Dagur - 09.11.1966, Blaðsíða 1
Herbergis-
pantanir.
Ferða-
■kriístoían
Túngötu 1.
Akureyri,
Siml 11475
Ferðaskrifsfofan
Túngötu 1.
Siml 11475
Skipuleggjum
ierðir skauta
á millL
Farseðlar með
Flugfél. ísL og
Loftleiðum.
!; Sjónleikurinn „Koss í kaupbæti“ verður sýndur á Akureyri annað kvöld. Myndin er úr einu
1; atriði leiksins. (Ljósm.: Eðvarð Sigurgeirsson.) |!
Frá lögreglunni
Á LAUGARDAG var vöru-
bifreið ekið á kyrrstæðan fólks
bíl, sem skemmdist mjög. Eld-
ur varð laus í reykkofa, en var
slökktur. Kjöt eyðilagðist.
Sama dag varð árekstur hjá
Kristnesi. Mættust þar A-bíll
og Þ-bíll í hálku. Um kvöldið
varð harður árekstur á mótum
Byggðavegar og Hamarstígs.
Annar bíllinn rann einnig á
ljósastaur og girðingu. Skemmd
ir- urðu mjög miklar, og annar
bíllinn talinn ónýtur.
Bílvelta varð sunnudagsnótt-
ina á þjóðveginum norðan Krist
ness og lá bíllinn á toppnum,
mikið skemmdur, og á sunnu-
daginn urðu enn minniháttar
árekstrar. Á laugardagskvöldið
valt A-bifreið í Húnaþingi.
í árekstrum þessum urðu
ekki slys á mönnum. Q
Bæjarsfjórinn sækir um lausn
Bæjarstjórn samþykkti lausnarbeiðnina
Á FUNDI bæjarráðs Akur-
eyrarkaupstaðar 3. nóv. sl.
lagði Magnús E. Guðjónsson
bæjarstjóri fram erindi, þar
sem hann sækir um lausn
frá bæjarstjórastörfum með
þriggja mánaða fyrirvara.
Á bæjarstjómarfundi í
gær var mál þetta tekið fyr-
ir. Bæjarstjóri ítrekaði ósk
sína, áður rædda í bæjar-
ráði, að verða leystur frá
bæjarstjórastörfum frá 31.
janúar n. k., án þess þó að
gera verulega grein fyrir
henni. Bæjarfulltrúar voru
sammála um að verða við
þessum óskurn. Framsóknar
menn vildu þó fresta ákvörð
un um tímatakmörkin 31.
jan., ef tíminn reyndist of
skammur til starfsmanna-
skipta. Samþykkt 'var tillaga
ÍFramhald á blaðsíðu 2.)
Ágæt sífdveiði ef veður leyfir,
* ' r
segir Asmundur Jakobsson á Hafþóri
Á SÍLDARMIÐUM fyrir aust-
an land hefur síld gengið að
norðan nú að undanförnu. Það
er komið mikið síldarmagn á
allstórt svæði aust-suðaustur
frá Gerpi, sagði Ásmundur
Jakobsson skipstjóri á síldar-
leitarskipinu Hafþóri í gær, í
Heiff vafn í
Hamarslandi?
Dalvík 7. nóvember. Unnið er
nú við íþróttahúsið nýja. Eftir
er að leggja gólfið. Vonir
standa til að leikfimissalurinn
verði tilbúinn um áramót. Þar
er rúm fyrir 500 áhorfendur.
Yfirsmiður er Jón Stefánsson.
í dag var byrjað að bora
eftir heitu vatni við volgru eina
í landi Hamars í Svarfaðardals
hreppi. En þar álíta jarðfræð-
ingar, að árangur muni fást við
borun.
Vart fæst bein úr sjó vegna
ógæfta. J. H.
stuttu viðtali við blaðið. í nótt
var ágæt veiði.- 87 skip með
11400 lestir. En alls munu vera
um 130 íslenzk síldveiðiskip á
austurmiðum eða fleiri. Rúss-
neski reknetaflotinn er nokkru
norðar eða aust-suðaustur frá
Gletting og Dalatanga, um 70
mílur út. Fjöldamargir þýzkir
skuttogarar eru á miðum, þar
sem íslendingar veiða. Líklegt
er, sagði Ásmundur ennfremur,
að ágæt síldvelði sé framundan
ef veður leyfir. En undanfarið
hefur veðrátta verið mjög ó-
stillt og erfitt að stunda síld-
veiðarnar. Q
Á batiksýningunni á Akureyri. Frú Sigrún Jónsdóttir stendur
kirkjuna í Stærra-Árskógi.
gerði fyrir
(Ljósmynd E. D.)
BATIKSÝNING A AKUREYRI
Og stutt viðtal við frú Sigrúnu Jónsdóttur
UM ÞESSAR mundir stendur
yfir sérstæð sýning listaverka,
fyrsta batiksýningin, sem hald-
in er í höfuðstað Norðurlands.
Sýningarmunina gerði frú Sig-
rún Jónsdóttir, sem fyrst íslend
inga nam þessa listgrein í Sví-
þjóð. Sýningin er í Kaupangs-
stræti 4 og var opnuð á laugar
daginn. Margt manna kom þeg
ar fyrsta daginn og margir list-
munanna seldust þá strax.
Hvatamaður að þessari sýn-
ingu var Þóra Sigfúsdóttir
kaupkona á Akureyri. En fyrir
hana og ættfólk hennar á Ár-
skógsströnd hafði Sigrún gert
fagran hökul, sem prýðir
Fyrsfa áætlunarferð Flugfélagsins til Raufarhafnar
Raufarliöfn 7. nóv. Klukkan
hálf tólf í morgun kom til Rauf
arhafnar fyrsta vél Flugfélags
íslands í áætlunarflugi. Var það
Glófaxi, flugstjóri Ríkarður
Jónatansson. Allir, er vettlingi
gátu valdið komu út á flugvöll-
inn og fögnuðu komu vélarinn
ar. Þar með var hinn nýi 1200
m. flugvöllur að nokkru vígður,
þótt sjálf vígsluathöfnin sé eft-
ir. Lending og flugtak gekk vel.
Bráðlega verður byggt skýli
við völlinn. Afgreiðslumaður er
Friðgeir Steingrímsson.
Gerð hins nýja flugvallar
gekk mjög vel og framkvæmd-
in reyndist ódýrari en áætlað
var undir verkstjóm Júlíusar
Þórðarsonar. En Ásgeir Ágústs
son oddviti Raufarhafnarhrepps
aðstoðaði á ýmsan hátt hinar
velheppnuðu framkvæmdir og
fylgdist með verkinu af hrepps
ins hálfu.
Þegar gefur er róið, og er
ágætur fiskur á færi en mun
minni á línu. Ýsuveiði er minni
en búizt var við en meira af
þorski. Við höfum ekkert feng-
ið af síld nú lengi og hér er
rólegur bær. H. H.
Stærri-Árskógskirkju og er
hann á sýningunni. Hann er gef
inn til minningar um móður
hennar, Guðlaugu Ásmunds-
dóttur.
En Akureyringar þekkja hinn
hvíta og fagra hátíðahökul sinn
ar eigin kirkju, sem er saum-
aður af frú Sigrúnu. En fyrir
teikningu af honum hlaut hún
verðlaun í Svíaríki á námsárum
sínum þar.
Batikaskreytingar er fom,
austurlenzk listgrein, sem er að
ná útbreiðslu hér í álfu og hef-
ur nú skotið rótum hér á landi.
Er hér bæði um að ræða kirkju
lega skreytingalist, lislt til
skreytingar á öðrum mannvirkj
(Framhald á blaðsíðu 5).
Attatíu og fimm ára
JÓN MELSTAÐ, fyrrum bóndi
á Hallgilsstöðum í Arnarnes-
hreppi varð 85 ára 29. október
sl. Hann dvelur nú hjá sonum
sínum í Þórunnarstræti 103 hér
í bæ. Hefur enn fótavist og er
andlega hress. Blaðið sendir
honum beztu kveðjur. Q