Dagur - 03.09.1966, Side 8
8
Skógarvörðurinn, Ármann Dalmannssoft, stendur hér hjá 130 cm. hárri limgirðingu úr Síberíuösp.
KJARNALAND VERÐUR NÝR
LYSTIGARÐUR
Milljónir skógarplantna í skýldum reitum
SKÓGARVÖRÐURINN á Ak-
ureyri, Ármann Dalmannsson,
lé't þess getið í síðasta tölublaði
Dags, að skógraektarfólk og gest
ir þess væri velkomið í Gróðr-
aistöðina í Kjarna næstu kvöld.
Af því tilefni skrapp blaðamað-
ur Dags þangað, gekk um skóg
ræktarstöðina og ræddi við
skógarvörðinn um stund.
I Gróðrarstöðin í Kjarnalandi
við Akureyri er eign Skógrækt
arfélags Eyfirðinga og er 20 ha.
að stærð. Áfast er land Skóg-
rsektarfélags Akureyrar, sem er
’80 ha. land, allt frá Eyjafjarðar
braut upp í Hamrakletta. En
um svæði þetta rennur Hrunná
pg „skiptir löndum“.
• Skógræktarfélag Eyfirðinga
sáði í fyrsta sinn skógfræi í
þetta land sitt 1948. Upp af því
fiæi uxu plöntur þær, bæði
birki og fleiri trjátegundir, sem
siðar voru gróðursettar niður
við þjóðveginn, neðst í þessu
skógræktarlandi. Þar er nú ein
•hver beinvaxnasti birkiskógur á
íslandi og sérlega gróskumikill
og fallegur þótt ungur sé. Til
Nýtt hlutafélag um
byggingu og rekstur
gistihúss
Húsavík 1. sept. Þann 22. ágúst
sl. var stofnað hér á Húsavík
hlutafélag um byggingu og
rekstur veitinga- og gistihúss.
Hótelbyggingin verður áföst fé
Jagsheimili Húsavíkur, sem nú
fir í smiðum. Eldhúsið, sem er
á fyrstu hæð, verður sameigin-
légt fyrir hótel og félagsheimili.
Á annarri hæð verður matsalur
fyrir 60 manns og aðalsalur fé-
l&gsheimilisins fyrir 300 manns
í sæti. Á næstu tveim hæðum
verða 23 gistiherbergi, sem full
nýtt rúma 60 manns. Á þriðju
hæð verður einnig dagstofa fyr
ir gesti. Félagsheimili Húsavík-
ur er aðili að hlutafélaginu, sem
heitir Hótel Húsavík h.f. Fram
kvæmdastjóri hins nýja hluta-
félags er Sigtryggur Alberts-
son gestgjafi. Þ. J.
gamans má einnig geta þess, að
þessar plöntur voru þær fyrstu
sem Skógræktarfélag Akureyr-
ar vgróðursetti. Þar unnu við
gróðursetninguna 84 menn og
munu ekki allir hafa fengizt við
slik störf áður, enda var sumt
Langanesi 31. ágúst. Frá og með
20. ágúst og fram á höfuðdag
var hér þurrkatið en þó íigndi
víða nokkuð 24. ágúst. Mikið af
heyi náðist á þessu tímabili, en
háin bregzt að mestu. Heyin
verða ekki mikil í haust en þó
eitthvað meiri en í fyrra, en þá
hröktust hey fram á haust.
Afli hefur verið sæmilegur á
Þórshöfn. Síldarverksmiðjan er
komin í gang og búið er að salta
í 2 þús. tunnur.
Dýpkunarskipið Grettir bef-
ur verið hér og dýpkað báta-
dokkina landmegin.
í dag var jarðsunginn frá
Sauðaneskirkju Guðmundur
Guðbrandsson í Þórshöfn, sem
lengi bjó rSkoruvík og á Skál-
um, yztu bæjum á Langanesi.
að því skcgræktarfólki börn að
aldri þá. Og ekki þótti það lán-
legt, að birkiplönturnar voru
teknar til gróðursetningar beint
úr fræbeðinu en gafst þó svo
vel, sem þar má sjá.
Þessa dagana er verið að gróð
ursetja sitkagreniplöntur í
Kóngsstaðahálsi í Svarfaðardal.
En slík síðsumarplöntun hefur
gefið góða raun. Með hverju
(Framhald á blaðsíðu 4.)
Hann stundaði bjargsig um ára
tugi, enda hinn vaskasti maður
og heilsuhraustur fram á efri
ár og kominn á níræðisaldur er
hann lézt. Margir fylgdu hon-
um til grafar, bæði afkomendur
hans margir, frændlið og fjöl-
margir aðrir. □
,Land og synir'
á þýzku
SKÁLDSAGA Indriða G. Þor-
steinssonar Land og synir er
komin út á þýzku hjá einu elzta
og virtasta bókaútgáfufyrir-
tæki V.-Þýzkalands, Herder. □
HVÖLUljí SKAL LÓGA í
SLÁTURHÚSUM!
Þau undur og stórmerki urðu í
mánaðarlok suður við Laugar-
nes í Reykjavík, að 200 hvalir
voru reknir að landi, voru það
grindhvalir eins og Færeyingar
drepa mest af. Æði mikið greip
mannfjöldann, sem safnaðist
saman þar sem hvalina bar að
landi og upphófst slátrun þótt
lítt væru menn vopnum búnir.
En einnig komu dýraverndunar
menn, lögregluþjónar og aðrir
verðir laga á vettvang til að
bjarga sjóskepnunum og birta
tilkynningar um bann við hval-
drápinu. Ein tilkynningin hljóð
aði svo, að ekki væri heimilt að
selja kjöt af dýrum nema þau
hefðu verið aflífuð í sláturhús-
um! En margt gerðist á
skammri stundu og það einnig,
að hvalavaðan tvístraðist og að-
eins þrír hvalir létu lífið. Eftir
hvalskurð, sem fram fór undir
léiðsögn Færeyinga, var kjöt-
inu komið fyrir á Dvalarheimili
aldraðra sjómanna en sökum
fyrrnefnds banns var síðan
ákveðið, að það skyldi malað í
verksmiðju.
SAMVINNUTRYGGJENDUR
40 ÞÚSUND
f landinu eru 40 þús. manns,
sem kosið hafa að tryggja eig-
ur sínar hjá Samvinnutrygging
um, sem stofnaðar voru fyrir 20
árum og hafa endurgreitt við-
skiptavinum sínum yfir 60
millj. kr. En þetta samvinnu-
starf hefur þó gert meira, því
með stofnun þess var brotið
blað í tryggingarmálum, öllum
almenningi til hagsbóta. For-
ganga Samvinnutrygginga um
nýjungar hefur leitt önnur
tryggingafélög á sömu braut í
ýmsum greinum.
VONDIR MENN f VEST-
MANNAEYJUM
Síðan félag sjónvarpsáhuga-
manna í Vestmannaeyjum opn-
aði eyjarskeggjum leið til að
horfa á það dátasjónvarp frá
Keflavík, sem Reykvíkingar og
nágrannar hafa horft á undan-
farin ár, sér og sínum til sálu-
bótar og börnum sínum til upp
fræðslu — kom babb í bátinn.
Eyjarskeggjar höfðu ekki leyfi
til slíks og varðaði verknaður
þeirra við Iandslög. Réttarhöld
fara nú fram og er málið tví-
þætt. Annars vegar mál Ríkis-
útvarpsins gegn Félagi sjón-
varpsáhugamanna fyrir að nota
magnara og loftnet á Stóra-
Klifi við sjónvarp og í öðru lagi
er svo mál Pósts og síma á svip
uðum grundvelli byggt. Mörg-
um þykir málareksturinn skrít-
inn og telja illt ekki of gott fyr-
ir Vestmannaeyinga þótt vondir
séu!
GARÐYRKJUSKÓLI Á
NORÐURLANDI
Almennri garðyrkjukunnáttu
mun hafa hrakað á Norðurlandi
hin síðari ár og er liún „í lág-
Mí
marki“ um þessar mundir. Leið
beiningaþjónustu vantar í þess-
ari grein, en ennþá er víða fyrir
hendi vilji á því, að auka garð-
yrkjuna, enda er liún mikil bú-
bót, heimilisprýði og hreint
menningaratriði, jafnvel sálu-
bót. Á síðustu tímum mikilla
uppgripa, stórra happdrættis-
vinninga og hins hrifsandi hug-
arfars á sviði fjármála hefur
garðyrkjan orðið útundan.
Þessa sumarmánuði á opinber
nefnd að . rannsaka skilyrði
fyrir stofnun garðyrkjuskóla á
Akureyri eða í grennd. Mun til
þess ætlazt af æðstu valdamönn
um, að málið verði svæft um
óákveðinn tíma — og það verð-
ur gert nema til komi ákveðinn
vilji Norðlendinga um stofnun
slíks skóla. .
I KILI SKAL KJÖRVIÐUR
Hin mikla iðn- og sölusýning í
Laugardal hefur ofanrituð eink
unnarorð. Þátttakendur eru 140
talsins, en sýningunni er skipt
í 12 deildir, sem samtals ná yfir
3 þús. fermetra svæði. Félag ísl.
iðnrekenda og Landssamband
iðnaðarmanna standa að sýn-
ingunni, en Bjami Björnsson er
formaður sýningarnefndar. Sýn
ing þessi er talin kosta um 7
millj. króna. Tilgangur sýning-
arinnar er sá, að vekja athygJi
og áhuga landsmanna á íslenzk
um iðnaði. Ráðgerðar eru hóp-
ferðir hvaðanæva af landinu á
iðnsýningu þessa.
(Framhald á blaðsíðu 5.)
ÞORSKURINN ÚT-
TROÐINN AF SÍLD
Raufarhöfn 2. sept. AUtaf er
sæmileg og jafnvel ágælur
þorskafli hér og þorskurinn er
úttroðinn af hafsíld hér í flóan-
ujn.
Hér norður, 80—100 mílur,
hefur verið lóðað á síld á stóru
svæði, en síldin er gisin og held
ur sig djúpt. Vonir standa til,
að þetta geti lagazt og þarna
orðið einhver veiði.
Komin eru í bræðslu nær 43
þús. tonn og tæplega 53 þús.
tunnur í salt. Hjá Norðursíld h.f.
hefur verið saltað í 12114 tunn-
ur, Borgum 10900 og hjá Óðni
8100 tunnur. H. H.
Síldarbræðsla og
söltun á Þórshöfn