Dagur - 15.10.1966, Qupperneq 2
2
Unga fólkiá Ii efur oráiá
Um iðnnámið á Akureyri o. fl.
Viðtal við Pál Pálsson, formann
Félags iðnnema á Akureyri
MEÐ lækkandi sól færist nýtt
Jíf í aJIa félagsstarfsemi. Félög,
sem lítið hafa starfað yfir sum-
artíman rísa úr dvala og hefja
starf af fullum krafti. Eitt
þeirra er Félag iðnnema á Ak-
ureyri. Þátturinn náði tali af
formanni félagsins, Páli Páls-
syni, og við spyrjum liann fyrst
hvenær félagið hafi verið stofn
að.
Félagið var stofnað 17. októ-
ber 1954. Fyrsti formaður varZ
Þráinn Þórhallsson. Reyndar
hét félagið Iðnnemafélag Akur-
eyrar þar til í fyrra, að nafninu
var breytt í Félag iðnnema á
Akureyri. Þessi breyting var
gerð vegna þess, að þegar nafn
félagsins var skammstafað
(I.N.F.A.) þá urðu þar sömu
stafir og Iðnnemafélag Akranes
notaði, og olli það oft misskiln
ingi. Félag okkar var stofnað
síðar, þannig að eðlilegra þótti,
að við breyttum nafninu en
ekki þeir á Akranesi.
Hver er aðaltilgangur félags-
ir hafa farið fram annarsstaðar
í bænum, og fylgir því oft mikið
- umstang. Ég. vil í því sambandi
færa Jóni Sigurgeirssyni skóla-
stjóra Iðnskólans sérstakar
þakkir -fyrir einstaka lipurð.
Hann hefor verið boðinn og bú
inn að veita okkur aðstoð
Páll Pálsson.
En hvað um hina verklegu
kennslu?
Ástandið í þeim efnum^er sízt
betra. Þar eiga eflaust margir
sök á, og ef til vill við iðnnemar
einnig. En hins vegar þykir okk
ur mjög miður að ekkert eftirlit
af hálfu hins opinbera er haft
með því hvort námssamningar
séu haldnir og hvort iðnnemar
fá þá verklegu tilsögn sem æski
leg er. Að vísu eru einhvers-
staðar aðilar, sem þiggja laun
fyrir slíkt „eftirlit“, en ég hef
hvergi rekizt á það og þykir
okkur iðnnemum að vonum
hart að þessi liður námsins er
algjörlega vanræktur. Það er
dyggilega fylgzt með því, að við
höldum samningana, og þvi þyk
ir okkur það sanngirnismál, að
aðrir aðilar geri það einnig. Við
höfum áhuga á því að komast
sem bezt niður í okkar grein-
um, en til þess að það megi
verða, þá verða allir hlutaðeig-
endur að hafa vakandi auga fyr
ir því sem fram fer. Það er til
dæmis algengt, að öll þau fjög-
ur ár, sem iðnnemi hefur unnið
í sinni grein, hafi hann verið
látinn vinna nær sama verkið
út í gegn, en þegar nálgast þann
dag, sem taka á sveinsprófið, þá
er vaknað upp við vondan
draum og farið á hundavaði yfir
allt það, sem átti að læra á fjór-
um árum. Það er einnig meira
en lítið furðuleg ráðstöfun að
einn meistari skuli hafa yfir tíu
lærlinga. Slík fjöldaframleiðsla
iðnaðarmanna verður að teljast
í hæpnara lagi, svo ekki sé
meira sagt. Ég vil þó taka það
skýrt fram, að þetta á ekki við
um alla, en þróunin virðist þó
stefna í þessa átt og því tími til
kominn að leiða hugann að
þessu.
Nú liggur fyrir Alþingi frum-
varp til laga um nýskipan iðn-
fræðslulöggjafarinnar. Verði
hún samþykkt þá er ég þess
fullviss, að stórt skref verður
stigið til lagfæringar á fræðslu
iðnaðarmanna.
Okkar bíða stór verkefni á
sviði iðnaðar. Ungir iðnaðar-
menn munu .ekki láta sitt eftir
liggja til að auka hróður hans,
en þeir mipna á, að því aðeins
næst jákvæður. árangur að vel
sé hlúð að allri aðstöðu til
menntunar og fræðslu.
Þátturinn þakkai- Páli viðtalr
ið og óskar Félagi iðnnema á
Akureyri alls hins bezta í fram-
tíðinni: I. S.
Leysa þarf húsnæðisvanda
Æskulýðsráðs Akureyrar
FYRIR síðasta bæjarstjórnar-
fund kom tillaga frá Æskulýðs-
ráði Akureyrar um að atliugun
færi frani á því að kaupa hús-
eignina Brekkugötu 4 til afnota
fyrir æskulýðsstarfsemi í bæn-
um. TiIIögunni var vísað til
bæjarráðs.
Það er öllum Ijóst að hér í
bæ vantar alveg húsnæði fyrir
æskulýðsstarfsemi og raunar
þarf á meira fé að halda til
þeirrar starfsemi en verið hefur
undanfarin ár.
Ekki er að efa að bæjarstjórn
og bæjarráð gerir sitt bezta til
að leysa þetta mál, annað hvort
með því að kaupa Brekkugötu
4, eða leigja hús til þessarar
starfsemi, þar til nýtt hús rís,
sem byggt er með þessa starf-
semi í huga. Margar fyrirmynd
ir um æskulýðsheimili er hægt
að fá hjá frændum vorum á
Norðurlöndum.
Þá væri rétt að athuga hvort
ekki væri hægt að sameina öll
þau félög, sem að æskulýðsmál
um vinna um slíkt hús, sem þau
öll hefðu afnot af, en slík félög
eru mörg hér í bæ. □
ins?
Það má segja, að hann sé þrí
þættur. í fyrsta lagi „að efla
samheldni og félagslyndi iðn-
nema“, eins og segir í lögum fé
lagsins. í öðru lagi að vinna að
því, að iðnnemum séu tryggð
sambærileg kjör á við aðra þjóð
félagsþegna. Og í þriðja lagi að
stuðla að því, að fræðsla iðn-
nema verði aukin og gæta þess
að námssamningar séu haldnir.
Hvernig gengur að halda fé-
lagsstarfinu uppi?
Því miður verð ég að segja,
að það gengur heldur erfiðlega.
Kemur þar eflaust margt til. Þó
held ég, að þar eigi ríkan þátt
sú almenna félagsdeyfð, sem
lagzt hefur á landsmenn eins
og Plágan forðum. Einnig hefur
það eflaust mikið að segja, að
vinniítíminn er eins óhóflega
langur og raun ber vitni. Kem-
ur það eðlilega hart niður á iðn
nemum, sem búa yfirleitt við
mjög slæm kjör, og oft bætist
þar ofaná að þeir þurfa að sjá
fyrir fjölskyldu. En þrátt fyrir
þetta þá eru alltaf menn, sem
gera sér ljóst, að jákvætt starf
í stéttarfélagi ber alltaf ein-
hvern árangur, þó stundum
virðist hægt ganga.
í apríl 1965 réðst félagið í að
leigja herbergi í Útvegsbanka-
húsinu. Ég held að óhætt sé að
fullyrða, að aðstaðan hafi við
það breytzt mjög til batnaðar.
Hins vegar höfuð við ekki haft
tök á því að búa húsnæðið þeim
innanstokksmunum, sem æski-
legt væri og veldur því þröng-
ur fjárhagur. Stjórnarfundir og
hverskonar undirbúningsfundir
fara þarna fram, en félagsfund-
Rvenær sem við höfum til hans
leiiað og alltaf hvatt okkur til
dáða þegar á móti hefur blásið.
Hvernig aflið þið fjár?
Eins og ég sagði áðan, er fjár
hagurinn mjög þröngur, og háir
það starfseminni mikið. Bæjar-
stjórnin hefur sýnt félaginu
þann skilning að veita því styrk
á hverju ári, og er hann félag-
inu - ómetanlegu. Fyrir það
eru iðnnemar bæjaryfirvöldun
um.mjög þakklátir. ■ Við höfum
géngizt fyrir dansleikjum og
skemmtunum til að afla félag-
inu tekna og hefur sú starfsemi
gengið svona upp og ofan. Þó
höfum við af . þessu nokkurn
hagnað enda ekki vanþörf á.
Fhjttst þér að náminu séu
gerð nægilega góð skil?
Nei, því miður. Eins og flest-
um er kunnugt, hefur Iðnskól-
inn verið á hrakhólum í mörg
ár.vHann hefur ekki haft yfir að
ráða shiu eigin húsnæði og
hljóta allir að:sjá, að slikt er
með öllu óhæft. Meginforsenda
þess, að góður árangur náist í
námi er vitaskuld sú, að náms-
stofnunin eigi sér samastað, en
þurfi ekki alltaf að eiga yfir
höfði sér flutning úr einum stað
í annan. Slíkt hlýtur óumflýjan
lega að leiða af sér sundrung
og los í öllu námi, þó að kenn-
arar og nemendur leggi sig alla
fram. Það er því okkur iðnnem
um mikið gleðiefni, að nú er
loks að rísa veglegt hús, sem í
framtíðinni á að vera fræðslu-
stofnun iðnaðarmanna. Ég vona
að bygging þessa nýja skóla
gangi fljótt og vel og hann
verði tekinn í notkun sem allra
fyrst, því þörfin er knýjandi.
r r
BINGO BINGO
AKUREYRINGAR! - NÆRSVEITAMENN!
Takið eftir! BINGÓ verður haldið að HÓTEL KEA laugar-
daginn 15. þ. m. kl. 9 e. h. - Bansað til kl; 2 eftir miðnætti:
Aðalvinningur er STOFUSKÁPUR
(skenkur) eða ELNA-SAUMAVÉL,
eftir vali. - Margir fleiri góðir
vinningar. - Sjá vinninga í glugga
Véla- og búsáhaldadeildar KEA.
Hljómsveit PÁLS HELGASONAR
og HELENA EYJÓLFSDÓTTIR
leika og syngja fyrir dansi.
Miðar seldir að Hótel KEA frá kl. 4-6 í dag (laugardag) og
við innganginn.
F. U. F. - AKUREYRL