Dagur - 17.05.1966, Síða 3
3
. .;;v;vviv<::v:v:sc*:W»jáSi
Bætf lífskjör valda æ fleiri slysum
FJÖLDI slysa á heimilum vek-
ur ugg. Milli 5 og 10 af hundr-
aði íbúanna í iðnþróuðum lönd-
um verða árlega fyrir svo alvar
legum slysum heima fyrir, að
þörf er læknisnjálpar eða a. m.
k. dagsdvalar'í rúminu, að því
er segir í skýrslu frá Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnuninni
(WHO).
Æ betri lífskjör gera heimilin
sífellt hættulegri, einkum fyrir
börn og gamalmenni. Tækni-
lega fullkomnar heimilisvélar
og önnur rafmagnsáhöld, svefn-
töflur og önnur sterk lyf, gljá-
bónuð gólf, glóðarofnar, eld-
fim gerviefni og loftþéttir plast
pokar eru nokkur dæmi um
hluti sem fela í sér hættu og
verða sífellt algengari á heim-
ilum.
Alþj óðaheilbrigðismálastofn-
unin safnar reglulega rannsókn-
igS
HID VIÐURKENNDA EINANGRUNARCLER
lúmiíMiWM
SKÚLAGÖTU 26 — SlMI 12056 - 20456
um frá 47 löndum með samtals
650 milljónir íbúa til að koma
á reglu og samræmi milli þeirra
aðferða sem beitt er við skýrslu
gerð og eru oft harla sundur-
leitar. Fær stofnunin þannig yf-
irlit yfir slysin um heim allan.
Karlmönnum hættast.
Enda þótt konur séu að jafn-
aði meira heima fyrir og séu
þannig oftar í nánd við hætt-
urnar, verða fleiri karlmenn en
konur undir 65 ára aldrei fyrir
slysum á heimilum, samkvæmt
bandaríkskri rannsókn. En börn
og gamalmenni verða samt lang
harðast úti, samkvæmt upplýs-
ingum WHO. Bömin véi-ða' fýr-
ir mörgum smærri slysum, en
gamla fólkið verður að jafnaði
fyrir færri slysum,' sem h.afa
hins vegar alvarlegri áhrif og
leiða það einatt til dauða.
Árið 1963 könnuðu 10 lönd
að tilmælum Alþjóðaheilbrigðis
málastofnuná'finnar, hve stór
hluti samanlagðra.slysa ætti sér
stað innan fjögurra veggja heim
ilisins. Noregur og Fínnland
voru fulltrúar Norðurlanda í
þessari rannsókn. í Noregi'kom
í ljós, að slysin yoru.algengusi
69 af hundraði allra slysa, sem
konur áttu hlut að, -áttú sér
stað á heimilum, éh samsváf-
andi hlutfaílstala fyrir karl-
menn var 23,4.......
Afleiðingamar fyrir þjóðfélagið.
Lauslegir bándarískir útreikn
ingar sýna, að áttundi hver íbúi
Bandaríkjanna slasaðist heima
hjá sér árið 1960. Fyrri rann-
sókn í Bandaríkjunum leiðir í
ljós afleiðingar slysánna ’fýrir
þjóðfélagið; 100 starfandi karl-
menn missa að jafnaði .16,9
vinnudaga og Í00 konur 41,3
vinnudaga á ári, eingöngu
vegna þess að þau hafa slasazt
heima hjá sér. Samsvarandi töl-
ur fyrir skólabörn eru 16,3 fjar-
vistardagar fyrir 100 drengi og
8,5 fyrir 100 telpur.
Það er samt ekki einvörð-
ungu í iðnaðarlöndunum sem
heimilið er hættulegt. 28 af
hundraði allra dauðsfalla á
Ceylon á einu ári stöfuðu t. d.
af vinsælum olíulampa, sem nú
er reynt að útrýma með annarrj
hættuminni gerð.
Fjöll og eldsvoðar.
Milli 50 og 80 af hundraði
allra slysa sem stafa af byltum,
eiga sér stað á heimilum. í flest-
um tilfellum er um að ræða
aldraðar konur. Hjá þessu má
sneiða með því að láta tröppur
ekki hallast meira en 37 gráður
og hafa þrepin a. m. k. 25 senti-
metra breið og ekki hærri en
15 sentimetra, samkvæmt leið-
beiningum í síðasta hefti af
„WHO Chronicle“. Gúmmí-und-
irlag undir teppum, gúmsólar á
inniskóm, gluggar sem opnast
inn á við og góð lýsing geta
einnig komið í veg fyrir byltur.
Milli 60 og 90 af hundraði
allra dauðsfalla, sem stafa af
eldsvoðum eiga sér stað á heim
ilum í Evrópu og Bandaríkjun-
um. Sérstaklega er varað við
þeirri gerð glóðarofna (grill)
þar sem steikarristin er í augn-
hæð. Fernis, lakk og gerviefni
eru eldfim, og ýmsir skaftpottai-
og steikarpönnur eru vitlaust
smíðuð, þannig að þau velta auð
veldlega. Loftþéttir öskubakkar
sem hægt er að loka, hitamæl-
ar á öllum rafmagnstækjum og
grindur fyrir opnum eldstæðum
geta bjargað mörgum mánnslíf-
inu, segir ennfremur. . Q
BREYTTIR FRAMLEIÐSLUHÆTTIR
Á AÐALFUNÐI Osta- og smjör
sölunnar, sem nýlégá var hald-
inn í Reykjavík, kom það m. a.
fram, að innvegin mjólk til
mjólkursamlaganna varð 106.
515.226 kg. árið 1965. Aukning-
POiyte31 Innan
utan
Polylex plastmálniir ?r vara
legust, álerðarfalle st, og lé
ust f meölörum. Mj. iölbrey
litaval.
Notíö Polytex plasti. Tningu
innan húss sem uta. - gerið
tieimilið hiyiegra og vlstlegra
með Polytex.
in var 6 millj. kg. frá ’ árinu
1964. Á síðasta ári hafði ósta-
framleiðslan aukizt um 330
tonn og smjörframleiðslan um
220 tonn, miðað við næsta ár á
undan. Vegna aukinnar smjör-
framleiðslu í mörgum löndum
hefur ekki reynzt kleift að selja
umframframleiðslu smjörs úr
landi, en áður nam þessi út-
flutningur, einkum til Bret-
lands, um 550 tonnum. Hins
vegar var markaður fyrir osta
á brezkan, þýzkan og banda-
rískan markað.
Verið er nú að undirbúa
breytta framleiðsluhætti í
mjólkursamlögunum, sem miða
að aukningu osta- og mjölfram-
leiðslu en draga úr framleiðslu
smjörs. En sú þróun er þegar
sýnileg í búskaparháttum
bænda, að draga úr framleiðslu
aukningu mjólkur en auka fram
leiðslu sauðfjárafurða.
Smjörbirgðirnar 1. apríl í ár
voru 1025 lestir og höfðu minnk
að um 200 lestir á undanförnum
mánuðum.
Framkvæmdastj óri Osta- og
smjörsölunnar er Sigurður
Benediktsson. Fyrirtækið hefur
greitt samlögunum allt and-
virði seldra vara 1965 og auk
þess 7,5 millj. kr. endurgreiðslu,
sem er tekjuafgangur. □