Dagur - 28.09.1966, Blaðsíða 5
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Súnar 1-1166 og 1-1167
Bitstjóri og óbyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
íný Stefánsdótfir
frá Möðrudal
Fædd 2. des. 1«92 - Dáin 1$. ágúst 1966
KVEÐJA
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Preutverk Odds Bjömssonar h.f.
Atvimiujöfnunarsjóður og
Norðurlandsáætlunin
EINS OG kunnugt er voru á síðasta
Alþingi sett ný lög um svonefndan
Atvinnujöfnunarsjóð, en gömlu lög-
in um Atvinnubótasjóð jafnframt
úr gildi numin. Þessi nýju lög
eiga þegar að vera komin til fram-
kvæmda, og þingið, sem samþykkti
lögin, kaus sjö menn í stjórn sjóðsins.
f fyrstu grein laganna segir svo:
„Hiutverk Atvinnujöfnunarsjóðs er
að veita lán til framkvæmda í þeim
landshlutum, þar sem brýn þörf er
fjölbreyttara atvinnu- og athafnalífs
og skilyrði eru til arðbærra fratn-
kvæmda, er séu til þess fallnar að
stuðla að jafnvægi í byggð landsins
og koma í veg fyrir að björgulegar
byggðir eða byggðarlög fari í eyði“.
í sjöttu grein segir svo: „Stjórn
sjóðsins lætur gera áætlanir og und-
irbýr lánaákvarðanir með aðstoð
Efnahagsstofnunarinnar. Skal láta
fara fram skipulagðar rannsóknir á
atvinnuástandi, samgöngmn og
menningarmálum einstalua byggðar
laga og landshluta. Á þessum ránn-
sóknum skal reisa áætlanir um frain-
| kvæmdir, er að dómi sjóðsstjórnar
beri helzt að styðja með lánveiting-
um og styrkjum. — Áætlanir þessar
skulu jafnan gerðar í samráði við
i hlutaðeigandi sýslunefndir, bæjar-
stjórnir og hreppsnefadir og aðra þá
aðila, er sérstakra hagsmuna hafa að
í gæta í þessu efni“.
Telja verður, að lög þessi stefni í
íétta átt, og komi þar fram nokkur
árangur af málflutningi á þessu
. sviði á mörgum undanförnum árum,
innan þings og utan. Á það hefur
i raunar verið bent, að fjárráð sjóðsins
samkvæmt lögunum muni reynast
allíof lítil og tekna til hans aflað á
, fremur óviðfeldinn hátt. Samt er hér
um að ræða starfsemi, sem ætti að
geta gert gagn, meira eða minna,
eítir því hvernig fjárhagurinn reyn-
ist eða livernig á verður haldið til
eflingar landsbyggð, sem nú á undir
biigg að sækja.
Fyrir Norðlendinga er sérstök
ástæða til að gefa gaum að því, sem
nú fer fram í þessu sambandi. Talið
' er, að Norðurlandsáætlun sú, sem
nú er að unnið, muni talin til áætl-
ana samkvæmt 6. grein laganna og
verði lögð fyrir sjóðsstjórnina. Yrði
þá lánveitingtnn og styrkjum til upp
bvggingar á Norðurlandi væntanlega
hagað með hliðsjón af henni. Þeir
aðilar, sem rétt hafa til íhlutunar
um |>essi mál, svo sem sveitastjórnir,
sýslunefndir o. fl. þurfa að vera vel
á verði. Ennfremur þeir, sem vmis-
konar framkvæmdir hafa með hönd-
um og njóta ættu stuðnings lijá At-
vinnujöfnunarsjóði, þurfa að senda
sjóðsstjórninni umsóknir sínar. □
HRÓÐNÝ STEFÁNSDÓTTIR
frá Möðrudal andaðist á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri
18. ágúst sl. eftir langa van-
heilsu.
Möðrudalur á Fjöllum á sér
langa og merkilega sögu, og
hafa margir orðið til að skrifa
um þann stað bæði fyrr og síð-
ar, enda hefur Möðrudalur kom
ið víða við sögu og löngu fengið
á sig þjóðsagnablæ.
Lengi hafði sama ættin búið
í Möðrudal, en rétt fyrir 1880
kom ungur maður, Stefán Ein-
ai’sson frá Brún á Jökuldal til
Möðrudals og kvæntist einni
systurinni í Moðrudal og hóf
búskap þar. Sambúð þeirra var
stutt, hún dó af barnsförum
árið 1876. Ári síðar kvæntist
Stefán í annað sinn Arnfríði
Sigurðardóttur frá Ljósavatni í
Suður-Þingeyjarsýslu. Þaubyrj
uðu búskap í Möðrudal stuttu
síðar og bjuggu þar mesta
rausnarbúi í tæpa 4 áratugi.
Stefán hafði langað til að
mennta sig eitthvað og með það
í buga fór hann til Danmerkur
að læra handiðn því hann var
mjög hneigður fyrir smíðar. En
fijótt hvarf hann frá því námi
og tók að kynna sér búskapar-
háttu bæði í Danmörku og
Noregi. Heimkominn frá því
var hann mjög vel undirbúinn
að hefja búskap og Möðrudalur
með sitt mikla landflæmi bauð
upp á ótal tækifæri framgjörn-
um og áræðnum manni. Síðar
fór Stefán til Kanada og dvaldi
þar í þrjú ár og kynntist af-
komu og búskap Vestur-íslend
inga þar.
Þetta var gott veganesti fyrir
framgjarnan og stórhuga mann
og um skeið var liann talinn
fjárflesti bóndinn á Austur-
landi. Börn þeirra Arnfríðar og
Stefáns voru sex, öll vel gefin
og mannvænleg. Þau voru öll
sett til einhverra mennta og
unnu svo í heimilinu hjá foreldr
um sínum um árabil. Möðru-
dalsheimili bar það með sér á'
síðustu 10 búskaparárum Stef-
áns að mikil fjárhagsleg vel-
megun ríkti þar, þá'unnu fjög-
ur börn Stefáns ennþá í heim-
ilinu öll ógift. Á sumrin var
margt af vandalausu fólki því
Stefán var þá með marga skóla
pilta sem kaupamenn, og auk
þess kaupakonur og nokkra
unglinga til snúninga. Mun láta
nærri að heimilisfólkið á sumr-
in hafi verið um 20 manns þegar
flest var. Af þessu skapaðist
mikill ævintýraljómi um Möðru
dalsheimili og sumt af þessu
kaupafólki vann þar sumar eft-
ir sumar. Stefán var ágætur
húsbóndi (þótt hann væri geð-
stór), hann gaf sínar ákveðnu
fyrirskipanir hvern dag og út
af því var aldrei brugðið, nema
ef veður spilltist mjög yfir dag-
inn. Sjálfur vann hann ekki við
heyskap, en fylgdist þó vel með
öllu sem gerðist, en systkinin
voru ætíð með kaupafólkinu í
heyskaparstörfum og öðru því
sem gera þurfti á heimilinu.
Ekki gat hjá því farið að mik
il glaðværð ríkti í MöðTudal á
sumrin á meðan allt þetta unga
fólk dvaldi þar. Húsbændurnir
drógu heldur ekki úr því að
allir gætu skemmt sér á hvíld-
ardögum og notið sem bezt
frjálsræðis í öllum frístundum.
Hestar voru margir og góðir á
heimilinu og velkomnir til út-
slíku. Gestagangur var oft mik
ill á helgum því allir þekktu
reiðartúra, ef óskað var eftir
gestrisni og höfðingsskap þeirra
Möðrudalshjóna og barna
þeirra. Svo urðu alltaf einhverj
ir til að fylgja gestunum úr
hlaði þegar halda þurfti heim
til sín eftir skemmtilegan dag.
Svona leið hvert sumarið af
öðru í starfi, gleði og söng. Flest
mun það kaupafólk, sem þar
var, hafa átt mjög ljúfar endur
minningar um dvöl sína í
Möðrudal. Hin víðfeðma slétta
og fagri fjallahringur mótaðist
í huga þess, samfara hlýrri vin
áttu allrar fjölskyldunnar á
heimilinu. Það fór sem farfugl-
ar á haustin fullt af bjartsýni á
lífið og þolbetra til að takást á
við erfiðleikana í náminu og
öðru mótdrægu sem að hönd-
um bar.
Á þessu heimili og í þessu
andrúmslofti ólst Hróðný Stef-
ánsdóttir upp. Hún var yngsta
barn foreldra sinna og í miklu
eftirlæti hjá þeim báðum. Sér-
staklega tók faðir hennar miklu
ástfóstri við hana og mun hafa
veitt henni allt sem hún bað
hann um. Hróðný líktist föður
sínum um margt og var mjög
fáskiptin við alla og mjög dul
svo erfitt var að vita hvort
henni líkaði betur eða verr. Þeg
ar unga fólkið var að skemmta
sér þá var hún sjaldan með,
nema ef spilað var á hljóðfæri
og sungið, þar var hugur henn-
ar alveg óskiptur. Hún fékk
snemma áhuga fyrir því að læra
á orgel og var hún tvo vetur við
slíkt nám, fyrst á Vopnafirði
og svo í Reykjavík. Að því námi
loknu var henni gefið hljóðfæri
og mun það hafa verið hennar
mestu ánægjustundir að grípa í
það. Öll verk vann hún af ein-
stakri vandvirkni og skyldu-
rækni og þar var ekki Um hlé-
drægni að ræða.
Haustið 1915 fór Hróðný í
Kvennaskólann á Blönduósi og
var þar þann vetur. Hún mun
hafa notað tíma sinn vel þar,
enda var hún alla ævi mikil
hannyrðakona og hafði mjög
góðan smekk á því sviði.
Árið 1916 varð örlagaríkt fyr-
ir Möðrudalsheimili. Stefán
bóndi hafði ætíð verið sá mað-
ur sem þar var mest leiðandi og
ekki sízt á vetrum, ef harðindi
og ótíð steðjuðu að. Hann tefldi
stundum djarft með ásetning en
hann hafði líka sterka ábyrgðar
tilfiiiningu og var úrræðagóð-
ur, ef í harðbakka sló. Þessi vet
ur var harður frá byrjun til
enda og reyndi því mikið á
glöggt auga og góða stjórn. En
í febrúarmánuði veiktist Stef-
án af skæðri lungnabólgu og
eftir viku var hann dáinn.
Þetta var mikið áfall fyrir
alla fjölskyldu Stefáns, en þó
langmest fyrir Hróðnýju dóttur
hans, sem elskaði föður sinn
umfram alla aðra menn og mun
hún mest hafa harmað það að
geta ekki verið við dánarbeð
lians. Eti þó hún tregaði föður
sinn mikið þá bar hún það ekki
utan á sér. Hún var ung og lífið
framundan. Innan skamms var
hún aftur virkur þátttakandi í
störfum heimilisins.
Sumarið 1917 giftist Hróðný
Sigurði Haraldssyni frá Ranga-
lóni Jökuldal, glæsilegum og
gáfuðum manni. Þau höfðu
kynnzt þegat- hann var kaupa-
Áhril aukins frjáisræðis á rekslur lyrir-
tækja í Sovélríkjunum
maður í Möðrudal á 'sfnum
skólaárum. Þau Hróðný og Sig
urður byrjuðu búskap í Möðru-
dal, fluttu eftii 2 ár þaðan að
Rangalóni og stuttu síðar í
Stuðlafoss á Jökuldal. Gestrisni
var mikil á þeirra heimili. Hall
dór Laxnes minnist þess í bók
sinni „Dagleið á fjöllum“ hvað
vel var tekið á móti honum og
ferðafélögum hans þegar þeir
komu hraktir og uppgefnir af
Fljótsdalsheiði og niður í Stuðla
foss. Það var komið fram á nótt,
en þeir sáu Ijós og það bjargaði
þeim til bæjar, og viðtökunum
hefur hann ekki nógu sterk orð
til að lýsa.
Eftir 13 ára sveitabúskap flutt
ist Sigurður Haraldsson með
fjölskyldu sína til Akureyrar og
hafa þau búið þar síðan. Þau
eignuðust 5 börn sem upp kom
ust. En árið 1947 urðu þau fyrir
þeirri sáru sorg að missa son
sinn í hinu mikla flugslysi sem
varð þá hér út með Eyjafirði.
Það var elzta barn þeirra, Stef-
án, föðurnafn hennar, bráðvel
gefinn maður sem kom sér alls
staðar vel og lífið virtist blasa
við. Þetta var mikið áfall fyrir
bæði hjónin og ekki sízt fyrir
Hróðnýju. Stefán bar föður-
nafn hennar, og var henni eftir
látur og umhyggjusamur.
Skömmu eftir að þau hjón
fluttust til Akureyrar varð
Hróðný fyrir alvarlegri heilsu-
bilun, sem hún fékk ekki bót á
nema að litlu leyti.
Margra ára vanheilsa og mikil
hlédrægni varð þess valdandi
að lífinu var eingöngu lifað inn
an veggja heimilisins. Hún
hafði mikið yndi af lestri góðra
bóka og átti á þeim margra
kosta völ á sínu heimili Efnileg
og æskuglöð barnabörn hennar
glöddu hana marga stund síð-
ustu æviárin, og áttu þau óskipt
an áhuga hennar og ástúð.
Ég flyt eftirlifandi eigin-
manni, börnum þeirra og öðr-
um nánum vandamönnum okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur.
B. H.
JAFNAN er talið vandaverk að
velja líflömbin, þegar að því
kemur á haustin að taka lömb
til slátrunar og velja hin úr,
sem eiga að lifa og gefa bóndan
um arð.
í fræðsluriti Búnaðarfélags ís
lands nr. 5 segir svo um val
lífgimbra: Mesta áherzlu skal
leggja á vaxtarlag og holdafar
og þá einkum holdmikið bak,
holdþétt læri og breiða og út-
lögumikla bringu. Um vel
byggða kind segir svo á öðrum
stað: Höfuðið breitt, snoppan
sver, flenntar, stórar nasir, jafn
langir og sterkir kjálkar, breið-
ar, fremur stuttar framtennur,
sem mæta efragóm á fremstu
brún, augun stór og augnaráðið
skært. Fætur fremur stuttir,
beinir, sverir og gleitt settir.
Liðböndin í kjúkunum svo
sterk, að kjúkuliðirnir verði
ekki slakir. Hálsinn fremur
stuttur, sver aftur við bóga en
mjókkar fram, dálítið reistur
með jöfnum halla frá herðum
að hnakka, mjög sver á lirútum
en mjórri á ám. Bringan breið,
nær helzt um þverhönd framan
við bógleggi fyllir vel út á milli
þeirra og gerir breiðan, sléttan
flöt neðan á brjóstkassanum aft
an við bógana. Geislungarnir og
rifin eiga að koma mikið út frá
bringubeininu, svo að brjóst-
kassinn verði hvelfdur, sívalur
ALÞJÓÐA vinnumálastofnun-
in, ILO, hefur birt í nýjasta
hefti tímarits síns, Labour
Review, niðurstöður rannsókn-
ar á endurbótum þeim, sem ný-
lega var kotnið á í Sovétríkj-
unum til að fjörga atvinnulífið.
Rannsóknin er byggð á „þeim
upplýsingum, sem voru fyrir
hendi“.
Það var í september í fyrra
sem Kosygin forsætisráðherra
lagði fram tillögur, sem Æðsta
ráðið og miðstjórn flokksins
samþykktu síðati, undir yfir-
skriftinni: „Endurbætur á
og kindin mjög þykk að framan
og hafi ekki slöður aftur við
bógana. Herðarnar ávalar, mik-
ið holdfyllt beggja vegna við
herðakambinn og niður um síð-
urnar. Bakið beint, breitt, kúpt
ýfit- spjaldhryggnum og spjald-
hryggurinn svo holdmikill, að
þverhornin finnist eigi, þegar
tekið er yfir hann með opinni
greip. Bolurinn sívalur, fremur
langur, en hupparnir þó ekki
slakir. Holdgóð, bollöng kind
gefur drýgra fall heldur en bol
stutt, en sé bakið slakt, getur
hún orðið lingerð og átt erfitt
með allar hreyfingar. Forðast
skal baggakvið. Malirnar breið-
ar, ágætlega holdfylltar, mega
halla aftur en ekki vera svo
brattar, að kindin sýnist hokin.
Lærin ágætlega holdfyllt, svo
að krikinn fyllist sem bezt af
kjöti og þéttur vöðvi nái niður
að hæklum. Beztu föllin hafa
stutta, vel vöðvafyllta útlimi,
langan bol og breitt, vöðvafyllt
bak. Skinnið rautt og þykkt og
kindin fremur laus í því. Ullin
hvít, þétt, þelmikil, með stuttu
fremur fínu, gormhrokknu togi.
Skemmtilegast er að litarháttur
inn á fénu sé sem líkastur. Rétt
er að forðast mókolótt fé. Gera
þarf meiri kröfur til holdafars,
vaxtar og ullar á hrútum en
gimbrum vegna þess hve áhrif
þeirra eru meiri á stofninn. □
stjórn iðnfyrirtækja með hjálp
fullkomnari áætlanagerðar og
aukins framtaks í iðnaðinum“.
Endurbæturnar miða að því
að nýta betur mannlegar og
efnislegar auðlindir ríkisins.
Þeim má skipta í tvennt. Ann-
ars vegar er um að ræða betra
skipulag í iðnaðinum sjálfum og
hins vegar betri áætlanatækni.
Skýrsla ILO fjallar fyrst og
fremst um síðari flokkinn. Hún
sýnir fram á, að fyrirtæki í
Sovétríkjunum hafa öðlazt
meira sjálfstæði. Fækkað héfur
þeim atriðum, sem stjórnað er
frá einni mið-stofnun. Áður var
talið, að skyldur ríkisins fælu í
sér 15—25 atriði eftir eðli starf-
seminnar. Nú eru aðeins eftir
átta atriði. Þau sýna, hvaða
svið eru enn undir ríkiseftirliti,
en þau eru:
6 Magn framleiðslunnar.
• Vöruúrvalið í stórum drátt-
um.
• Heildarútgjöld til launa.
• Afraksturinn og breytingar
á gróða.
• Tekjur og gjöld fjárhags-
áætlunarinnar.
• Magn fjárfestingar og röð
framkvæmda á því sviði.
• Grundvallaratriðin í nýtingu
nýrrar tækni.
• Afgreiðsla milli fyrirtækja á
nauðsynlegustu hráefnum og
tækjum.
Víðtækar breytingar.
Mikilvægari en fækkun mið-
stýrðu atriða er að miðstýring-
in hefur breytt svo um eðli, að
það sé „næstum bylting" í ríki
miðstýrðs efnahagskerfis.
Áður hafði þetta hugtak ver-
ið framarlega í áætlunarbú-
skapnum. Það var höfuðmark-
mið fyrirtækjanna og ákvarð-
aði undirstöðuatriði eins og
laun og verðlaun.
Reynslan hefur hins vegar
leitt i Ijós, að skipulagið hvatti
ekki fyrirtækin ætíð til að fram
leiða vörur, sem efnahagur
landsins og neytendur höfðu
mesta þörf fyrir. Oft takmark-
aðist úrval neyzluvaranna. Oft
framleiddu fyrirtækin lélegar
vörur, sem engin eftirspurn var
eftir og seldust því ekki. Einnig
var tilhneigin til að nota óþarf-
lega dýr hráefni.
í stað þessa mælikvarða kem
ur mælikvarði, sem sýnir magn
seldra vara.
Annað nýmæli er, hve mikil
áherzla er lögð á hagnað og
bætta tækni.
Settar hafa verið nýjar regl-
ur um, hvernig skipta eigi tekj-
um fyrirtækis. Af hinum hreinu
tekjum, sem eru eftir, þegar bú
ið er að draga frá veltuskattinn,
á að greiða toll til ríkisins sem
„borgun fyrir notkun fastafjár-
magns og lausafjármagns". Upp
hæð tollsins er ákveðin mörg ár
fram í tímann. Þessi tollur verð
ur framvegis helzta tekjulind
ríkisvaldsins, meiri en veltu-
skatturinn og aðrir skattar.
Ágóðahugsunin.
Með þessu nýja formi á að
hvetja fyrirtækin til að nýta
fjármagn sitt á sem virkastan
og hagkvæmastan hátt. E£ fyrir
tækin auka afrakstur sinn ár
eftir ár, halda þau eftir æ stærri
hluta hins, því tollurinn til rík-
isins er ákveðinn í eitt skipti
fyrir mörg ár fram í tímann.
Það se.m eftir er af afrakstr-
inum, fer í þrjá sjóði. Hinn
stærsti þeirra er notaður til að
greiða forstjórum, starfsmönn-
um og verkamönnum verðlaun.
Meiri afrakstur skapar þannig
aukin verðlaun.
Annar sjóður er framleiðslu-
þróunarsjóðurinn. Með aðstoð
hans getur fyrirtækið lagt í fjár
festingu, éndurbætur og nýj-
ungar, án /íhlutunar ríkisvalds-
ins. Þriðja sjóðinn á að nota til
að þjóna félagslegum og menn-
ingarlegum þörfum starfsfólks-
ins og til íbúðabygginga.
Tekjur hvers verkamanns
byggjast á úmsömdum launum
og á verðláúnum fyrir starfs-
árangur lians sjálfs og fyrir
árangur fyrirtækisins í heild.
Hið eina, sem ríkið hefur enn
bein áhrif á, er heildarupphæð
grunnlauná fyrirtækisins. Með-
allaun og.starfsmannafjöldi eru
hins vegar ákveðin af fyrir-
tækinu sjálfu.
f Labout Review segir samt,
að þrátt fyrir þetta sé mikil-
vægi ágóðavonafinnaf lítið í
Sovétríkjunum miðað við mark
aðsbúskaparlönd. Sem dæmi
um það má nefna, að einstök
fyrirtæki geta ekki aukið af-
raksturinn með því að breyta
verði á afurðunum eða stunda
markaðsrannsóknir. Þau geta
ekki heldur farið út í fram-
(Fx-atnhald á blaðsíðu 7.)
VAL LÍFLAMBA Á HAUSTI
FINNUR SIGMUNDSSON:
RfMNATAL I-II
Reykjavík. Rímnafélagið 1988.
Á ÞAÐ hefur verið bent, að
rímnakveðskapur íslendinga
hafi verið beint framhald a£
söguritun þeirra, fornkvæðum
og dönsum. Þykir sumum sem
lækkað hafi risið á skáldmennt-
inni, er fram liðu stundir, en
ekki má þó vanmeta rímurnar.
Sennilega er það þsim að
þakka, að vér týndum ekki tung
unni og fórum að tala álíka
hrognamál og aðrar Norður-
landaþjóðir. Geysileg er sú
þekking og þjálfun í notkun
kenninga og heita, sem rímna-
kveðskapurinn hefur við haldið.
Hann hefur gert þjóðina minn-
ugri á fornt skáldamál, varð-
veitt kjarnyrði og látið mönn-
um leika á tungu hendingar,
stuðla og höfuðstafi, sem fram
til síðustu tíma hafa verið aðals
einkenni íslenzkrar skáldlistar
og gætt hana krafti og kynngi
fram yfir galdur annarra þjóða.
í rímunum lifði hinn forni hetju
andi.
Meðan þjóðin bjó við fátæk-
legan bókakost þóttu í-ímurnar
hin bezta skemmtun og fóru
kvæðamenn um byggðir og
sungu þær við raust. Seinna
fóru áhrif þeirra dvínandi fyrir
nýrri Ijóðalist og fegurri söng.
En þrátt fyrir það geyma þær
enn ylinn frá fortíðinni og
margs konar góðgæti tungunn-
ar, sem ekki má glatast. Þar var
víða gripið í strenginn með til-
þrifum. Rímurnar voru æfing í
fjölbreytilegum háttum og
hvers konar braglist. Að vísu
var stundum glímt við svo dýra
hætti að höfundunum varð það
ofurefli. En samt hafa þessi
átök við efni og form brýnt stál
andans og gert menn orðfærari
og athugulli á efnivið tungunn-
ar. Ríman var sífelld iðkun og
upprifjun skáldmálsins.
Þetta hefur mönnum verið að
skiljast betui- og betur, og með
stofnun Rímnafélagsins 1947
var stigið stórt spor til aukins
skilnings á mikilvægi þessarar
bókmenntagreinatv Hefur félag
ið á tæpum tuttugu árum gefið
út tíu bindi gamalla rímna með
ágætum formálum og skýring-
um hinna færustu fræðimanna
á þessu sviði, og má þetta heita
stórvirki, þar sem félagið er að
sjálfsögðu févana eins og flest
útgáfufélög, sem gefa út merk-
ar bækur. Er þó vonandi að
þessu þarfaverki verði veitt vax
andi athygli, svo að gott fram-
hald geti orðið á rimnaútgáf-
unni, því að ótæmandi verkefni
er framundan.
Einn af afkastamestu starfs-
kröftum Rímnafélagsins hefur
verið dr. Finnur Sigmundsson,
fyrrverandi landsbókavörður,
þessi iðjusami, gerhuguli og af-
kastamikli fræðimaður, sem
margt góðgæti hefur dregið
fram í dagsljósið úr handrita-
dyngj um Landsbókasaf nsins.
Hann hefur gefið út fjögur
bindi af rímum á vegum Rímna
félagsins, auk þess sem hann
hefur áður gefið út ásamt dr.
Birni Þórólfssyni Olgeirs rímur
danska eftir Guðmund Berg-
þórsson í líku fox-mi.
Nú kemur frá hans hendi mik
ið og merkilegt rit: Rímnatal í
tveim bindum og er þar að
finna ómetanlega góða leiðsögn
fyrir alla þá, sem vilja kynna
sér hinn óþrjótandi orðabelg ís-
lenzkra rímna. Hefur dr. Finn-
ur unnið að þessu mikla riti
mörg ár og er ssnnilega þaul-
kunnugri þessu efni nokkrum
I ^#N#'#'#'#N#V#'#S#S#'#
Séra BENJAMÍN
skrifar um
bækur
öðrum fslendingi, nema ef vera
skyldi dr. Björn K. Þórólfsson,
sem samið hefur ágætt x-it um
rímur fyrir 1600.
í fyrra bindinu er skrá yfir
allar rímur, sem heimildir er
um að ortar hafa verið og eru
þær um 1050 að tölu. Hefur enn
ekki verið px-entað nema tæpur
fjórðungur þessara rímna og
sumar í fátæklegum útgáfum,
svo að auðséð er hvílíkt feikna-
verk hér er óunnið.
í Rímnatalinu, sem raðað er
eftir heitum rímnanna, er fyrst
getið höfundar, ef um hann er
vitað, þá greind tala rímna í
hverjum flokki, vísað til hand-
rita og getið um útgáfur, ef til
eru. Því næst eru birt upphafs-
erindi fyrsta mansöngs og
fyrstu rímu og stundum fleiri,
ef ástæða þykir til og lauslega
rakið efni rímnanna. Var það
upphaflega ætlun höfundarins
að rekja þetta með miklu ýtar-
legra hætti, en honum varð það
brátt ljóst, að með því móti
mundi ritið verða óviðráðanlega
stórt og verður því slík raan-
sókn að bíða útgáfu sjálíra
rímnanna.
í síðara bindinu, sem er höf-
undaskrá, er getið 480 rímna-
skálda. Ennfremur eru þar
nafnaskrár og skrár um rímur
eftir því á hvaða öld þær eru
ortar. Það er athyglisvert, að af
þessum skáldaflota er um það
bil helmingurinn af Norður-
landi og hafa Húnavatnssýsla,
Skagafjarðarsýsla, Eyjafjarðar-
sýla og Þingeyjarsýsla lagt til
flest rímnaskáldin að tiltölu.
Meðal rímnaskáldanna eru 16
konur og 60 prestlærðir mean.
Helzt þykir mér það áskorta í
þessum hluta ritsins, að ævi-
ágripin séu mörg í stytzta lagi.
Að vísu er um allmarga þjóS-
kunna menn að ræða, sem næg
ar heimildir eru til um annars
staðar. En um suma þessa
menn, sem ókunnari eru, hefði
verið gaman að fá nokki-u iyllri
gt-einargerð. Hefur hér hið
sama vakað fyrir höfundinum
og í rímnatalinu sjálfu, að gera
ritið ekki of fyrirferðarmikið og
erfitt til útgáfu, og hefur hann
því sett sér þrengri takmörk að
þessu leyti en æskilegast hefði
verið.
En þó að við hefðum gjarnan
viljað fá meira að heyra er út-
gáfa þessa merkilega rits stár-
þakkarverð og hefur dr. Finnur
unnið með henni mikið nyt-
semdarverk íslenzkum fræðum.
Verður það hlutverk annarra
að byggja ofan á þá undirstöðu,
sem hann hefur lagt.
- KOMIÐ TIL SKÁTANNA í FÁLKAFELLI
(Framhald af blaðsíðu 8).
um. Hann lýsti því, hvað gert
væri fyrir 12 ára drengi, sem
fyrst kæmu inn í skátaregluna,
hvaða verkefni biðu þeirra og
hver árangur gæti orðið af
starfi þeirra fyrir þá sjálfa og
aðra, síðar.
Skátar eiga einnig Skíðastaði,
sem er tveggja bursta hús spöl-'
korn vestan í fjallinu. Ætlun
skátanna er, að búa til þá að-
stöðu við Fálkafell og Skíða-
staði, að þar verði hægt að
halda foringjanámskeið fyrir
norðlenzka skáta við heppileg
skilyrði. En til þess þarf margs
konar endurbætur að gera úti,
miðað við tjaldbúðir, varðelda-
svæði og leikvang. Þarna þarf
einnig að rísa útikapella, helgi-
staður skátanna. Á þetta allt
minnti skátaforinginn á í ræðu
sinni og fræddi viðstadda um
margt í skipulagi og uppeldis-
starfi hreyfingarinnar.
Dagur óskar Skátafélagi Ak-
ureyrar sem er fimmtugt á
næsta ári til hamingju með
bætta aðstöðu til starfa. Og um
leið má minna á, að Akureyrar
skátar hafa hvað eftir annað
getið sér hið bezta orð fyrir
dugnað og háttvísi og hlotið
margs konar viðurkenningu fyr
ir. Skipulag skátafélaganna er
mjög sterkt og einstaklingamir
vel þjálfaðir í ýmis konar stirf
um. Skátarnir eru öðrum fúsari
til hvers konar hjálparstarfa,
enda oft til þeirra leitað í því
efni. Uppeldi og starf er miðað
við að þroska heilbrigða skap-
gerð, drengskap og hæfni eirt-
staklinganna.
Á tímum upplausnar og upp-
gjafar meðal ungs fólks, þykir
skátastarfið hiS heppilegasta
mótvægi, bæði mannbætandi og
þroskandi. Gildir þetta jafnt
um konur sem karla. I Skáta-
félagi Akureyrar eru 170 virkir
skátar, 40—50 í félagi eldri
skáta og um 150 konur í félagi
kvenskátanna. Q
Hlaut 25 þús. kivgólf-
teppi á Iðnsýningunai
ENN EIN frú að norðan hlaut
happdrættisvinning á Iðnsýn-
ingunni á dögunum og var það
Erla Bjömsdóttir frá Akuroyri.
Verðlaunin voru 25 þús. kr.
gólfteppi. Q