Dagur - 09.11.1966, Side 2
2
Þór stofnar nýjan
skemmtiklúbb
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ ÞÓR hefir
nú öðlazt heimild til þess að
stofna og reka skemmtiklúbb
fyrir unglinga á komandi vetri,
sem kallaður verður „Þórs-
klúbburinn“. Mun klúbburinn
verða til húsa í Sjálfstæðishús-
inu og starfa þar annan hvorn
miðvikudag í allan vetur, fyrir
unglinga á aldrinum 15—21 árs,
en ákveðið hefir verið að þessi
starfsemi hefjist strax í kvöld,
miðvikudaginn 9. nóvember.
Að sjálfsögðu mun félagið
kappkosta og leggja metnað
sinn í það, að hlíta nákvæm-
lega öllum settum reglum um
skemmtanahald unglinga, auk
nokkurra skilyrða, sem félagið
sjálft mun setja, í von um þeim
mun betri árangur.. En til þess
að tryggja sem bezt eðlilega og
vítalausa framkvæmd, þá hefir
félagið þegar kjörið fimm
manna fastanefnd, sem ætlað er
að annast og ábyrgjast þessa
starfsemi að öllu leyti, allan
veturinn.
Tilgangur félagsins með þess
ari starfsemi er fyrst og fremst
sá, að efla sem sannastan félags
anda og auka heilbrigt sam-
starf félaga sinna og annarra
unglinga í bænum, með því að
gefa þeim kost á því að sækja
hollar og vínlausar dansskemmt
anir. Jafnframt verður svo
reynt, eftir föngum, að útvega
margvísleg atriði önnur, ýmist
til fróðleiks eða skemmtunar.
Það skal og sérstaklega fram
tekið að Hljómsveit lngimars
Eydal og Erla mun alltaf leika
og syngja. — Sjá nánar í götu-
auglýsingum.
(Fréttatilkynning frá stjórn
íþróttafélagsins Þórs.)
Leitað að brúarstæði
og lieitu vatni
Nesi Fnjóskadal 7. nóv. Hér er.
snjóhrafl en mikill snjór er út
á Flateyjardalsheiði. Á ýmsum
bæjum vantar enn allmargt fé.
Einkum vantar þá, sem reka fé
sitt á Flateyjardal. Þar voru
hættur miklar í vor.
Hér var á dögunum verið að
kanna land fyrir stólpa nýrrar
ÁTTRÆÐ
MARÍA STEFÁNSDÓTTIR frá
Samkomugerði varð áttræð 30.
okt. sl. Hún er fædd 1886 að
Bjarnastöðum í Blönduhlíð í
Skagafirði, en er nú til heimilis
að Munkaþverárstræti 42 Akur
eyri. □
- BÆJARSTJÓRINN
SÆKIR UM LAUSN
(Framhald af blaðsíðu 1)
Braga Sigurjónssonar um að
bæjarstjórn féllist á lausnar
beiðnina frá nefndum tíma
að telja.
Er þar með ákveðið, að
Magnúk E. Guðjónsson, sem
verið hefur bæjarstjóri á
Akurcyri um nálega 9 ára
skeið, hættir störfum, en
ráðinn verður nýr bæjar-
stjóri í hans stað. Q
brúar sem ákveðið er að byggja
á Fnjóská um einn km. norðan
við Nés. .Heitir þar Ljótstaða-
nes. Þar fannst góður grunnur.
Brú þessi verður á þrem stöpl-
um. Umferð um Fnjóskábrú er
oft um 500 bílar á dag á sumr-
in, og er gamla brúin orðin
gömul og léleg og þörf nýrrar.
Verið er að bora eftir heitu
vatni á Stóru-Tjörnum á hjalla
einum norðvestur af bænum og
hærra uppi en áður var borað.
Borholan er orðin 50 metrar á
dýpt og . ofurlítið . af 45 stiga
heitu vatni streymir þar upp.
Heitara vatn kemur upp úr
jörðu rétt við borholuna. Búist
er við að með méiri borun náist
það vatn og meira.
Tvær tófur voru skotnar í
göngunum á Flateyjardalsheiði
og allmargir minkar hafa verið
drepnir við Fnjóská í haust.
Á tíunda hundrað lamba hafa
verið sett á vetur í Fnjóskadal
og eru það fleiri líflömb en áð-
ur. Nautgripaslátrun er mikil.
V. K.
- Steinsstaðaskóli
(Framhald af blaðsíðu 8).
Lýtingsstaðahreppi og var hann
fyrsti hreppur í sýslunni sem
það gerði. Haustið 1965 tók
framhaldsdeildin til starfa,
fyrsti bekkur með um 30 nem
endum. Af þeim nemendum var
þriðjungur úr öðrum sveitum.
Nú í vetur verður framhalds-
deildin með bæði fyrsta og ann
an bekk. Lokið er gagngerðum
endurbótum á íbúðarhúsinu og
verður það heimavistarhús fyr-
ir um 20 nemendur. Þá stendur
yfir og er langt komið viðgerð
á gömlu ungmennafélagshúsinu
og verður það notað fyrir
kennslustofu. - B. E.
- EIGUM VIÐ AÐ ENDURFÆÐA HÓU-JÓN?
(Framhald af blaðsíðu 4)
Auðvelt var fyrir ráðamenn í
báðum löndunum að hlaupa frá
krónu sem óvinaþjóð hafði eyði
lagt. En forráðamenn þessara
þjóða vildu ekki bregðast þjóð
sinni með því að fylgja í spor
óvinanna. í stað þess réttu
Danir og Norðmenn við sínar
föllnu myntir. Heiðarleg þjóð
setur sér það takmark að eiga
heiðarlega mynt og drengileg
fjármálaskipti. Niðurlæging ís-
lenzkrar krónu síðan 1946 er
varanlegur blettur á stjórnar-
fari landsins á undangengnum
20 árum.
Með krónufalli kom upplausn
í allt stjórnarfarið. Þing og þjóð
hafði ekki lengur vald yfir
launagi’eiðslum til starfsmanna
landsins og gafst þá líka upp í
þeim efnum og setti nefnd val-
inna launamanna til að raða
starfsfólkinu í smá fylkingar og
skammta þeim laun og embætt-
isaðstöðu. Ekki er vitað að nokk
ur menntuð þjóð hafi fyrr en
íslendingar í þetta sinn gripið
til þvílíkra aðgerða í skiptum
við þegnana. Hér var um stund
arfrið að ræða og sífelldar kröf
ur berast til stjórnarvaldanna
um nýjar launabætur og er þar
ekki friðar að vænta þar sem
verðmiðillinn er á tilgangslausri
fallhreyfingu. Síðasti þáttur
launastríðsinS var tefldur í vor
sem leið. Þá gerði ein tylft
lækna eða vel það uppsteit á
móti stjóminni, heimtaði mikla
kauphækkun en hótaði annars
að flýja land, vestur um haf.
Að lokum komst bráðabirgðar
friður á sem ekki hefir þótt
hlýða að segja frá opinberlega.
Beztu veiðimennirnir ætla sér
hálfa milljón í ársþóknun eða
meira fyrir ársómökin.
Nú verður aðeins einum litl-
um þætti bætt við þá upplausn
.arsögu sem hófst þegar gróða-
gjarnir menn notuðu réttmæt-
an ótta íslendinga við yfirvof-
andi innrás Hitlers 1940—41 til
að fá hingað varnarlið sem borg
aði vinnu og vöru með dollur-
um. Peningasýkin varð þá
óslökkvandi. Ríkisstjórnin taldi
nauðsynlegt haustið 1966 að
hækka fjárlög næsta árs um
800 milljónir. Hóla-Jón hafði
setið við stýrið í aldarfjórðung.
Hækkun fjárlaganna er í sam-
ræmi við aðrar fjárreiður þjóð-
félagsins á undangengnu ára-
bili.
Þegar Magnús Jónsson guð-
ARNARDALSÆTTIN
VALDIMAR BJÖRN VALDI-
MARSSON frá Hnífsdal hefur
gefið út tvær ættfræðibækur,
Arnardalsætt. Nú hefur hann í
hyggju að gefa út þriðja bindið
af Arnardals- og Eyrardalsætt
um á næsta ári. Verður þar
nafnaskrá, sem nær yfir allt
verkið. Vestfirðingar, og raun-
ar margir aðrir, hafa eflaust
áhuga á bókum þessum. Iiér á
Akureyri geta menn gerst
áskrifendur að nýju bókinni
hjá Sigurði Baldvinssyni Þing-
vallastræti 8. — Sjá auglýsingu
í blaðinu í dag. Q
fræðiprófessor var settur yfir
hallærisnefndina sagði hann í
gamansömum tón: „Hvenær
kemur hrunið?“ Enn er spurt:
Hvenær kemur endurreisn eða
nýlendustjórn? Q
SKYTTUR!
Farið vel með byssuna.
4 gerðir af amerískum
BYSSUPOKUM
HÖGGDEYFAR
BYSSUÓLAR, tvöfaldar
BYSSUBLÁMI
BYSSUOLÍA
Brynjólfur
Sveinsson h.f.
TIL SÖLU:
Skápur og bókahilla.
Uppl. í síma 1-16-63.
ÚTSÆÐIS-
KARTÖFLUR
Get selt dálítð af útsæði
í vor, ef pantað er strax.'
Kristinn Sigmundsson,
Arnarhóli.
Þrísettur
STOFUSKÁPUR
með gleri til sölu og
einnig borðstofuborð.
Uppl. í síma 1-24-26.
TIL SÖLU:
2 eldavélar, Rafha og
Frigideare, hentug fyrir
stórt heimili. Einnig
2 Zig Zag saumavélar
í skáp.
Uppl. í síma 2-10-30
og 2-11-56.
MÓTORHJÓL til sölu
Uppl. í síma 2-10-15
á kvöldin.
TIL SÖLU:
16 ær og veturgamall
hrútur, ásamt 50—60
hestum af heyi.
Hringið í síma 1-19-98
kl. 71/2 til 8l/2 að kvöldi
HROSS TIL SÖLU
Laugardaginn 12. nóv. kl.
1 e. h. verða til sölu að
Vöglum á Þelamörk full-
orðin liross og nokkur
folöld.
Hallgrímur Hallgrímsson
TIL SÖLU:
Ný kvikmyndasýningarvél
Silma Compact 8.
Uppl. í síma 1-26-77.
TIL SÖLU:
Strauvél, þvottavél og
saumavél. Selst ódýrt.
Uppl. í Víðimýri 13.
LJÓSASAMLOKUR
6, 12 og 24 volta
PERUR
í flestar gerðir bifreiða.
ÞÓRSHAMAR H.F.
Varalilutaverzlun
BÍLASALA HÖSKULDAR
Volkswagen, árg. 1966
Volkswagen 1500, árg. ’65
Greiðsluskilmálar.
Moskvits, árg. 1966,
verð kr. 125 þús.
Ford Bronco, árg. 1966
Ford Zephyr, árg. 1955
Skipti á nýrri bíl
Volga, árg. 1958,
verð kr. 40 þús.
Útborgun 10—15 þús.
o. m. m. fl.
Einnig Ford Trader,
árg. 1963, hægt að taka
ódýrari bíl upp í.
BÍLASALA HÖSKULDAR
Túngötu 2, sími 11909
TIL SÖLU:
NÝR RÚSSAJEPPI
Upplýsingar gefur
Jóhannes Kristjánsson,
Sími 1-27-50 og 1-12-49
TIL SÖLU:
OPEL KAPITAN,
árgerð 1960.
Nýlega yfirfarinn.
ÖH dekk ný.
Sími 2-10-75
eftir kl. 7 síðdegis.
VÖRUBÍLL TIL SÖLU
Hentugur fyrir sveita-
heimili. Allar upplýsing-
ar gelnar í Efnag. Flóru
(lager).
TIL SÖLU:
Volkswagen 1300,
árgerð 1966.
Ekinn 7000 km.
Uppl. í síma 1-12-28
eftir kl. 7.
BIFREIÐIN A-2521
sem er Ford Zodiac,
árgerð 1958, er til sölú.
Uppl. í síma 2-10-67
eftir kl. 7 á kvöldin,-
TIL SÖLU.
PEUGÖUT BIFREIÐ
á nýjum dekkum og ný-
yfirfarin vél. Selst ódýrt.
Uppl. í síma 1-20-60.