Dagur - 15.10.1966, Síða 7
r.
7
Hér birtist mynd af NORÐURLANDSMEISTARALIÐI Þ Ó R S. Neðri röð f. v.: Jóhann Jónsson,
Guðmundur Finnsson, Aðalsteinn Sigurgeirsson, Samúel Jóliannsson, Sævar Jónatansson, Ævar
Jónsson, Steingrímur Björnsson. Efri röð f. v.: Guðni Jónsson, Valstcinn Jónsson, Jón Friðriksson,
Magnús Jónatansson, Anton Sölvason, Pétur Sigurðsson, Gunnar Austfjörð og Númi Friðriksson.
A að leyna verðbólgunni?
Vetrarstarf Bridge-
félags Akureyrar
hófst með tvímenniskeppni
þriðjudaginn 11. október. Spil-
aðar verða 5 umferðir. 28 pör
taka þátt í keppninni. Spilað er
í Landsbankasalnum á þriðju-
dagskvöldum. Efstu pör af lok-
inni 1. umferð:
Aifreð og Guðmundur 190 stig
Mikael og Baldur 180 stig
Hinrik og Hörður 177 stig
Knútur og Ragnar 175 stig
Gunnl. og Jóhannes 175 stig
Björn og Arnar 174 stig
HANDKNATTLEIKS-
FÓLK K.A.
HANDKNATTLEIKSÆFING-
AR félagsins hefjast n. k. þriðju
dag í í þróttahúsinu, og verða
sem hér segir:
Klukkan 6—7 7—8 8—9
Þriðjud. 2. fl. kv 4. fl. k 3. fl. k
F'östud. 2. fl. kv 4. fl. k 3. fl. k
Sakir húsnæðisskorts verður
ekki unnt að hefja æfingar í
eldri flokkunum, en von er að
Úr rætist fyrir áramót. Ailir
þeir, sem æfðu í yngri aldurs-
ílokkunum í fyrra, eru hvattir
til að mæta í ofanskráða æfinga
tíma. Allir nýir félagar eru vel-
fcómnir á æfingar félagsins.
Handknattleiksdeild KA
Tæki til að eyða lykt
BOR.GAR.LÆKN1RINN í Rvik,
dr. Jón Sigurðsson hefur nýlega
í biaðaviðtali varað við loft-
hreinsitækjum þeim, sem farið
er að nota í húsum til að eyða
vondri lykt. Hann bendir á, að
ozon-loftið, sem þessi „loft-
hreinsun“ byggist á, sé m. a.
notuð til að bleikja hveiti, til
sótthreinsunar o. fl. Efni þetta
dragi úr lyktarskyni fóiks, en
eyði hvorki reyk eða ryki eða
öðrum skaðlegum efnum. Hér
sé því um að ræða falskt öryggi.
(Framhald af blaðsíðu 1)
að lögð yrðu fram sem stjórnar
frumvörp í þingbyrjun og síðar,
eða væru í endursko^un.
Margir draga þá ályktun af
yfirlýsingunni, að stjórnin hugsi
sér að greiða niður verðhækk-
anir á næstu mánuðum, eins og
hún hefur gert í haust, og
reyna þannig að leyna vexti
verðbólgunnar fram að kosn-
ingum. En sú meginstefna að
tryggja heilbrigðan grundvöll
efnahagslífsins, hefur eins og
kunnugt er, mistekizt ár eftir
ár.
Ráðherrann gerði nokkuð
mikið úr þeim þætti, sem verð-
hækkun landbúnaðarvara ætti í
hinni almennu verðhækkun, en
hann lézt naumast vita, að
bændur fá sínar verðhækkanir
eftir á hverju sinni, vegna áorð
inna hækkanna á öðrum svið-
um, og skiptir þetta meginmáli.
Ráðherranum þótti of mikið
gert að því, að kenna verðbólg
unni um það, sem aflaga færi í
efnahagsmálum og taldi hana
notaða, sem slagorð í umræð-
um um þau mál.
Eysteinn Jónsson ræddi um
efnahagsmálaástandið í heild og
úrbætur í því sambandi. Var
frumræða hans birt í Tímanum
í gær undir fyrirsögninni; Hin
leiðin. □
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8).
með í för, og fótaskriðan er eins
hröð eða hraðari en hjá fyrir-
rennara hans, seni nú situr í
sínum nýja stól suður við Eyrar
sund og kastar mæðinni.
KÆRULAUS ÖKUMAÐUR
Fyrir skömmu fannst dilkur á
veginum skammt frá Eyrar-
landi, illa leikinn. Hann var
brotinn bæði að aftan og fram-
an og herfilega útleikinn, en þó
lifandi. Hann bar því sorglegt
vitni, að enn eru til óþokkar
meðal þeirra, sem ökutækjum
stjórna, eða hvers vegna flýja
ökumenn af slysstað að liætti
bjálfa?
Frá Fjöltælaii
Nú er tíminn til að hreinsa og yfirfara SKRIFSTOFU-
VÉLARNAR.
SELJUM: Segulhönd, segulbandsspólur, ferðaviðtæki,
skúílutæki fyrir bifreiðar, rafhlöður, skrifstofuvélar,
bönd og pappír í allar tegundir skrifstofuvéla.
FJÖLTÆKNI, Brekkugötu 7B, sími 1-12-OL
I • i
ý Mínar innilegustu þakkir jlyt ég öllum þeim., sem
hjdlpað hafa mér á einn ed'a annan hátl, vegna vcik- f
•f inda minna. f
& ?
i HALLDÓR SIGURGEIRSSON, Arnslapa. f
i ■ ?
UNGLIN G ASKEMMTUN — FRÁ ÞINGEYINGAFÉLAG-
Skátafélögin á Akureyri efna
til skemmtunar fyrir ungt
fólk í Sjálfstæðishúsinu n. k.
sunnudag kl. 3—5 e. h. Boðið
verður upp á bingó, skemmti
atriði og dans. Aðgangur kr.
30.00. Miðasala hefst kl. 2 e.h.
Allir í Sjálfstæðishúsið. —
Skátafélögin.
DRENGIR! Á drengjafundinum
að Sjónarhæð n. k. mánudags
kvöld, verður meðal annars
sýnd kvikmynd frá dýragarði
í London. Allir drengjr vel-
komnir.
SMÖLUN á heimalöndum á
Akureyri á að fara fram
sunnudaginn 16. október. —
Sjáið nánar auglýsingu í blað
inu í dag.
- Ný félagssamtök
(Framhald af blaðsíðu 1)
Bjarni Þórðarson bæjarstjóri
Neskaupstað og Stefán Björns-
son bóndi Berunesi.
Auk þessa gerði ráðstefnan
ýmsar ályktanir um almenn
málefni. í lok ráðstefnunnar
var lagt fram erindi Brunabóta
félags íslands, þar sem félagið
býðst til að koma á fót fjórð-
ungsskrifstofu fyrir Austur-
land, sem hafi að nokkru aðskil
inn fjárhag og sjái um af-
greiðslu mála og ávaxti iðgjöld
sín í fjórðungnum sjálfum. Var
kosin sérstök nefnd til að vinna
með stjórn Brunabótafélagsins
að þessum málum.
Forseti ráðstefnunnar var Jó
hannes Stefánsson forseti bæjar
stjórnar í Neskaupstað og vara
forseti var Hrólfur Ingólfsson
bæjarstjóri, en fundarritari Páll
Þorsteinsson alþingismaður.
V. S.
Ferðamömium fjölgar
(Framhald af blaðsíðu 1)
tímum, en sumarhótel við skóla
hafi mjög aukið gistirýmið síð-
ustu árin, þegar þörfin er brýn-
ust. Árið 1959 voru 5 gistihús í
Reykjavík með 366 rúmum, þar
af eitt sumargistihús (Stúdenta
garðarnir). Nú eru gistihús þar
orðin 10 með um 849 rúmum,
og eru þá Stúdentagarðarnir
taldir með eins og áður.
Á öllu landinu er þá, segir
Valdimar, 2681 gistirúm, þar af
1262 í sumarhótelum og hefur
verulegur hluti af þeim nýlega
verið tekinn í notkun. Af saman
lagðri stærð hótela, sem starf-
rækt eru allt árið er nær helm
ingurinn í Reykjavík. □
>RÍ!FlÍ:íiöi:jsi:
TIL SÖLU:
RENAULT R 8 major,
’64 model, í góðu lagi.
Góðir greiðsluskilmálar.
Upplýsingar gefur
Albert Valdemarsson,
Gilsbakkaveg 5,
sími 2-12-24.
INU Akureyri. Félagsvist að
Bjargi föstudaginn 21. októ-
ber n. k. kl. 8.30 e.h. Skemmti
atriði. Góð verðlaun. Allir
velkomnir. Nefndin.
NÝ LJÓÐABÓK j
HEIÐREKS
ÚT ER komin ný ljóðabók eftir
Heiðrek Guðmundsson frá
Sandi, en hann hefur um langt
árabil verið búsettur á Akur-
eyri. Hin nýja Ijóðabók Heið-
reks heitir Mannheimar og er
í þrem köflum með samtals 45
kvæðum.
Þetta er fjórða ljóðabók höf-
undar. Hinar eru, Arfur öreig-
ans 1947, Af heiðarbrún 1950,
og Vordraumar og vetrarkvíði
1958. Höfundur hefur áritað 100
tölusett eintök af bók sinni, en
Sindur h.f. á Akureyri er út-
gefandi.
Heiðrekur Guðmundsson er
eitt þeirra norðlenzku ljóð-
skálda, sem náð hafa almennum
vinsældum. Q
RAUSNARLEG GJÖF
GUÐNI JÓNSSON, nú vistmað
ur á EIli- og dvalarheimilinu
Skjaldarvík, hefir með bréfi
dagsettu 20. fyrra mánaðar gef-
ið Elliheimili Akureyrar Lækj-
argötu 2 B, Akureyri, frá 1. þ.
m. að telja. Gjöfin er einnig
gefin í nafni látinnar sambýlis-
konu hans, Soffíu Óladóttur.
Gefandinn óskar þess, að gjöfin
„verði hagnýtt til styrktar göf-
ugu hlutverki Elliheimilisins“,
eins og stendur í gjafabréfinu.
Fyrir hönd Elliheimilis Akur
eyrar eru Guðna Jónssyni færð
ar beztu þakkir fyrir þessa
rausnarlegu gjöf.
Stjórn Elliheimilis Akureyrar.
- Um Hagráð o. fl.
(Framhald af blaðsíðu 5)
í skýrslunni. Birtar eru, án sund
urliðunar, niðurstöðutölur um
„þjóðarframleiðslu11 ár hvert,
og væri fróðlegt fyrir almenn-
ing að fá nánari skýringu ' á
þeim tölum.
Hvers vegna enginn árangur?
Ólafur Grímsson segir m. a. í
grein sinni í Tímanum 23. sept.:
„Það hefir margt verið reynt í
baráttunni gegn verðbólgunni,
en heildarniðurstaða allra
þeirra aðgerða er mjög nei-
kvæð. Verðbólgan hefir vaxið
meir en nokkru sinni áður. Það
er skylda Efnahagsstofnunar-
innar — að gera mistökum und
anfarinna ára greinileg og sam-
vizkusamleg skil. Við verðum
að vita eins vel og hægt er,
hvels vegna enginn árangur hef
ir orðið —. Hún (þ. e. Efnahags
stofnunin) verður að leita
ótrauð nýrra leiða. Hér þykir
honum sýnilega nokkuð á
skorta í skýrslunum til Hag-
ráðs. ,
- 'I
•j