinni og
íslenzkum dómstólum, og ég
verð að segja það eins og það
er, að ég vorkenni dómsmála-
ráðh., að verða að ganga undir
það jarðarmen, að undirrita
slíkt.“
Helgi Bergs:
„í Morgunblaðinu 24. febrúar
sl: birti Jóhantr Hafstéin gfein,
þar sem hann segir: „Sé munur-
inn á rekstursgjöldum frá ári til
árs lagður á 6% vöxtu, safnast
í sjóð, sem árið 1967 er orðinn
rúmar 300 millj. kr. og árið 1985
rúmar 600 millj. kr., ef bræðslu-
leiðin er farin.“ Og nú í kvöld
er ráðh. kominn upp í 860 millj.
kr. Hvort tveggja er rangt og
villandi, í fyrsta lagi vegna þess,
að reiknað er með 2,2 aurum á
kw-stund hærra rafmagnsverði
frá bræðslunni fyrstu 6 árin en
raunverulegt er, en þessir aurar
eru millifærsla til Landsvirkj-
unarinnar af skatttekjum af
verksmiðjunni, en gert er ráð
fyrir, að fyrstu 6 árin renni 3/8
hlutar skattanna til Landsvirkj-
unarinnar. Með 6% vöxtum til
1985 nemur þessi munur 194
millj. kr. miðað við samnings-
bundið orkumagn og um þessa
upphæð eiga útreikningar ráðh.
í fyrsta lagi að leiðréttast.
í öðru lagi eru útreikningarn-
ir villandi vegna þess, að orka
Búrfells verður fullnotuð 1976,
ef bræðsla verður byggð, og
enginn veit, hvað sú orka, sem
við bætist eftir það kostar, því
að engar viðhlítandi áætlanir
hafa verið um það gerðar og
enginn veit, hvar næst verður
virkjað.
f þriðja lagi eru áætlanir um
reksturskostnað vh-kjunarinnar
vægast sagt ónákvæmar, m. a.
vegná óvissunnar um ísamynd-
unina og þær truflanir er af
henni leiða. Þessi óvissa er við-
urkennd af öllum sérfræðing-
um, sem um málið hafa fjallað,
þó að mat þeirra á því, hversu
varlegir eða óvarlegir útreikn-
ingarnir séu mismunandi.
En jafnvel þótt fallizt væri á
þessa útreikninga, hvað kemur
þá í ljós? Sparnaður ráðh. ávaxt
aður með 6% til 1985 og leið-
réttur vegna skattamillifærsl-
unnar var í febrúar talinn 400
millj. kr. ogriú 660 millj kr. Það
er hægt að fa háar tölur með
því að reikna vexti langt fram
í tímann, en hvað 'þýðir þetta í
tölum, sem auðvelt. er að ■ átta
sig á? Hva<5 þarf að spara árlega
héðan í frá til 1985, til þess að
það verði 400 millj. .kr. þá með
6% vöxtum? Svarið er 10,9
millj. kr. 4 ári. eða.ef nýja talan
er tekin, 660 millj. kr„ vérður
svarið 18 millj. kr. á ári. Sam-
kvæmt bjartsýnustu útreikning
um ráðh. er þá meðalsparnaður
á ári 10—18 ihillj., kr. ftá 1966—
1985. Þótt um þennan sparnað
væri að raáða, fer því víðs fjarri,
að hann réttlæti að ráðizt verði
í alumínbræðslu, eiris og nú er
ástatt og öðrum atvinnuvegum
þar með stefnt í tvísýnu. Það er
smápeningur miðað við það, sem
í húfi er.
En svo fer því raunar' víðs
fjarri að þetta sé allt sparnaður.
Það er nefnilega að verulégu
leyti lán hjá framtíðinni, Ef við
seljum ódýrustu orkuna útlend-
ingum, förum við sjálfir fyrr að
nota dýru orkuna. Af bverju
skyldi ráðh. reikna dæmið . til
1985, en ekki t. d. til 1995 eða þá
til enda samningstímabilsins,
árið 2014? Það er af því, að upp
úr 1985 fer að koma í ljós, hvern
ig þessi sparnaður hefnir sín,
'þégar við förufn að nöta dýrari
orkuna sjálfir. Þá þarf að fara
að borga lánið, sem nú á að taka
fyrir rafmagnsreikningum okk-
ar hjá framtíðinni. Það verða
önnur sjónarmið-en rafmagns-
gróði að ráða um það, hvort hér
verður útlend stóriðja eða
ekki.“ .; . ' ;:b.: . n
FALLEG PEYSA
GÓÐ
FERMINGARGJÖF
VERZLUNIN DRÍFA
Sími 11521
TIL SÖLU:
MONZA skellinaðra
í mjög góðu lagi.
Uppl. í Vanabyggð 2D
eftir kl. 7 á kvöldfn.
ÞVOTTAVÉL
Til sölu er Hoover-Matic
vél, vel með' farin og í
ágætjis lagi. ;
Uppl. í sírna 1-28-23.