Dagur - 22.10.1966, Síða 8
SMÁTT OG STÓRT
ENN sjást merki braggatímabilsins á Akureyri. Fjær eru reisuleg fjölbýlishús og
önnur, sem betur hæfa okkar tíma. (Ljósmynd: E. D.)
Dýrtíðin gleypti 120% en verka-
fólk fékk aðeins 18%
BREYTING TÍMAKAUPS og
kaupmáttar þess undanfarin ár
bar allmikið á góma í síðustu út-
varpsumræðum frá Alþingi. Voru
það einkvim þeir Birgir Finnsson
og Geir Gunnarsson, sem ræddu
þetta mál og bar ekki vel saman,
þótt báðir þyldu tölur máli sínu
til stuðnings. Dagur hefur aflað
sér upplýsingar um það, sem
stendur í skýrslu Elnahagsstofn-
ALLTFULLTAF
MINKASLÓÐUM
Ófeigsstöðum, 21. oklóber. Sauð-
fjárslátrun er lokið á Húsavík, og
Stórgripaslátrun að byrja. Bændur
munu setja heldur færra á, en í
fyira, og veldur lélegur lieyskapur
í sumar því, ennfremur fyrninga-
leysið í vor.
Kartöfluspretta var engin. —
Rjúpnaveiði gengur illa ennþá.
En það virðist vera mikið af
minkum, ef marka má slóðirnar
í fölinu. Það var fullt af minnka-
slóðum. Á Nýpá var um daginn
verið að eltast við mink í raf-
stöðvarlæk og endaði sá leikur
þannig, að straumurinn hreif
skepnuna með sér og keyrði hana
í inntakstúðuna. Þar drukknaði
minkurinn, sat fastur eins og
tappi í gati,
| Annar minkur veiddist í boga
i Rangá. Síðar verður skrafað bet-
ur við þetta skaðræðiskvikindi.
I Gjafatími kúnna byrjaði óvenju
lega snemma, eða þrem vikum
fyrir vetur. — B. B.
'O
unarinnar til Hagráðs um þetta
mál og telur rétt að skýra þá frá,
án þess að bera ábyrgð á þeim út-
reikningum, sem þar er um að
ræða.
Útreikningar Efnahagsstofnun-
arinnar á tímakaupinu taka lil al-
mennra verkaman'na, iðnverka-
manna og iðnverkakvenna 1960
til 1966. Sagt er, að hér sé um að
ræða tímakaup samkvæmt kjara-
samningum ,.samantekið og sam-
vegið í Efnahagsstofnuninni“. —
Þannig, að „allar kjarabætur met-
anlegar til greiddra launa á vinnu-
stund eru meðtaldar, þ.á.m. stytt-
ing vinnutíma að óskertu kaupi,
tilfærslur milii taxta, auknar or-
lofsgreiðslur, auknar starfsaldurs-
hækkanir og breytingar yfirvinnu-
álags“. Ennfremur, að reiknað sé
með ákveðnum hlutföllum dag-,
eftir- og næturvinnu fyrir hverja
stétt".
Kaupið.
Þegar vísitala tímakaups er sett
100 árið 1960, verða tímakaupsvísi-
tölur áranna 1961-66 107, 121,7
139,9, 172,5, 199,3, og 238,3, cn
síðasta vlsitalan' er rniðuð við 1.
júní í 966.
Kaupmátlu rinn.
Kauþmáttarvisitölurnar á sömu
tímum, þegar miðað er við verð
nauðsynjavöru og þjónustu eru
hinsvegar 96,3, 98, 100, 103,2, 11
og 117,7 og síðasta vísitalan eins
óg áður miðuð við 1. júní 1966.
Þessar tölur sýna, að á árunum
1961 og 1962 hefir kaupmáttur
hækkándi tímakaups minnkað, og
árinu 1963 staðið í stað, en á ár-
unum 194—66 hækkað, en þó ekki
nema um lítinn liluta af tíma-
kaupshækkuninni.
Niðurstaða.
Hinn 1. júní 1966 er tíma-
kaupið 138,3% hærra en það var
árið 1960, en kaupmáttur þess
ekki nema 17,7% meiri eftir 138,3
prs. tímakaupshækkun. Af 183,3%
tímakaupshækkun heiir viðreisn-
ardýrtíðin gleypt rúml. 120%, en
lifskjörin batnað um nál. 18%.
í minnkún kaupmáttarins 1961
til 1962 felst að sjálfsögðu síðari
gengisbreyting ríkisstjórnarinnar.
ELLEFU TEKNIR
Á ÞRIÐJUDAGINN stóð Sif,
flugvél Landhelgisgæzlunnar,
11 vélbáta að ólöglegum veið-
um í landhelgi, á svæðinu frá
Krisuvíkurbergi að Meðallands
bugt. •
Einn þessara báta var aðeins
eina milu frá landi. Landhelgis
gæzlan hefur upplýst, að tugir
vélbáta hafi verið staðnir að
HUFU- OG VETTLINGA-
LAUS
Allir fögnuðu giftusamlegri leit
að týndri rjúpnaskyttu uppi á
heiði í Norður-Þingeyjarsýslu
um síðustu helgi. Skytta þessi,
átján ára piltur, villtist og lá
úti, en fannst daginn eftir herll
á húfi. Það kom í ljós, að hann
vár bæði húfulaus og vettlinga-
laus. Og þótt vel tækist að
þessu sinni, liggur það alveg
Ijóst fyrir, að önnur og ömur-
legri hefði rjúpnaferð þessi orð
ið, ef veður hefði versnað að
ráði. Hefði þá e. t. v. mátt um
kenna óafsakanlegu kæruleysi
um klæðnað. A þetta er minnt
vegna þess, hve fáir kunna sig
í góðu veðri heiman að búa, og
enn eiga margir eftir að leggja
land undir fót og freista gæf-
unnar á rjúpnaveiðum.
SKATTAR ANN SÓKN AR3VIÁL
Fjármálaráðherra upplýsti það
í fjárlagaræðu sinni á þriðju-
dagskvöldið, að skattarannsókn
arnefnd, eða skattalögreglan,
hefði skilað 142 málum til ríkis-
skattanefndar, þar af hefðu 84
verið rannsóknarmál og 58 mál
hliðarmál þeirra og hefðu leitt
Hundapestin á
Suðurlandi
UPP ER KOMIN hundapest í
Dyrhólahreppi, og ógnar hún
skaítfellskum fijárrræktarbændum.
Nokkrir lnindar liafa drepizt og
aðrir eru veikir. Gefin hefur verið
út skipun um að liafa hundana á
því svæði í strangri vörzlu og lóga
tafarlaust veikurn hundum. Árið
1942 barzt þessi veiki í Hvalfjörð
og breiddist þá út um Borgarfjörð
og allt austur í Rangárvallasýslu.
Og eldri lieimildir segja frá
slíku hundafári, að lífhunda varð
að flytja milli landshluta, ]>egar
veikin, sem er vírusveiki, hafði
gengið yfir.
Faraldur sem þessi, hefur jafn-
an borizt með innfluttum hund-
um, sem fólk sækir oft fast að
smygla inn í landið. □
ólöglegum veiðum á þessu ári.
VÖXTUR SKULDA ERLENDIS
í NÝÚTKOMNUM Fjármála- Árið 1960 .... 2871 millj. kr.
tíðindum er skýrsla um föst - 1961 .... 2853 — —
lán erlendis („fastar erlendar - 1962 .... 2775 — —
skuldir") undanfarin 10 ár. — - 1963 .... 3173 — —
Þau hafa verið sem hér segir, - 1964 .... 3695 — —
talið í heilurn millj. króna og - 1965 .... 3912 — —
á núverandi gengi: Árið 1956 .... 1178 millj. kr. Samkv. þessu lánin aukizt um hafa erlendu 1987 millj. kr.
1957
1958
1959
. 1655
,. 1925
,. 2492
í tíð núverandi stjórnarflokka,
þ.e. írá árslokum 1958 til árs-
loka 1965.
Fjósamaður handtekinn
„Gjaldeyrisvarasjóðurinn6;
NÝYLEGA var lögreglan á Akur-
cyri beðin að handtaka fjósa-
mann einn í Eyjafirði og senda
hann suður yfir fjöll. Hann er að
sunnan, grunaður um ávísunar-
fals, og var ósk um handtöku hans
og suðurflutning að sunnan kom-
in. Akureyrarlögreglan sendi
manninn suður og fer rannsókn
máls hans fram þar, en bóndinn
vaið duglegum fjósamanni fátæk-
ari.
Upplýst er að fullu mál þeirra
ungu manna, sem brutust inn í
ilugskýli á Melgcrðismelum, og
fyrr var frá sagt hér í blaðinu, en
þeir skemmdu áður bifreið, er
þar var. Áfengi var með í óláns-
ferðum þessara manna (Samkv.
upplýsingum yfirlögregluþjóns).Q
Sarokvæmt heimild í Fjár-
málatíðindunum var inneign
bankanna erlendis 228,5 millj.
kr. í árslok 1958 en 1912 ntillj.
kr. í árslok 1965. Aukning hins
svonefnda „gjaldeyrisvara-
sjóðs" er því 1684 millj. kr. frá
1958 til 1965. Samkvæmt þessu
er aukning gjaldeyrisvarasjóðs
303 millj. kr. minni en aukn-
ing föstu skuldanna. Hér eru
ógreiddar lausaskuldir innflytj
enda erlendis ekki taldar með
en þær munu hafa aukizt vertt-
lega. Greiðslubyrðin vegna er-
lendra lána var 5,1% árið 1958
en 7,9% árið 1965 af gjaldeyris- J>
tekjum þjóðarinnar samkvæmt
skýrslu Fjármálatíðinda. □
til skattabreytingar. Þar að
auki hefði deildin haft til rann-
sóknar allt að 60 mál, þar af
20—30 rannsóknarmál, sem
yrðu til afgreiðslu hjá ríkis-
skattanefnd á næstunni. Ríkis-
skattanefnd hefði lokið ákviirð-
un skatta í 152 málurn, sem fyr-
ir voru Iögð og íiefðu þau leitt
til hækkunar tekjuskatts hjá
136 gjaldendum, samtals að upp
hæð 9,6 millj. kr., ennfremur
hefði eignaskattur hækkað hjá
43 gjaldendum um 4,5 millj. kr.
Þá hefði skattasektarnefnd
kveðið upp úrskurð í 80 málum
og hefði það leitt til sektar-
ákvörðunar samtals 5,3 millj.
kr.
SKARÐSBÓK
Skarðsbók, þýddar postulasög-
ur, sem bankar liér á landi létu
kaupa á uppboði erlendis fyrir
4,3 millj. kr. og „gera upp“ fyr-
ir 130 þús. krónur, er nú komin
heim. Seðlabankastjórinn ílutti
ræðu við það tækifæri, enn-
fremur menntamálaráðherra en
síðan var bókin látin í hendur
forstöðumanna Handritastofn-
unarinnar. Var um hana búið í
rósaviðarkassa. Talið er, að
handritið sé skráð í klaustrinu
á Helgafelli á 14. öld.
NÝTT RfKISFANGELSI
Fyrirhugað er, að reisa nýtt
ríkisfangelsi á Ulfarsá í Mos-
fellssveit, en þar er nú rekin
smádeild frá Kleppsspítalanum
og hafðir þar rólegir sjúklingar.
Samtímis á að breyta tilhögun
á Litla-Hrauni með það íyrir
augum að hafa fanganna meiri
not, þ. e. láta þá starfa að arð-
bærari verkefnum en hingað til
hefur verið. Þar verða, eftir til-
komu nýja ríkisfangelsinsins,
aðeins rólegir fangar, í stað
þess, að nú er Litla-Hraun allt
í senn; vinnufangelsi, geðveikra
spítali og sjúkrahús.
BÖRN „A FJALL1“
Ræðumaður einn sagði í út-
varpi sl. mánudag, að sig hefði
undrað, að sjá 78 böm eta soðn
ingu umyrðalaust á barnaheim
ili hjá bóndanum á Egilsá í
Skagafirði, enda hefðu þau
heila fjallshlíð til umráða í leik
og starfi. Já, það er gott fyrir
þéttbýlisfólk, að eiga börn sín
„á fjalli“ í slíkum högum, og
fá þau þroskaðri og heilbrigð-
ari á likama og sál, heim að
hausti. Á nokkrum bóndabæj-
um á landinu, er umönnun
kaupstaðarbarna á sumrin orð-
in atvinnugrein. Sennilegt er,
að þetta þyrfti að taka upp víð-
ar, e. t, v. í samvinnu við al-
mannasamtök í þéttbýlinu,
yngstu kynslóðinni til halds og
trausts.
BJARNI BIÐUR UM HJÁLP
Bjarni Benediktsson forsætis-
ráðherra hefur nú opinberlega
beðið um hjálp allra stétta til
að stöðva verðbólguna. Við
verðum að stöðva tekjuaukn-
inguna til handa hverjum og
einum, sagði hann — í eitt ár —
(Frambald á blaðsíðu 2.)