Dagur - 03.08.1966, Blaðsíða 1
Herbetgis-
pcmtanir.
FerSa-
skriistoian
Túngötu 1.
Akureyii,
Sími 11475
Ferðaskrifsíofans^iliVs
Sjc'puleggjUai
íerðir skauta
á milli.
Farseðlar með
Flugíél. ísl. og
Loítleiðum.
Fjórða, stóra skemmtiferðaskipið, sem kom til Akureyrar í sumar heitir Europa. Skipið kom
hér um ofviðurshelgina og sjást hér einnig á myndinni 3 brczkir togarar. Erlendir sjómenn af
einum þeirra komu nokkuð við sögu dómsmála, sem frá segir á öðrum stað hér í blaðinu. En
þeir niisþyrmdu bæjarbúa, sem fór um borð í skip þeirra. (Ljósm.: E. D.)
Fj ór ð ungssamband
Norðlendinga
UM MÖRG undanfarin ár hafa
verið starfandi fjórðungssam-
bönd á Norðurlandi, Austur-
landi og á Vestfjörðum. Sýslur
og kaupstaðir hafa verið aðilar
að samböndunum og kosið full-
trúa á fjórðungsþing, sem halda
ber a. m. k. einu sinni á ári.
Fjórðungsþingin hafa litið á
það sem hlutverk sitt að vekja
athygli á ráðstöfunum, sem til
GULLNÁMA í HRÍSEY
I SIJMAR var borað eftir heitu
vatni í Hrísey. Arangur varð
hinn ágætasti og borunin gekk
mjög fljótt, stundum boraðir 20
metrar á dag.
Ur tveim borhplum, 100 og
120 me*tra djúpum renna nú
samtals 9 lítrar á sekúndu af
65—67 stiga heitu vatni. Þetta
vatn nægir eflaust til hitunar
hinu 300 manna þorpi í Hrísey
og er í hálfs annars kílómeters
fjarlægð frá miðju þorpinu að
telja.
Borholur þessar og hin nýja
gullnáma Hríseyinga, sem felst
í hinu heita vatni, eru skammt
utan við Saltnes. □
þess eru fallnar að stuðla að
jafnvægi milli landshluta.
Fjórðungssarnböndin á Norð-
ur- og Austurlandi áttu á sín-
um tíma frumkvæði að tillög-
um um skiptingu landsins í
fylki með sjálfstjórn í sérmál-
um. En því máli hafa þeir Karl
Kristjánsson og Gísli Guð-
mundsson hreyft á Alþingi á
ný-
Degi hefur nýlega verið tjáð,
að á síðasta fjórðungsþingi Norð
lendinga, hafi Magnús E. Guð-
jónsson bæjarstjóri á Akureyri
verið kosinn formaður fjórð-
ungssambandsins, og að hann
muni hafa gleymt því, að hann
gegni þcssu trúnaðarstarfi,
enda ekki boðað til þings á ný
á tilsettum tíma. Er það ekki
gott afspurnar fyrir höfuðstað
Norðurlands, ef svo er á litið,
að hann hafi vanrækt forystu-
hlutverk sitt á svo mikilsverð-
um vettvangi. Ættu bæjarfull-
trúar að hlutast til um, að bót
verði á þessu ráðin, Þeir mega
ekki láta bæjarstjórann eiga
svo annrikt, að hann geti ekki
gert skyldu sína í fjórðungssam
bandinu. □
í SÍÐUSTU viku lögðu ýmsir
leið sína til Þeistareykja, en
þaðan bárust fréttir af nýjum
jarðhitasvæðum og skrælnuð-
nm gróðri vegna jarðhitans.
Blaðið hitti að máli tvo þess-
ara ferðamanna, þá Jón Sigur-
geirsson frá Helluvaði og Guð-
mund Sigvaldason jarðfræðing,
og spurði þá um vegsummerki.
Jón Sigurgeirsson sagði: „Um
Enn smyglað áfengi
Á ÞRIÐJA HUNDRAÐ flöskur
áfengis og hálf milljón sigarett-
ur fundust í Skógarfossi. Smygl
varningur þessi var meðal vara
til Búrfellsvirkjunar, sem skip-
að var upp í Þorlákshöfn en
merktur Landsbankanum. Skip
verjar skipuðu sjálfir vörum
þessum í land. Tólf manns við-
urkenndu við rannsókn máls-
ins, að eiga hlutdeild í „fyrir-
tækinu“. □
Geysileg umferð en nær slysalaus um
verzlunarmannahelgina
.} -309
Bindindismannamótið í Vaglaskógi fór vel fram
Jarðhitinn á Þeista-
reykjum hefir aukizt
En ekkert bendir til þess, að það sé fyrirboði
eldgosa, segir Guðm. Sigvaldason jarðfræðingur
breytingar, er ég greinilega sá á
jarðhitasvæði Þeistareykja eru
þær, að í mólendi nokkru nokk
(Framhald á blaðsíðu 2.)
SAMKVÆMT umsögn Gísla
Olafssonar yfirlögregluþjóns á
Akureyri var umferð geysi-
mikil á þjóðvegunum um verzl-
unarmannahelgina. Mest var þó
umferðin á Vaðlaheiði vegna
hinnar miklu samkomu i Vagla
skógi. Bifreiðaeftirlitið og lög-
reglan á Akureyri höfðu eftirlit
á vegum allt vestan frá Bakka-
seli og austur að Fosshóli,
ásamt Dalvíkurvegi og öðrum
meiriháttar vegum á þessu
svæði. Umferðin gekk vel, sagði
yfirlögregluþjónninn, aðeins
einn smáárekstur á Vaðlaheiði
og var þar þó stundum svört
þoka. Fólk sýndi gætni og til-
litssemi í umferðinni. Bíll valt
nálægt Gröf í Öngulsstaða-
hreppi. Ökumaður var einn og
mun hafa sloppið lítt eða ekki
meiddur. Tveir menn voru tekn
ir íyrir meinta ölvun við akstur
á Akureyri og í nágrenni um
helgina.
Eins og sjá má af þessu, má
teljast vel sloppið hér um slóðir
yfir mestu umferðarhelgi árs-
ins, hvað slys snertir, og er það
út af fyrir sig fréttnæmt.
Þá er þess að geta, að bindind
ismótið í Vaglaskógi tókst vel.
Þar var fjölmenni mikið og 13
(Framhald á blaðsíðu 7)
BÆNDADAGOR EYFIRÐINGA
BÚNAÐARSAMDAND Eyja-
fjarðar og Ungmennasamband
Eyjafjarðar gangast fyrir sam-
komuhaldi að Árskógi á Ár-
skógsströnd n. k. sunnudag 7.
þ. m. Hefst samkoman kl. 2 e. h.
með guðsþjónustu.
Frá Þeistareykjum er ferðamenn athuga jarðhita á nýjum stöðum.
(Ljósm.: E. D.)
Ræðumenn á samkomunni
verða Ingólfur Jónsson land-
búnaðarráðherra og Jón Hjálm
arsson bóndi í Villingadal. Enn
fremur verður söngur, íþrótta-
keppni o. fl. skemmtiatriði og
að lokum dans.Mun verða sagt
nánar frá dagskrá samkomunn-
ar í laugardagsblaðinu. □
Dauft á síldarmiðum
við Jan Mayen
BÚIÐ VAR sl. laugardagskvöld
að salta í 22.890 tunnur, 68 tonn
hafa farið í frystingu og í
bræðslu 177.377 tonn. Auk þess
hafa erlend skip landað hér síld
og nálgast það magn 1.000 tonn.
Mest af þeirri sild hafa færeysk
skip aflað. Fyrsta dag þessarar
viku nam aflinn 1.659 tonn og
er aðalveiðisvæðið enn sem fýrr
suðvestur af Jan Mayen.
Sjómönnum þykir dauft, á
síldarmiðunum. Veður er þó
viðunandi en síldin stygg. Q