Dagur - 30.04.1966, Side 8
8
Frá Reyðarfirði.
FRETTABREF FRÁ REYÐARFIRÐI
SMÁTT OG STÓRT
Reyðarfirði 22. apríl. Hér er bú-
inn að vera langur og strangur
vetur með miklufannfergi. Ekki
ihafa þó verið nein teljandi ill-
viðri, en langvarandi frostkafl-
ar. Veturinn kvaddi með góðu
veðri. Nú hefur verið stillt og
gott veður um hálfs mánaðar
tíma en þó aldrei hlýtt. Mikill
snjór er ennþá.
Atvinna hefur verið næg í
vetur og hjálpa þar hvað mest
þeir tveir bátar, sem héðan eru
•gerðir út. Afli þeirra er núna
315 lestir hjá Gunnari SU 139,
en hann kom með 74 lestir úr
síðustu sjóferð. Snæfugl SU 20
hefur aflað 410 lestir og kom
hann með 85 lestir úr síðustu
sjóferð. Báðir þessir bátar
eru með þorskanet, og sækja
S.N.E. hélt aðalfund sinn mið-
vikudaginn 20 apríl sl. að Hótel
ÍCEA á Akureyri. Á fundinum
voru mættir, auk stjórnar og
endurskoðanda og allmargra
starfsmanna S.N.E. og fundar-
gesta, 24 fulltrúar frá 12 naut-
griparæktarfélögum í hreppun-
úm við Eyjafjörð. Á fundi þess-
um mætti fulltrúi Búnaðarfé-
lags íslands í nautgriparækt, hr.
Oiafur E. Stefánsson ráðunaut-
ur.
Fundurinn var settur af for-
manni S.N.E. Jónasi Kristjáns-
syni, er bauð fundargesti og
fulltrúa velkomna til þessa aðal
fundar, sem er hinn 37. í röð-
inni. Fundarstjórar voru kjörn-
ir þeir Björn Jóhannsson á
Laugalandi og Bjarni Pálmason
á Hofi, en fundarritarar voru
þeir Kristinn Sigmundsson á
Arnarhóli og Jónas Halldórsson
á Rifkelsstöðum.
Formaður, bústjóri og ráðu-
Tveir Svarfdælingar
sitja nú á Alþingi
HJÖRTUR E. ÞÓRARINSSON
bóndi á Tjörn tók nýlega sæti
á Alþingi í stað Gísla Guðmunds
sonar, er hverfur um sinn þáð-
an vegna anna við önnur störf.
Hjalti Haraldsson bóndi Ytra-
Garðshomi hefur einnig tekið
sæti á Alþingi í stað Björns
Jónssonar, sem vegna starfa
beimafyrir, hverfur af þingi um
sinn. Eru því um þessar mund-
ir tveir svarfdælskir bændur á
Alþingi. □
suður í Meðallandsbugt og að
Ingólfshöfða eða jafnvel enn
sunnar.
Bændur hér treysta á gott
vor, því eflaust yrði erfitt hjá
mörgum ef illa voraði, þar sem
haglaust hefur verið síðan fyrir
áramót. Einhver beit er þó kom
in og rætist úr, ef svona heldur
áfram með tíðarfar. Veturinn
hefur að ýmsu verið góður.
Hér var í vetur norskur þjálf-
ari Gísle Espólin Johnson, sem
þjálfaði unglinga og fullorðna
að mestu í innanhússiþróttum,
og einnig á skíðum. Eftir að
hann fór héldu nokkrir piltar
áfram leikfimi innanhúss og
meðfram var spilaður körfu-
knattleikur. Einnig hefur staðið
yfir glímuþjálfun og þjálfar
nautur gáfu skýrslu um störf-
in á síðastliðnu ári. Skýrslurnar
báru með sér, að reksturinn
hafði gengið vel á árinu. í Bú-
fjárræktarstöðinni eru að stað-
aldri rúmlega 150 nautgripir á
Ólafur Stefánsson, ráðunautur.
öllum aldri, þar af eru um 20
naut, 48 mjólkurkýr, þar af um
30 ungar kýr í tilraunum, og
ennfremur 84 kvígur og kálfar
í • uppeldi, sem ætlaðar eru
fyrir afkvæmatilraunirnar.
Á árinu 1965 var mjólkurinn-
legg Búfjárræktax-stöðvarinnar
148.860 ltr. með 4,072% fitu.
Fullmjólka kýr skiluðu að með-
altali 4.368 kg. af mjólk með
3,905% fitu, en árskýrnar skil-
uðu 4.153 kg. með 3,960 % fitu.
Nú eru liðin 20 ár frá því að
sæðingast.ð S.N.E. var stofnuð
og tók til starfa, en á árinu 1965
voru sæddar þaðan 6.262 kýr,
sem mun vera á milli 80 og 90%
af öllum kúm í héraðinu, og
Aðalsteinn I. Eiríksson glímu-
mennina.
Leikfélag Reyðarfjai’ðar byrj-
aði sýningar á sjónleiknum For
ríkur fátæklingur um páskana.
Leikendum og leikstjóra var
ákaft fagnað að lokinni frum-
sýningu. Leikurinn í heild tókst
mjög vel, og einstaka hlutverk-
um gerð frábær skil. Leikstjói'i
var Jóhann Ögmundsson og má
segja að honum hafi tekizt mjög
vel við uppfæi’slu þessa sjón-
leiks.
Fjárlög fyrir Reyðarfjarðar-
hrepp hafa nýlega verið sam-
þykkt og eru sem hér segir:
Hæstu gjaldaliðir eru; Vatn
og skólp 550.000.00 kr. Almanna
tryggingasj óðsg j öld 480.000.00
áx-angur sæðinganna hefir
í-eynzt vera góður. Á sæðingai’-
stöðinni eru nú 5 fyrstuverð-
launa naut, en auk þeii'ra eru
þar einnig 2 naut, sem útlit er
fyrir að nú verði viðurkennd
til 1. verðlauna.
Ái'lega skila til S.N.E. 280—
300 bændur mjólkur- og fóður-
skýrslum yfir kýr sínar og fæst
margháttaður fróðleikur frá
þessum skýi-slum varðandi
(Framhald á blaðsíðu 7.)
„VIÐ HÖFUM AFLÉTT
HÖFTUNUM“,
segir Morgunblaðið og Visir í
hverri viku. Enn eru þó ekki
liðnir nema fjórir mánuðir eða
svo síðan ríkisstjómin herti
stórlega á höftum í peninga-
málum, bæði með því að taka
þriðju hverja krónu af sparifjár
aukningunni um allt land og
hækka vextina. Þessi hafta-
stefna þrengir mjög að atvinnu
vegunum, jafnt sem einstakl-
ingum.
FRELSI OG FRAMTAK
EINSTAKLINGS
Slík skrautyrði notar Sjálfstæð
isflokkurinn við háttvirta kjór-
endur. I reyndinni merkja þessi
orð aðeins það, að ríkir menn
séu máttarstólpar þjóðfélagsins
og eigi að verða enn ríkari, á
kostnað þorra almennings. Enn
fremur, að þeir sem hafi að-
stöðu til, eigi að hrifsa til sín
úr þjóðarbúinu það, sem þeir
geta. Gagnstætt þessu vinna
samvinnumenn og ýmis önnur
samtök fólksins á félagslegum
grundvelli, þar sem liver styður
annan og geta sameiginlega
lyft Grettistökum.
HANN FÉLL
f síðustu bæjarstjórnarkosning-
um hóf eitt bæjarfulltrúaefni
íhaldsins á Akureyri kosninga-
baráttu sína m. a. með þeirri
áskorun til bæjarbúa, að „skapa
pólitískt mótvægi gegn hinu
mikla valdi samvinnusamtak-
anna“. Sami maður féll í kosn-
ingunum, því Akureyringar
viðurkenna Iiinn mikilvægasta
þátt samvinnumanna í uppbygg
ingu og framförum bæjarins, og
féll ekki þetta skraf í geð.
TVEGGJA ATKVÆÐA
MUNUR
Stjórninni tókst með tveggja
atkvæða mun, að fella tillögur
um þjóðaratkvæðagreiðslu um
áhnálið. Með sama meirihluta
felldi hún dagskrártillögu Fram
sóknarmanna við aðra umræðu
álmálsins á þingi. Áhnálið hef-
ur, þrátt fyrir algera handjám-
un stjórnarflokkanna, alltof lít-
ið þingfylgi, þegar um slíkt stór
mál er að ræða.
FRAMSÓKN JÓK FYLGI
SITT
f siðustu bæjarstjórnarkosning-
um bættiFramsóknarflokkurinn
hér í bæ við sig á fjórða hundr-
að atkvæða, en Sjálfstæðisflokk
urinn tapaði á þriðja hundrað
atkvæða. Þessi þróun mála þarf
að halda áfram nú, til þess að
Framsóknarflokkurinn geti mót
að bæjarmálastefnuna, sem for-
ystuflokkur í höfuðstað Norð-
urlands. Þetta mun líka takast
því vel verður unnið.
HUGSJÓN ÍHALDSINS
Sjálfstæðismenn hér í bæ hafa
látið í Ijós „einlæga von sína“
um að fá f jóra menn sína kjörna
í bæjarstjórn. Ef marka má síð-
asta blað þeirra, hafa þeir nú
einna mestan áhuga á, að lengja
daglegan viðskiptatíma bæjar-
salerna og sjoppa. En væntan-
lega kynnast bæjarbúar fleiri
hugsjóna- og framfaramálum
þeirra, þegar þeir birta næsta
hluta stefnuskrár sinnar.
K AUP V AN GSTORG
Það hefur löngum verið siður
götustráka að uppnefna bæði
menn og staði, oft á mjög niðr-
andi hátt. Nú hefur það skeð
opinberlega, að Kaupvangstorg
er nefnt „Náðhústorg“ og munu
bæjarbúar ekkert þakklátir fyr-
ir nafngiftina. Þeir, sem þetta
gera, eru piltar þeir, að sunnan,
sem ritstýra íslendingi, blaði
Sjálfstæðismanna á Akureyri.
Stígandi með 70 tonn
Ólafsfirði 29. apríl. Hér hefur
vei'ið sólskin og blíða undan-
farna daga. Afli hjá netabátum
hefur verið sáralítill að undan-
föi-nu, en grásleppuveiðar eru
stundaðar af miklu kappi og
afla sumir bátai'nir sæmilega.
Mótorbáturinn Stígandi er sá
eini, sem- togveiðar stundar.
Hann kom sl. þi'iðjudag með 70
tonn eftir viku útilegu.
Á laugardag og sunnudag var
svo haldið fjölmennt skíðamót,
sem fór hið bezta fram. B. S.
SEMENTSSKIPIÐ
FREYFAXI
FREYFAXI hið nýja sements-
flutningaskip Sementsverk-
smiðju ríkisins kom til Akra-
ness sl. þriðjudag.
Fi-amkvæmdastjóri og stjórn
verksmiðjunnar tóku þar á móti
skipinu og formaður verksmiðju
stjórnar, Ásgeir Pétursson sýslu
maður flutti ávarp við það tæki
færi.
Fx-eyfaxi er 1300 tonna skip
mjög fullkomið að öllum búnaði
og á því er tólf manna áhöfn.
Hægt er að losa sextíu lestir af
sementi úr skipinu á klukku-
stund með aðeins tveim eða
þi-emur mönnum um borð. □
EFIiRMÆLI „ViÐREISNARINNÁR"
Fjárlögin eru nú fimmfalf hærri
ÞJÓÐIN á að greiða i ríkissjóð sanikvæmt fjárlögum 1966,
talið í milljónum króna:
Aðflutningsgjöhl ............................ 1543
Söluskatt .................................... 938
Einkasölugróða ............................... 471
Tekju- og eignarskatt ........................ 406
Leyfisgjald bifreiða ......................... 124
Stimpilgjald .................................. 79
Aukatekjur .................................... 70
Gjaldeyrisskatt og þess háttar................. 66
Gjald af innfluttum tollvörum.................. 58
Ýmislegt....................................... 45
Benzínskatt og fleira til vega................ 254
Samtals milljónir króna ........................ 4054
Samkvæmt fjárlögum fyrir árið 1958, árið, sem núverandi
stjórnarflokkar tóku við ríkisbúinu, átti þjóðin að greiða til
ríkissjóðs milli 800 og 900 milljónir króna.
Upphæðin hefur nálega fimmfaldast í höndum þeirra, sem
ætluðu að lækka skatta og koma á stöðugu verðlagi.
Hluti sveitarfélaga af tollum og söluskatti er ekki með-
íalinn.
(Framhald á blaðsíðu 2.)
Fjölþæft starf naufgriparæktðrfélaganna
Frá aðalfimdi SNE, er haldinn var 20. apríl sl.