Dagur - 11.05.1966, Page 8

Dagur - 11.05.1966, Page 8
8 SMÁTT OG STÓRT VIÐ EIGUM AD RÆKTA SKOG ÍSLENDINGAR eiga langa skógeyðingarsögu en stutta skóg ræktarsögu. Gömlu og víðáttu- miklu birkiskógarnir, og síðan léiíar þeirra, héldu furðu lengi Velli. Þeir stóðu enn á stöku stað sem vitnisburður um vaxt- armátt moldar og eigin sigur, svo ekki varð um villzt, þegar landsmenn hófu skógrækt fyrir nokkrum áratugum. Síðan hef- ur skógræktaráhugi glæðzt, nýir skógar vaxið og menn játa nú ahnennt skógræktartrú. s í stuttri skógræktarsögu hafa merkir hlutir gerzt, lærdómsrik mistök orðið, en skógar vaxið þrátt fyrir allt til yndisauka og jafnvel nytja. Hver árssproti er í sjálfu sér íyrirheit og sönnun, mikilvæg- ari öllum lúðraþyt. Gróskumik- fll ungskógur er í sumarfegurð sinni ofar málstokk þeirra, sem i’eikna út gróða af framtíðar- skógum. En slík reikningsdæmi snerta þó strengi fjölda manna, óg er vel ef það örvar gróður- setninguna. Hitt er þó meira tim vert, að skógræktarstörf vitna um trúna á framtíðina, og áð ýmis beztu verkin skila ekki daglaunum að kveldi, en eru þó tmnin. Hvarvetna eru skógræktarfé- lög og þj óðfélagið leggur fé til skógræktarstarfa, og er það mikil uppörvun. En félögin eru ekki nógu fjölmenn og áhuginn ekki eldlegur nema hjá fáum, og biðlund er ekki þjóðarein- kenni íslendinga okkar tíma. * Nú er sumar enn á ný og 1—2 milljónir trjáplantna bíða út- plöntúnar hér á landi. Hingað til lands kom nýlega norskur skógræktarfræðingur, sem jafn framt er deildarstjóri í ráðu- neyti því, er fjallar um skóg- GÆSIR Á HREIÐRUM GÆSIR eru byrjaðar að verpa þótt kalt sé. Krían kom 26. apríl. Lóur og hrossagaukar halda sig á túnblettum hér í bænum, en stelkur og tjaldur spígspora í fjörum og á leirum. Þrestir eru við hvert hús þar sem trjágróð- ur er, einnig auðnutittlingar og er varp þeirra þegar byrjað. □ græðslu í Noregi, Toralf Austin að nafni. Hann flutti m. a. erindi hér á Akureyri og kynnti skóg- ræktarstarf Norðmanna. Skóg- rækt hófst í Noregi fyrir 100 árum, í landinu, sem okkur ís- lendingum finnst þó skógi klætt. Og allt fram til 1950 var plantað skógi í 25.000 ha. lands, sem hægt var að segja að vel hefði tekizt. Um 1950 eða lítlu síðar var gerð áætlun um skógrækt- arframkvæmdir á þremur stór- um landssvæðum, vestanfjalls og í Norður-Noregi. Fyrsti áfang inn var miðaður við 500.000 ha. lands til 60 ára eða 8.200 ha. á ári. Á sama tíma byrjuðu hin einstöku héruð að gera sínar áætlanir og áherzla lögð á betri skipan í heild. Á síðustu 15 ár- um hefur verið plantað í 135.000 ha. eða miklu meira en fyrst var ráðgert. Nú er ný áætlun gerð og gert ráð fyrir að planta í 162.000 ha. árlega. Árlega eru lögð niður 4000 býli í Noregi. Ráðgert er með skógræktarframkvæmdum, sem HINIR ÁRLEGU nemendatón- leikar Tónlistarskólans, vorið 1966, verða sunnudaginn 15. og fimmtudaginn 19. maí n. k., kl. 5 síðdegis báða dagana. Tónleikarnir sunnudaginn 15. maí, verða í Lóni og koma þar aðallega fram yngri nemendur skólans og leika á píanó, orgel og fiðlu. Aðgangur að þeim tón- leikum er ókeypis. Tónleikarnir fimmtudaginn 19. maí, verða í Borgarbíói og koma þar fram eldri nemendur skólans og leika á píanó og fiðlu. Aðgöngumiðar að þeim tónleikum verða seldir við inn- ganginn. Þess er að vænta, að bæjar- búar sæki þessa tónleika og sýni með því, að þeir hafi áhuga á að fylgjast með árangri af námi bama þeirra, sem nám stunda í skólanum, þannig verð- ur nemendunum bezt launað erfiði þeirra. Það er þeim einnig hvatning við námið, að þau síðar eiga að skila góðum arði, að hjálpa sem flestum bændum til að bæta skógrækt við þær búgreinar, sem á hverjum stað eru fyrir hendi. Sjálfir afla bændur sér nú aukatekna með því að vinna að skógrækt á eig- in jörðum fyrir skógræktarfé ríkisins. Sú vinna er einkum við plöntun nýskóga. Norsku skógarnir gefa þjóð- inni 20% af gjaldeyristekjunum og þann þátt vill hún auka til muna, auk þess sem það þykir hafa mikla þýðingu, að sem stærstur hluti þjóðarinnar búi í dreifbýli. Tegundir skógarplantna, sem gróðursettar eru siðustu árin eru mismunandi eftir landshlut- um en í heild er norska grenið 80%, sitkagreni 14% og minna af öðrum tegundum. Trjáfræ er sótt til Mið-Evrópu, British Columbía og Alaska, en mest er þá heimaræktað fræ. Norðmenn hafa, sem kunnugt er, stutt íslenzkt skógræktar- starf með höfðinglegum gjöfum. finni, að bæjarbúar hafi áhuga á að fylgjast með námi þeirra. Sækið því tónleikana vel. □ ÞAÐ SEM KOMA SKAL Ýmsar iðngreinar berjast nú við vaxandi örðugleika af völd- um stjórnarráðstafana, svo sem forvígismenn iðnaðarins hafa lýst yfir. Sumar berjast bókstaf- lega fyrir lífi sínu og aðrar eru dauðar. Lánsfjárskortur, okur- vextir og of skammur aðlöðun- artími til að mæta hinum mikla innflutningi iðnvara, eru lieima tilbúnar meinsemdir. Og menn spyrja. Er þetta það sem koma skal? BÍLASALAR f STAÐ IÐN- VERKAFÓLKS Kexverksmiðjan Lorelei á Ak- ureyri hætti framleiðslu fyrir nokkru, gafst upp í hinni hörðu samkeppni. Um síðustu lielgi opnuðu reykvískir kaupsýslu- menn bílaumboð og verzlun í húsakynnum verksmiðjunnar. Allir finna til þess, að atvinnu- fyrirtæki hér í bæ skuli þurfa að hopa af hólmi og sérstæð framleiðslugrein hverfa af svið- inu. ÆSKULÝÐSDANSLEIKIR Bæjarbúi ræddi nýlega þá hug- mynd, að bæjarstjórn; eða æsku lýðsráð í umboði hennar, tækju Hótel KEA og Sjálfstæðishúsið á leigu viss og fyrirfram ákveð- in kvöld í mánuði, til að halda þar menningarlega dansleiki fyrir ungt fólk, þar sem væru beztu fáanlegar hljómsveitir og aðgangur miðaður við miðlungi efnuð ungmenni. Samliliða yrði tekin upp danskcnnsla í öllum skólum á vegum bæjarins. Þetta þótti þeim, er þetta ritar, góð hugmynd og kemur henni hér með á framfæri. TVÖ RÍKI Þórarinn Þórarinsson ræddi um það, að síjórnir í nágrannalönd- um íslendinga teldu það eitt aðalverkefni sitt að stuðla að stöðugu verðlagi. Hann sagði, að um ÖII Norðurlönd væri hlegið að Norræna húsinu í Reykja- vík, sem stöðugt þyrfti að vera að hækka framlag til vegna sí- hækkandi verðlags. Hann kvað útreikninga ráðherra í framtíð- argróða af orkusölu frá Búr- fellsvirkjun byggða á hugarór- um, því að síðari virkjanir yrðu dýrari. Skatt- og tollgreiðsla yrði miklu minni hjá Alsviss hér en í Noregi. Álsamningur- inn yrði fordæmi, og það mjög slæmt. Kjörin, sem hér væri talað um, væru kannski talin boðleg í Afríkulöndum en ekki annarsstaðar. Hann sagði, að ef lialdið yrði áfram slíkum samn- ingum, yrðu hér í rauninni tvö ríki í atvinnulífinu, íslenzkt og' erlent og hinn íslenzki atvinnu- rekstur byggi við verri kjör í sínu ríki. TIL ÞESS VAR HÚN í HEIM- INN BORIN Jón Þorsteinsson alþingismaður ■ sagði í útvarpsumræðunum frá Alþingi: „Bygging álbræðslunn- ar kann að örva dýrtíðina“. Hann var vísí eini stjórnarsinn- inn, sem ekki kunni við að ganga fram hjá þessu atriði. Hann sagði, að þetta væri „til- raun“. Síðan yrði að bíða í lang- an tíma til að ganga úr skugga um, hvernig tilraunin gæfist. Það var hans skoðun, en ekki er um aðra vitað. Ýmislegt lét Jón fjúka. Han sagði, að stöðva bæri stofnun nýbýla, og ef ann- að dygði ekki, ættí að stöðva kaupgjald og afurðaverð með Iögum, eins og Alþýðuflokkur- inn hefði gert 1959! Hann sagði líka, að í verðbólgumálinu hefði frammistaða ríkisstjórnarinnar þurft að vera betri en hún hefði verið, og að hún ætti ekki að afsaka sig með verðbólgu fyrr á tímum. Auðvitað er þetta út af fyrir sig rétt hjá Jóni, því að núverandi stjórn sagðist á sín- um tíma vera til þess í heiminn borin, að koma á' stöðugu verð- lagi! MARKLAUS LOFORÐ Ólafur Jóhannesson sagði, að með gerðardómsákvæði álsamn- ingsins kæmu utanstefnur í nýj- um stíl. Fordæmi væri eitt í heiminum: Ghana. Hann vék að þeirri kenningu Alþýðublaðsins nýlega, að verðbólgan gerði „mörg heimili að húseigendum“. Hins vegar hefði Ilaraldur Guð- mundsson sagt fyrir mörgum árum, að hún gerði „hina ríku ríkari en hina fátæku fátækari“, og væru það fræg orð. Hann sagði, að fulltrúaráð verkalýðs- félaganna í Reykjavík, þar sem Alþýðuflokks- og Sjálfstæðis- menn væru í meirihluta, hefði nú skrifað undir 1. maí ávarp þar sem stæði orðrétt, að „marg- ítrekuð loforð ríkisstjórnarinn- ar hafa reynzt marklaus“. Þetta ávarp væri m. a. undirritað af Guðjóni Sigurðssyni og Óskari Hallgrímssyni, sem hafa verið forystumenn stjórnarflokkanna í verkalýðsmálum. Vitnisburður slíkra væri athyglisverður. Nú mætti segja, að stjórnin héngi í stýrishúsinu en væri búin að sleppa stjórninni á þjóðarskút- unni. Dague kemur næst út á laugardaginn 14. maí. Strik í Búrfellsreikninpn SAMKVÆMT upplýsingum í grein eftir Sigurvin Einarsson alþm., sem ekki hefur verið andmælt með rökum, liggja nú fyrir þessar staðreyndir um Búrfellsvirkjun og ráðgerða orkusölu hennar til álverksmiðjunnar: 1. Búrfellsvirkjun fullgerð (210 þús. kw.) kostar, samkvæmt gögnum álnefndar í neðri deild Alþingis 1913 millj. króna, eða nálega 300 millj. kr. meira en gert var ráð fyrir í stjórnarskýrslu vorið 1965. 2. Árlegur reksturskostnaður 210 þús. kw. Búrfellsvirkjun- ar — fjármagnskostnaður, starfræksla og olíukostnaður varastöðva — verður 216,5 millj. kr. á ári, en kílóvatt- stundafjöldinn áætlaður 1720 milljónir. Rekstur — eða framleiðslukostnaður á kílóvattstund 12,58 aurar. 3. Orkuverð til álverksmiðjunnar verður 10,75 aurar. 4. Tap á áætlaðri 1060 millj. kílóvattastunda orkusölu til ál- verksmiðjunnar verður nálega 19,4 mUIj. kr. á ári, miðað við framleiðslukostnað. Gögn álnefndar neðri deildar Alþingis, sem útreikningar þessir byggjast á, eru fengin hjá ríkisstjórninni. Nemendatónleikar á Akureyri

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.