Dagur - 16.04.1966, Blaðsíða 1
Dagur
SÍMAR:
11166 (ritstjóri)
11167 (afgreiðsla)
----------- ,
FERÐASKRIFSTOFAN
TÚNGÖTU 1
Símar 1-14-75 og
1-16-50
Kvikmyndað í HEjóðaklettum
S5J55555555J55555555555555555555555555J5555555S5555555555SS55555555J555555S55555555J555J55555J5J5555JJ5555JS
UM MIÐJAN júlí hefst kvik-
myndataka hér á landi, sem
Asa Film í Kaupmannahöfn,
Bonniers Film í Stokkhólmi og
Eddáfilm í Reykjavík standa
að. Myndin er byggð á sögu
Signýjar og Hagbarðs,
Allar útimyndatökur fara
fram hérlendis, m. a. við Jök-
ulsá á Fjöllum. En fregnir
herma, að einkum verði kvik-
myndað í Hljóðaklettum við
Jökulsá. Þrjátíu hvítir, íslenzk-
ir hestar, hús, sem byggja verð-
ur og fl. ér talið með hinu náuð-
synlegasta.
Aðalhlutverk verða annars 15
og er Benedikt Árnason aðstoð-
arleikstjóri, og nokkrir íslenzk-
ir leikarar munu fá þarna veiga
mikil hlutverk. □
ú%s,,
Aldrei áður eins mörg net í sjó
Afli hefur verið sæmilegur undanfarið
Hrísey 15. apríl. Snjórinn hefur
sigið um einn meter, en ennþá
er jökull yfir allt, háar girðing-
ar í kafi og snjórinn nær jafn-
vel upp á símastaura miðja. Eru
þetta óvenjuleg snjóþyngsli.
Nú hafa veður verið góð og
flestir komnir i grásleppuna.
Aldrei hafa verið lögð eins
MIKIÐ LEIKIÐ Á
AUSTFJÖRÐUM
Á REYÐARFIRÐI var frum-
sýndur á annan páskadag sjón-
leikurinn Forríkur fátæklingur
og voru sýningar tvær þann
dag. Leikstjóri var Jóhann Og-
mundsson frá Akureyri.
í Neskaupstað eru þrír ein-
þáttungar í æfingu og Seyðfirð-
ingar undirbúa sjónleik. Hvert
leikfélag sýnir svo í næstu kaup
túnum og kaupstöðum.
Leiklistaráhugi er mikill á
Austurlandi og þar eru margir
góðir leikarar.
Á Egilsstöðum verður í sum-
ar vígt nýtt félagsheimili, sem
taka mun 400 manns í sæti.
Leiksviðið er helmingi stærra
en í Samkomuhúsinu á Akur-
eyri. Ráðgert er að sýna
Skugga-Svein við vígsluna,
væntanlega 17. júní. □
mörg net í sjó hér við Hrísey.
Aflinn hefur verið sæmilegur.
Aðeins Eyrún og Auðunn eru
með þorskanet og hafa veitt
dáhtið. Frá okkur eru þrjú grá-
sleppuúthöld í Flatey og hefur
þeim gengið vel. Okkur reikn-
ast svo til, að ef 5000 kr. fást
fyrir tunnuna af hrognunum,
megi reikna hrogn úr grásleppu
á 40 kr. Svo er grásleppan
söltuð og einnig hengd upp.
Við höfum fengið góða gesti,
nokkurn veginn samtímis, en
það er rjúpan, sem nú leitar
heimahaganna og varpstöðv-
anna og fuglafræðingurinn Arn-
þór Garðarsson. Nú mega rjúp-
urnar ekki snúa sér við, án
þess það sé athugað og skrásett.
Æðarvarp hefur aukizt í
Hrísey undanfarin ár. Æðar-
fuglinn fer nú senn að skyggn-
ast yfir sínar varpstöðvar. Þ.V.
Fyrir nokkrum dögum var vcgurinn í Öxnadal ruddur.
Ný Lðxárvirkjun er nú í
Framkvæmdir ef til vill hafnar á þessu ári
(Ljósm.: Guðbr. Steinþórsson.)
VIRKJANIR þær við Laxá,
sem framleiða um 125000 kw,
fullnægja ekki raforkuþörfinni
á orkuveitusvæðinu.
Alþingi gaf ríkisstjórninni
heimild til 160 millj. kr. lán-
töku til byggingar nýrrar Lax-
árvirkjunar. Er nú unnið að
undirbúningi hennar á verk-
fræðiskrifstofu Sigurðar Tlior-
oddsen, bæði að undirbún-
ingsathugun, teikningum og
undirbúningi útboðslýsinga.
Ráðgert er, að hin nýja virkj-
un framleiði nálega eins mikið
og núverandi virkjanir gera. Er
hér um mikið mannvirki að
ræða, sem reist verður ofar við
Laxá en hinar eldri og gerð
mikil uppistaða með hárri
stíflu.
Laxárvirkjunarstjóm licfur
ákveðið, að máli þessu verði
hrundið fram, og þótt ekki
verði neitt um það sagt, Iivenær
fyrstu framkvæmdir gcti hafizt,
ætti að mega vona, ef fyrir-
greiðsla valdliafanna verður
góð, að þær hefjist seint á þessu
ári. En virkjunartími er 3—4 ár.
Stjórnarformaður Laxárvirkj
unar er Arnþór Þorsteinsson.
iBUÐARHÚS BRANN A HUSAViK
Húsavik 15. apríl. f morgun
varð mikill eldsvoði í Höfða-
vegi 12 á Húsavík. Húsið er
múrhúðað, timburklætt, kjall-
ari, stofuhæð og rishæð. Skokk
urin stendur, en er mikið brunn
inn að innan og innbú eigend-
anna, Aðalsteins Karlssonar sjó
manns og Steingerðar Sig-
mundsdóttur konu hans, að
mestu ónýtt.
Þau hjónin sváfu á rishæð-
inni ásamt tveim börnum sín-
um og voru ekki komin á fæt-
ur þegar þau urðu eldsins vör.
Eldurinn magnaðist fljótt og
Lán hækkuðu um 130 þúsund krónur -
En byggingakostnaðurinn um 215 þús.
í HINU svonefnda júnísam-
komulagi verkalýðsfélaga og
ríkisstjórnarinnar árið 1964,
var um það samið, að íbúða-
lán skyldu hækka úr 150 þús.
kr. upp í 280 þús. kr. Vextir
verða 4% (raunverulega nú
4%%) og afborganir af lánun-
um hækka samkvæmt fram-
færsluvísitölu ár hvert.
Á þingfundi sl. fimmtudag
skýrði Sigurvin Einarsson al-
þingismaður frá útreikning-
um, sem hann hefur gert í
þessu sambandi og vöktu þeir
mikla athygli.
Þar kemur það fram, að
byggingakostnaður 370 ferm.
íbúðar hefur samkvæmt
skýrslum Hagstofunnar hækk
að úr 752 þús. kr. upp í 967
þús. kr. frá því í júní 1964
þangað til í febrúar 1966 —
eða um 215 þús. kr. á 20 mán-
uðum. En lán út á shka íbúð
hefur samkvæmt júnísam-
komulaginu aðeins hækkað
um 130 þús. kr.
í útreikningunum komu
einnig fram áhrif vísitöluálags
ins á ársgreiðslur 280 þús. kr.
lánsins. Miðað við 414% vexti
og 10% árlega hækkun fram-
færsluvísitölunnar er árs-
greiðsla 280 þús. kr. lánsins
þessi:
Miðað við nafnverð lánsins
ca. kr. 18623
Eftir 5 ár
Eftir 10 ár
Eftir 15 ár
Eftir 20 ár
Eftir 25 ár
ca. kr.
ca. kr.
ca. kr.
30330
48847
78666
ca. kr. 128696
ca. kr. 204046
þau urðu að fara út um glugga
og skárust við það á höndum og
handleggjum. Voru þau flutt í
sjúkrahús en börnin sluppu
ómeidd.
Slökkvilið kom á vettvang og
tókst því fljótlega að ráða nið-
urlögum eldsins. Þ. J.
ÁLNEFNÐ SKILAR
ÁLITI í DAG
VIÐ fyrstu umræðu um ál-
málið yar kosin sérstök 7
manna þingnefnd til að fjalla
um málið. f nefndinni eru:
Ingvar Gíslason, Þórarinn
Þórarinsson, Lúðvík Jósefs-
son, Mattlvías Á. Matthíesen,
sem er form., Jónas Rafnar,
Benedikt Gröndal og Sigurð
ur Ingimundarson.
Talið er, að nefndin muni
skila áliti eða álitum í dag
og málið verði tekið til ann-
arrar umræðu í neðri deild á
mánudag. Verði það þá sam-
þykkt. Er eftir ein umræða
enn í neðri deild og 3 í efri-
deild a. m. k.
Dagur hefur frétt, að
ncfndarálitin muni verða
þrjú. Ætla má, að bæjar-
stjórn Akureyrar og fleiri
hér nyrðra bíði með nokk-
urri eftirvæntingu eftir að
frétta um afstöðu þingmanna
kjördæmisins til hinnar
miklu sogdælu syðra, sem
fyrirhuguð er með frumvarpi
þessu. □
FÁ LFSA OG ÞORSK
Grímsey 15. apríl. Hér er sól
dag hvern síðan fyrir páska og
lóan er að kveða burt snjóinn,
sem ekki er þó mikill eftir,
nema í Sandvíkinni, en þar var
allt á kafi og er enn.
Bjargfuglinn er kominn og er
mikil mergð af honum hér við
björgin.
Grásleppuveiðin gengur sæmi
lega og er mikið stunduð og
mikill fjöldi neta í sjó. Ofurlítið
af þorski og þó einkum ufsa
kemur í netin. S. S.