Dagur - 30.04.1966, Síða 1
Dagur
SÍMAR:
11166 (ritstjóri)
11167 (afgreiðsla)
! FERÐASKRIFSIOFAN
TÚNGÖTU í
Símar 1-14-75 og
1-16-50
.......
Grásleppa og þorsk-
ur í netuiium
Raufarhöfn 29. apríl. Hér er
snjór að mestu farinn og orðið
jeppafært til Kópaskers og Húsa
víkur, hvað lengi sem það nú
varir.
ALLIR VEGIR í nágrenni Akur
eyrar eru nú að spillast vegna
aurbleytu. Þungatakmörk hafa
þó aðeins verið sett varðandi
Dalvíkurveg og miðað við 5
tonna öxulþunga, eða að bíllinn
megi vera 8,5 tonn fermdur. í
Suður-Þingeyjarsýslu ná þunga
takmörkin til allra vega. Húsa-
víkurvegur og Dalvíkurvegur
eru aðeins færir jeppum og stór
um bílum. Suðurleiðin er enn
talin fær öllum bifreiðum. □
Grásleppuafli er hér mjög
mikill og nær allir sjómenn hér
bundnir við þær veiðar, auk.
þess þrjú aðkomuúthöld. Allt
upp í 700 grásleppur hafa veiðzt
á dag í 20—30 net. Um þorsk
hugsar enginn, en dálítið af hon
um kemur í grásleppunetin og
bendir það til þess, að eitthvað
dálítið kunni að vera til af hon-
um líka. Enda hefur vel veiðst
af honum þegar skroppið hefur
verið í færi.
Búið er að koma fyrir þrem
nýjum vogum af þýzkri gerð, í
sambandi við síldarlöndun í
sumar, því nú á að vigta síldina
við móttöku. Unnið er áfram
við að endurnýja vélar og tæki
síldarbræðslunnar, svo hún
verður sem ný, er hún tekur til
starfa. H. H.
Karlakórinn Vísir írá Siglufirði er hér að stíga um borð í Loftleiðavél á Akureyrarflugvelli
sl miðvikudag í upphafi söngferðar til Danmerkur. Vísir söng hér á Akureyri kvöldið áður við
hina ágætustu aðsókn og undirtektir. (Ljósm.: E. D.)
Hlulii viðurkenningu lyrir auðsveipnina
EFTIRMÆLI „VIÐREISNARINNAR”
HVAÐ KOSTAR ÍBÚÐIN W.
í FEBRÚAR 1960 kostaði rúmmetri í „vísitöluhúsi“ Ilag-
stofunnar kr. 1231.03 Samkvæmt þessum útreikningi Hag-
stofunnar, sem birtur var í Hagtíðindum á þeim tíma kostaði
370 rúmmetra íbúð í slíku liúsi rúmlega 455 þúsund krónur.
í febrúar 1966 kostaði rúmmetrinn í „vísitöluliúsi“ eftir
sömu reikningsaðferð sömu aðila kr. 2613.47. Samkvæmt því
kostar 370 rúmmetra íbúð nú nálega 967 þúsund krónur.
Efnahagsmálalöggjöf núverandi ríkisstjórnar gekk í gildi
20. febrúar 1960. Síðan hefur byggingarkostnaður 370 rúm-
metra íbúðar samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar hækkað
úr rúmlega 455 þús. kr. upp í nálega 967 þús. kr. eða um
512 þúsund krónur.
Fjárupphæð, sem í febrúar 1960 nægði til að byggja tvær
íbúðir, nægir nú fyrir einni íbúð.
r
Agætur þorskaíii er á Húsavík
og var klappað á kinnina á síðum Morgunbl
Húsavík 29. apríl. Hér er ný-
látinn hagyrðingurinn Karl Sig-
tryggsson 70 ára að aldri. Hann
átti við vanheilsu að stríða hin
síðustu ár.
Grásleppuveiðin hefur enn
ekki verið verulega mikil en
á e. t. v. eftir að lagast. Hins
vegar er þorskafli ágætur, bæði
í net og á færi, og veitir sá afli
kærkomna vinnu í landi.
Hér er sem stendur samkomu
bann vegna inflúensu, sem hef-
Karlakór Akureyrar
syngur á næstunni
KARLAKÓR AKUREYRAR
mun innan skamms haida sam-
söng hér á Akureyri. Nánar
verður sagt frá tilhögun í næstu
viku. □
ur verið að stinga sér niður, en
er ekki útbreidd. Við dönsum
ekki á meðan en það kemur
ekki að sök þó að fólkið hvíli
fætur sína um stundarsakir.
Þ. J.
ÞAÐ SKEÐI 25. apríl 1966,
að hafnarnefnd Akureyrar,
þá stödd í Reykjavík, sam-
þykkti á fundi sínurn að
leggja það til við bæjarstjórn
Akureyrar að hún samþykkti
að byggja á Akureyri drátt-
arbraut fyrir 2000 þunga
SUNNUDAGINN 24. apríl gerð
ust þau stórtíðindi í blaðaheimi
höfuðborgarinnar, að Morgun-
blaðið varði hvorki meira né
minna en nál. heilli sí&u til að
segja fréttir af bæjarstjórnar-
fundi hér á Akureyri. Margir
ráku upp stór augu, því ekki
eiga menn því að venjast, að
þetta höíuðmálgagn Reykjavík-
urauðvaldsins láti sig það miklu
skipta, sem bæjarfulltrúar „úti
á landi“ ræða sín á milli.
Birtar eru í heilu lagi tillög-
ur, sem þeir Gísli Jónsson og
Bragi Sigurjónsson fluttu á
fundi þessum, og eru þær þó úr
sögunni, því þær voru felldar í
bæjarstjórninni. En þetta voru
áberandi rúmfrek eftirmæli og
tillögu Gísla Jónssonar sýnd
sérstök viðhöfn, því með henni
var prentuð tveggja dálka grein
argerð, sem tillögusmiðurinn
lagði fram á fundinum, auk út-
dráttar úr ræðu hans, sem
Morgunblaðið segir að hafi ver-
ið bæði „löng og snjöll“ og rök
hans „fimlega flutt“.
Nú kynnu einhverjir, sem
tonna skip. Ég fel að þessi
samþykkt marki tímamót í
atvinnusögu Akureyrar og
vegna hennar getum við öll
horft fram á við með meiri
bjartsýni en ella. Með þessu
erum við að hefja uppbygg-
ingu skipaviðhalds og skipa-
ekki vita betur, að álykta sem
svo, að þarna hafi blessað stjórn
arblaðið syðra verið að veita
minnihlutamönnum sínum í
bæjarstjórn Akureyrar verð-
skuldaða viðurkenningu fyrir
skelegga baráttu og viturlegan
málflutning í einhverju mikil-
vægu velferðarmáli Akureyrar.
Svo er þó ekki.
Viðurkenningin er veitt þeim
vegna þess, að þeir á umrædd-
um fundi Iýstu sig samþykka
því, að álverksmiðjan yrði
byggð af útlendingum í Straums
vík syðra, og féllust á það með
ríkisstjórninni, að ekki væri
hægt að koma henni upp við
Eyjafjörð.
Víst er það skiljanlegt, að
Mbl.mönnum hafi fundizt það
sanngjarnt og verðskuldað, að
þeir G. J. og B. S. fengju lof
fyrir viðbrögð sín. Það hlýtur
sem sé að hafa komið á óvart í
Mbl.höllinni að bæjarfulltrúar
hér, sem fyrir rúmlega einu ári
höfðu flutt og samþykkt tillögu
um, að stórvirkjunin ætti að
vera norðanlands, ef til þess
byggingaaðstöðu, sem mun
verða hin beztu hér á landi.
Fulltrúar Framsóknar-
flokksins í bæjarstjórn voru
ekki sem ánægðastir yfir því
að byggja þá dráttarbraut,
sem um var samið í vetur.
Þeir vildu stærri braut, og
árangurinn varð 2000 þunga
tonna dráttarbraut.
Stefán Reykjalín.
kæmi, við Eyjafjörð, og þá færð
fyrir því gild rök, skyldu svo
Ijúflega, sem raun er á, falla
frá þessu áhugamáli sínu og
reynast svo auðtrúa á reykvísk-
an málflutning, sem bezt varð
á kosið fyrir þá, sem að honum
standa.
Fallegt er það og viðeigandi
þegar barni er klappað á lcinn.
Sá, sem á kinnina klappar, tel-
ur það heldur ekki eftir sér, að
segja, að Árni Jónsson hafi tal-
að „skörulega“ á nefndum bæj-
arstjórnarfundi, enda „siðbót“
Árna alveg óumdeilanleg, þar
sem hann var meðflutningsmað-
ur að tillögunni um Eyjafjarðar
verksmiðju í fyrra!
Þegar tillögur þeirra Gísla og
Braga, sem felldar voru á bæj-
arstjórnarfundinum, eru bornar
saman, kemur í ljós, að Gísli
hefur reynzt „einfaldur í sinni
þjónustu“ eins og Flóamenn
(Framhald á blaðsíðu 2.)
Dýrir farþegar
AÐFARANÓTT þriðjudagsins
6. apríl í ár gengu þrír farþegar
um borð í DC-7 flugvél eina,
eign SAS flugfélagsins, á
Fornebu-flugvellinum við Osló.
Vél þessi ber 16 smálestir af
vörum og hana fengu nú far-
þegarnir þrír alla til sinna um-
ráða. Með þeim stigu hins veg-
ar einnig inn í vélina einn dýra-
læknir og einn maður frá SAS
flugfélaginu. Þessir tveir áttu
að ganga farþegunum til handa
á væntanlegri flugferð, en henni
var heitið til St. Johns á Ný-
fundnalandi.
Farþegarnar þrir er svo mik-
ið var haft við, voru ein kvíga
(Framhald á blaðsíðu 2.)
Dráltðrbraulin nýja á Akureyri
Brotið blað í atvinnusögu Akureyrar