Dagur - 06.04.1966, Blaðsíða 8
8
5555555555$55535SÍSS5«SS5$S$SÍSS3$S5535$$5S$35í»$555S535«Í$ÍSS$S$555555$55S5555$$SS555555$S35SSS555$$5Í$S*£9
Við Akureyrarhöfn er nú miklu meira að gera siðan leiðir lokuðust á landi. (Ljósm.: E. D.)
ÁL-SÁTTMÁIJNN GAGNRÝND-
UR Á ALÞINGI
í ÚTVARPSUMRÆÐUNUM á
Alþingi 25. marz sl. ræddi Ey-
steinn Jónsson um landsbyggð-
arvandamál og stóriðju í Noregi
og á íslandi, Ólafur Jóhannes-
ton um gerðadómsákvæði sátt-
máians og Helgi Bergs um reikn
ingskúnst Straumsvíkinga í sam
bandi við rafmagnsverð. Hér
fara á eftir stuttir kaflar um
þau efni úr ræðum þeirra.
Eysteinn Jónsson:
„Upplýst er að Norðmenn hafa
talið 100 þús. tonna alumínverk
smiðju undirstöðu 10 þúsund
manna bygðarlags — þegar allt
er talið, sem utan á hleðst. 60
þús. tonna verksmiðja ætti þá
samkvæmt því að byggja utan
um sig 5000—6000 manna byggð
arlag eða hafa áhrif, sem því
nemur og þó miklu meiri á
byggingartímanum.
Á svæðinu frá Kollafirði að
Straumsvík búa nú um 110 þús.
manns og inn á þetta svæði á að
eetja stóriðju. Á öllu landinu
annars staðar búa 93 þúsund
manns. Líklega hefur ekkert
land við annað eins byggða-
vandamál að stríða og ísland.
Norðmenn telja sig búa við mik-
inn vanda í þessum efnum, en
í Stór-Osló búa þó aðeins um
17% af þjóðinni. Þeir hafa sett
útlendingum þau skilyrði blátt
áfram fyrir stóriðjusamningum
sínum, að stóriðjuverin hjálp-
uðu til, að leysa þeirra byggða-
vandamál, sem er þó smávægi-
legt í samanburði við okkar.
Hafa erlendir aðilar fallizt á að
taka á sig aukakostnað þar til
þess að uppfylla þetta skilyrði.
Hér hefur öllum tilraunum til
þess að fá alumínverið staðsett
utan mesta þenslusvæðisins ver-
ið gersamlega vísað á bug af
stjórnarvöldunum, en haldið
dauðahaldi í þá staðsetningu,
sem sýnilega hefur verið búið
að festa sig á strax í fyrrahaust,
áður en málið var sýnt alþingis
mönnum, og látið eins og efna
ætti til víðtækrar samvinnu um
málið.
Nú er sagt að • byggðavanda-
málið megi leysa með því að
setja á stofn atvinnujöfnunar-
sjóð, sem að styrkleika nemur
(Framhald á blaðsíðu 2.)
TVEIR LISTAR
Fratnsóknarmenn á Akureyri
biríu sinn lista til bæjarstjórnar
kosninganna fyrstir manna. Nú
hafa fleiri á efíir komið, þeirra
á meðal Sjálfstæðismenn hér í
bæ. Báðir eru lisfar þessir lítið
breyttir frá síðusíu kosningum,
en þá unnu Framsóknarmenn á
og bættu við sig fulltrúa. Sjálf-'
stæðismenn töpuðu aftur á móti
einum fulltrúa úr bæjarstjórn,
og máiti ætla, að þeir létu þá
reynslu verða til þess að breyta
noltkuð lista sínum. Það gerðu
þeir ekki en setja sig aðeins í
varnarstöðu með Gísla Jónsson
í baráttusætinu.
BJÓRINN
Bjórírumvarpið var til umræðu
á AJþingi fyrir helgina og hall-
aði mjög á flytjendur þess. En
bjórinn á þc, sem kunnugt er,
marga aðdáendur á íslandi, sem
fæstir þekkja hann þó — og
sízt sem nokkurt vandamál. En
vel skyldu menn taka eftir orð-
um þeirra manna í nágranna-
löndunum og raunar víðar, sem
telja bjórdrykkjuna jafnvel enn
Nýr leikur, sem nýjabragð er að,
verður frumsýndur á Akureyri annan páskadag
Á SUNNUDAGINN var frétta-
mönnum gefinn kostur á að
kynna sér það viðfangsefni Leik
félags Akureyrar, sem Jónas
Jónasson Reykjavík setur á
svið með leikurum bæjarins.
Um þennan sjónleik má segja,
að hann mun koma leikhúsgest-
um mjög á óvart ekki síður en
hin vinsæla óperetta í fyrra, en
á allt annan og „frumlegri“ hátt.
Sjónleikur þessi er amerískur
og heitir „Bærinn okkar“.
Leikendur eru um 20 talsins.
Engin leiktjöld eru notuð og
ýmsu því áþreifanlega, sem
venja er að nota, varpað fyrir
borð. Dæmi: Mjólkurpósturinn
kemur með mjólkurflöskur og
rjóma í pelaglösum, tekur tómu
flöskurnar og fer. En það eru
engar flöskur. Húsmóðir útbýr
morgunverðinn í eldhúsinu og
skólabörnin neyta hans í flýti
og þjóta svo af stað í skólann.
En það er ekkert eldhús, ekki
einu sinni bolli eða diskur.
í þessum leik er leikhúsgest-
um ekki færðir allir hlutir upp
í hendur. Þeir verða að gera sér
sjálfir sína leikmynd og vera
meiri þátttakendur sjónleiksins
en áður hefur þekkzt í leikhúsi
(Framhald á blaðsíðu 5.)
Húnavakan hefst annan páskadag
Á BLÖNDUÓSI búast menn við
fjölmenni á Húnavökuna, sem
þar hefst annan dag páska. Fer
þó fjölmennið eftir því hversu
viðrar og hve greiðar samgöng-
ur verða.
„ G 0 ÐIN N “
FYRIR nokkrum dögum kom
nýkeyptur dráttar- og björgun-
arbátur til landsins. Eigandi er
Björgunarfélagið h.f. Báturinn
er 140 tonn að stærð, vel búinn
til björgunarstarfa og er ætlað
að vera íslenzka fiskveiðiflotan-
um til aðstoðar á sama hátt og
Goðanesið, sem sama félag á og
er vel þekkt af ýmsum aðstoðar
Störfum á sjó. □
Meðal skemmtiatriða er sjón-
leikurinn Draugalestin, sem
Tómas R. Jónsson fulltrúi hefur
æft og svo smærri leikþættir.
Karlakórinn Vökumenn, Karla-
kór Bólstaðahlíðarhrepps og
karlakórinn Heimir úr Skaga-
firði munu syngja, dansað verð-
ur dag hvern og ennfremur
sýndar kvikmyndir.
Hér er þó fátt eitt nefnt af
mörgu, sem frarn á að fara, því
Húnavakan er fjölbreytt mjög
og dag hvern ný skemmtiatriði.
Húsakynni eru hin ágætustu
þar sem félagsheimilið á Blöndu
ósi er. Ungmennasamband A.-
Hún. sér um framkvæmd Húna-
vökunnar, en formaður þess er
Kristófer Kristjónsson bóndi í
Köldukinn. □
meira böl en víndrykkjuna. Þar
liggur reynslan að baki. Mót-
mælum gegn bjórfrumvarpinu
rignir yfir Alþhigi og er von-
andi að frumvarp þetía dagi
uppi eða verði feíít.
BJÓRGLEÐI PENINGA-
MANNA
Bjórfrumvarpið hafði mjög örv-
andi áhrif á fésýslumenn á Ak-
ureyri. Strax og um það fréííist
var hraðað undirbúningi að bjór
framleiðslu í bænum og menn
tókust á út af væntanlegum
gróða, samanber Sanamálið,
sem frægt er orðið. Á öðrum
sviðum hafa Sjálfstæðismenn
ekki sýnt áberandi framkvæmda
áhúga nú um sinn.
NÝR GARÐYRKJUSKÓLI
Á Alþingi er nú rælt um nýjan
garðyrkjuskóla á Akureyri. Til-
lögu um stofnun lians flytja
þingmenn Norðurlandskjördæm
is eystra. Bæjarstjórn Akureyr-
ar hefur tekið jákvæða afstöðu
til þessa máls og almenningur
einnig. Fyrrum var Gróðrarstöð
in á Akureyri skóli fjölmargra
manna og kvenna, sem þar
dvöldu við nám og vinnu. Nú er
langt um Iiðið og hætt við að
almennri garðyrkjukunnáttu
hafi hrakað. Norðlendingar
þurfa því að taka tveim hönd-
um nýjum möguleikum í þessu
efni, og gera sér þá jafnframt
Ijóst, á hvern hátt líklegt væri
til mikiJs árangurs, að slíkur
skóli starfaði.
ENDURNÝJUN STRAND-
FERÐASKIPANNA
Fjórir Framsóknarmenn, Hall-
dór Ásgrímsson, Gísli Guð-
mundsson, Sigundn Einarsson
og Helgi Bergs, flytja á Alþingi
íillögu til þingsályktunar um að
kosin verði milliþinganefnd til
að gera tillögur um endurnýjun
strandferðaskipaflotans og skipu
lagningu strandferðanna, og
verði að því steíþt að veita lands
byggðinni sem hagkvæmasta
þjónustu og að reksturinn verði
sem ódýrastur miðað við þá
þjónustu. Ríkið á nú 5 strand-
ferðaskip, Esju, Heklu, Herðu-
breið, Skjaldbreið og Herjólf.
Herjólfur, sem einkum annast
Vestmannaeyjaferðir, er nýlegt
skip, en hin 18—27 ára og er
Esja elzt.
STRANDFERÐASKIP FYRIR
NORÐURLAND
Flutningsmenn tillögunnar
segja, að uppi séu tillögur,
sennilcga frá Skipaútgerð ríkis-
ins, um að byggð verði þrjú
skip, sem einkum annist vöru-
flutninga, þar af eitt í aukaferð-
(Framhald á blaðsíðu 5).
Sunna Borg og Sigurgeir Hilmar haldast í hendur en Haraldur
Sigurðsson les hin þýðingarmiklu orð. (Ljósm.: E. D.)
FRÁ BRIDGEKLÚBBI
F. U. F.
ÞRIÐJA og síðasta umferðin í
sveitakeppninni verður spiluð
fimmtudaginn 14. apríl n.k. Q
SMÁTT OG STÓRT