Dagur - 03.09.1966, Síða 4
4
9
ÍÍÍSvi; ;;v
Elzti gróðurreiturinn er vel skýldur og þar standa nú 100 þús. greni- og furuplöntur á fjórða ári.
(Framhald af blaðsíðu 8).
árinu sem líður breytist Kjarna
land af vexti skógarins og mun
verða hinn fegursti staður. En
þar er líka gamán að koma tií
.að sjá ungviðið í ffæ- og út-
plöntunarbeðunum, og þá er
ekki síður vert að taka eftir
skjólbeltunum og limgirðing-
. unum.
Ein til tvær milljónir lítilla
skógarplantna eru í uppeldi í
gróðrarstöð þessari í 10 reitum,
800—1200 fermetra stórum, sem
allir eru í skjóli limgirðinga.
En í limgirðingum er þingvíðir,
ösp, birki, gulvíðir, greni og
fura.
Vöxtur plantnanna í sumar
er mikill og virðist allt vaxa
vel í Kjarnalandi þessu sinni,
bæði tré, sem eru farin að setja
skógarsvip á landið í heild, og
svo trjáplönturnar á hinum
ýmsu aldursskeiðum. Mest er
ræktað af lerki og birki en einn
ig ýrnsar furutegundir, svo sem
bergfura og stafafura o. fl. Á
lerkinu má sjá 20—35 cm. árs-
sprota og litlu minni á greninu.
Þrestirnir hafa orðið á imdan
bæjarbúum almennt, að upp-
götva Kjarnaskóg. Þeir eru þar
hundruðum saman og una vel
lífinu, en íbúar Akureyrar vita
naumast ennþá, að Kjarnaskóg
ur er til og að þar verður mikil
gróðrarparadís þsgar stundir
líða, ef svo heldur fram sem nú
horfir.
Skógarnir vaxa á meðan fólk
ið sefur. Þeir eru augnayndi í
okkar nakta landi og þeir skýla
öðrum gróðri. Skjólbeltaræktin
hefur nú loksins hlotið einróma
stuðning skógræktarmanna og
er það ekki of snemmt. Skógar
löndin gefa ekki fyrirheit um
svimandi háar upphæðir tekna,
en eru þó til margskonar nytja.
En í skógrækt er fólgin menn-
ing og mannbót og því skal
hana virða og blessa. □
Á MORGUN 2. sept. á Aðal-
steinn Guðmundsson bóndi í
Flögu í Hörgárdal sjötugsaf-
mæli. Gjarna hefði ég viljað
árna honum heilla heima hjá
honum og það veit ég að margir
munu gera, en því miður get ég
það ekki því ég hef lofað að
vera þá annars staðar. Ég tek
því það ráð að biðja Dag fyrir
stutta kveðju til hans.
Við slík tækifæri er oft rifj-
aður upp æviferill afmælis-
barnsins. Það mun ég þó ekki
gera hér. Aðalsteinn er enn
hraustur og í fullu fjöri, þrátt
fyrir 70 ár að baki og ég vona
að saga hans sé ekki enn öll,
heldur eigi hann enn mörg
starfsár framundan og því ekki
kominn tími til að segja söguna.
Aðalsteinn er kvæntur Sigur
laugu Zóphóniusdóttur, ættaðri
úr Hörgárdal. Þegar þau hjón'
hófu búskap í Flögu var jörðin
eins og hvert annað skárra kot'
í þá daga. Tún og engjar þýfðar
og rýrar, en sæmileg útbeit.
Hús voru eins og gerðist, torf-
bær með einhverjum þiljum bg
peningshús úr torf-i. Nú er
Flaga stórbýli: Nýtízku íbúðar-
hús og peningshús og hlöður
eins, túnið breiðir 'sig víða vega
þár sem áður voru fúamýrar og
óræktarmóar. Þetta allt hefur
Aðalsteinn gert og þó ekki einn,
Vinnuskýli, sem er kaffistofa starfsíólks, skrifstofa skógarvarðar og
Brunnárgil.
plöntuafgreiðslu. Það stendur við
(Ljósm.: E. D.)
Aðalsteinn Guðmundsson.
því kona hans hefur verið hon-
um stoð og styrkur í því sem
öðru. Þegar hann'' stóð í mestu
framkvæmdunum héldu marg-
ir" að hann muhdi reisa sér
hurðarás um öxl og „fara á
hausinn11, eins og það er kallað.
En trú hans a'landið og íslenzk
an landbúriað bílaði aldrei og
hann hélt ótrauðúr áfrám hvað
sem 'hver sagði og þó stundum
kreppti að fjárhagslega. Og
hann vann sigur. Nú er hann
efnaður maður, býi' á góðri jörð,
sem hann sjálfur og þau hjónin
hafa svo að segja skapað.
Aðalsteinn er héraðskunnur
fyrir þátttöku sína í ýmsum hér
aðsmálum. Hann er mælsku-
maðui' og talar oft á mannfund
um, er hann þá aldrei neitt
myrkur í máli og vekja ræður
hans jafnan eftirtekt. Hann er
eindreginn félagshyggjumaður,
en enginn taglhnýtingur eins
eða neins.
KJÖRDÆMISÞINGIÐ
í GÆR hófst kjördæmisþing Fram-
sóknarmanna í Norðurlandskjör-
dæmi eystra á Laugum í Reykjadjil
og mun ljúka í kvöld. Kjördæinis-'
þingið er mikilvæg samkoma, því að
þar er ætlazt til að fulltrúar frá öll-
um byggðum kjördæmisins mæti.
Þar mætir stjórn samtaka flökksins
í kjördæminu og þingmenn hans á
sama svæði. Þingmenn kjördæmisins
munu að venju gera grein fyrir
stjórnmálaviðhorfinu á yfirstand-
andi tíma frá sínum sjónarmiðum
og gefa skýrslu yfir afgreiðslu helztu
þingmála á síðasta Alþingi og af-
stöðu flokksins til þeirra málá og
annarra.
En fulltrúarnir frá liinum ýmsu
sveitum, kauptúnum og kaupstöðunr
munu líka láta til sín lieyra og koma
sínum áhugamálum og athugasemd-
um á framfæri. Þeir bera frarn rök-
studdar óskir um gang mála er bæði
snerta heimaslóðir og landsmálin,
sérstaklega framkvæmdamál, sem
þeir telja mesta þörf að nái fram að
ganga.
Kjördæmisþingið er vettvangúr,
þar sem alþingismenn kjördæmisins
og fulltrúar, kosnir af flokksfólkinu
í héraði, bera saman bækur sínar og
rökræða hin ýmsu mál, bæði innan-
héraðsmál og landsmál og gera um
þau mál samþykktir ef að vanda
lætur.
Samþykktir kjördæmisþingsins eru
eins konar vegvísar fyrir alþingis-
mennina og væntanlega einnig nokk-
urt veganesti og það eru umræðurn-
ar einnig. Því ber að vanda til sam-
þykktanna og styðja þær síðan fast
og efla að framgangi þeirra.
Félagsleg uppbygging þessara sam
taka er mjög lýðræðisleg og gerir
kjördæmisþingið, ef vel er á haldið,
mjög þýðingarmikið til tryggingar
lýðræðislegri stjórnmálastarfsemi.
Undanfarin kjördæmisþing á
Laugum í Reykjadal liafa verið mjög
vel sótt og að ýmsu hin merkustu,
svo sem fjölmargar samþykktir og
greinargerðir þaðan bexa vott. Kjör-
dæmisþingið á Laugum hefur að
þessu sinni einnig það veikefni með
höndum, að undirbúa kosningabar-
áttu þá, sem framundan er. En kosn-
ingar til Alþingis faia fiam á næsta
voii.
Sú stjórn, sem nú situr, hefur svo
nauman meirihluta á Alþingi, að
missi hún þó ekki væii nema einn
þingmanna sinna, er félli fyrir stjórn
arandstæðingi, væru stjóinaitaum-
arnir dregnir úr höndum hennar og
þykir mörgum tími til kominn. Yax-
andi ótti íhaldsaflanna í landinu við
valdatap við næstu kosningar er
mjög áberandi og væntanlega ekki
ástæðulaus. □
Samvinniiiryggingar iuiiu
(Framhald af blaðsíðu 1).
azt veruleglr sjóðir, sem skapað
hafa grundvöll að heilbrigðara
tryggingastarfi. Úr þessum sjóð
um hefur félagið getað veitt
mikinn fjölda lána til atvinnu-
fyrirtækja, hreppsfélaga og
margra annarra aðila. Námu út
lániri samtals 75,8 milljónum
króna um sl. áramót.
•Samkvæmt skipulagi Sam-
vinnutrygginga eru það hinir
try.ggðu, tryggingatakarnir, sem
eiga félagið, og fá þar af leið-
andi allan tekjuafgang þess.
Þannig hefur þúsundurri ein-
staklinga og félaga verið tryggð
61 milljón króna, er endur-
greiddar hafa verið frá því fé-
lagið fyrst gat endurgreitt tekju
afgang árið 1949.
Samvinnutryggingar hafa bar
izt mjög fyrir frjálsræði í trygg-
ingum. Má í því sambandi sér-.
staklega benda á brunatrygging
ar húsa en barátta Samvinnu-
trygginga fyrir frelsi; á því sviði
leiddi tij, beint og óbeint, að
brunatryggingariðgj öld húsa
um land allt lækkuðu stórlega.
Samvinnutryggingar þafa
haldið uppi fræðslu- og áróðurs
starfi fyrir öryggi og slysavörn-
um og þannig reynt að vekja
landsmenn til meðvitundar um
hverskonar slysahætt-u og hvað
sé hægt að gera til að koma í
veg fyrir slysin. Má í þessu
sambandi m. a. nefna útgáfu-
starfsemi félagsins og benda á
bókina „ÖRUGGUR AKST
UR“, sem kom út árið 1951, og
útgáfu blaðsins SAMVINNU-
TRYGGING, rit um öryggis-
og tryggingamál, sem gefið þef
ur verið út frá sama ári og
ávallt síðan. Ökumenn hafa ver
ið heiðráðir fyrir góðan akstur
og hafa um 3500 hlotið viður-
kenningu félagsins fyrir 5 ára
öruggan akstur og um 1000
verðlaun fyrir 10 ára öruggan
akstur. Stofnaðir hafa verið
klúbbarnir „Öruggur akstur“,
víðs vegar um land fyrir frum-
kvæði Samvinnutrygginga, en
þessir klúbbar hafa það mark-
mið að auka. umferðaröryggi,
fyrst og fremst í heimahögum,
og almennt í samráði við aðra
aðila.
Forráðamönnum Samvinnu-
y sra
trygginga hefur frá upphafi ver
ið það. ljóst, að nauðsynlegt og
sjálfsagt væri að fylgjast með
nýjyngum í tryggingamálum er
lendis, svo og sníða starfsemi fé
lagsins eftir þörfum íslenzkra
staðhátta á hverjum tíma. Þann
ig voru Samvinnutryggingar
fyrstar allra íslenzkra trygginga
félaga, að gefa íslenzkum heim
ilum kost á heimilistryggingu,
og um síðustu áramót var tekin
upp ný ökumanns- og farþega-
trygging, sem var algjör -ný-
lunda hér á landi. Jafnframt
ÖF-tryggingunni var bónus-
kerfinu breytt, og er nú greidd
ur allt að 60% afsláttur af
LEIGUSKIP FR4
FÆREYJUM
SKIPAÚTGERÐ ríkisins hefur.
tekið á leigu 1000 lesta skipið
Blikur frá Færeyjum í stað
Esju og Skjaldbreiðar, sem
ákveðið er að selja. Rými er á
Blikur fyrir 25 farþega. □
ábyrgðai'tryggingariðgjaldi bif-
reiða, ef bifreið er tjónlaus.
Fyrsta starfsárið námu ið-
gjöld Samvinnutrygginga 3,7
milljónum ki'óna, en árið 1965
voru iðgjöldin 186,5 milljónir.
Frá upphafi hafa iðgjöldin num
ið 797 milljónum og endur-
greiddur tekjuafgangur 61 millj
ón, en hluti endurtryggjenda í
iðgjöldum 323 milljónum og í
tjónum 316 milljónum króna.
í árslok 1964 flutti félagið alla
starfsemi sína í eigið húsnæði í
Árrnúla 3, og var þá um leið
gerð all víðtæk skipulagsbreyt-
ing á rekstrinum.
í tilefni af 20 ára afmæli fé-
lagsins þann 1. sept., ákvað
stjórn þess að gefa Styrktarfé-
lagi vangefinna kr. 100 þúsund.
Var fjárhæð þessi afhent for-
manni Styrktarfélagsins, hr.
Hjálmari Vilhjálmssyni, ráðu-
neytisstjóra, þann 29. ágúst.
í stjórn Samvinnutrygginga
eru nú: Erlendur Einarsson, for
stjóri, formaður, ísleifur Högna
son, framkvæmdastjóri, Jakob
Frímannsson, framkvæmda-
stjóri, Karvel Ögmundsson, út-
gerðarmaður og Ragnar Guð-
leifsson, kennari. Framkvæmda
stjóri félagsins; er Ásgeir
Magnússon, lögfræðingur. □
Ég færi Aðalsteini Guðmunds
syni í Flögu mínar beztu árn-
aðaróskir á þessum tímamótum
í ævi hans og þakka honum
ágæt kynni og samstarf. Enn-
fremur mikla gestrisni þeirra
hjóna við mig og mína.
Akureyri 1. sept. 1966
Bernharð Stefánsson.
HEYSKAPARLOK
Á FJÖLLUM
SAMKVÆMT viðtali við Kristj
án Sigurðsson á G'rímsstöðum á
Fjöllum hefur heyskapur þar
gengið sæmilega og er að ljúka.
Sláttur hófst þó ekki fyrr en í
ágústmánuði og því ekki um
háarsprettu að ræða. En kal var
hér ekki teljandi.
Heyfirningar voru hér litlar í
vor, eftir snjóþungan vetur, en
þó má ætla, að ekki skerði
bændur bústofn sinn í haust.
Fundizt hafa 4 eða 5 dauðar
kindur frá Víðidal. Þær hafði
fennt í júlíhretinu í gróf einni
og drápust þær þar.
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Snnar 1-1186 og 1-1187
Bitstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
----- .
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Sjötugsafmæli
Aðalsteinn Guðmundsson bóndi i Flögu
VERÐUR
Hlutaféð er 2-5 milljónir króna, en bankarnir
stöðva framkvæmdir
VESTUR á Skagaströnd hefur
atvinnulíf öðru hverju verið í
daufara lagi og margt um talað.
Hinn.,31. maí í vor var stofnað
hlutafélagið „íslenzkur kavier“
h.f. Hluthafar eru fimm talsins,
einn á Skagaströnd en hinir frá
Reykjavík. Framkvæmdastjóri
er Ásgeir Ingólfsson Reykja-
vík. Hlutafé það, sem fram var
lagt, mun hafa verið 2,5 millj.
kr. , og áttu byggingafram-
kvæmdir að vera hafnar á
Skagaströnd. En bankayfirvöld
in hafa ekki ennþá leyst þann
hluta þessa máls, sem jafnan er
afl þeirra hluta sem gera skal.
Hins vegar hefur sveitarfélagið
úthlutað lóð undir byggingar og
hlutafélagið er sagt hafa gert
sölusamning til fimm ára á fram
leiðslunni. En hráefni hennar
eru grásleppuhrognin dýrmætu.
Þá gerast þau tíðindi á Skaga
strönd, að grjótvélar hafa vei'ið
settar niður á Spákonufells-
höfða, sem er höfði sá hinn
fagri, sem. þyggð höfðakaupstað
ar stendur í skjóli við að
nokkru og er stolt íbúanna. Af
höfða þessum er víðsýni ótrú-
lega mikið og mjög fagurt. Slík
ur staður er sem kjörinn útsýnis
staður og er einskonar „lysti-
gai'ður". Þarna hefur sá gengið
HLUTDEILD giftra kvenna í
atvinnulífinu er áberandi lítil í
Noregi samanborið við önnui'
Norðurlönd og satt að segja ein
hin lægsta í allri Evrópu, segir
í tímariti Alþjóða vinnumála-
stofnunarinnar (ILO), Labour
Review.
Undir fyrirsögninni „Vinnu-
kjör kvenna á Norðurlöndum11
fjallar Harriet Holter, forst-öðu
kona félagsmálarannsóknastofn
unarinnar í Osló, um orsakir til
þessa fyrirbæris.
Hlutfallstala giftra kvenna
sem vinna úti er 9,5 í Noregi,
er þetta ritar í fylgd gestrisinna
og fróðra heimamanna og notið
sjaldgæfrar landslagsfegurðar.
Kannski eru Skagstrendingar
litlir menn og aumir, um það
skal ekki dæmt, en Spákonu-
fellshöfða má ekki með nokkru
móti eyðileggja. Þar er verk-
efni náttúruverndarráðs og ann
arra að taka í taumana, ef unnt
er að leysa grjótnám fyrh' höfn
ina á annan hátt. Sé það ekki
hægt má ekki líta á grjótið með
„gagnaugunum“ einum saman.
en 22,7 í Danmþkk, 23,3 í Sví-
þjóð og 25,9 í Finnlandi. Fjöldi
kvenna við nám í æðri mennta-
stofnunum er einnig hlutfalls-
lega lægri í Noregi en á Norður
löndum yfirleitt. Mat'gar kenn-
ingar hafa komið fram um
þetta, segir Harriet Holter, en
bendir á að engin þeirra gefi
fullnaðarskýringu á orsökunum
til þessa ástands; Halda verður
áfram að kanna orsakírnar á
strangvísindalegan hátt.
Samanborið við Danmörk ctg,
Svíþjóð er NoregUr ekki sár-
lega iðnþróað land og hefur
miklu dreifðari byggð. Hins veg
ar er Finnland hvorki iðnþró-
aðí'a né þéttbýlla en Noregur,
og þó eru þar í landi mjög marg
ar giftar konur sem vinna úti.
Skortur á barnaleikvöllum er í
Noregi.
Keystone framleiðir nýja íepnd
kvikmyndafökuvéla
Úfivinna giffra kvenna I Noregi
FYRIRTÆKIÐ Myndir h.f.,
sem er innflytjandi Keystone-
kvikmyndatökuvéla á íslandi,
hefur sent út fréttatilkynn-
ingu um nýja tegund þessara
kvikmyndatökuvéla, sem fyrir
stuttu kom á markaðinn. Key-
stone Camera Company Inc., er
einn af þrem stærstu framleið
endum kvikmyndatökuvéla í
Bandaríkjunum.
Keystone-kvikmyndatökuvél
ar eru gerðar fyrir Super-8
filmuhylki Kodak, sem valdið
hefur gjörbyltingu í allri lcvik-
myndatöku áhugamanna. Með
hinu nýja filmuhylki Kodak er
útilokað, að ljós komist að film
unni, þar sem filmuhylkið er
sett í véli-na með einu handtald,
án þess að þurfi að þræða film-
una. Ekki þarf að huga nánar
að filmuhylkinu, fyrr en búið
er að taka 50 fet af myndum, en
þá er hylkið tekið úr vélinni
með einu Handtaki, og er þá
filman tilbúin til framköllunar.
Super-8 filman hefur 50%
stærri myndflöt en venjulegar
8 mm filmur. Þar af leiðir að
hægt er að fá allt að helmingi
stærri mynd á sýningartjaldið
en með venjulegri 8 mm filmu,
miðað við það, að skýrleiki
myndarinnar sé sá sami í báð-
um tilfellum.
Keystone Camera Company
Inc. framleiðir fjórar gerðir
kvikmyndatökuvéla, og eru
þær allar rafdrifnar.
Keystone K-610 er með fast-
stillta fl,8 linsu, með fókus-
lengd 15 mm. Innbyggt Ijós-
næmikerfi stillir ljósop vélar-
innar á algjörlega sjálfvirkan
liátt, og kemur því í veg fyrir
of- eða vanlýsingu á filmunni.
Vélinni fylgir handfang og
svört leðurtaska.
Keystoae- K-615 er með fl,8
zoom linsu. Zoom linsan hefur
sjálfstæða fókusstillingu, með
fókuslengd frá 10 mm til 30
mm. Vélin hefur innibyggt, sjálf
virkt Ijósnæmikerfi, og hefur
myndop í gegnum linsuna
(reflex zoom).
Keystone K-620 er með fl,8
zoom linsu, sem alltaf er í fókus.
Fókuslengdin er frá .ll mm til
33 mm. Zoom linsunni er hægt
að stjórna ýmist með handsnún
um hnappi eða með því að
styðja á hnapp, sem kemur sjálf
virku zoom-kerfi í gang. Inn-
byggt, sjálfvirkt Ijósnæmis-
kerfi er staðsett innan við lins-
una, og stillir ljósop vélarinnar
eftir þeirri birtu, sem fellur á
sjálfa linsuna. Vélinni fylgir
handfang og svört leðurtaska.
Keystone K-625 er tæknilega
mjög fullkomin. Vélin er með
fl,8 zoom linsu, með sjálfstæðri
fókusstillingu, og fókuslengd
frá 8.5 mm til 35 mm. Hægt er
að stjórna zoom linsunni á
tvennan hátt, með handsnúnum
zoom-hnappi og með rafdrifn-
um zoom-hnappi. Vélin er með
myndop í gegnum linsuna
(reflex zoom); allt, sem sézt í
gegnum myndopið kemur fram
á filmunni. Innbyggt, sjálfvirkt
ljósnæmikerfi tryggir rétta lýs-
ingu á myndum, sem teknar eru
með vélinni. Vélinni fylgir hand
fang og svört leðurtaska.
Öllum Keystone-vélum, sem
seldar eru á íslandi, fylgir eins
árs ábyrgð. Filmur og vélar,
Skólavörðustíg 41, Reykjavík,
annast alla varahluta-'og við-
gerðaþjónustu fyrir Keystone-
kvikmyndatökuvélar. Til hægð
arauka fyrir Keystone-eigend-
urð fylgir ítarlegur leiðbeininga
bæklingur á íslenzku með
hverri vél. □
Önnur afstaða?
Hafa norskar konur aðra af-
stöðu til fjölskyldu og heimilis?
Harriet Holter segir að ekki
liggi fyrir nægilegt magn af úr-
vinnsluefni til áð svara þeirri
spurningu. Rannsókn sem fram
fór á árinu 1964 (Suicide in
Scandinavia) sýndi, að af litl-
um hópi mæðra, sem kannaður
var, voru norskar og danskar
mæður „meira fyrir börn“ en
þær sænsku. Þar eru norskar
mæður því ekki I sérflokki.
Eru norskar konur háðari
eiginmönnum sínum og meira
mótaðar af feðraveldi en konur
annars staðar á Norðurlöndum?
Um þetta efni liggja ekki fyrir
neinar raunhæfar upplýsingar,
en höfundur getur þess, að
finnskir félagsfræðingar séu að
ganga úr skugga um það, hvort
hugsanlegt sé, að 'leifar af hefð
mæðraveldis hafi áhrif á "við-
horf Finna til kynjanna og veiti
finnskum konum sjálfstæðari
stöðu en öðrum norrænum kon
um.
Það er almenn skoðun víða á
Norðurlöndum, að Norðmenn
hafi frjálslegri afstöðu til vinnu
sinnar og meti frítíma sinn
meir en aðrir Norðurlandabúar.
Harriet Holter girðir ekki fyrir
þann möguleika, að norskar
konur verði fyrir áhrifum af
þessari „óþvinguðu afstöðu til
vinnunnar“ og kjósi því heldur
að vera húsmæður heima hjá
sér. Q
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8).
ENGAR MÁLSBÆTUR
Fyrr á þessu ári urðu Sigurjóni
hjá Alþýðumanninuin á þau
hrapalegu mistök í blaði sínu að
fara mjög rangt með málefni,
er varðar samvinnustarfið.
Hann fullyrti, að KEA héldi fyr
ir bændurn gildurn sjóðutn og
neitaði þeim um áburð „út á
frystar uppbætur frá fyrra ári“.
Dagur skoraði á ritstjóra Alþm.
að sanna mál sitt með dæmurn
ella stæði hann franuni fyrir
lesendum sínum sem ósanninda
maður. Ennþá eru dæmin ókom
in og Marðar-bletturinn óþveg-
inn og málsbætur engar.
VANTAÐI KJARK OG VIT
1 tilviki sem þessu hefði heiðar
legur blaðamaður leiðrétt ranga
umsögn sína og róg, með því að
biðja lesendur afsökunar, játa
mistökin hreinlega. Til þess
brast hann kjarkinn. En honum
virðast einnig hafa brugðizt vits
munirnir í þessu tnáli, því haun
þvaðrar um málið I nálega
hverju blaði sínu, og auglýsir
fáfræðina.
EINN A BÁTI
f þessum umræðum Sigurjáus,
sem Dagur hefur lítið truflað,
er það á einum stað borið savn-
an, að atvinnurekandi haldi eft-
ir af kaupi starfsmanns og satn-
vinnufélag greiði ekki bændum
fullt verð fyrir búvöru. Líklega
vita allir fullorðnir menn nema
Sigurjón hjá Alþýðutnanninum
að samvinnufélög taka búvörur
í umboðssölu á áætlunarverði
og eiga að gera það, en greiða
síðar endalegt fullt verð að frá-
dregnum kostnaði. Slíkt er þvi
ekkert sambærilegt við greiðslu
ákveðins kaups fyrir ákveðna
vinnu eða vinnustundir — og;
þyrfti Sigurjón að læra betur,
svo að hann sé ekki lengur einn
á báti í því rnyrkri.
SAMVINNUFRÆÐSLA
Það er annars athugandi fyrir
samvinnusamtökin, hvar þau
eru á vegi stödd í fræðslustarf-
semi sinni um samvinnumál,
fyrst fullorðinn Eyfirðing sem
verið hefur bóndi, kennari
og hlaðamaður, brestur þe!*k-
ingu á einföldustu grundvallar-
atriðum samvinnustefnunuar.
Ef hin einstæðu skrif Sigurjóns
ritstjóra yrðu til þess, að KEA
og fleiri kaupfélög tækju upp
meira fræðslustarf, væru skrif
hans þó til gagns, þótt þ»im
liafi verið ætlaður annar til-
gangur. Látum svo útrætt um
Sigurjón að sinni.
JARÐARBER GÓÐ BÚGRffiN
Kvöld eitt, er blaðamaður Dags
var gestur í húsi einu á Akpr-
eyri, voru jarðarber á borð þor
in. Húsbóndanum liafði fyrir
mörgum árum verið gefin jarð-
arberjaplanta í Lensvík í Þránd
lieimi. En þar búa margir javð-
arberjabændur, sem einnig hafa
tekjur af skógi og nokkrym
kúm. Hér á landi geta jarðar-
ber gefið ótrúlega rnikla upp-
skeru, ef vel er að þeim búið: —•
og þau eru ljúffengari en ftest
annað.