Dagur - 17.05.1966, Side 7

Dagur - 17.05.1966, Side 7
7 Ágæfur kjósendafundur B-lisfans (Framhald af blaðsíðu 1.) að vita, að þeim hefur verið út- hlutað landsvæðum vegna starf semi sinnar. Hann hvatti kjós- endur til að hafna þeim fram- bjóðendum, sem hefðu reynzt ósjálfstæðir gagnvart höfuðborg arvaldinu og hefðu lagt blessun sína yfir sogdæluna miklu í Straumsvík. Jón Aspar ræddi einkum út- gerðar- og.fiskiðnaðarmál hér á Akureyri og í landinu og mikil- vægi þeirra fyrir bæinn og þjóð ina í heild. Sagði, að á vegum útgerðar og fiskiðnaðar hér væru 600 manns á sumrum og 400 á vetrum. Þá ræddi hann landhelgismálið og hættuna á því, að útlendingar yrðu látnir ná fiskiðnaðinum á sitt vald. Sagði að Framsóknarflokknum væri bezt treystandi til að fylgja fram kjörorðinu: ísland fyrir Islendinga. Sigurður Jóhannesson sag'ði, að í bæjarstjórnarkosningunum fengju menn tækifæri til að lýsa vantrausti á stefnu ríkis- stjórnarinnar og aðvara hana. í dýrtíðar- og launamálum hefðu stjórnarloforð ekki verið efnd. Nú ættu kjarasamningar að hefjast um næstu mánaða- mót. Hann ræddi um fyrirhug- að félagsheimili verkalýðsfélag- anna. Sigurður sagði, að búa yrði svo í haginn fyrir slíka fóiksfjölgun á Akureyri, að dregið yrði úr fólksflutningum suður, og áfram bæri að halda uppbyggingu landsins alls. Haukur Árnason ræddi eink- um um skipulega stjórn fjár- magns og framtíðarskipulag Ak- ureyrar, samhliða verndun lands lagsfegurðar. Sagði mikið fjár- magn gagnslaust í hálfbyggðum húsum. Hvatti til stofnunar Framfarasjóðs Akureyrar, sagði útboð nauðsynleg, og þyrftu reykvísk fyrirtæki ekki að hafa einkarétt á slíku. Byggingar- kostnaður yrði að lækka og kæmi skipulagning fjármagnsins þar mjög við sögu. - Laugsaskóla lokið (Framhald af blaðsíðu 8). veitti bókaverðlaun fyrir beztu frammistöðu í íslenzku. Fæðiskostnaður pilta í vetur varð kr. 69.95 á dag og kr. 59.90 fyrir stúlkur. G. G. Sigurður ÓIi Brynjólfsson ræddi um það takmark í þjóð- málum, að skapa hér á landi frjálst lýðræði og menningar- þjóðfélag eftir leiðum samtaka samvinnu og flaégshyggju, að uppbygging landsins þyrfti að vera sem jöfnust til hagnýting- ar náttúrugæðanna. Hann sagði, að flóttinn til höfuðborgarsvæð- isins myndi ekki stöðvast af sjálfu sér, og að Akureyri ætti að vera miðstöð norðlenzkrar sóknar. Þá ræddi hann um for- göngu Framsóknarflokksins í skólamálum landsbyggðarinn- ar, og nefndi sem dæmi mennta- skólann hér, héraðsskólana, hús mæðr.askólana, vísi að tækni- skóla hér á Akureyri o. fl. Því náest gerði hann stuttlega grein fyrir því, er áunnist hefði síð- ustu árin eða framundan ætti að vera hér í bæ í uppeldismálum og heilbrigðismálum og í menn- ingarmálum ýmiskonar. Nefndi þar m. a. að betur þyrfti að sjá fyrir gæzlu og öryggi barna með tilliti til þess, að mæður yrðu nú í vaxandi mæli að vinna utan heimilis. Hann sagði, að iðn- skólabyggingin hér hefði verið knúin fram gegn mótstöðu syðra. Kosningarnar 22. maí n.k. kvað hann snúast um tvo megin þaetti samtímis, skipan bæjar- stjórnarinnar og viðhorfið til nú verandi stjórnarhátta í landinu. Arnþór Þorsteinsson hóf mál sitt með því að ræða um fyrir- hugaða Laxárvirkjun. Hann sagði að enn væri ófengið leyfi ríkisstjórnarinnar til virkjunar, svo og fyrirgreiðsla þess varð- andi útvegun fjármagns, en um ræður stæðu fyrir dyrum. Síð- an ræddi hann um Akureyri sem iðnaðarbæ og að stálskipa- smíði væri hafin hér með for- göngu samvinnuhreyfingarinnar og forstjóra Slippstöðvarinnar. Hann sagði, að stefna ríkisstjórn arinnar gagnvart iðnaðinum væri mjög ískyggileg. íslenzkur iðnaður, sem greiddi venjulega tolla af innfluttum vélum og hráefni, væri nú fyrirvaralítið ætlað að kippa við erlend stór- fyrirtæki, sem hleypt væri inn á íslenzkan markað, án þess að íslenzkur iðnaður hefði fengið nauðsynlega fyrirgreiðslu og að- lögunartíma. Nú væri jafnvel gert ráð fyrir að lækka tolla á erlendum iðnvörum um 50% og auðvelda þeim þannig innrásina á markaðinn hér. Samtímis byggi innlendi iðnaðurinn við óðaverðbólgu eins og fram hefði komið í ummælum formanns iðnrekendasambandsins. Þetta væru alvarleg tíðindi fyrir iðn- aðarfyrirtækin hér og þann fólksfjölda, sem þar vinnur, en horfur á, að vinnuafl héðan yrði lokkað til stórframkvæmda syðra. Einnig ræddi hann um út gerðarmál Akureyringa og fram tíð togaraflotans. Hann kvað bæjarfulltrúa Sjálfstæðis- og A1 þýðuflokksins hér vera hand- bendi stjórnarstefnunnar og kosningaúrslitin örlagarík fyrir Akureyri. Hér að framan er aðeins drep- ið á nokkur meginatriði, er <-------------------------- Bannorð Sjálfstæðis- manna: Minnisf ekki á einkaframfakið hér í bæ eða bankastarf- semina. Ekki eitf orð um Sana, ekkerf um bjórinn og nefnið ekki Elliheimilið í Skjaldar- fram komu hjá ræðumönnum. Ingvar Gíslason alþirigismaður stýrði fundi og flutti þakkir og hvatningu í fundarlok. Fundar- ritarar voru þau Kolbrún Bald- vinsdóttir og Hákon Hákonar- son. □ TIL ÞORBERGS ÓLAFSSONAR á 75 ára afmælinu 9. maí 1966 , . , ( j . r -r,y^r Enn þú hefir orku og dug eftir sjö og hálfan tug æviára á jörðu, þú hefir sýnt og sannað bezt að sértu í þeirra hópi, er mest bæði gáfu og gjörðu. Allra heilla ég þér bið, undu hraustur starf þitt við, kempan ung í anda. Heiður þeim sem heiður ber, heillavættir gefi þér háspil allra handa. Gefist þér nú gæðaár, grösugt tún og þerrir klái', dafni hjörð í haga. Góðir menn með geðið kátt gleðji þig á margan hátt alla ævidaga. Baldur Eiríksson. SKRIFSTOFUR FRAMSÓKNAR- FLOKKSINS Á AKUREYRI SKRIFSTOFAN HAFNARSTRÆTI 95 er opin kl. 10—12, 2—6 og 8—10 alla daga til kosn- inga. SKRIFSTOFAN I.ÖNGI IILÍI) 2 er opin kl. 8—10 öll kvöld til kosninga. Stuðnings- menn látið skrá ykkur til starfa. B-listinn. KOSNINGASJÓÐURINN Stuðningsmenn tryggið skerf í kosningasjóðinn. — Margt smátt gerir eitt stórt. SJÁLFBOÐALIÐAR! Þeir stuðningsmenn B-listans, sem vilja starfa á kjör- degi, eða við undirbúning kosninganna fram að þeim tíma haf samband við skrifstofurnar Hafnar- stræti 95, símar 1-11-80 og 1-14-43, og Löngujnýri 2, sími 1-23-31. Þar er einnig tekið á móti framlögum í kosningasjóðinn. - Vaxandi athafnabær (Framhald af blaðsíðu 4). liún í nokkra daga skinið í stof- um liúsfreyjanna á norður hæð- um. Þaðan mun einnig styttra í kríueggjaleit á vorin en frá öðrum bæjarhlutum. A þessum framantoldum hlut- um öllum sjáum við, að Húsa- vík er vaxandi athafnabær og þar gerast margir atburðir í senn, sem til framfara horfa. Nú eru þeir dagar á íslandi, að hugir manna snúast um fátt meir, en í hönd farandi kosning- ar til sveita- og bæjarstjórna. Orð verða fleiri og stærri, en að jafn- aði tíðkast að nota og mörgum hitnar í hamsi. Allir unna sinni byggð og sínu bæjarfélagi og haga kjöri sínu á kjiirdegi í samræmi við það. Á sjálfum kjördegi ber hverjum og einum að lægja storin inn í sjálfum sér, verandi í kjör- klela einn með samvizku sinpi, hugsa, .... og kjósa svo, Og sem nú allir jjessir hlutir eru að gerast með mönnum, þá hafa þrestir komið norður hingað sunnan úr löndum, langan veg. Þeirra annríki er mikið, svo sem hjá mönnum, enda virðist þeim einnig hafa verið uppálagt, að vera frjósömum og uppfylla jörð- ina. Margir þeirra liaía þegar á- kveðið að vera hjón og hafa num ið lönd, gjarnan í trjágöngum frumbyggja. Og í gleði sinni yfir öllu þessu tylla þeir sér á húsþök in eða á þær greinar trjánna, sem liæst ber og syngja daglangt. Már inn hefur þraukað veturinn á rneðal okkar og haldið sér í mergð, þar sem Eiríkslækur og Búðará renna í sjó fram. Þeir, sem setjast í stofu Guðjóns rak- ara, geta unað sér við að horfa á síkvikan hópinn á meðan þeir bíða eftir klippingunni. Guðjón getur líka frætt þá á því, að már inn er búinn að skipta um róm írá því í vetur og íarinn að elska. Margir Húsvíkingar eru fyrir þó nokkru búnir að heyra í lóu og stelk, en um miðjan maí kemur krían og þá er komið sumar. - Hverja er hollast að kjósa? (Framhald af blaðsíðu 4) unarhætti hennar. Það eru því fulltrúar Framsóknar- flokksins, sem fólkinu á Norðurlandi, er vill eflingu bæja sinna og sveita, er holl- ast að kjósa x bæjarstjórnir og lrreppsnefndir nú í vor. Mennina, sem eru áhangend- ur núverandi landsstjórnar, Straumsvíkur ábyrðarmenn- ina, skyldu Norðlendingar foiðast. Austanáttarmönnun- um, hvort sem þeir kalla sig Alþvðubandalagsmenn eða annað, er líka fráleitt að veita fylgi. KJÖRSEÐILL við bæjarstjórnarkosningar í Húsavíkurkaupstað 22. maí 1966. A-LISTI X B-LISTI D-LISTI G-LISTI H-LISTI Listi Alþýðuflokksins Listi Framsóknarflokksins Listi Sjálfstæðisflokksins Listi Alþýðubandalagsins Listi óháðra kjósenda Guðmundur Hákonarson Amljótur Sigurjónsson Sigurður Gunnarsson Sigurjón Jóhannesson Jónas Egilsson Einar Fr. Jóhannesson o. s. frv. Karl Kristjánsson Finnur Kristjánsson Haraldur Gíslason Sigtryggur Albertsson Einar Njálsson Ingimundur Jónsson o. s. frv. Ingvar Þórarinsson Páll Þ. Kristinsson Þórhallur B. Snædal Vernharður Bjarnason Þuríður Hermannsdóttir Jón Ármann Árnason o. s. frv. Jóhann Hermannsson Freyr Bjarnason Hörður Arnórsson Albert Jóhannesson Kári Arnórsson Kristján E. Jónasson o. s. frv. Ásgeir Kristjánsson Sigurður Jónsson Helgi Kristjánsson Guðjón Björnsson Júlíus Stefánsson Kristján Ásgeirsson o. s. frv. Þannig lítur kjorseðillinn út á Húsavík, þegar kosinn hefur verið listi Framsókharflokksins — B-Iistinn. \

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.