Dagur - 06.08.1966, Side 1
HOTEL
Herbergis-
pantonir.
Fer3a-
skriistcian
Túngötu 1.
Akureyri,
Síxni 11475
FerðaskrifstofanTún9ölu *'
l Sími 11475
Skipuleggjum
íercir skauta
á xnilli.
Farseðlar með
Flugfél. fsL og
Loítleiðum.
BÆNDADAGURINN Á MORGUN
HINN ÁRLEGI bændadagur
Eyfirðinga, sem Ungmennasam
band Eyjafjarðar og Búnaðar-
samband Eyjafjarðar hafa séð
um undanfarin ár, verður á
morgun sunnudag og að þessu
sinni í Árskógi á Árskógsströnd.
Að venju er dagskrá all fjöl-
breytt. Séra Stefán Snævarr
predikar, Ingólfur Jónsson land
búnaðarráðherra og Jón Hjálm
arsson bóndi í Villingadal flytja
ræður, kvartett frá Húsavík
syngur, gamanþáttur verður
fluttur cg að lokum stiginn
dans.
Æskilegt er og sýnir stéttvísi,
ef sveitafólk fjölmennir á þessa
hátíð sína, þótt aðrir séu að
sjálfsögðu velkomnir. Bænda-
dagurinn hefst kl. 2 e. h. □
Ekkert jarðgas en e. t. v. heitt vatn
Egilsstöðum 4. ágúst. Nú er ver
ið að leita eftir jarðgasi, sem
vitað er um hér um slóðir. Byrj
að var fyrir nokkrum dögum að
bora í jörð, á bænum Vallholti
DÁGÓÐ VEIÐI -
TJÖLDUM FÆKKAÐI
Reynihlíð 5. ágúst. Hér er að
rísa upp stálgrindahús í hraun-
jnu við Bjarnarflag — vöru-
skemma — á vegum kísiliðj-
unnar. Nú er flutt í tvö norsku
húsin, sem hér voru reist á dög
unum.
Allgóður silungsafli er nú í
net í Mývatni. Talið er, að mik-
ið hafi drepizt af andárungúm
í hretinu um daginn.
Ferðafólk er enn margt, eink-
um útlendingar. En tjöldum
fækkaði er tíð versnaði. P. J.
í Fljótsdal, við Lagarfljót. Nú
er borholan 25 metra djúp og
ekki kemur gas úr henni þótt
það rjúki upp úr eyrunum í
kring, hins vegar er botn hol-
unnar 12 stiga heitur og gæti
það bent til jarðhita og var hans
þó raunar engin von á þessum
slóðum. En það kemur væntan-
lega brátt í Ijós.
Urtökulitlar rigningar hafa
verið hér síðasta hálfan mánuð
og hefur veðráttan verið hin
leiðinlegasta og um heyskap er
ekki að ræða á meðan svo viðr-
ar sem nú er. Við sjóinn er einn
ig mikil deyfð því að nær engin
bræðslusíld hefur borizt til
Austfjarðahafna undanfarið og
saltsíldin er sáralítil nú í sumar.
Ferðafólkið, sem var margt
hér, flúði undan óveðrinu fyrir
hálfum mánuði og hefur verið
fátt síðan. V. S.
Gróður sorlnaði af særoki
(Ljósm.: E. D.)
Valaskjálf í Egilsstaðakauplúni. — Sjá grein í opnu,
ff. : 1* 1:
Aðalfundur Sféffarsambands bænda
hefs) á mánudaginn
Eyfirðingar fylgja fasf effir fillögum bændafundarins
á Hófel Sögu 20. júní síðasfliðinn
AÐALF'UNDUR Stéttarsam-
bands bænda hefst í Bændahöll
inni í Reykjavík 8. ágúst og
munu afurðasölumálin þar efst
á baugi. Fundur þessi er hald-
inn fyrr en venja er og er í því
efni komið til móts við óskir
þeirra, sem kröfðust aukafund-
ar Stéttarsambandsins. Búizt er
við fjölmennari aðalfundi sam-
takanna en nokkru sinni áður
því að formenn héraðsnefnda
bænda hafa farið þess á leit að
mega sitja fundinn, sem áheyrn
arfulltrúar.
Framleiðsluráði og þeir Helgi
Símonarson bóndi á Þverá og
Ketill Guðjónsson bóndi Finna
stöðum búnaðarþingsfulltrúar.
Formaður Búnaðarsambands
Eyjafjarðar, Ármann Dalmanns
son, setti fundinn en fundar-
stjóri var Jón Hjálmarsson
bóndi í Villingadal. Stefán
Valgeirsson bóndi Auðbrekku
hóf umræður um afurðasölu-
mál en um þau mál urðu miklar
umræður er stóðu langt fram á
nótt. Fjölluðu þær m. a. um
innvigtunargjaldið, sem bænda
stéttin hefur mótmælt kröftug-
lega og gert hefur það að verk-
um, að bændur fá nú 137 aur-
um minna fyrir hvern lítra
mjólkur en gert var ráð fyrir.
En gjald þetta skerðir mjólkur-
verðið allt að 37 aurum á líjer
að meðaltali yfir árið. En svo
sem kunnugt er, var þetta óvin
sæla innvigtunargjald sett til gð
mæta hinni stórkostlegu lækk-
un smjörs, sem í sumar var
gerð til að örva söluna og til
útflutningsbóta á útfluttar
mjólkurafurðir. Þá kom það
fram í umræðum, að eignir
bænda eru nú mun torseldari
en áður var og gildir það eink-
um um jarðir og mannvirki á
þeim og ennfremur búpening,
sem einnig hefur fallið í verði
(Framhald á blaðsíðu 7.)
NORÐANTIL á Skaga var veð
urhæð mikil í óveðrinu fyrir
hálfum mánuði. Þá gekk sjórok
á land og sölnaði bæði gras og
garðagróður.
Heyskapur hefur gengið frem
ur erfiðlega vestur þar og
spretta víða léleg, enda júlímán
uður kaldur.
Frá Skagaströnd róa tveir
bátar með snurvoð og tvær trill
ur með færi. Sæmilega hefur
fiskazt þegar gefið hefur. Næg
vinna hefur verið á Skaga-
strönd í sumar, nema fyrir stúlk
ur. Verið er að smíða nokkur
ker til hafnargerðar á Blöndu-
ósi og víðar. Q
Kjörmannafundur Búnaðar-
sambands Eyjafjarðar var hald
inn á Hótel KEA 3. þ. m. og
sóttu hann 22 fulltrúar frá 11
búnaðarfélögum auk stjórnar
Búnaðarsambandsins. Tveir
ráðunautar sambandsins sóttu
einnig þennan fund svo og Jón-
as Kristjánsson, sem sæti á í
FISKIFRÆÐINGURINN SPÁIRISJÓINN
Telur að síldin muni bráðlega færast nær landi
JAKOB JAKOBSSON fiski-
íræðingur er nú um borð í Ægi
norð-austur af landinu og hef-
ur m. a. látið hafa eftir sér, að
ástandið á síldarmiðunum nú sé
ekki lakara en í fyrra, en þá var
afli lítill. Síldin heldur sig í til-
tölulega þunnu lagi af hlýjum
yfirborðssjó en þegar kemur á
40—50 feðma dýpi er sjórinn
mjög kaldur eða um 0 gráður.
Síldin heldur sig langleiðina
norður að Jan Mayen en torfur
eru fremur þunnar.
Um 90 mílur austur af Langa
nesi hafa mörg erlend skip feng
ið allgóða veiði í reknet.
Mikil áta er á stóru liafsvæð-
um og ef síldartorfurnar þétt-
ast má búazt við góðri veiði. Þá
er nokkurt sildarmagn enn
vestur að Norður-Noregi, sem
enn hefur ekki gengið hingað
og langt austur af Jan Mayen
talsverð síld og má búazt við að
sú síld komi fljótlega nær landi.
Að samanlögðu telur fiski-
fræðingurinn líklegt, að síldin
muni áður en langt líður fær-
ast nær landi og skilyrði til
torfumyndunar batna. □
ÞRETTAN BILAR SKEMMDUST
LÖGREGLAN á Akureyri upp
lýsti í gær, föstudag, að síðan sl.
miðvikudag hefðu 13 bilar
skemmst, flestir í áreksrum hér
í bænum. En ekki urðu teljandi
meiðsli á fólki. Einn bifreiða-
áreksturinn var mjög harður, á
gatnamótum Ægisgötu og Eyr-
arvegar.
Síðustu nótt voru tveir menn
teknir fyrir meinta ölvun við
akstur. Fangageymslan var full
og hefði þurft að rúma miklu
fleiri.
Þessu til viðbótar tjáði bæjar
fógetinn á Húsavík blaðinu, að
í gær hefði bill frá Akureyri
oltið við Másvatn í S.Þing. Mun
kona, sem í bílnum var, hafa
fengið taugaáfall en að öðru
leyti sluppu menn ómeiddir.
Fyrir nokkru varð í Reykjadal
árekstur milli stórrar áætlunar
bifreiðar og jeppa. Ökumaður
jeppans lærbr.otnaði og ljggur í
sjúkrahúsi. Jeppinn varð hálf
ónýtur og stærri bifreiíjjn
skemmdist einnig mjög mikið.
ÍBA-KEFLVÍKINGAR
LEIKA Á MORGUN
NÆSXKOMANDI sunnudag,
kl. 4 e. h., leika Akureyringar
sinn 7. leik í I. deildarkcppnipni
í ár. Mæta þeir Keflvíkingum á
Njarðvíkurvelli. Vonandi tekst
Akureyringum að rétta .hlut
sinn gegn Keflvíkingum, en
þeir töpuðu fyrir þeim með 5:0
hér á íþróttavellinum um dag-
inn, sem mönnum er enn í
fersku minni. □