Dagur - 17.05.1966, Blaðsíða 1

Dagur - 17.05.1966, Blaðsíða 1
HOTEL Herbergis- pantanir. Fer3a- skriístofan Akureyri, Túngötu 1. Sími 11475 DAGU JK XL.IX. árg. — Akureyri, þriðjudaginn 17. maí 1966 — 38. tbl. FERÐASKRIFSTOFANs™ Skipuleggjum íerðir skauta ó milli. Farseðlar með Flugfél. ísl. og Loítleiðum. Kæftumerki á braut efnahagsmála Sex stiga hækkun vísitölunnar á einum mánuði VÍSITALA framfærslukostnað- ar hækkaði í síðasta mánuði um nálega 6 stig og er nú 191 stig. Hefðu slíkar fréttir þótt stór- kostlegar, jafnvel ótrúlegar fyrr á árum, meðan hóf var á framfærslukostnaði og hækkan- ir litlar, miðað við það sem nú er. Slík vísitöluliækkun rétt fyrir kosningar hefði þótt all- glöggt merki um að stjómar- skipti væri skammt undan. Og víst er um það, að þessi nýja hækkun er hættumerki, sem enginn má loka augunum fyrir, svo uggvænlegur er vegurinn framundan í dýrtíðar- og efna- hagsmálum. Nj'Ieg verðhækkun á fiski og smjörlíki, eiga sinn þátt í vísi- töluhækkuninni, eða 3,8 stig. Samkvæmt þessu skal, á tímabilinu 1. júní til 31. ágúst greiða 13,42% á laun og aðrar vísitölubundnar greiðslur. □ m - - ' -.’I -i _ ::i ;< Fréffabrél frá Húsavík Húsavík 15. maí. Náðzt hefur í dálitla loðnu og smásild vestur við sand. Þorskafli á færi er ágætur, sérstaklega þegar næst í nýja beitu. Grásleppuveiðin hófst snemma og gekk allvel framan af, en að undanfömu verið mjög treg. Sauðburður stendur nú sem í Hlýðnir Sjálfsfæðis- i menn sæfta sig við I dieselrafstððvar i Norðurlandi og frúal á „náðarspena” j að sunnan fyrir aldamói. i hæst og gengur yfirleitt vel. Þó ber það við, að ám gengur illa að bera og er langri innistöðu kennt um. Barnaskóla Húsavíkur var slitið í gær. Hann starfaði í 11 bekkjardeildum og nemendur voru 222. Hæstu einkun á barna prófi hlaut Guðrún Jóhanns- dóttir 9,44. Við skólaslitin af- henti skólastjórinn, Kári Arnórs son ýmis verðlaun, sem skólinn veitir. Kristjana Þorsteinsdóttir hlaut verðlaun fyrir beztan árangur í íslenzku og sögu, Ást- hildur Bjarnadóttir og Emelía Harðardóttir fyrir beztu frammi stöðu í sundi og leikfimi. í vet- ur var haldið skíðamót á veg- um skólans. Sigurvegari í ald- ursflokki stúlkna 7—9 ára var Helga Kristinsdóttir, 10—12 ára Björg Jónsdóttir, drengir 7—9 (Framhald á blaðsíðu 6) Úr borholu á Húsavíkurhöfða kom 94 stiga heitt vatn. Verið er að dæla upp úr holunni. (Ljósmynd: P. A. P.) RæSumönnum Blisfans frábærlega fekií á ágæfum kjósendafundi í Borgarbíói i KJÓSENDAFUNDUR B listans í Borgarbíói sl. laugardag var fjölmennur, og hefði ]>ó orðið enn fjölmennari, ef veð- urblíða þennan dag hefði ekki freistað manna til útiveru á þessu síðbúna vori. Af frambjóðendum listans tóku 10 til máls og var gerður mjög góður rómur að málflutningi rnanna. Efsti maður B-Iistans, Jakob Frímannsson, tók fyrstur til máls og flutti stórathyglisverða og snjalla ræðu, sem birt verð- ur í blaðinu á morgun. — Hún fjallaði um Akureyri og sam- vinnustefnuna. NÝR DÝRTÍÐARSKATTUR Á LANDBÚNAÐINN ÞAU TfÐINDI bárust út yfir landsbyggðina um síðustu helgi, að ákveðið hefði verið, að leggja 50 aura innvigtunargjald á hvern lítra mjólkur og aðra 50 aura til viðbótar á hvern lítra yfir sumarmánuðina. Þetta hef- ur í för með sér tilsvarandi lækkun á mjólkurverði til bænda og er áætlað að nemi 80 millj. kr. á ári í tekjulækkun hjá bændum, sem framleiða mjólk. Vegna þessara neyðarráðstaf- ana Framleiðsluráðs, að lækka mjólkurverð til bænda og greiða niður smjörverðið, kostar smjör- kílóið nú aðeins 65 krónur í smá sölu. Þessi 80 millj. króna tekju- skerðing hjá bændastéttinni, er í rauninni fyrst og fremst nýr og síórkostlegur dýrtíðarskatt- ur, af völdum núverandi stjórn- arsfefnu eða stjórnleysis. Vegna hraðvaxandi dýrtíðar hér á landi hefur framleiðslukostnað- ur búanna aukizt og bilið milli innanlandsverðsins og útflutn- ingsverðsins á landbúnaðarvör- um breikkað svo mjög, að hinar lögleyfðu útflutningsbætur hrökkva hvergi nærri til að jafna metin. Eftir langvarandi samninga- viðræðu bændasamtakanna við rikisstjórnina, er nú komið í Ijós, að ríkisstjórnin var ekki fáanleg til að auka útflutnings- uppbæturnar eða veita aðstoð á annan hátt í þessum vanda. Byrðin Ieggst því á bænda- stéttina með fullum þunga. □ Stefán Reykjalín ræddi ýms- ar framkvæmdir í bænum, en þó einkum hafnarmál og mal- bikun gatna. Hann rakti sögu dráttarbrautarmálsins og sagði, að þá um daginn hefði verið innt af hendi fyrsta greiðslan til þessarar framkvæmdar, 3,5 millj. kr., en kostnaðurinn alls væri áætlaður um 40 millj. kr. Samtímis ynni Slippstöðin áð byggingu sem væri álíka að rúmmáli og Bændahöllin í Reykjavík. Hann kvað Akur- eyri eiga að vera mesta skipa- smíðabæ landsins og stálskipa- smíði ætti að verða lyftistöng í norðlenzku atvinnulífi. Hann sagði, að gatnagerðargjald í nýj um hverfum væri óréttlátt. Hann kvaðst vilja að Akureyri fengi leyfi til að bjóða út fram- kvæmdalán, er nytu samskonar skatthlunninda og ríkislán. Hvatti hann bæjarbúa til að kjósa 5. manna B-listans, Hauk Árnason í bæjarstjórn. Fleiri ræðumenn tóku þar í sama streng. Hólmfríður Jónsdóttir bað stuðningsmenn B-listans að ganga glaða og reifa til kosn- inganna. Efstu menn listans þeir, er setið' hafa í bæjarstjórn, sem aðalmenn og varamenn, væru valinkunnir menn og he'fðu farið vel með umbo'ð sitt. Þeir ættu skilið þakklæti og traust. Jafnframt ræddi hún skólamál, íþróttamál, líknar- mál o. fl. Karl Steingrímsson ræddi m. a. um íbúðamál unga fólksins og nauðsyn nýrra framkvæmda í skólamálum, t. d. í Glerárhverfi. Hann minnti á, að Akureyri væri nú viðurkennd miðstöð vetraríþrótta og einn fegursti bær á íslandi. Traust og ábyrg forysta Framsóknarflokksins væri mikilsverð fyrir bæjarfé- lagið. Svavar Ottesen flutti athyglis verða ræðu um íþróttamál bæj- arins og kom víða við. Ræddi m. a. um Skiðahótelið, sem væri hið myndarlegasta á landinu, væntanlegt íþróttahús, skíða- lyftur í Hlíðarfjalli, aðalíþrótta- leikvang hæjarins, smærri velli fyrir unglinga og börn, að- stöðu fyrir skautahlaup, golf, tennis, siglingar á Pollinum o. fl. Hann kvað íþróttafélögin vinna mikil menningarstörf fyrir æsku bæjarins, og væri gott til þess (Framhald á blaðsíðu 7) Framsóknarmenn freysía á úrræði sam- vinnu og samhjálpar. Ræðumenn, fundarstjóri og fundarritarar á kjósendafundi B-listans í Borgarbíói sl. laugrdag. (Ljósmynd: E. D.) ii iiiiiiiimiiminmi

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.